Morgunblaðið - 13.12.2004, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
til viðtals
Viðskiptafulltrúi VUR
á Íslandi
í París
M
IX
A
•
fí
t
•
0
4
0
8
4
Unnur Orradóttir Ramette, vi›skiptafulltrúi í
sendirá›i Íslands í París ver›ur me› vi›talstíma
á Íslandi 13.-16. desember n.k.
Vi›talstímarnir eru einkum ætla›ir fyrirtækjum sem vilja ræ›a
vi›skiptamöguleika sína í umdæmi sendirá›sins og óska
a›sto›ar VUR, Vi›skiptafljónustu utanríkisrá›uneytisins til a›
grei›a fleim lei› á marka›. Auk Frakklands er umdæmi
sendirá›sins Andorra, Ítalía, Portúgal, San Marínó og Spánn.
Atvinnuflróunarfélag Eyjafjar›ar (AFE), b‡›ur fyrirtækjum
á Nor›urlandi til kynningar á rá›gjafarfljónustu VUR og
Útflutningsrá›s á Hótel KEA, mánudaginn 13. desember
kl. 9:00. Einnig má bóka fundi me› Unni sama dag hjá AFE
í síma 460 5700 e›a á afe@afe.is.
Hjá Útflutningsrá›i Íslands ver›a fundir mi›vikudaginn 15.
desember og fimmtudaginn 16. desember í Borgartúni 35.
fieim sem óska eftir a› hitta vi›skiptafulltrúann í Reykjavík er
bo›i› a› bóka tíma í síma 511 4000 e›a me› tölvupósti á
utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Nánari uppl‡singar um fljónustu vi›skiptafulltrúa í sendirá›um
Íslands má sjá á www.utflutningsrad.is og www.vur.is
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
96
1
2/
20
04
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
96
1
2/
20
04
Landsbanki Íslands hf.
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands,
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarlýsingu og önnur gögn sem vitnað er til í lýsingunni er hægt að
nálgast hjá Landsbanka Íslands.
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
Eimskipafélag Íslands ehf.
3.000.000.000 kr.
1. flokkur 2004
Nafnver› útgáfu: Heildarnafnverð flokksins er 3.000.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa: Skuldabréf 1. flokks 2004 eru gefin út til 5 ára og greiðist höfuðstóll
með einni afborgun þann 1. nóvember 2009. Vextir greiðast einu sinni
á ári, þann 1. nóvember ár hvert, fyrst 1. nóvember 2005. Útgáfudagur
bréfsins er 1. nóvember 2004. Skuldabréfið ber 5,30% fasta ársvexti.
Auðkenni flokksins í Kauphöll Íslands verður EIM 04 1.
Skráningardagur: Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 17. desember 2004.
Í STUTTU erindi á aðalfundi
Landsnefndar Alþjóða verslunar-
ráðsins á föstudag lýsti Jóhannes
Jónsson útrás Baugs Group allt frá
því að starfsemi Bónuss hófst í
Færeyjum árið 1993. Jóhannes
lýsti því sem hann kallar Bónus-
hugsunarháttinn. Hann sagði að
skilvirkni, snerpa í hugsun og það
að bregðast snöggt við þeim tæki-
færum sem gæfust, væru lykilat-
riði í útrás fyrirtækisins.
Hann tók þó fram að reynslan af
Bonus Dollar Stores í Bandaríkj-
unum hefði kennt mönnum að aldr-
ei er of varlega farið. Þess vegna
láti Baugur ávallt gera fyrir sig
áreiðanleikagreiningu áður en farið
er út í viðskipti. „Við brenndum
okkur mjög illa í Bandaríkjunum
en sluppum lifandi frá því,“ sagði
Jóhannes og sagði að nú væri það
stefna fyrirtækisins að kaupa ekki
fyrirtæki sem eru í vandræðum.
Það sem hafi gert fyrirtækið eins
farsælt og raun ber vitni sé að ein-
faldleikinn sé alltaf hafður að leið-
arljósi.
Ef hægt sé að einfalda rekstur
fyrirtækis þá sé hægt að gera það
skilvirkara og þar með bæta af-
komu þess. Annað lykilatriði sé að
bjóða stjórnendum fyrirtækja, sem
keypt eru, að eignast hlut í fyr-
irtækinu þar sem þeir leggi allt sitt
af mörkum til þess að láta rekst-
urinn ganga vel. „Ef þetta heppn-
ast hjá þeim, þá heppnast það hjá
okkur,“ sagði Jóhannes.
Nýr formaður Landsnefndar
Á fundinum voru sex nýir stjórn-
armenn kjörnir: Jóhannes Jónsson,
Einar Sveinsson, stjórnarformaður
Íslandsbanka, Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, Ágúst
Guðmundsson, stjórnarformaður
Bakkavarar, Gunnar Svavarsson,
forstjóri SH, og Brynjólfur Bjarna-
son, forstjóri Símans. Einar
Sveinsson var kjörinn formaður en
fráfarandi formaður er Brynjólfur
Helgason, framkvæmdastjóri
Landsbankans.
Morgunblaðið/Golli
Nýr stjórnarmaður Jóhannes Jónsson í Bónus er nýr í stjórn Landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins.
