Morgunblaðið - 13.12.2004, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
,,Bókin er mjög spennandi að lesa
og spennan helst vel allan tímann.”
— Pétur Halldórsson, RUV, 24/11
,, ... bæði fróðleg og spennandi.”
— Hlynur Páll Pálsson, Fréttablaðinu 2/12
MARÍU
MESSA
Fróðleg saga og
spennandi atburðarás
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 32/34
Vesturland 12 Brids 35
Viðskipti 13 Dagbók 38/40
Erlent 14/15 Leikhús 41
Listir 16/17 Menning 41/45
Daglegt líf 18 Bíó 42/45
Umræðan 20/31 Ljósvakar 46
Bréf 31 Veður 47
Forystugrein 24 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
PÁLL Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins (FME), segir
hert eftirlit með fjármálafyrirtækj-
um, sem Fjármálaeftirlitið hefur
boðað, ekki eiga að þjóna hlutverki
hagstjórnartækis, líkt og margir
virðast telja. Hann segir stofnunina
með þessum aðgerðum vera að setja
sig í stellingar til að ákveða hærri
eiginfjárhlutföll fyrir einstök fyrir-
tæki, hafi þau reynst vera að taka
aukna áhættu með fasteignalánum
og útlánum til kaupa á hlutabréfum.
Einnig verður hugað að áhættum
vegna gengisbundinna útlána.
„Við horfum ekki á þetta út frá
hagsveiflunni, þó að hún hafi áhrif á
hvernig fyrirtækin haga sér. Við get-
um ekki beitt þessu sem hagstjórn-
artæki, einfaldlega hækkað eigin-
fjárhlutföllin þegar stendur þannig á
og lækkað þau þegar það stendur
öðruvísi á. Heldur erum við að horfa
einstaklingsbundið á áhættur hvers
og eins fyrirtækis. Það getur verið
að við grípum inn í hjá einu fyrirtæki
sem er með mikla útlánaaukningu en
kannski ekki með sama hætti hjá
öðru fyrirtæki sem er einnig með
mikla útlánaaukningu en mun betri
áhættustýringu. En ef við værum að
nota þetta í hagstjórnarlegu tilliti þá
myndum við beita þessu eins á öll
fyrirtæki en það megum við ekki.“
Að sögn Páls Gunnars er Fjár-
málaeftirlitið með þessu að styrkja
þau tæki sem það hefur þegar þróað
og byggir umræðuskjalið, þar sem
hert eftirlit er kynnt og sent verður
fjármálafyrirtækjum, á upplýsinga-
öflun stofnunarinnar frá lánastofn-
unum síðustu vikur.
Eftirlit en ekki
hagstjórnartæki
STARFSFÓLK Nóatúns, trygg-
ingafélagsins Sjóvár-Almennra og
fleiri hafa um helgina unnið að því
að rýma verslun Nóatúns við
Hringbraut sem stórskemmdist í
eldsvoða aðfaranótt laugardags.
Allar vörur eyðilögðust og miklar
skemmdir urðu á húsnæði og inn-
réttingum. Rekstrarstjóri fyrirtæk-
isins segir enn of snemmt að segja
til um hvenær búðin verði opnuð á
ný.
Sigurður Gunnar Markússon seg-
ir ljóst að eldurinn hafi breiðst út á
nokkrum mínútum eftir að hann
kom fyrst upp. Hann segist hafa
ákveðnar kenningar um hvar eld-
urinn hafi kviknað en úr því verði
ekki skorið fyrr en tæknideild lög-
reglunnar í Reykjavík ljúki rann-
sókn. Aðspurður segir hann að við-
vörunarkerfi hafi virkað eins og
skyldi og þá hafi slökkvilið verið
snöggt á staðinn.
Morgunblaðið/Þorkell
Mikill atgangur var í verslun Nóatúns í JL-húsinu í gær þegar unnið var að hreinsun.
Eldurinn breiddist út
á nokkrum mínútum
Ötullega unnið að því að hreinsa út úr verslun Nóatúns
REGLUM um verðmæti þess varn-
ings sem ferðamenn mega taka með
sér til landsins án þess að greiða af
þeim toll var síðast breytt í byrjun
árs 2002. Þá var hámark þess varn-
ings sem ferðamenn máttu kaupa er-
lendis eða í fríhöfninni án þess að
greiða toll hækkað úr 36 þúsundum í
46 þúsund krónur og hámarksverð
einstaks hlutar var hækkað úr 18
þúsundum í 23 þúsund krónur.
Ekki hafa verið lagðar fram tillög-
ur í fjármálaráðuneytinu um að
breyta þessum upphæðum í reglu-
gerðinni.
Tollfrjáls varningur
ferðamanna
Hámarkið
hækkaði
síðast 2002
PALLBÍL var ekið á fjögur hrein-
dýr, tvo tarfa og tvo kálfa, á Kára-
hnjúkavegi á Fljótsdalsheiði í gær-
morgun. Tvö dýranna drápust við
áreksturinn en hin tvö varð að aflífa.
Að sögn lögreglunnar á Egilsstöð-
um var þoka og myrkur þegar slysið
varð. Talið er að um 100 hreindýr
hafi verið á eða við veginn. Pallbíll-
inn skemmdist lítið og ökumaður
meiddist ekki.
Ók á fjögur
hreindýr
♦♦♦
BAKKAVÖR Group verður einn af
stærstu matvælaframleiðendum
Bretlands og leiðandi í framleiðslu
ferskrar tilbúinnar matvöru, ef af yf-
irtöku þess verður á breska mat-
vælaframleiðandanum Geest. Það
verður jafnframt eitt stærsta fyr-
irtækið sem skráð er á Íslandi. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu á föstu-
dag standa nú yfir yfirtökuviðræður
en Bakkavör á fyrir um 20% hlut í
Geest.
