Morgunblaðið - 26.03.2004, Síða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 31
Bílgreinasambandið
Aðalfundur BGS verður haldinn á
Hótel Loftleiðum laugardaginn 27. mars nk.
Kl. 09.00 Fundarsetning: Erna Gísladóttir,
formaður BGS.
Ávarp: Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra.
Kl. 09.30 - 10.00 Erindi: Samanburður á valkostum við útfærslu
bifreiðahlunninda, Bernhard Bogason hjá KPMG.
Kl. 10.00 - 10.30 Aðalfundur.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kl. 10.30 - 10.45 Kaffihlé.
Kl. 10.45 - 12.30 Sérgreinafundir:
Verkstæðafundur.
1. Hugmyndir um viðurkenningu verkstæða.
Samingur um viðurkennd verkstæði BGS
Gæðakerfi almennra bílaverkstæða.
2. Meistaranám - Sérfræðinám - Námskeið.
3. Breytingar á grunnnámi.
4. Frankfurtferð.
Bílamálarar og bifreiðasmiðir.
1. Cabas tjónamatskerfið.
a) Yfirlit um spurningar og svör Cabasnefnda.
b) Áhersluatriði varðandi þróun Cabaskerfisins.
c) Kynnisferð til Svíþjóðar vegna Cabas.
2. Nýjungar og námskeið í bílamálun og
réttingum.
3. Vottun á réttingarverkstæðum.
a) Eftirlit - kvartanir.
b) Burðarvirkismælingar - tjónabifreiðir.
4. Frankfurtferð.
Bifreiðainnflytjendur.
1. Bifreiðahlunnindi - Erindi Bernhards
Bogasonar.
2. BER - Baldvin Hafsteinsson.
3. Vörugjöld á ökutæki.
4. Bifreiðagjöld.
5. Bíló - Raunverð.
Smurstöðvar.
1. Samningur um viðurkenndar smurstöðvar.
a) Verkþættir - skilgreiningar - verkbeiðnir.
b) Þjónustukaupalög - upplýsingar.
c) Olíufélögin - bensínstöðvar.
2. Námskeið - gæðaátak.
Varahlutasalar.
1. Varahlutaupplýsingar í Cabas kerfinu.
2. Sérpantanir varahluta í Cabas.
3. Vörugjöld á varahluti.
4. Starfsreglur - starfsleiðbeiningar fyrir
varahlutasala.
5. Námskeið - menntun.
6. Frankfurtferð.
Stjórn BGS
Erna
Gísladóttir
Sturla
Böðvarsson
AÐALTÓNLEIKAR starfsársins
hjá Söngsveitinni Fílharmóníu verða
í Langholtskirkju á morgun, laug-
ardag, kl. 17.00 og nk. þriðjudags-
kvöld kl. 20.00. Flutt verða tvö stór
kórverk, Dixit Dominus eftir G. F.
Handel og hin svonefnda Páku-
messa eftir J. Haydn, sem einnig er
þekkt undir heitinu Messa á stríðs-
tímum. Einsöngvarar tónleikanna
eru Hlín Pétursdóttir sópran, Xu
Wen sópran, Sesselja Kristjáns-
dóttir mezzósópran, Eyjólfur Eyj-
ólfsson tenór og Davíð Ólafsson
bassi. Konsertmeistari kamm-
ersveitarinnar, sem annast undir-
leik, er Zbigniew Dubik. Stjórnandi
tónleikanna er Óliver Kentish, en
hann hefur stjórnað Söngsveitinni í
vetur meðan aðalstjórnandi kórsins,
Bernharður Wilkinson, var í árs-
leyfi.
Spurður um efnisskrána segir Óli-
ver Kentish að í gegnum tíðina hafi
Söngsveitin flutt talsvert af verkum
eftir bæði Handel og Haydn, sem
dæmi má nefna að sl. vor flutti kór-
inn Messías eftir Handel og vorið
2002 Messu heilagrar Sesselju eftir
Haydn. „Hins vegar hafi Dixit Dom-
inus aldrei verið flutt hérlendis áður,
að því ég best veit, og Pákumessan
var síðast flutt á tónleikum fyrir
tæpum þrjátíu árum, þannig að það
var sannarlega kominn tími til að
flytja þessi verk. Þau eiga ekki síður
erindi við okkur í dag, en á rit-
unartímanum, enda meginþema
verkanna stríð og friður.“
Handel samdi Dixit Dominus fyrir
Karmelítaregluna í Róm snemma
árs 1707, þá aðeins 22 ára að aldri.
