Morgunblaðið - 13.12.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 35
FRÉTTIR
Bridsfélag Reykjavíkur
Anton og Sigurbjörn Haraldssynir
leiða enn eftir tvö kvöld af þremur í
Cavendish – tvímenningi BR. Símon
Símonarson og Hermann Friðriksson
eru enn í öðru sæti, en nú munar ekki
nema 39 impum á þeim. Í þriðja sæti,
17 impum frá öðru sæti eru þeir
Kristján Blöndal og Rúnar Magnús-
son. Hæsta skor í kvöld tóku Hall-
grímur Hallgrímsson og Guðmundur
Pálsson 940 impa. Staða efstu para er
nú þannig:
Anton Haraldss. – Sigurbjörn Haraldss. 1442
Hermann Friðrikss. – Símon Símonars. 1403
Kristján Blöndal – Rúnar Magnússon 1386
Sævar Þorbjss. – Karl Sigurhjartars. 1151
Gísli Steingrímss. – Sveinn S. Þorvaldss. 808
Bernódus Kristinss. – Hróðmar Sigurbjs. 633 Ágætis þátttaka hefur verið á mótum hjá BR í vetur.
Árleg keppni um Einarsbik-
arinn undir Eyjafjöllum
Síðastliðið þriðudagskvöld fór
fram árleg bridskeppni á milli Brids-
félags Rangæinga og Bridsfélags
Hreppamanna að Seljalandi undir
Eyjafjöllum. Keppt er um farandbik-
ar sem gefin var árið 1998 til minn-
ingar um Einar Inga Einarsson
bónda í Varmahlíð undir Eyjafjöllum
af þeim sem kepptu með honum í
sveit.
Keppendur hafa skipst á að sækja
hver aðra heim, keppt er á Flúðum
annað árið. Sigurvegarar hafa yfir-
leitt verið þeir sem boðið hafa hinum
heim, sem sagt, yfirleitt unnist á
heimavelli.
Spilað var á fimm borðum að
þessu sinni. Leikar fóru svo að
Rangæingar fóru með sigur af hólmi.
Úrslit urðu: Á 1. borði jafnt, 15-15,
á öðru borði einnig jafnt 15-15, á
þriðja borði 12-18 Rangæingum í
hag, á fjórða borði 17-13 fyrir
Hreppamenn en á fimmta borði töp-
uðu Hreppamenn stórt, 2-25.
Þetta er góður félagsskapur og
hafa skapast góð kunningjatengsl á
milli manna í þessari árlegu keppni.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Ari Einarsson, formaður Bridsfélags Hreppamanna, afhendir Bergi Páls-
syni, formanni Bridsfélags Rangæinga, Einarsbikarinn til varðveislu til
næstu keppni að ári liðnu.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 6. des. var haldin
jólarúberta með glæsilegum
konfektverðlaunum. Fyrirkomu-
lagið mæltist misjafnlega fyrir, en
það þýðir ekki að vera óheppinn í
spilagjöfinni þegar rúbertan er ann-
ars vegar.
Lokastaðan
Friðþjófur Einars. – Guðbr. Sigurbergss. 42
Hrund Einarsdóttir – Dröfn Guðmundsd. 29
Hafþór Kristjánss. – Stefán Garðarss. 20
pkt.
Mánudaginn 13. des. verður síð-
asta spilakvöldið fyrir jól, pörin
verða dregin saman og spilaður tví-
menningur á léttu nótunum. Spila-
mennska byrjar klukkan 7:30.
Reykjavíkurmót í
sveitakeppni í janúar
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni
verður spilað í janúar að venju og
kvóti Reykjavíkur til þátttöku í Ís-
landsmóti hefur stækkað frá síðasta
ári, er nú 15 sveitir í stað 12 á síðasta
keppnistímabili. Kvóti svæðasam-
banda er reiknaður út frá 10 efstu
sveitum í úrslitum síðasta Íslands-
móts og hausagjöldum til Bridssam-
bandsins. Reykjavík átti 9 sveitir af
10 efstu á síðasta Íslandsmóti. Spila-
dagar í Reykjavíkurmótinu verða
þessir:
11. janúar 2 umferðir
13. janúar 2 umferðir
15. janúar 4 umferðir
16. janúar 3 umferðir
18. janúar 2 umferðir
22. janúar 4 umferðir
23. janúar 3 umferðir
25. janúar til vara
Spilaðir verða 16 spila leikir, allir
við alla, og keppnisgjald verður
krónur 26.000 á sveit. Á síðasta
keppnistímabili tóku 18 sveitir þátt í
Reykjavíkurmótinu og eins og sést á
áðurnefndri upptalningu er gert ráð
fyrir fjölgun. Ef sveitir verða færri
fellur sunnudagurinn 23. janúar
fyrst út en síðan fimmtudagurinn 13.
janúar ef á þarf að halda. Keppn-
isstjóri verður Björgvin Már Krist-
insson og spiluð verða forgefin spil,
sömu spil í öllum leikjum.
