Morgunblaðið - 13.12.2004, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
98
1
2/
20
04
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
98
1
2/
20
04
Landsbanki Íslands hf.
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands,
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarlýsingu og önnur gögn sem vitnað er til í lýsingunni er hægt að
nálgast hjá Landsbanka Íslands.
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
Jeratún ehf.
330.000.000 kr.
1. flokkur 2004
Nafnver› útgáfu: Heildarnafnverð flokksins er 330.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa: Skuldabréf 1. flokks 2004 eru gefin út til 20 ára og greiðist höfuðstóll
með 80 afborgunum fjórum sinnum á ári, fyrst þann 1. janúar 2005
og síðast 1. október 2024. Vextir greiðast á gjalddögum afborgana.
Útgáfudagur bréfsins er 10. febrúar 2004. Skuldabréfið ber 5,10%
fasta ársvexti. Auðkenni flokksins í Kauphöll Íslands verður JTUN 04 1.
Skráningardagur: Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 17. desember 2004.
JERATÚN
HIÐ ljósa man, eftir Halldór
Kiljan Laxness kom út 1944.
Skoðanir manna á verkum
skáldsins og á skáldinu sjálfu
voru mjög skiptar; sumum þóttu
verk hans vond. Ég var undir
vissum áhrifum frá móður
minni, sem fannst hann góður
rithöfundur; sagði þó, að skáldið
ætti til að hrífa sig með texta
sínum og gefa sér síðan utan
undir í næstu andrá. Ég komst
yfir Hið ljósa man, þegar bókin
kom út, og þótti góð; svo góð, að
líkja má við fíkniefnasprautu,
sem ég hef ekki losnað undan
síðan. Nú er svo komið, að ég
þarf ekki að eiga aðrar bækur
en bækur Laxness, og er nánast
sama, hvar opnað er; eru þó
verk Halldórs misgóð.
Ég las bók Hannesar Hólm-
steins um Halldór í fyrra. Nú er
ég búinn að lesa bók Halldórs
Guðmundssonar um skáldið.
Fyrir mig eru þessar bækur
báðar góðar, sem ég ræð af því,
að síðustu tvo áratugi hef ég
undantekningarlítið gefist upp á
hverri ævisögunni á fætur ann-
arri, en þessar bækur tvær gat
ég lesið þrautalaust og af áhuga;
bíð nú í eftirvæntingu eftir Kilj-
an Hannesar Hólmsteins.
Bók Hannesar Hólmsteins um
Halldór hefur sína galla, sem
bókmenntafróðir og fleiri hafa
tíundað rækilega. Ekki hef ég
séð neina umfjöllun um bók
Halldórs Guðmunds-sonar frá
þeim, sem mest tjáðu sig um
gallana á bók Hannesar Hólm-
steins. Einn fræðingur lýsir bók
Halldórs Guðmundssonar svo á
heimasíðu sinni, að hún sé svo
fullkomin, að þessi fræðingur
hafi fengið „hjartslátt og svima“
og „rosalegt kikk“ af að lesa
hana. Sami fræðingur átti ekki
orð til að lýsa gleði sinni, „titr-
andi af spenn-ingi“ yfir því, að
Halldór Guðmundsson skyldi
hafa komist yfir „bréfin frá
Ingu“; trúlega vegna þess heim-
ildargildis, sem þau hafi. Ég
held, að Halldór Guðmundsson
vísi 5-6 sinnum í bréf Ingibjarg-
ar þann tíma, sem parið skrif-
aðist á. Á sama tíma er vísað í
bréf skáldsins til Ingibjargar
60-100 sinnum.
Eftir lestur bókar Halldórs
Guðmundssonar er ég fullur
aðdáunar, ekki hvað síst á þol-
inmæði höfundarins við að vitna
í heimildir um einkalíf skáldsins.
E.t.v. þykir mér nú að lestri
loknum óþarflega miklu plássi
eytt í umfjöllun um fjármál og
kvennafar skáldsins á kostnað
annars; svo og í umfjöllun um
kynni hans af þjóðhöfðingjum og
stórmennum öðrum. Að lestri
loknum detta mér nú óþarflega
mikið í hug tímarit, sem nú eru í
tísku og fjalla um stór nöfn í
þjóðlífinu með glansmyndum af
þessum stóru nöfnum í fé-
lagsskap þjóðhöfðingja. Þá
finnst mér Halldór Guðmunds-
son fara óþarf-lega mjúkum
höndum um „uppgjör“ skáldsins
við fortíð sína í stjórnmálum, og
gefur þó Skáldatími ærið tilefni
til þess. Loks sakna ég ítarlegri
umfjöllunar um viðbrögð við
bókum skáldsins, þegar þær
komu út, og svo meiri umfjöllun
bókmenntafræðings-ins sjálfs
um bækurnar. Mér er hins veg-
ar ljóst, að Halldóri Kiljan Lax-
ness verða ekki gerð þau skil á
760 bls., að öllum þyki fullkomið.
