Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i.12 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.
„Frábærar
reiðsenur,
slagsmálatrið
i, geggjaðir
búningar og
vel útfærðar
tæknibrellur“
Fréttablaðið
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær
gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd
sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla
greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
Fyrsta
stórmyndsumarsins.
SV. MBLVE. DV
Tær snilld.
Skonrokk.
Stranglega bönnuð
innan 16 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8, 9.15 og 10.30. (POWERSÝNING kl. 10.30.)
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar
í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar sem hetjan
Van Helsing á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
Tvíhöfði
DV
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
VINSÆL
ASTA
MYNDIN
Á ÍSLAN
DI!
POWERSÝNING
kl. 10.30.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“ FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG
„THE MUMMY RETURNS“
Útlit myndarinnar er frábært. Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks.
Van Helsing er alvöru sumarpoppkornssmellur sem stendur fyllilega
undir væntingum.
Þ.Þ. Fréttablaðið.
Tvíhöfði
DV
Fyrsta
stórmyndsumarsins.
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
VINSÆL
ASTA
MYNDIN
Á ÍSLAN
DI!
Valin besta breska
myndin á BAFTA
verÐlaunahátíÐinni
SKONROKK
HJ MBL
J.H.H
Kvikmyndir.com
Það er óralangt
síðan ég sá jafn
skelfilega
grípandi mynd.
Án efa ein
besta myndin í
bíó í dag.
KD, Fréttablaðið
„Þetta er
stórkostlegt
meistaraverk“
ÓÖH, DV
tt r
t r tl t
i t r r
,
Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ
. .
i ir.
Með Íslandsvininum, Jason Biggs úr „American Pie“ ofl.
frábærum leikurum eins og Woody Allen, Danny DeVito, Christina
Ricci (Sleepy Hollow) og Stockhard Channing (West Wing).
Ný rómantísk gamanmynd
frá háðfuglinum
Woody Allen
FRUMSÝNING
Hljómsveitin Mínus er í stuttriheimsókn á Íslandi eftirtónleikaferðalag um Eng-
land, Skotland, Wales, N-Írland og
Írland. Íslendingum gefst færi á að
sjá strákana á tónleikum í kvöld á
Gauki á Stöng ásamt Manhattan og
Hoffman. Af því tilefni ræddi Morg-
unblaðið við Frosta Logason, annan
gítarleikara sveitarinnar.
– Hvernig gekk í Bretlandi?
„Þetta gekk rosalega vel og var
mjög skemmtilegt. Þetta var þrí-
skiptur túr, við vorum að túra með
skemmtilegri hljómsveit sem heitir
Amen. Það er túr sem við munum
aldrei gleyma og meðlimirnir í
Amen eru orðnir okkar bestu vinir.
Við hefðum ekki viljað skipta þessu
út fyrir neitt. Síðan var túr með
skoskri sveit sem heitir Biffy Clyro
en ég missti alveg af honum. Ég sá
ekki einu sinni þessa hljómsveit því
ég lá með lungnabólgu,“ segir
Frosti.
„Ég var ansi slappur, ég get ekki
sagt annað. Var búinn að vera á hita-
stillandi verkjalyfjum í nokkra daga
þegar ég ákvað að kíkja á spítala og
þá kom í ljós að ég var með lungna-
bólgu. Þá ákváðum við að ég mundi
reyna að liggja þetta úr mér eins
lengi og ég gæti. Ég lá alveg í tíu
daga,“ segir Frosti. En strákarnir
björguðu sér og túrinn hélt áfram.
„Sem betur fer var þetta gítarleikari
sem varð veikur en ekki trommarinn
eða eitthvað því að við erum með tvo
gítarleikara. Þá gátu strákarnir
haldið áfram,“ segir Frosti með við-
horfi sæmandi Pollýönnu.
Hann er orðinn hress núna, segist
„betri en nýr“ og er búinn að raka af
sér veikindaskeggið sem hann safn-
aði úti.
Mínus hélt síðan nokkra tónleika
upp á eigin spýtur. „Síðasta legginn
vorum við með okkar eigin túr.
Þetta voru nokkrir dagar þar sem
við skemmtum okkur konunglega,“
segir hann.
– Og hvað stendur upp úr eftir
ferðalagið?
„Það stóð upp úr þessi Amen-túr
allur og svo tónleikarnir sem við
spiluðum á 100 Club á Oxford Street
í lokin. Það var mjög gaman. Þetta
er sögufrægur staður þar sem Roll-
ing Stones og Who og fleiri hafa spil-
að.“
Strákarnir í Mínus eru ekki búnir
á tónleikaferðalaginu því eftir helgi
fara þeir til Þýskalands, Austurríkis
og Ítalíu og spila á fjölmörgum tón-
leikum. Þeir verða því áfram á tölu-
verðu flakki næstu vikurnar, mest á
nýjum slóðum því að Þýskaland er
eina landið af þessum þar sem þeir
hafa spilað áður. Ferðalagið leggst
bara vel í þá og Frosti segir þá
spennta að fara út í evrópsku sólina
og sumarið.
– Hvernig leggjast tónleikarnir á
Gauknum í þig?
„Við erum mjög ánægðir að geta
tekið eina tónleika heima í millitíð-
inni. Við ætlum bara aðeins að
minna á okkur fyrst við erum svona
mikið að heiman.“
– Hvernig líst þér á að hita upp
fyrir Metallica?
„Það er alveg frábært. Þetta er
hljómsveit sem við allir höfum alist
upp með. Það verður ekki síst gam-
an að spila fyrir framan svona mikið
af Íslendingum. Ég reikna alveg
fastlega með því að það verði upp-
selt. Þetta verða tónleikar ald-
arinnar.“
Mínus, Manhattan og Hoffman á Gauknum í kvöld í Jack Live-tónleikaröð X-ins
Lungnabólga og heimkomutónleikar
Ljósmyndari/John Mack
„Þetta er hljómsveit sem við allir erum búnir að alast upp með. Það verður ekki síst gaman að spila fyrir framan
svona mikið af Íslendingum,“ segir Frosti m.a. um að hita upp fyrir Metallica í Egilshöll.
Hljómsveitin Mínus
tekur sér hlé frá tón-
leikaferð um Evrópu
og spilar á Gauknum í
kvöld. Sveitin er líka
að fara að hita upp
fyrir Metallica á stór-
tónleikum í Egilshöll.
ingarun@mbl.is
EINHVERJUM sem fylgdust með
lokaþætti Vina sem sýndur var í
Bandaríkjunum í síðustu viku, mun
hafa brugðið í brún er þeir heyrðu
lagabút með hljómsveitinni Pearl
Jam í þættinum.
Sveitin sú hefur hingað til verið
þekkt fyrir að forðast samneyti við
stórfyrirtæki og markaðsöfl og var
þetta í fyrsta sinn sem lag hennar
heyrist í sjónvarpsþætti.
Yellow Ledbetter heitir lagið en
aðstandendur þáttarins þurftu ein-
ungis að fá leyfi hljómsveitarinnar
til að nota það og var það fúslega
veitt. Ákvörðunin kemur á óvart en
hvort um gagngera stefnubreyt-
ingu hjá hljómsveitinni er að ræða
er ekki vitað. Kannski eru meðlimir
Perl Jam bara svona miklir Vina-
aðdáendur, hver veit?
Pearl Jam-
lag í Vinum