Morgunblaðið - 13.12.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 340. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
www.postur.is
13.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum til Evrópu!
Tímalaus
englakór
Jónas Sen varð bergnuminn
á tónleikunum… | 41
Íþróttir | Auðun tekjuhæstur Sprengjuhótun í Madrid Eiður
jafnaði Everton lagði Liverpool Fasteignir | Vinnustofur rithöf-
undanna Jólaseríur – Hvernig er best að hengja þær upp?
FORSETAKOSNINGAR fóru fram í Rúmeníu í
gær og bentu útgönguspár til þess að mjótt
væri á munum með Adrian Nastase, forsætis-
ráðherra landsins, og Traian Basescu, borg-
arstjóra í Búkarest. Ein könnun sýndi að Nast-
ase hefði marið sigur, fengið 50,7% atkvæða á
móti 49,3% Basescus en skv. annarri könnun
fengu báðir um 50%.
Á myndinni sjást kjósendur í rúmenskum
þjóðbúningum greiða atkvæði í þorpinu Giroc í
vesturhluta Rúmeníu.AP
Mjótt á munum
í Rúmeníu
MARWAN Barghuti er hættur við framboð
í forsetakosningunum sem halda á í Palest-
ínu 9. janúar. Nánir samstarfsmenn Bargh-
utis greindu frá þessu í
gær en hann afplánar nú
margfaldan lífstíðardóm
í ísraelsku fangelsi. „Ég
staðfesti hér með að ég
styð Abu Mazen
[Mahmoud Abbas] í
embætti forseta,“ sagði í
yfirlýsingu Barghutis
sem Ahmed Ghneim las
á fundi í Ramallah í gær.
Eiginkona Barghutis
tilkynnti skömmu áður en framboðsfrestur
rann út að hann myndi gefa kost á sér í kjör-
inu. Olli sú ákvörðun uppnámi í Fatah-
hreyfingunni, sem þegar hafði útnefnt
Mahmoud Abbas sem frambjóðanda sinn og
væntanlegan arftaka Yassers Arafats, sem
lést í síðasta mánuði. Var Barghuti sakaður
um að stuðla að klofningi í röðum Fatah.
Abbas baðst afsökunar
Abbas heimsótti Kúveit í gær og lét hann
það verða sitt fyrsta verk við komuna þang-
að að biðja Kúveit-búa afsökunar á afstöðu
Palestínumanna til innrásar Íraks í Kúveit
árið 1990. Arafat studdi á sínum tíma innrás
Saddams Husseins Íraksforseta í Kúveit og
varð það til þess að Kúveitar slitu öll sam-
skipti við Palestínumenn.
Barghuti
hættur við
Ramallah. AP, AFP.
Marwan Barghuti
RECEP Tayyip Erdogan, forsætisráðherra
Tyrklands, fordæmdi í gær afstöðu forystu-
manna þýsku stjórnarandstöðunnar sem
hafa látið hafa eftir sér
að þeir muni beita sér
gegn því að Tyrklandi
verði veitt aðild að Evr-
ópusambandinu.
Edmund Stoiber hafði
látið hafa eftir sér í
sunnudagsútgáfu
Frankfurter Allgemeine
Zeitung að ef kristilegu
flokkarnir kæmust til
valda í kosningum 2006
myndi kanslari á þeirra vegum „vinna að því
með bandamönnum okkar, hugsanlega
Frökkum, að gera hvað sem þarf til að
Tyrkland fái ekki fulla aðild [að ESB]“.
Líklegt er talið að leiðtogar ESB-
ríkjanna gefi grænt ljós á aðildarviðræður
við Tyrki er þeir hittast síðar í þessari viku.
Gagnrýnir um-
mæli Stoibers
Berlín, Istanbul. AFP, AP.
