Morgunblaðið - 26.03.2004, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.03.2004, Qupperneq 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 31 Bílgreinasambandið Aðalfundur BGS verður haldinn á Hótel Loftleiðum laugardaginn 27. mars nk. Kl. 09.00 Fundarsetning: Erna Gísladóttir, formaður BGS. Ávarp: Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra. Kl. 09.30 - 10.00 Erindi: Samanburður á valkostum við útfærslu bifreiðahlunninda, Bernhard Bogason hjá KPMG. Kl. 10.00 - 10.30 Aðalfundur. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kl. 10.30 - 10.45 Kaffihlé. Kl. 10.45 - 12.30 Sérgreinafundir: Verkstæðafundur. 1. Hugmyndir um viðurkenningu verkstæða. Samingur um viðurkennd verkstæði BGS Gæðakerfi almennra bílaverkstæða. 2. Meistaranám - Sérfræðinám - Námskeið. 3. Breytingar á grunnnámi. 4. Frankfurtferð. Bílamálarar og bifreiðasmiðir. 1. Cabas tjónamatskerfið. a) Yfirlit um spurningar og svör Cabasnefnda. b) Áhersluatriði varðandi þróun Cabaskerfisins. c) Kynnisferð til Svíþjóðar vegna Cabas. 2. Nýjungar og námskeið í bílamálun og réttingum. 3. Vottun á réttingarverkstæðum. a) Eftirlit - kvartanir. b) Burðarvirkismælingar - tjónabifreiðir. 4. Frankfurtferð. Bifreiðainnflytjendur. 1. Bifreiðahlunnindi - Erindi Bernhards Bogasonar. 2. BER - Baldvin Hafsteinsson. 3. Vörugjöld á ökutæki. 4. Bifreiðagjöld. 5. Bíló - Raunverð. Smurstöðvar. 1. Samningur um viðurkenndar smurstöðvar. a) Verkþættir - skilgreiningar - verkbeiðnir. b) Þjónustukaupalög - upplýsingar. c) Olíufélögin - bensínstöðvar. 2. Námskeið - gæðaátak. Varahlutasalar. 1. Varahlutaupplýsingar í Cabas kerfinu. 2. Sérpantanir varahluta í Cabas. 3. Vörugjöld á varahluti. 4. Starfsreglur - starfsleiðbeiningar fyrir varahlutasala. 5. Námskeið - menntun. 6. Frankfurtferð. Stjórn BGS Erna Gísladóttir Sturla Böðvarsson AÐALTÓNLEIKAR starfsársins hjá Söngsveitinni Fílharmóníu verða í Langholtskirkju á morgun, laug- ardag, kl. 17.00 og nk. þriðjudags- kvöld kl. 20.00. Flutt verða tvö stór kórverk, Dixit Dominus eftir G. F. Handel og hin svonefnda Páku- messa eftir J. Haydn, sem einnig er þekkt undir heitinu Messa á stríðs- tímum. Einsöngvarar tónleikanna eru Hlín Pétursdóttir sópran, Xu Wen sópran, Sesselja Kristjáns- dóttir mezzósópran, Eyjólfur Eyj- ólfsson tenór og Davíð Ólafsson bassi. Konsertmeistari kamm- ersveitarinnar, sem annast undir- leik, er Zbigniew Dubik. Stjórnandi tónleikanna er Óliver Kentish, en hann hefur stjórnað Söngsveitinni í vetur meðan aðalstjórnandi kórsins, Bernharður Wilkinson, var í árs- leyfi. Spurður um efnisskrána segir Óli- ver Kentish að í gegnum tíðina hafi Söngsveitin flutt talsvert af verkum eftir bæði Handel og Haydn, sem dæmi má nefna að sl. vor flutti kór- inn Messías eftir Handel og vorið 2002 Messu heilagrar Sesselju eftir Haydn. „Hins vegar hafi Dixit Dom- inus aldrei verið flutt hérlendis áður, að því ég best veit, og Pákumessan var síðast flutt á tónleikum fyrir tæpum þrjátíu árum, þannig að það var sannarlega kominn tími til að flytja þessi verk. Þau eiga ekki síður erindi við okkur í dag, en á rit- unartímanum, enda meginþema verkanna stríð og friður.