Morgunblaðið - 13.12.2004, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SÓLSKINSFÓLKIÐ
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
„SÓLSKINSFÓLKIÐ
HLÝTUR AÐ VERA EIN
ATHYGLISVERÐASTA
SKÁLDSAGA ÁRSINS,
OG FESTIR STEINAR
BRAGA Í SESSI SEM
MIKILVÆGASTA
RITHÖFUND SINNAR
KYNSLÓÐAR“
„ÞANNIG EIGA BÓKMENNTIR AÐ VERA“
- Melkorka Óskarsdóttir, Fréttablaðið
- Björn Þór Vilhjálmsson, Morgunblaðið
ÞVÍ var fagnað í Hafnarfirði í gær að 100 ár
eru liðin frá því rafvæðing Íslands hófst, en
upphafið er rakið til þess þegar Jóhannes J.
Reykdal keypti rafal og virkjaði Lækinn í
Hafnarfirði upp á sitt eindæmi. Alls tengdust
sextán hús og fjórir ljósastaurar virkjuninni. Í
menningarmiðstöðinni Hafnarborg var hátíð-
ardagskrá af þessu tilefni. Meðal þeirra sem
tóku til máls voru forseti Íslands, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar og iðnaðarráðherra.
Hugsjónamenn í Hafnarfirði, á tímum mik-
illar fátæktar eftir aldamótin 1900, áttu sér há-
leita drauma, sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, í ávarpi sínu um Jóhannes
Reykdal. „Drauma um framfarir og hagsæld
öllum til handa. Um afl sem myndi færa birtu
og yl í hvert hús. [...] Jóhannes Reykdal og aðr-
ir hugsjónamenn í Hafnarfirði lögðu vissulega
grundvöllinn að því tækniundri, þeirri byltingu
í þjóðfélagsmálum og mannlífi okkar Íslend-
inga, sem við höfum notið um langt skeið.“
Hann sagði að í Hafnarfirði hefði hafist sú
vegferð sem enn í dag væri að skapa Íslend-
ingum nýja kosti í upphafi nýrrar aldar. „Það
er í raun ógerlegt að rekja til hlítar áhrifin
sem rafvæðingin hefur haft á lífskjör, lífshætti,
menningu og atvinnulíf okkar Íslendinga,“
sagði forsetinn ennfremur.
Sagði forsetinn að varðveita bæri minn-
inguna um hugsjónafólkið sem reið á vaðið
snemma á síðustu öld. „Um leið veitum við
ungu fólki sýn á þessa gömlu tíma og sköpum
skilning þeirra á því þegar risavaxið stökkið
var tekið frá þessu fátæka þorpi sem var hér
og til þeirrar borgar sem Hafnarfjörður er í
raun og veru núna.“
Sagði forsetinn að kjarni boðskaparins, sem
saga rafvæðingar bæri með sér, væri kannski
sá „að veita ungu fólki innblástur og vilja til að
husga stórt“.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra
sagði rafstöð Jóhannesar Reykdal hafa markað
tímamót í raforkusögu þjóðarinnar, þótt lítið
skref hefði verið stigið í fyrstu. Hún sagði þró-
un raforkunotkunar á Íslandi hafa verið hæga í
upphafi en mest hafi munað um byggingu
Elliðaárstöðvar, árið 1921. Hún minnti á raf-
væðingarátak sem gert var hér á landinu árin
1950–1965. Með því hefði verið lyft grettistaki
í rafvæðingu til sjávar og sveita.
Sagði hún frá því að fyrsti aðalfundur
Landsnets ehf., sem er sjálfstætt flutningsfyr-
irtæki í eigu orkuframleiðenda landsins, hefði
verið haldinn í gær, á aldarafmæli rafvæðing-
arinnar. Sagði hún fyrirtækið taka til starfa
eftir áramót en það mun annast allan raf-
orkuflutning.
Morgunblaðið/Þorkell
Börn Jóhannesar Reykdal, Elísabet og Þórður Reykdal, afhjúpuðu minnisvarða um föður sinn við Lækjargötu í Hafnarfirði í gær.