Bridsfélag Kópavogs
Annað kvöldið af þremur í Berg-
plast-tvímenningnum var spilað sl.
fimmtudag, Hæstu skor fengu:
NS:
Loftur Pétursson - Sigurjón Karlsson 248
Ármann J. Lárusson - Elín Jóhannsd. 238
Jens Jensson - Jón St. Ingólfsson 233
AV:
Gunnl. Sævarss. - Hermann Friðriksson 262
Hrafnh. Skúlad. - Jörundur Þórðars. 232
Georg Sverriss. - Þröstur Ingimarsson 231
Staðan að loknum tveimur um-
ferðum:
Gunnl. Sævarsson - Hermann Friðrikss. 540
Hjálmar Pálss. - Sigurður Steingrímss. 479
Ólafur Lárusson - Skúli Sigurðsson 472
Jens Jensson - Jón St. Ingólfsson 458
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis-og
tryggingamálaráðherra, og Auður
Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
hafa undirritað samkomulag um for-
könnun upplýsinga um meðferð
mænuskaða.
Auður Guðjónsdóttir hefur und-
anfarin misseri beitt sér fyrir því að
komið yrði á fót gagnabanka sem
yrði eins konar þekkingarbrunnur í
sambandi við rannsóknir og með-
ferð mænuskaðaðra og er sam-
komulagið sem gert var liður í þeirri
viðleitni. Það er gert í framhaldi af
niðurstöðu nefndar sem heilbrigð-
isráðherra skipaði um gagnabanka
um mænuskaða í september 2003.
Samkvæmt samkomulaginu er gert
ráð fyrir að kostnaðurinn við for-
könnunina verði 4,2 milljónir króna.
Ljósmynd/Ingi R. Ingason
Jón Kristjánsson og Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur handsala
samkomulag um forkönnun upplýsinga um meðferð mænuskaða.
Samið um forkönnun
upplýsinga um
meðferð mænuskaða
DOKTORSVÖRN fer fram við
raunvísindadeild Háskóla Íslands
þriðjudaginn 14. desember. Þá ver
Þórarinn Blöndal líffræðingur dokt-
orsritgerð sína „Hitaþolin ensím í
sameindalíffræði og erfðagreining-
um: RNA lígasar og fjölkirna kínasi
úr hitakærum veirum og nýjar að-
ferðir við arfgerðagreiningar eink-
irnabreytinga“.
Andmælendur verða dr. Francine
Perler frá New England Biolabs
Inc. og dr. Ólafur S. Andrésson
prófessor við Háskóla Íslands. At-
höfnin hefst kl. 14 í hátíðarsal HÍ,
aðalbyggingu og er öllum opin. Dr.
Hörður Filippusson, forseti raun-
vísindadeildar,
stjórnar athöfn-
inni.
Í doktors-
nefnd sitja dr.
Jakob K. Krist-
jánsson, for-
stjóri Prokaria,
dr. Albert Ver-
non Smith,
GenThor ehf.,
og Guðmundur Eggertsson, pró-
fessor emeritus frá Háskóla Ís-
lands. Verkefnið var samstarfsverk-
efni Íslenskrar erfðagreiningar og
Prokaria og unnið á rannsóknastof-
um fyrirtækjanna.
Doktorsvörn í líffræði
Í STAÐ þess að senda við-
skiptavinum SORPU jólakort er
góðu málefni lagt lið með fjárstyrk.
Í ár var það Konukot, næturathvarf
fyrir heimilislausar konur, sem
hlaut styrk að upphæð 200.000 kr.
Reykjavíkurdeild Rauða kross Ís-
lands rekur athvarfið en Fé-
lagsþjónustan í Reykjavík útvegaði
deildinni húsnæði til rekstursins. Í
Konukot geta heimilislausar konur
leitað að kvöldlagi og fengið létta
máltíð og næturgistingu. Einnig er
þar hreinlætis- og þvottaaðstaða.