“ Handel samdi Dixit Dominus fyrir Karmelítaregluna í Róm snemma árs 1707, þá aðeins 22 ára að aldri. „Þetta er elsta handritið sem vitað er um eftir Handel og ber verkið svo sannarlega með sér að vera verk ungs manns, því það er mjög þrótt- mikið og afar glæsileg tónsmíð. Þeg- ar Handel var að semja verkið í Róm á sínum tíma var bannað að semja óperur, en þetta kirkjuverk felur samt í sér mikla dramatík þannig að það mætti lýsa því sem mjög óp- erulegu, þótt þetta sé ekki ópera.“ Að sögn Ólivers gerir Handel miklar kröfur til kórsins í verkinu. „Sópraninn er tvískiptur allan tím- ann, en verkið er samið fyrir fimm radda kór og strengjasveit. Það má segja að stólparnir í verkinu séu þrír stórir kórkaflar, í byrjun verksins, um miðbik og í lokin, en inn á milli eru síðan kyrrlátir einsöngskaflar.“ Ákall um frið Pákumessa eða Messa á stríðs- tímum eins og Haydn nefndi verkið sjálfur var samið 1796 í skugga Napóleonsstyrjaldanna. Að sögn Ólivers er þetta önnur messan í röð sex sem Haydn samdi í tilefni af nafndegi Hermenegild, eiginkonu Nikulásar prins í Austurríki, en talið er að verkið hafi verið frumflutt í árslok 1796. „Þegar Haydn var að semja messuna átti Austurríki í hörmulegu stríði við Frakka og herir Napóleons voru óðum að nálgast Vínarborg, þannig að þetta var afar hættulegur tími.“ Óliver segir að líklega megi rekja nafngift verksins til þess hve pák- urnar eru áberandi í verkinu. „Það er líkt og Haydn sé að lýsa nálægð franska hersins, því pákurnar hljóma eins og hertrumbur í fjarska. Það má skynja fremur ógnvænlegan undirtón í verkinu og þegar kórinn, í lokakaflanum, biður um frið með bænarorðunum „Gef oss þinn frið“ þá virkar það í raun fremur eins og tónskáldið sé að heimta frið því bæði pákur og trompetar koma sterkt inn í þetta bænakall.“ Að sögn Ólivers eru þessir tón- leikar síðasta stórverkefnið sem hann stjórnar með Söngsveitinni, en hann var ráðinn til starfa í vetur meðan Bernharður Wilkinson, að- alstjórnandi kórsins, fór í ársleyfi. „Ég held auðvitað áfram að vinna með kórnum fram á vor, en þá verð- um við með minna prógramm til- einkað íslenskum lögum sem ætl- unin er að flytja í einhverju nágrannabæjarfélaginu.“ Óliver segir störf sín með Söng- sveitinni hafa verið afar lærdómsrík fyrir sig. „Ég er vanur að stjórna hljómsveitum, en hafði aðeins einu sinni áður stjórnað kór áður þegar ég tók að mér stjórn Söngsveit- arinnar. Það er náttúrlega mikill munur á því að stjórna hljómsveit og kór, því í kórstjórn þarf maður allt í einu t.d. að fara að hugsa um texta- meðferðina og öndun. Að mörgu leyti er þetta búið að vera ansi strembinn vetur, enda stíf dagskrá, en að sama skapi hefur þetta verið mjög gaman og því ekki laust við að ég sé kominn með kórstjórnarbakt- eríuna,“ segir Óliver og þakkar að lokum samstarfsfólki sínu, ekki síst undirleikurunum Guðríði St. Sigurð- ardóttur og Sólveigu Önnu Jóns- dóttur auk Xu Wen sem annast hef- ur raddþjálfun kórsins, fyrir ánægjulegt samstarf í vetur. Söngsveitin Fílharmónía flytur Dixit Dominus eftir Handel og Pákumessuna eftir Haydn Kominn tími til að flytja þessi verk Morgunblaðið/Jim Smart Frá æfingu Söngsveitarinnar Fílharmóníu, en aðaltónleikar kórsins á þess- um vetri verða í Langholtskirkju á morgun og nk. þriðjudagskvöld. silja@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.