Veltir 130 milljörðum
Sameinað fyrirtæki mundi velta um
130 milljörðum króna, hagnaður fyrir
skatta samanlagt um 7,6 milljarðar
miðað við síðasta ár og starfsmenn
fyrirtækisins yrðu um 12.500 talsins.
Geest var fyrst stofnað af hinni hol-
lensku van Geest fjölskyldu árið 1935
um innflutning og sölu á blómlaukum
í Bretlandi. Árið 1953 hóf Geest að
flytja inn og selja banana, en ban-
anasalan varð síðan meginuppistaða
reksturs félagsins. Það var ekki fyrr
en árið 1972 að félagið hóf framleiðslu
ferskrar tilbúinnar matvöru en í dag
er Geest annar stærsti framleiðandi
Bretlands á því sviði. Geest fram-
leiðir, rétt eins og Bakkavör, vörur
sínar undir merkjum verslunarkeðja.
Geest var skráð í Kauphöllina í
London árið 1986. Árið 1995 opnaði
félagið fyrstu skrifstofu sína í Evrópu
fyrir sölu á tilbúinni ferskri matvöru.
Bananahluti reksturins var seldur frá
fyrirtækinu árið 1996 og hefur síðan
þá einbeitt sér að ferskri tilbúinni
matvöru.
Meginhluti rekstrar félagsins er í
Bretlandi en félagið er einnig með
starfsemi í Frakklandi, Belgíu, á
Spáni og í Suður-Afríku. Félagið sam-
anstendur af 30 rekstrareiningum og
38 verksmiðjum sem framleiða yfir
2.000 vörur í 16 vöruflokkum. Starfs-
menn eru 10 þúsund talsins, veltan
var 115 milljarðar króna árið 2003 og
hagnaður fyrir skatta sama ár var 5,4
milljarðar króna. Vöxtur veltu fyr-
irtækisins var 12% á síðasta ári en fé-
lagið markaðssetti yfir 800 nýjar
vörur það ár. Langmestur vöxtur, eða
nær 60% árið 2003, hefur verið í
ferskum tilbúnum matvælum til Evr-
ópu en sala á fersku grænmeti í Bret-
landi jókst um 20% og sala ferskra
tilbúinna matvæla í Bretlandi jókst
um 6% á síðasta ári. Á yfirstandandi
ári er búist við 6% heildarvexti Geest
og er það undir meðalvexti markaðar-
ins, sem er 7%, en ástæðan er rakin til
verðlækkunar á afurðum fyrirtæk-
isins.
Velta Geest hefur reyndar vaxið
stöðugt ár frá ári á síðustu árum og
það sama má segja um hagnað fyrir
afskriftir og fjármagnsliði.
Bakkavör Group undirbýr yfirtöku á matvælaframleiðandanum Geest
Byrjaði í blómlaukum og banönum
!
" #
$%
&
LÉST EFTIR LÍKAMSÁRÁS
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær 25 ára gamlan karl-
mann í gæsluvarðhald vegna árásar
á veitingastaðnum Ásláki í Mos-
fellsbæ í fyrrinótt sem leiddi til
dauða 55 ára gamals karlmanns.
Árásin var framin í anddyri veitinga-
staðarins, en að sögn lögreglu sló
árásarmaðurinn hinn látna þungu
höggi á kjálka, og í kjölfarið hné sá
er fyrir árásinni varð niður meðvit-
undarlaus. Hann lést á LSH á þriðja
tímanum í gær.
Barghuti ekki í framboð
Marwan Barghuti verður ekki í
framboði í forsetakosningum í Pal-
estínu 9. janúar nk. Stuðningsmenn
hans tilkynntu í gær að hann væri
hættur við og að hann styddi
Mahmoud Abbas til embættisins.
Barghuti afplánar fimmfalt lífstíð-
arfangelsi í ísraelsku fangelsi.
Útrás eykur skattsvik
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
segir aukningu á skattsvikum í
gegnum erlend samskipti mjög al-
varlega þróun, en í skýrslu um
skattsvik á Íslandi, sem lögð var
fram á Alþingi á föstudag, eru m.a.
lagðar til leiðir til þess að minnka
möguleika á þess konar skatt-
svikum.
Launadeila í hnút
Félag leikskólakennara ákvað á
föstudag að vísa launadeilu félagsins
og sveitarfélaganna til rík-
issáttasemjara. Ásmundur Stef-
ánsson ríkissáttasemjari mun funda
með báðum aðilum í dag og kynna
sér stöðu viðræðnanna. Í framhald-
inu mun hann taka ákvörðun um
hvenær fundað verður næst í deil-
unni.
Kosið um forseta í Rúmeníu
Ekki var hægt að segja til um það
í gærkvöldi hvor þeirra Adrians
Nastase eða Traians Basescu hefði
farið með sigur af hólmi í síðari um-
ferð forsetakosninganna í Rúmeníu.
Sýndu útgönguspár að þeir hefðu
báðir fengið um 50% atkvæða, Nast-
ase hafði þó ívið meira fylgi sam-
kvæmt einni spá. Nastase hafði fyrir
fram þótt sigurstranglegri, fékk
41.% í fyrri umferð kosninganna.
sescu aðeins 34%.
Eitrað fyrir Jústsjenkó
Saksóknarar í Úkraínu hafa
ákveðið að taka upp lögreglurann-
sókn að nýju á grunsamlegum veik-
indum stjórnarandstöðuleiðtogans
Viktors Jústsjenkós en læknar í Vín
í Austurríki sögðu á laugardag að
rannsóknir þeirra hefðu leitt í ljós að
enginn vafi gæti leikið á því að eitrað
hefði verið fyrir Jústsjenkó.