Þess var minnst í Hafnarfirði að öld er liðin síðan rafvæðing Íslands hófst
Grunnurinn að nútíma samfélagi
Verðbólgan á síðustu 12
mánuðum tæplega 4%
VERÐBÓLGAN síðustu tólf mán-
uðina er 3,9% miðað við verðlag í
desember samkvæmt mælingum
vísitölu neysluverðs. Þar er um að
ræða lítils háttar hækkun á tólf
mánaða verðbólgunni frá nóvem-
bermánuði, en fara þarf aftur til
júnímánaðar í ár til að finna jafn-
mikla tólf mánaða verðbólgu og nú.
Hækkun vísitölunnar í desember
frá nóvembermánuði nam 0,46%,
en það jafngildir því að verðbólgu-
hraðinn sé 5,7% umreiknað til heils
árs. Vísitala neysluverðs síðustu
þrjá mánuði hefur hækkað um
1,4% sem jafngildir 5,9% verðbólgu
á ári. Það var einkum hækkun fast-
eignaverðs sem hækkaði vísitöluna
í nóvember, en markaðsverð á hús-
næði hækkaði um 1,6% í mánuðin-
um og það hækkaði vísitölu neyslu-
verðs um 0,20%. Þá hækkaði verð á
mat og drykkjarvörum um tæpt
eitt prósent sem olli 0,13% hækkun
vísitölunnar.
Samanlagt má því rekja 0,33
prósentustig af 0,46% hækkun vísi-
tölunnar í desember til þessara
tveggja liða.
Ef hækkun fasteignaverðs síð-
ustu tólf mánuði er undanskilin er
verðbólga síðustu 12 mánaða 2,6%.
Bílveltur í hálku
á Suðurlandi
Í TENGSLUM við bílveltu sem varð
við bæinn Kross í Ölfusi rétt fyrir
klukkan 14 í gær, lýsir lögreglan á
Selfossi eftir ökumanni nýlegrar
rauðrar Nisson Patrol jeppa-
bifreiðar sem tók fram úr annarri
bifreið við bæinn í sama mund.
Fjórir voru í bifreiðinni sem valt og
hlutu allir minniháttar meiðsli.
Lögreglan biður alla þá sem veitt
geta upplýsingar um aðdraganda
óhappsins að koma þeim til lögregl-
unnar í síma 480 1010.
Lögreglan á Selfossi hafði mikið
að gera vegna umferðaróhappa. Í
gærmorgun fór jeppi út af Suður-
landsvegi við Hamrahól og hafnaði
á hvolfi ofan í skurði fullum af
krapa og vatni. Í bílnum voru fjög-
ur ungmenni og tókst þeim að
klöngrast út um einar dyr bílsins.
Þau voru skrámuð en án alvarlegra
áverka. Tvær aðrar bílveltur urðu í
umdæmi Selfosslögreglunnar á
laugardagskvöld.
Tveir bílar ónýtir
eftir veltur
TVEIR bílar eru taldir ónýtir eftir
veltur á Vestfjörðum á laugardag
en þá var mikil hálka á vegum.
Ökumenn voru í bílbeltum og
sluppu þeir ómeiddir.
Önnur veltan varð á Hnífsdals-
vegi, milli Ísafjarðar og Hnífsdals
en hin varð í Dýrafirði. Ein velta til
viðbótar varð á Hnífsdalsvegi en
lögregla var ekki send á vettvang.
Einn bitinn
í fingur
PILTUR var bitinn í fingurinn og
stúlka skarst á eyra í slagsmálum
sem brutust út á Seyðisfirði í fyrri-
nótt, að loknu jólahlaðborði. Að
sögn lögreglu tókust um fimm pilt-
ar á og nokkur hópur var í kring. Í
gær höfðu ekki verið lagðar fram
kærur vegna málsins.
