Morgunblaðið - 13.12.2004, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 21
UMRÆÐAN
um komin í jólaskap...
...og bjóðum upp á ilmandi kaffi og piparkökur.
Verið velkomin í jólastemninguna
og fáið dagatal ársins 2005.
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir alla
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
20% afsláttur
af brettapökkum
Betti, bindingar og skór.
Úrval af Sessions brettafatnaði.
Vertu viss
...veldu Rossignol snjóbretti
um gæðin...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4
H a f n a r s t r æ t i 5
R e y k j a v í k
s í m i : 5 5 2 9 0 7 0
Höfum opnað að nýju eftir stækkun og breytingar. Fallegt og notalegt umhverfi. Einnig
eru komnar nýjar vörur og meðferðir frá Guinot. Af þessu tilefni bjóðum við endurnærandi
andlitsmeðferð frá Guinot á tilboðsverði dagana 10. - 17. desember 2004.
Dekraðu við sjálfan þig í jólamánuðinum, tryggðu þér tíma.
Gefðu góða gjöf, gjafakort Snyrtistofu Ágústu.
Tilboðsverð á andlitsmeðferð kr. 5.900,-
Verð áður kr. 6.800,-
Snyrtistofan Ágústa opnar eftir breytingar!Í SUMAR hlutstaði ég á viðtal
á Rás 2 við mann sem áhuga
hafði á nútíma
draugasögum, góðan
sagnamann. Spyrill-
inn afsakaði margoft
að hafa sagt mann-
inn frá Keflavík en
ekki Reykjanesbæ,
sem væri nýja heitið
á heimabyggð við-
mælandans.
Fyrir nokkrum
dögum birtist aug-
lýsing í dagblöðum
um að til sölu væri
bygging á Núpi í
Ísafjarðarbæ. Við
nánari lestur kom í
ljós að átt var við
staðinn Núp í Dýra-
firði sem nú tilheyrir
sveitarfélaginu Ísa-
fjarðarbæ.
Í haust voru þrír
meintir glæpamenn
handteknir á höf-
uðborgarsvæðinu.
Einn var úr Hafn-
arfirði, einn úr
Kópavogi og einn úr
Austurbyggð. Og ég
sem hélt að ná-
grannar mínir hérna
í Austurbyggðinni á
Akureyri væru frið-
semdarfólk og heið-
arlegt. Líklega hefur þó verið átt
við samnefnt sveitarfélag á Aust-
urlandi.
Þetta eru þrjú dæmi um það
hvernig ruglandaháttur í nafn-
giftum sveitarfélaga hefur sett
mörg staðarheiti í uppnám og
brenglað notkun og viðhald ör-
nefna og heita á héruðum, byggð-
um, bæjum og sveitum um allt
land.
Undanfarin ár hafa fjölmörg
sveitarfélög verið sameinuð í
burðugar og rekstrarhæfar ein-
ingar sem veitt geta þá þjónustu
sem nauðsynleg er og íbúarnir
eiga rétt á. Nýju sveitarfélögin
hafa fengið ný og fjölbreytt nöfn,
ýmist kennd við byggð, bæ, sveit,
þing eða borg en aldrei hrepp
eins og tíðkast hefur um aldir.
Hið ágæta orð hreppur vísar til
rekstrarheildar með félagslegt
hlutverk á sama hátt nú og til
forna. Það samsvarar orðinu
kommúnu í málum grannlanda
okkar og hentar því einstaklega
vel í þessu samhengi. Tilburðir
til þess að losna við hreppinn úr
sveitarfélaganöfnum hafa stund-
um endað með ósköpum og af-
káraskap. Sveitarfélagið Árborg
er gott dæmi um slæma lausn á
málinu. Reykjanesbær er ekki til.
Snæfellsbær er heldur ekki til og
verður væntanlega aldrei. Ísa-
fjarðarbær er hins vegar til en
hann er ekki í Dýrafirði eins og
skilja má af auglýs-
ingunni sem ég
nefndi.
Við þurfum að gæta
þess að viðhalda ör-
nefnum og heitum á
svæðum og héruðum
og að ný og klaufaleg
nöfn á stjórn-
sýslukerfum eyðileggi
þau ekki. Með því að
nota sveit, byggð og
bæ sem endingu á
heitinu á hrepps-
skrifstofunni setjum
við Viðvíkursveit,
Staðarbyggð og
Þykkvavæ (sem ekki
eru sveitarfélög) í
uppnám og eigum á
hættu að þau stað-
arnöfn og ótal önnur
missi gildi sitt, valdi
ruglingi og týnist úr
daglegu tali.
Vilji menn ekki
nota endinguna
hreppur legg ég til að
lögfest verði að sveit-
arfélög verði nefnd
þing. Það vísar til
þess að í landinu eru
tvö stjórnsýslustig,
alþingi og sveit-
arstjórnir eða sveit-
arstjórnarþing. Orðið þing vísar
bæði til þess sem felst í stjórn og
rekstri sveitarfélags (samkoma
þar sem kjörnir fulltrúar setjast
á rökstóla og ráða ráðum sam-
félagsins) og til landsvæðis sem
tilheyrir ákveðnum þingstað (sbr.
Húnaþing). Bæir, þorp og byggð-
ir tilheyrðu þá sínu sveitarstjórn-
arþingi og skýrt yrði og greini-
legt við hvort væri átt í
umræðum, staðinn eða stjórn-
sýslukerfið. Staðirnir myndu
halda nöfnum sínum vegna þess
að heiti stjórnsýslunnar yrði að-
greint frá staðarheitum á skýran
og augljósan hátt. Keflavík yrði í
Reykjanesþingi, Ólafsvík og Hell-
issandur í Snæfellsþingi og Núp-
ur í Dýrafirði í Ísafjarðarþingi.
Selfoss gæti verið í Flóaþingi ef
menn vilja ekki kenna sveitarfé-
lagið við Selfoss (eða jafnvel Ár-
þingi ef menn vilja endilega hafa
heitið út í hött).
Annars eru yfirleitt bara góðar
fréttir héðan úr Austurbyggð, ró-
legri húsagötu á Suður-Brekk-
unni á Akureyri.
Hugleiðingar um
nöfn sveitarfélaga
Árni Ólafsson fjallar um
nafngiftir sveitarfélaga
Árni Ólafsson
’Við þurfum aðgæta þess að
viðhalda örnefn-
um og heitum á
svæðum og hér-
uðum og að ný
og klaufaleg
nöfn á stjórn-
sýslukerfum
eyðileggi þau
ekki.‘
Höfundur er íbúi í Austurbyggð,
Akureyri.