Recep Tayyip
Erdogan
EIÐUR Smári Guðjohnsen
tryggði Chelsea annað stigið
gegn Englandsmeisturum Arsen-
al þegar Lundúnarisarnir skildu
jafnir, 2:2, í toppslag ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu á
Highbury, heimavelli Arsenal, í
gær. Eiður jafnaði metin eftir 30
sekúndna leik í síðari hálfleik
með skallamarki og var þetta ní-
unda mark hans fyrir Chelsea á
leiktíðinni./Íþróttir
Reuters
Eiður jafnaði
á Highbury
♦♦♦
STEKKJARSTAUR kom til
byggða í gær og lét verða sitt
fyrsta verk, eftir að hafa gefið í
skóinn, að heimsækja Þjóð-
minjasafnið. Hann spjallaði við
gesti safnsins og sagði sögur af
ferðum sínum. Það er ekki of-
sögum sagt að hann hafi haldið
athygli barnanna sem horfðu
opinmynnt á hann.
Bræður hans munu koma í
Þjóðminjasafnið einn af öðrum
allt fram á aðfangadag. Von er
á þeim um kl. 13 dag hvern.
Þess má geta að íslensku jóla-
sveinarnir eru komnir á sér-
stakt jólasveinadagatal, en
þeim er mikið í mun að krakk-
arnir viti hvenær þeir koma í
bæinn. Jólasveinakvæði Jó-
hannesar úr Kötlum er einnig í
dagatalinu, svo börnin geti lært
það og sungið með þegar þau
hitta sveinana í safninu.
Stekkjar-
staur kom
fyrstur…
Morgunblaðið/Þorkell
Börnin í Þjóðminjasafninu hlustuðu undrandi og heilluð á frásögn Stekkjarstaurs af ferðum sínum um
landið. Í dag kemur Giljagaur í safnið og er ekki vafi á að hann hefur einnig frá ýmsu að segja.
AUKNING á skattsvikum í gegn-
um erlend samskipti er mjög al-
varleg þróun, að mati Geirs H.
Haarde fjármálaráðherra, en í
skýrslu um skattsvik á Íslandi,
sem lögð var fram á Alþingi á
föstudag, eru m.a. lagðar til leiðir
til þess að minnka möguleika á
þess konar skattsvikum.
„Það er búið að opna hér hag-
kerfið með skipulögðum hætti af
stjórnvöldum á undanförnum ár-
um til þess að greiða fyrir því að
atvinnulífið nái að blómstra og
geti farið í útrás, en hugmyndin
með því var að sjálfsögðu ekki sú
að menn kæmu sér upp nýjum
skattsvikaleiðum,“ segir Geir.
Skýrsluhöfundar telja stórauk-
in eignatengsl íslenskra fyrir-
eigandans ef raunveruleg skatt-
lagning á fyrirtækið í því landi
þar sem það er heimilisfast er
verulega lægri en skattlagning
hér á landi.
Auk þess er bent á að hægt
væri að leggja skatt á vexti sem
greiddir eru úr landi, en Ísland
er eitt fárra landa sem ekki
leggja á slíkan skatt. Þess vegna
geta fyrirtæki sett upp eignar-
haldskeðjur þar sem félag er-
lendis er látið lána innlendum að-
ila fé og taka hagnaðinn út í
formi hárra vaxta sem eru frá-
dráttarbærir hjá innlenda aðilan-
um og skattfrjálsir við greiðslu
úr landi.
tækja, sem og eignatengsl þvert
á landamæri og jafnvel heims-
álfur, hafa á undanförnum árum
skapað fleiri tækifæri til þess að
hagræða viðskiptum milli fyrir-
tækja til að komast hjá skatt-
lagningu eða lækka hana.
Eignarhaldskeðjur
Í skýrslunni eru lagðar til ýms-
ar leiðir til að draga úr skatt-
svikum tengdum erlendum sam-
skiptum. Lagt er til að
svokallaðri CFC löggjöf verði
hraðað hér á landi, en hún felur í
sér að ef innlendur aðili á fjár-
málafyrirtæki, eða ráðandi hlut í
slíku fyrirtæki, sé heimilt að
skattleggja tekjur og eignir fyr-
irtækisins með tekjum og eignum
Útrás hefur kallað
á aukin skattsvik
Fjármálaráðherra: Hugmyndin að opnu hagkerfi ekki
sú að menn kæmu sér upp nýjum skattsvikaleiðum
Ýmsar/24
Íþróttir og Fasteignir í dag