Kaflinn um lokaár skáldsins
er svo frábær, að allar að-
finnslur sljóvgast. Er það vegna
þess, að þá eru þjóðhöfðingjar
og stórmenni horfin, en Auður
alveg tekin við?
Sem sagt, takk fyrir góða ævi-
sögu. Við skulum ekki kross-
festa neinn, en gef oss Hannes
Hólmstein lausan. „Og fegurðin
mun ríkja ein“.
Axel Kristjánsson
…et dimitte
nobis Barraban.
Höfundur er lögfræðingur.
(Lúkas, 23,18.)
Eftirfarandi greinar eru á mbl.is:
Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir: „Ég vil hér með votta okkur mína
dýpstu samúð vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslensku þjóð-
félagi með skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar í stöðu hæstarétt-
ardómara. Ég segi okkur af því að ég er þolandinn í „Prófessorsmál-
inu“.“
Sveinn Aðalsteinsson: „Nýjasta útspil Landsvirkjunar og Alcoa er að
lýsa því yfir að Kárahnjúkavirkjun, álbræðslan í Reyðarfirði og línu-
lagnir þar á milli flokkist undir að verða „sjálfbærar“!“
Hafsteinn Hjaltason: „Landakröfumenn hafa engar heimildir fyrir
því, að Kjölur sé þeirra eignarland, eða eignarland Biskupstungna- og
Svínavatnshreppa.“
María Th. Jónsdóttir: „Á landinu okkar eru starfandi mjög góðar
hjúkrunardeildir fyrir heilabilaða en þær eru bara allt of fáar og fjölgar
hægt.“
Guðmundur Hafsteinsson: „Því eru gráður LHÍ að inntaki engu frem-
ur háskólagráður en þær sem TR útskrifaði nemendur með, nema síður
sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
SVEINN Rúnar Hauksson skrif-
aði hér grein 1. des. um sjálfstæð-
ismál Palestínuaraba. Þar hnaut ég
um eftirfarandi orð: „Hernám Pal-
estínu er orðið langvinnara en
nokkurt annað í síðari
tíma sögu mannkyns.“
Við þessa setningu
verð ég að gera þá at-
hugasemd, að þetta
stenzt engan veginn.
Hernám Vesturbakk-
ans hefur varað frá
1967 (Sex daga stríð-
inu), en Tíbets allt frá
1949–51 þegar kín-
verska komm-
únistastjórnin lagði
landið undir sig. Und-
arlegt að geta gleymt
þessu! Ástæðan er
ekki sú að þeir landvinningar hafi
gengið ljúflega fyrir sig, öðru nær.
Allar þjóðir, sem nú draga andann,
að Darfúrmönnum undanteknum,
myndu prísa sig sælar yfir hlut-
skipti sínu í samanburði við þær
þjáningar sem hin friðsama þjóð
Tíbeta varð að þola af hendi inn-
rásarhersins og síðar ofstækisfullra
Rauðra varðliða og annarra ofsækj-
enda áratugum saman.
Sveinn Rúnar hefur áður, í við-
tali í Útvarpi Sögu í maí 2003, talað
á sömu nótum, jafnvel í enn ýktari
mynd. Þar sagði hann að hernám
Ísraels á Vesturbakkanum væri
„lengsta hernám sögunnar“ og
„grimmasta hernám sögunnar,“ og
er hvort tveggja fjarri lagi. Harð-
svírað hernám Sovétmanna á
Eystrasaltslöndunum hafði t.d. var-
að rúma hálfa öld þegar því loksins
linnti um 1991, og til eru mun
stærri dæmi, bæði frá nýlendutím-
anum og allt frá fornöld. (Naumast
þarf að taka fram að með þessari
grein er ekki sagt eitt aukatekið
orð gegn því að Palestínumenn eigi
að njóta réttlætis.) Hvað grimmd-
ina snertir megum við minnast
þess að mannfall í hernámi Sov-
étmanna á Afganistan 1979–89 nam
1,5–1,6 milljónum manna, enn fleiri
særðust, og 5–6 milljónir hröktust í
útlegð, sem olli stærsta flótta-
mannavandamáli í sögu SÞ. Samt
var þetta lítið hlutfallslega miðað
við aðfarir Kínverja í Tíbet, eins og
lesa má um í Le livre noir du
Communisme (svartbók komm-
únismans) o.fl. heimildum.