FJÓRIR einsöngvarar á þrennum
tónleikum sem haldnir voru til
styrktar krabbameinssjúkum börn-
um í Hallgrímskirkju fengu samtals
rúmlega 3,1 milljón í greiðslur vegna
þeirra. Aðrir flytjendur, 23 tónlist-
armenn og yfir 160 kórfélagar, auk
þeirra sem útsettu tónlistina fengu
um það bil sömu upphæð. Að sögn
Ólafs M. Magnússonar tónleikahald-
ara greiðir hann, eða öllu heldur
Kynning ehf. sem er fyrirtæki hans,
um hálfa milljón í kostnað vegna tón-
leikanna. Hagnaðurinn, ríflega 4,7
milljónir, kom í hlut Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
Ólafur segir að margir þeirra sem
komu að tónleikunum hafi tekið al-
gjöra lágmarksþóknun og í raun
varla hægt að kalla þóknunina laun
þar sem margir hafi lagt út í tals-
verðan kostnað vegna tímafrekra
æfinga. Þannig hafi barnakórinn og
karlakórarnir æft tvisvar í viku í
nánast allt haust. Ólafur segir það
grundvallaratriði að allir fái greitt
fyrir vinnu sína og það hljóti að telj-
ast eðlilegt. „Viss misskilnings gætti
í orðum Kristjáns Jóhannssonar um
að flytjendur fengju ekki greitt
vegna tónleikanna en öllum þeim
sem komu að verkefninu, þar á með-
al styrktarfélaginu, var ljóst að allir
fengju greitt fyrir sitt framlag. Það
lá fyrir frá upphafi,“ segir Ólafur.
Aðspurður segist hann þó ekki geta
gefið upp laun einstakra flytjenda,
samningar við þá séu trúnaðarmál.
Hann segir að sú kostnaðaráætlun
sem gerð var fyrir tónleikana hafi í
meginatriðum staðist.
Ólafur segir að ekki sé hægt að
bera tónleikana sem hann hefur
staðið fyrir saman við tónleika sem
Einar Bárðarson hefur haldið til
styrktar krabbameinssjúkum börn-
um. Á tónleikunum sem Einar hafi
staðið fyrir hafi tónlistarmenn flutt
efni sem þeir hafi átt í handraðanum
og séð sjálfir um allan tónlistarflutn-
ing. Fyrir tónleikana í Hallgríms-
kirkju hafi öll tónlist verið útsett sér-
staklega og sá flutningur sem þar fór
fram hafi ekki farið fram áður.
Drjúgur hluti af tekjum
Á blaðamannafundi á laugardag
kom fram að KB banki keypti út-
gáfuréttinn að tónleikunum fyrir
rúmlega 4,2 milljónir. Einnig lagði
bankinn fram um hálfa milljón í
styrk. Ólafur segir að verðið sem
bankinn greiddi fyrir útgáfuréttinn
hafi verið sanngjarnt. Allir flytjend-
ur gáfu sinn hlut í útgáfuréttinum.
Ólafur segir að það megi ekki
gleymast að á tveimur árum hafi
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna fengið hátt í 10 milljónir vegna
tónleikahaldsins í Hallgrímskirkju.
Á laugardag afhenti Ólafur félaginu
auk þess 1.500 eintök af geisladisk-
num Jólahoppi sem kom út í fyrra.
Rósa Guðbjartsdóttir fram-
kvæmdastjóri styrktarfélagsins
sagði tekjurnar af tónleikunum væri
drjúgur hluti af heildartekjum fé-
lagsins en það veltir um 25 milljón-
um á ári. Þá þyrfti félagið sjálft ekki
að leggja til vinnu við fjáröflunina
heldur hefði skipulagningin algjör-
lega verið í höndum tónleikahaldara.
Styrktartónleikarnir í Hallgrímskirkju
Einsöngvararnir fengu
samtals rúmlega 3,1 milljón
Morgunblaðið/Þorkell
Rósa Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna, tekur við ávísuninni úr hendi Ólafs M. Magnússonar. Við hlið
þeirra er Jóhanna Valgeirsdóttir, staðgengill framkvæmdastjóra.