Morgunblaðið - 13.12.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 23
UMRÆÐAN
FRAMUNDAN er hátíð lífs og
ljóss, helguð kærleikans fagn-
aðarboðskap umfram allt. Aðvent-
an, tími undirbúnings, tími vænt-
inga, á einnig að gefa okkur tóm
til íhugunar um það sem mestu
skiptir í lífinu, hin sönnu lífsgæði.
En aldrei sem þá finnum við meira
til þess ójafnaðar í lífskjörum sem
sannanlega viðgengst í okkar ann-
ars ríka samfélagi, aldrei sem þá
vekja váleg tíðindi skelfingu í
hjarta okkar, aldrei sem þá hvílir
skuggi vímuefnanna og afleiðingar
þeirra yfir hugum okkar.
Það eru vægast sagt skelfileg
tíðindi í miðjum fregnum af millj-
arðaleik kaupahéðnanna að aldrei
leiti fleiri til hjálparstofnana af
bráðbrýnni þörf en nú fyrir þessi
jól, ungir öryrkjar þar áberandi,
sem fengu þó fyrir vaska baráttu
Öryrkjabandalagsins verulega
leiðréttingu á þessu ári. Þetta er
fólk sem beinlínis verður að leita
sér aðstoðar í þeirri von að geta
þó gjört sér eitthvað smávegis til
hátíðabrigða um jólin. Það fer
nefnilega ekki milli mála að það er
vitlaust gefið í samfélagi okkar,
svo vitnað sé í fleyg orð skáldsins
af skyldu tilefni. Smán samfélags-
ins sú að ekki skuli betur séð fyrir
brýnustu þörfum þessa fólks en
raun ber vitni, en aðeins speg-
ilmynd þess auðgræðgiviðhorfs
svo alltof víða sem telur að öll
auðsöfnun sé af hinu góða, rétt
eins og enginn þurfi fyrir að
greiða og sama hversu sá auður er
fenginn.
Annað dapurt áhyggjuefni varð-
ar böl hvers konar vímuefna þar
sem áfengið er allra skaðvalda
mikilvirkast sakir hinnar almennu
neyzlu og þó fyrst og fremst of-
neyzlu. Stórfelld aukning áfeng-
isneyzlu hér á landi er uggvænleg
og afleiðingarnar hvarvetna á fleti
fyrir, einnig á aðventu, þegar slík
vá ætti að vera víðs fjarri. Of
mörg hörmuleg atvik eiga rætur
sínar í áfengisneyzlu og vekja öllu
hugsandi fólki ákveðna skelfingu.
Við sem störfum í fjölmiðla-
nefnd Bindindissamtakanna viljum
hvetja alla til að ganga nú hægt
um „gleðinnar dyr“ á aðventu,
þær dyr geyma sér að baki of oft
hreina andstæðu gleði og ham-
ingju, við viljum benda á þau sí-
gildu sannindi að jól og áfengi
eiga alls ekki saman. Við viljum
mega treysta dómgreind fólks að
það leiki sér ekki að því að van-
helga hátíð ljóss og friðar með
slíkri neyzlu. Því segjum við:
Gleðileg vímulaus jól.
Á aðventu
Helgi Seljan fjallar um fátækt
og vímuefnaneyslu
Helgi Seljan
’Við viljum megatreysta dómgreind fólks
að það leiki sér ekki að
því að vanhelga hátíð
ljóss og friðar…‘
Höfundur er form. fjölmiðlanefndar
Bindindissamtakanna.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050