Alger undirokun
þjóðar
Hálfur 8.000 manna
her Tíbets var strá-
felldur strax í byrjun.
Milli 10 og 20% þjóð-
arinnar (a.m.k. um
432.000 manns) og
jafnvel allt að 700.000
hafa fallið í árásum
’Þjóðfrelsishersins’
kínverska og annarra
ofbeldismanna þaðan,
þ.m.t. um 70.000
manns vegna hung-
ursneyðar af manna-
völdum 1959–63 og um 173.000
(skv. leyniþjónustu Dalai Lama) í
fangabúðunum 166, sem þekktar
eru, en þaðan sluppu sárafáir lif-
andi. Heil munkasamfélög voru
send í kolanámurnar. Vart er til sú
fjölskylda í landinu sem sér ekki á
bak ástvini sínum. Austur- og N-
Tíbet (hálft landið) var innlimað í
héröð í Kína og fólk þar beitt enn
meiri hörku en á ’sjálfstjórn-
arsvæðinu Tíbet’ í vesturhlutanum.
Fjöldi Kínverja var fluttur inn, þar
af um 300.000 til V-Tíbets, 2⁄3 þeirra
hermenn, og gerði það, ásamt með
þjóðnýtingu og niðurbroti landbún-
aðarhátta, lífsafkomu Tíbeta enn
erfiðari en ella. ’Stóra stökkið fram
á við’ og ’Menningarbyltingin’ léku
þjóðina grimmilega, m.a. var
óheyrilegu magni menning-
arverðmæta eytt, yfir 6.000 helgi-
stöðum lokað eða þeim breytt í
annað, styttur bræddar upp í
hundraða tonna tali, myndum og
handritum rænt eða þeim tortímt,
og var sú eyðing margfalt hræði-
legri en sú sem talíbanar stóðu fyr-
ir í öðru Mið-Asíulandi, Afganistan.
Um 100.000 manns tókst að flýja
land, þ.m.t. um hálfri forystusveit
þjóðarinnar og leiðtoga hennar,
Dalai Lama. Mandarín-kínverska
var til 1979 eina tungumálið sem
leyft var við kennslu í skólum
landsins. Tíbezkar konur á barn-
eignaaldri þora naumast að fara á
sjúkrahús af ótta við fóstureyðingu
eða geldingu. Þegar Hu Jaobang,
aðalritari kínverska komm-
únistaflokksins, sótti höfuðborgina
Lhasa heim 1980, ofbauð honum
svo örbirgðin og gjáin milli Tíbeta
og Han-Kínverja þar, að hann kall-
aði það „hreina og slétta ný-
lendustefnu“.
Heildarfjöldi fallinna Palest-
ínumanna á Vesturbakkanum og
Gaza kemst sem betur fer ekki
nema örlítið í áttina til þeirra
skelfilegu talna sem hér mátti lesa.
Hjarta okkar nærri?
Hvað veldur þögn okkar um hlut-
skipti Tíbeta? Ekki gott atlæti
þeirra, svo mikið er víst. Það væri
stór ávinningur fyrir málstað Tíb-
ets ef það fengi þótt ekki væri
nema brotabrot af þeirri athygli
sem Palestína fær í fréttaflutningi
fjölmiðla. Ástæða vanrækslunnar
getur hvorki verið sú að Kínverjar
eigi neitt inni hjá okkur né að Tíb-
etar hafi gert öðrum þjóðum neitt
til miska. Ef íslenzkir friðarsinnar
vilja virkilega finna dæmi um þjóð
sem á sér langa friðarhefð og lagt
hefur stund á ofbeldislaust líferni –
eða sýna samstöðu með fólki sem
nánast varnarlaust var knosað og
svívirt undir hernaðarhæl stór-
veldis, þá eru það Tíbetar sem
ættu að standa okkur einna næst
hjarta.
Lengsta hernámið:
Tíbet eða Palestína?
Jón Valur Jensson
fjallar um Tíbet ’Heildarfjöldi fallinnaPalestínumanna á Vest-
urbakkanum og Gaza
kemst sem betur fer
ekki nema örlítið í áttina
til þeirra skelfilegu
talna sem hér mátti
lesa. ‘
Jón Valur Jensson
Höfundur er guðfræðingur, ætt-
greinir og áhugamaður um sögu.
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn