Morgunblaðið - 13.12.2004, Side 30
30 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Munið
að slökkva
á kertunum
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
Hafið ekki mishá
kerti of nálægt hvert
öðru. Hiti frá lægra
kerti gæti brætt
hærra kertið.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
❄
❄
❄
❄❄
❄
Í FORYSTUGREIN Morg-
unblaðsins sunnudaginn 12. des-
ember var vitnað í ummæli sem
ég viðhafði á fundi KB banka
fimmtudaginn 9. des. Mér finnst
almennt ekkert við
það að athuga að
vitnað sé í mig í for-
ystugreinum eða í
öðru efni í Morg-
unblaðinu en finnst
nú að ég þurfi að
koma á framfæri
smáathugasemd. Til-
vitnunin er ekki í
neinu samhengi við
efnið sem verið er að
fjalla um í for-
ystugreininni.
Í ræðu minni á
fundinum fjallaði ég
um það vandamál að þegar bank-
arnir færa reikninga sína í ís-
lenskum krónum hækkar eig-
infjárhlutfall þeirra sjálfkrafa
þegar gengi krónunnar hækkar
vegna þess hve erlendir liðir eru
fyrirferðarmiklir í efnahagsreikn-
ingum þeirra. Þetta þýðir að út-
lánageta bankanna eykst á sama
tíma og Seðlabankinn er að beita
aðhaldsaðgerðum gegn of mikilli
eftirspurn og verðbólgu og vinnur
þannig gegn viðleitni Seðlabank-
ans. Hið gagnstæða gerist þegar
gengið lækkar, þá
lækkar eiginfjárhlut-
fallið hjá bönkunum
og útlánageta þeirra
minnkar þegar hún
þyrfti frekar að geta
vaxið. Niðurstaðan er
sú að bankarnir geta
auðveldlega verið að
magna hagsveifluna
og gera hagstjórnina
vandasamari en ann-
ars væri.
Ég hef sjálfur áður
viðrað þá hugmynd að
gera ætti hærri eig-
infjárkröfur í uppsveiflu og lægri í
niðursveiflu þannig að bankarnir
lendi ekki í þessari stöðu og Þórð-
ur Pálsson, forstöðumaður grein-
ingardeildar KB banka, setti
þessa hugmynd fram á fundi
Verslunarráðsins nýlega. Ástæðan
fyrir ummælum mínum um af-
stöðu Fjármálaeftirlitsins var sú
að það er ekki hlutverk þess að
sjá um hagstjórn, heldur að hafa
eftirlit með fjármálafyrirtækjum á
forsendum markaðarins sjálfs.
Fjármálaeftirlitið hefur engar
heimildir til þess að hækka og
lækka eiginfjárhlutföll eftir því
hvert gengi krónunnar er og taka
þannig þátt í hagstjórninni. Slíkar
heimildir eru, að því er ég veit,
hvergi fyrir hendi.
Sú vinna sem Fjármálaeftirlitið
Eiginfjárhlutfall banka
og hagsveiflan
Vilhjálmur Egilsson
fjallar um efnahagsmál ’Íslenska krónan er þvíekki lengur raunveru-
legur starfrækslugjald-
miðill þessara banka
heldur má reikna með
því að það sé evran eða
annar erlendur gjald-
miðill.‘
Vilhjálmur Egilsson
ÞAÐ ER alltaf jafn gleðilegt að
heyra af íþróttaafrekum fatlaðs
fólks hér á landi. Fatlaðir íþrótta-
menn hér á landi hafa fyrir löngu
skipað sér í allra fremstu röð í heim-
inum í sínum íþróttagreinum og þau
eru ófá heims- og ólympíumetin sem
þeir hafa sett, sem og heims- og ól-
ympíumeistaratitlar sem þeir hafa
hampað á und-
anförnum árum. Það
gefur augaleið að
íþróttaafrek fatlaðra
einstaklinga eru gíf-
urlega mikil hvatning
fyrir aðra fatlaða ein-
staklinga, sérstaklega
börn og unglinga. Fötl-
un, af hvaða tagi sem
hún er, er hamlandi
fyrir einstaklinginn og
þrengir möguleika
hans til þess að lifa
eðlilegu lífi. Fyrir fötl-
uð börn og unglinga
hlýtur það því að vera mikil upp-
örvun að sjá og skynja þann mögu-
leika að þau geti stundað íþróttir við
hæfi og náð jafnvel í fremstu röð í
heiminum ef þau leggja hart að sér.
Hér á landi hefur það lengi verið
umtalsefni hvaða ábyrgð íþrótta-
menn í fremstu röð bera gagnvart
börnum sem gjarnan líta upp til
þeirra og vilja líkjast þeim. Að vera
góð fyrirmynd er því ábyrgð sem af-
reksíþróttafólk verður að bera. Fyr-
ir ófötluð börn er um margar
íþróttagreinar að velja og fyr-
irmyndirnar geta því verið margar.
Fyrir fötluð börn er valið hins vegar
oftast töluvert þrengra. Og þótt fjöl-
miðlar hampi afrekum fatlaðra eru
þeir samt sem áður ekki við-
urkenndir að fullu fyrir afrek sín.
Það hefur nefnilega verið þannig að
það virðist engu máli skipta hversu
vel fatlaður íþróttamaður stendur
sig á stórmótum, hann hefur aldrei
staðið jafnfætis ófötluðum íþrótta-
manni við kjör á íþróttamanni ársins
hér á landi. Við skulum taka sem
dæmi árið 2000 í Sydn-
ey. Þá þótti afrek
Kristínar Rósar Há-
konardóttur að vinna
tvö ólympíugull og eitt
ólympíubrons ekki á
við eitt ólympíubrons
hjá ófötluðum íþrótta-
manni. Það var ekki
einu sinni eins merki-
legt og fjórða sætið á
Ólympíuleikum hjá
ófötluðum. Það var
meira að segja ómerki-
legra en sjöunda sætið
á ólympíuleikum ófatl-
aðra! Kjör íþróttamanns ársins það
árið staðfesti þetta. Hér á landi hef-
ur það ríkt um áratuga skeið að
íþróttafréttamenn velji íþróttamann
ársins í desembermánuði. Síðastliðið
sumar var ólympíusumar. Okkar
íþróttafólk sem tók þátt í leikunum í
Aþenu stóð að mestu leyti ekki undir
væntingum ef frá er talin glæsileg
frammistaða Rúnars Alexand-
erssonar á bogahesti þar sem hann
hreppti sjötta sætið. Á Ólympíu-
leikum fatlaðra stóð Kristín Rós Há-
konardóttir sig frábærlega eins og
alltaf og hreppti m.a. gullverðlaun.
Það eru margir til kallaðir þegar
velja á íþróttamann ársins, þann
fremsta meðal jafningja. Í slíku kjöri
hljótum við að gera þá kröfu til
íþróttafréttamanna að þeir meti af-
rek þeirra einstaklinga sem til-
nefndir eru á jafnréttisgrundvelli.
Það hafa þeir hingað til ekki gert.
En enginn er spámaður í eigin föð-
urlandi og væntanlega hafa þeir nú
séð ljósið í þessum efnum því við-
urkenningum á alþjóðavettvangi
rignir yfir Kristínu Rós Há-
konardóttur vegna afreka hennar.
Eurosport hefur til að mynda valið
hana íþróttamann ársins. Hingað til
hefur verið gengið framhjá fötluðu
íþróttafólki við kjör íþróttamanns
ársins. Þeir hafa hlotið tilnefningu
en aldrei titilinn. Að tilnefna fatl-
aðan íþróttamann sem hefur unnið
tvö ólympíugull og eitt ólympíu-
brons en ganga síðan algjörlega
framhjá honum við sjálft kjörið eru
skýr skilaboð til fatlaðs íþróttafólks:
„Þið getið aldrei orðið íþóttamenn
ársins á Íslandi.“ Ég vona að íþrótta-
fréttamenn þessa lands sjái nú að
sér og hafi siðferðilegt þrek til að
velja þann fremsta meðal jafningja í
ár og breyti þar með þessum skila-
boðum. Það ætti ekki að vefjast fyrir
þeim í þetta skiptið eða hvað?
Fremstur meðal jafningja?
Ragnar Thorarensen fjallar
um val íþróttamanns ársins ’Hingað til hefur veriðgengið framhjá fötluðu
íþróttafólki við kjör
íþróttamanns ársins. ‘
Ragnar Thorarensen
Höfundur á fatlaðan föður.
Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is
Úrslitin í ítalska boltanum
beint í símann þinn