Styrkurinn verður nýttur til kaupa
á hreinlætis– og snyrtipökkum sem
konunum verða afhentir við komur
sínar í Konukot.
Myndin er tekin við afhendingu
styrksins. Á henni eru þeir Ög-
mundur Einarsson framkvæmda-
stjóri SORPU og Ómar H. Krist-
mundsson formaður Reykjavíkur-
deildar Rauða kross Íslands.
SORPA
styrkir
Konukot
JÓLASTEMNINGIN verður í fyr-
irrúmi á Mangógrilli á aðfangadags-
kvöld. Eigendur þessa matsölu-
staðar í Brekkuhúsum í Grafarvogi,
Ingibjörg Guðmundsdóttir og Magn-
ús Garðarsson, ætla að efna til jóla-
veislu þar sem ekkert verður til
sparað og öllum er boðið.
Magnús segir að þau fjölskyldan,
hann, Ingibjörg og 19 ára gamall
sonur þeirra, hafi viljað gera eitt-
hvað óvanalegt þessi jól. „Við ætlum
að hafa opið á aðfangadagskvöld
milli fimm og ellefu. Konan mín
stakk upp á þessu og okkur þótti til-
valið að bjóða öllum sem minna
mega sín, eiga um sárt að binda eða
eiga hvergi höfði sínu að að halla að
koma til okkar og eiga góð jól.“
Magnús og Ingibjörg höfðu sam-
band við aðila sem þau eru í við-
skiptum við og allir voru tilbúnir að
leggja eitthvað af mörkum til veisl-
unnar. „Við ætlum að vera með
hangikjöt og uppstúf og bayonne-
skinku. Allt meðlætið er heimalagað
og svo verðum við með kaffi og kök-
ur og eftirrétti. Auk þess verðum við
með jólagjafir fyrir alla. Þetta verð-
ur eins og stórt jólaboð,“ segir
Magnús.
Fjöldi fólks hefur haft samband
við Magnús og Ingibjörgu og boðið
fram krafta sína. Einar Már Guð-
mundsson ætlar að lesa upp úr bók-
inni sinni og Þorvaldur Geirsson
trúbador lítur inn og tekur lagið.
„Við erum tilbúin í slaginn, hvort
sem það koma fimmtíu, hundrað eða
þrjú hundruð manns,“ segir Magnús
og bætir við að ef fólk vilji nánari
upplýsingar geti það haft samband
við Mangógrill eða við sr. Vigfús Þór
Árnason.
Jólagleði í
Mangógrilli á að-
fangadagskvöld
FUNDUR í Norðurlandsdeild FAS,
Samtaka foreldra og aðstandenda
samkynhneigðra hefur sent frá sér
ályktun þar sem fagnað er útkom-
inni skýrslu nefndar um réttarstöðu
samkynhneigðra, sem birt var á
haustdögum, en forsætisráðherra
skipaði nefndina 8. september 2003.
Fundurinn fagnar jafnframt áunn-
um skrefum samkynhneigðra í átt
til jafnréttis við aðra þegna landsins.
„Fundurinn hvetur til þess að
þjóðkirkjan stígi það skref sem þarf
til að samkynhneigðir þegnar henn-
ar sitji við sama borð og aðrir og
geti fengið hjónavígslu.
Fundurinn hvetur til þess að sam-
kynhneigðum verði sem öðrum
heimilað að frumættleiða íslensk
börn og jafnframt að samkyn-
hneigðum verði til jafns við aðra
þegna leyft að ættleiða erlend
börn.“
Fundurinn hvetur enn fremur til
þess að samkynhneigðum verði
heimil tæknifrjóvgun.
Réttarstaða
samkynhneigðra
verði bætt
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja skilafrest í samkeppni um
námsefni til kennslu í neytenda-
fræðslu í grunn- eða framhalds-
skólum til 20. febrúar 2005.
Samkeppnin er haldin að frum-
kvæði norrænu ráðherranefnd-
arinnar. Námsefnið á að henta til
kennslu á öllum Norðurlöndunum
og samsvara að lágmarki um 30
kennslustundum; kennsluáætlun
þarf að fylgja með tillögu.
Allir Norðurlandabúar geta tekið
þátt í samkeppninni, einstaklingar,
hópar, stofnanir, samtök, félög, út-
gáfufyrirtæki o.fl. Verðlaunafé
nemur 100.000 dönskum krónum.
Skilafrestur
framlengdur