Morgunblaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Stórviðburður ársins er kominn!
Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri
stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen.
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i
KRINGLAN
Sýnd kl. 11, 12, 1, 2, 3.30, 4, 5, 6.30, 8 og 11. Hádegisbíó kr. 400 kl. 11 og 12.
HEIMSFRUMSÝNING
Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter er komin í bíó.
Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð.
HÁDEGISBÍÓ Í SAMBÍÓUM, KRINGLUNNI
MIÐAVERÐ KR. 400 Á ALLAR MYNDIR KL. 11 OG 12
Ó.H.T Rás2
Sýnd kl. 4, 6, 7, 9 og 10. B.i.14 ára.Sýnd kl. 3, 4, 6, 7, 9 og 10. Sýnd í stóra salnum 3, 6 og 9.
Sýnd kl. 3, 6 og 9. B.i. 12 ára
Stórviðburður ársins er kominn!
Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri stórmynd
undir leikstjórn Wolfgang Petersen.
Í SNERTINGU
VIÐ TÓMIÐ
SKONROKK
Kvikmyndir.is
HJ MBL
J.H.H
Kvikmyndir.com
„Þetta er
stórkostlegt
meistaraverk“
ÓÖH, DV
tt r
t r tl t
i t r r
,
. .
i ir.
Það er óralangt
síðan ég sá jafn
skelfilega
grípandi mynd.
Án efa ein
besta myndin í
bíó í dag.
KD, Fréttablaðið
l
í j f
lfil
í i .
f i
i í
í í .
, r tt l i
ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA
ÓDAUÐLEGAR HETJUR
GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA
AÐ EILÍFU!
L Í
L J
I LIF
ILÍF !
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i
SV MBL
Sýnd kl. 3.
Tvíhöfði
DV
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter er komin í bíó.
Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð.
HEIMSFRUMSÝNING
Ó.H.T Rás2
TÓNLISTARMAÐURINN Van Morrison er væntanlegur
til landsins og mun halda tónleika í Laugardalshöll 2.
október. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í samstarfi tón-
leikafyrirtækisins Concerts ehf. og Jazzhátíðar Reykja-
víkur. Samstarfið hefur verið í bígerð um skeið og er lið-
ur í því að auka fjölbreytni og umfang hátíðarinnar, sem
fram fer í ár dagana 29. september til 3. október.
Þetta er í fjórtánda skipti sem Jazzhátíð Reykjavíkur
er haldin en í gegnum tíðina hefur fjöldinn allur af
þekktu tónlistarfólki komið fram á hátíðinni. „Í haust
verða á hátíðinni, auk Van Morrisons, þriggja kontra-
bassa konsert með Árna Egilssyni, Niels Henning-
Örsted Pedersen og Wayne Darling með píanó og
trommum, hinir bráðsnjöllu Rodrigues-bræður með Ein-
ar Val Scheving á trommum og um þessar mundir er
verið að vinna úr fjölda umsókna íslenskra og erlendra
listamanna. Stefnt er að því að dagskrá hátíðarinnar
liggi fyrir í enda júnímánaðar,“ að því er segir í tilkynn-
ingu.
Van Morrison er lét fyrst til sín taka seint á sjöunda
áratugnum og á næstu árum komu út plötur á borð við
Astral Week, Moondance, His Band and the Street Choir,
Tupelo Honey og St. Dominic’s Preview, sem allar hlutu
sérlega lofsamlega dóma.
Djassarinn Morrison
Síðustu ár hefur Morrison daðrað meira og meira við
djasstónlistina og lítur nú orðið á sig sem djasstónlist-
armann. Nýjasta platan hans What’s Wrong With This
Picture? kom út hjá djassútgáfufyrirtækinu heims-
þekkta Blue Note og þess má geta að tónleikar Van
Morrisons verða einn af aðalviðburðunum á djasshátíð í
Stokkhólmi í sumar.
Van Morrison er fæddur í Belfast á Írlandi árið 1945.
Hann var m.a. félagi í hljómsveitinni Them, sem urðu
vinsælir á heimaslóðunum. Árið 1965 komust tvö lög
þeirra á topp tíu listann í Bretlandi, lögin „Baby Please
Come Home“ og „Here Comes the Night“, sem var eftir
Van Morrison sjálfan.
Eftir tvö ár með Them yfirgaf Morrison sveitina og
sneri aftur til heimabyggðar sinnar í Belfast. Bert Berns
upptökustjóri heyrði af brotthvarfi Van Morrisons úr
sveitinni, sendi honum flugmiða til New York og hvatti
hann til að fara einn í stúdíó og taka upp nokkur lög.
Hann þáði boð Berns og tók upp sinn fyrsta sólósmell
„Brown-Eyed Girl“ en lagið varð gríðarlega vinsælt.
Fljótlega slitnaði upp úr samstarfinu og eftir þetta vakti
Van Morrison m.a. athygli fyrir áðurnefndar sólóplötur
sínar. Á ferli sínum hefur hann gefið á fimmta tug platna
og hefur nýja platan What’s Wrong With This Picture
fengið frábæra dóma gagnrýnenda. Ný plata er vænt-
anleg með Morrison á merki Blue Note í haust.
Samvinna Concert ehf. og Jazzhátíðar Reykjavíkur
Van Morrison
væntanlegur til Íslands
Reuters
Van Morrison á Montreux-djasshátíðinni í fyrra.
www.reykjavikjazz.com
www.concert.is
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Rómantískur
rúmfatnaður
www.thjodmenning.is