„Brenndum okkur illa
í Bandaríkjunum“
Jóhannes í Bónus á fundi Alþjóða verslunarráðsins
FORSVARSMENN Baugs hyggj-
ast selja Woodwards matvælabúð-
irnar keppinautnum 3663, nái yf-
irtaka félagsins á Big Food Group-
samsteypunni (BFG) fram að
ganga. Baugur hefur frest til föstu-
dags til að gera formlegt 326 millj-
óna punda boð í BFG.
Breska dagblaðið Sunday Tele-
graph sagði í gær, að forsvarsmenn
Baugs hefðu í hyggju að brjóta fé-
lagið upp en það á frystivörukeðj-
una Iceland, Booker smásölukeðj-
una og Woodwards. Hermt er að
sérfræðingar telji að 3663, sem er í
eigu suður-afríska félagsins Bid-
vest, sé reiðubúið að borga allt að
40 milljónir punda fyrir Wood-
wards, en 6,4 milljóna punda tap –
tæplega 800 milljónir króna – varð
á rekstri keðjunnar á síðasta
rekstrarári. Heildarvelta Wood-
wards var 119 milljónir punda á
árinu.
Hyggjast selja
Woodwards-keðjuna
EITT stærsta olíumengunarhreinsi-
fyrirtæki í heimi, OSRL, prófar nú og
reynslukeyrir í höfuðstöðvum sínum í
Bretlandi frumeintak þróunarfélags-
ins Elí ehf. af ELI 2000 sem er fjöl-
nota björgunar- og hreinsitæki.
Auðunn Snævar Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Elí, segir ELI 2000
vera dælutæki sem hannað sé til að
fjarlægja olíumengun af yfirborði
sjávar í hvirfilsamspili. Það sé einnig
öflugt til slökkvistarfa, sérstaklega í
skógareldum þar sem afkastageta
þess sé 240 rúmmetrar á klst, eða
4.000 lítrar á mínútu. „Markmið Elí
ehf. er að framleiða nokkrar stærðir
ELI plóga til fjölbreytilegra nota s.s.
til hreinsunar olíumengunar úr sjó og
vötnum, slökkvistarfa í skógum og
kjarreldum, fyrir verktaka til að dæla
vökva til eða frá vinnusvæðum og til
björgunarstarfa á flóðasvæðum,“ seg-
ir í tilkynningu. Til þess að geta kom-
ið öflugum dælutækjum til svæða
sem oft geta reynst ófær venjulegum
farartækjum eru ELI plógar hann-
aðir á hjóla- og beltagröfur.
Auðunn segir að hafinn sé undir-
búningur að samstarfi við danska
dæluframleiðandann IRON Pump,
sem sé leiðandi alþjóðlegt dælufyrir-
tæki.
ELI í prófanir í Bretlandi
AFL fjárfestingarfélag hf. sem er í
99% eigu Fjárfestingarfélagsins
Atorku hf. hefur keypt 220 þúsund
hluti, 0,22% hlutafjár, til viðbótar í
breska fyrirtækinu Low & Bonar
plc. Þetta kemur fram í tilkynningu á
heimasíðu kauphallarinnar í Lond-
on. Þar með á Afl rúmlega 18 millj-
ónir hluta í Low & Bonar eða 18,12%
hlutafjár. Þessi kaup eru í samræmi
við fyrri ummæli Styrmis Þórs
Bragasonar, framkvæmdastjóra
Atorku, um að Low & Bonar sé gott
fyrirtæki og spennandi fjárfesting-
arkostur.
Afl bætir við sig í Low & Bonar
ACTAVIS hefur gert tæplega
tveggja milljarða króna lánasamning
við Norræna fjárfestingabankann
(NIB), eða sem nemur 24 milljónum
evra. Samningurinn er gerður vegna
byggingar nýs þróunarseturs sam-
stæðunnar í Hafnarfirði. Um er að
ræða þróunarverksmiðju og rann-
sóknastofu og er stefnt að því að
byggingin verði tekin í notkun í lok
næsta árs. Í tilkynningu frá Actavis
segir að lánið verði einnig nýtt til
fjármögnunar á helstu þróunarverk-
efnum félagsins, s.s. vegna lyfja-
rannsókna hjá Colotech A/S, dóttur-
félagi Actavis í Danmörku.
Þróunarsetur Actavis er nú til
húsa í Borgartúni og Skútuvogi í
Reykjavík en öll starfsemi félagsins
verður flutt að Reykjavíkurvegi í
Hafnarfirði, þar sem eru höfuðstöðv-
ar Actavis á Íslandi.
„Lánið sem Norræni fjárfestinga-
bankinn veitti er tákn um það traust
sem bankinn ber til Actavis og
stuðningur við útrás félagsins á er-
lendum vettvangi,“ segir Róbert
Wessman, forstjóri Actavis, í til-
kynningu félagsins. Þar kemur einn-
ig fram að lánið sé til átta ára en end-
urgreiðsla hefjist árið 2008.
Heildarflatarmál þróunarverk-
smiðju og rannsóknastofu Actavis
verður í kringum 4.000 fermetrar.
Actavis tekur lán fyrir
þróunarsetri í Hafnarfirði