„Þetta er elsta handritið sem vitað
er um eftir Handel og ber verkið svo
sannarlega með sér að vera verk
ungs manns, því það er mjög þrótt-
mikið og afar glæsileg tónsmíð. Þeg-
ar Handel var að semja verkið í Róm
á sínum tíma var bannað að semja
óperur, en þetta kirkjuverk felur
samt í sér mikla dramatík þannig að
það mætti lýsa því sem mjög óp-
erulegu, þótt þetta sé ekki ópera.“
Að sögn Ólivers gerir Handel
miklar kröfur til kórsins í verkinu.
„Sópraninn er tvískiptur allan tím-
ann, en verkið er samið fyrir fimm
radda kór og strengjasveit. Það má
segja að stólparnir í verkinu séu þrír
stórir kórkaflar, í byrjun verksins,
um miðbik og í lokin, en inn á milli
eru síðan kyrrlátir einsöngskaflar.“
Ákall um frið
Pákumessa eða Messa á stríðs-
tímum eins og Haydn nefndi verkið
sjálfur var samið 1796 í skugga
Napóleonsstyrjaldanna. Að sögn
Ólivers er þetta önnur messan í röð
sex sem Haydn samdi í tilefni af
nafndegi Hermenegild, eiginkonu
Nikulásar prins í Austurríki, en talið
er að verkið hafi verið frumflutt í
árslok 1796. „Þegar Haydn var að
semja messuna átti Austurríki í
hörmulegu stríði við Frakka og herir
Napóleons voru óðum að nálgast
Vínarborg, þannig að þetta var afar
hættulegur tími.“
Óliver segir að líklega megi rekja
nafngift verksins til þess hve pák-
urnar eru áberandi í verkinu. „Það
er líkt og Haydn sé að lýsa nálægð
franska hersins, því pákurnar
hljóma eins og hertrumbur í fjarska.
Það má skynja fremur ógnvænlegan
undirtón í verkinu og þegar kórinn, í
lokakaflanum, biður um frið með
bænarorðunum „Gef oss þinn frið“
þá virkar það í raun fremur eins og
tónskáldið sé að heimta frið því bæði
pákur og trompetar koma sterkt inn
í þetta bænakall.“
Að sögn Ólivers eru þessir tón-
leikar síðasta stórverkefnið sem
hann stjórnar með Söngsveitinni, en
hann var ráðinn til starfa í vetur
meðan Bernharður Wilkinson, að-
alstjórnandi kórsins, fór í ársleyfi.
„Ég held auðvitað áfram að vinna
með kórnum fram á vor, en þá verð-
um við með minna prógramm til-
einkað íslenskum lögum sem ætl-
unin er að flytja í einhverju
nágrannabæjarfélaginu.“
Óliver segir störf sín með Söng-
sveitinni hafa verið afar lærdómsrík
fyrir sig. „Ég er vanur að stjórna
hljómsveitum, en hafði aðeins einu
sinni áður stjórnað kór áður þegar
ég tók að mér stjórn Söngsveit-
arinnar. Það er náttúrlega mikill
munur á því að stjórna hljómsveit og
kór, því í kórstjórn þarf maður allt í
einu t.d. að fara að hugsa um texta-
meðferðina og öndun. Að mörgu
leyti er þetta búið að vera ansi
strembinn vetur, enda stíf dagskrá,
en að sama skapi hefur þetta verið
mjög gaman og því ekki laust við að
ég sé kominn með kórstjórnarbakt-
eríuna,“ segir Óliver og þakkar að
lokum samstarfsfólki sínu, ekki síst
undirleikurunum Guðríði St. Sigurð-
ardóttur og Sólveigu Önnu Jóns-
dóttur auk Xu Wen sem annast hef-
ur raddþjálfun kórsins, fyrir
ánægjulegt samstarf í vetur.
Söngsveitin Fílharmónía flytur Dixit Dominus eftir Handel og Pákumessuna eftir Haydn
Kominn tími
til að flytja
þessi verk
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá æfingu Söngsveitarinnar Fílharmóníu, en aðaltónleikar kórsins á þess-
um vetri verða í Langholtskirkju á morgun og nk. þriðjudagskvöld.
silja@mbl.is