Morgunblaðið - 13.12.2004, Page 31
er nú að hefja, og gæti leitt til
hærri eiginfjárkröfu, hefur ekkert
með hagsveifluna eða hagstjórn að
gera heldur gæti breytt áhættu-
mat á útlánasöfnum bankanna
leitt til slíkrar niðurstöðu. Hærri
eiginfjárkrafa af þeim ástæðum
breytist ekki eftir hagsveiflunni
heldur er það varanleg aðgerð í
ljósi breytinga á fjármálamark-
aðnum.
Sú hugmynd að breyta eig-
infjárkröfum eftir hagsveiflunni
var góðra gjalda verð fyrir nokkr-
um misserum en nú á hún ekki við
þegar hin mikla útrás bankanna
er orðin staðreynd og eignir
þeirra á Íslandi eru jafnvel orðnar
aðeins um 20% af efnahagsreikn-
ingnum eins og verður í tilfelli KB
banka. Þess vegna setti ég fram
þá hugmynd á fundinum að bank-
arnir færðu reikninga sína í er-
lendum gjaldmiðli. Íslenska óverð-
tryggða krónan vegur sem
gjaldmiðill afar lítið í eignasafni
KB banka og sama gildir reyndar
um hina stóru bankana. Íslenska
krónan er því ekki lengur raun-
verulegur starfrækslugjaldmiðill
þessara banka heldur má reikna
með því að það sé evran eða annar
erlendur gjaldmiðill.
Ég tel að út frá sjálfum rekstri
bankanna á erlendum mörkuðum
og fjármálastöðugleika á Íslandi
sé óvarlegt að þeir taki þá áhættu
lengur að vera með reikningana í
íslensku óverðtryggðu krónunni.
Samkvæmt íslenskum lögum er
þeim heimilt að færa reikningana í
erlendum gjaldmiðli og fara að
dæmi nokkurra íslenskra útrás-
arfyrirtækja. Síðast þegar gengi
krónunnar lækkaði þurftu stóru
bankarnir að gefa út víkjandi lán
til þess að styrkja eiginfjárhlutföll
sín og það gekk bærilega eftir, en
nú þegar bankarnir eru orðnir
þetta miklu stærri er óvarlegt að
treysta á að það gangi jafn vel
upp og þá vegna þess að upphæð-
irnar þurfa að vera svo miklu
hærri. Ég tel líka að skyndilegar
breytingar á eiginfjárhlutfalli
bankanna vegna gengisbreytinga
íslensku krónunnar dragi smám
saman úr trúverðugleika þeirra á
erlendum mörkuðum, ekki síst
vegna þess að krónan er ekki fyr-
irferðarmikil í viðskiptum á er-
lendum gjaldeyrismörkuðum.
Það hjálpar hins vegar til við
hagstjórnina ef bankarnir færa
reikningana í erlendum gjald-
miðlum vegna þess að þegar gengi
krónunnar hækkar eins og nú
myndi útlánageta þeirra minnka á
sama tíma og svo öfugt þegar
gengi krónunnar er að lækka.
Þannig gætu bankarnir stuðlað að
því að draga úr hagsveiflunni í
stað þess að magna hana. Þetta
styrkir bæði íslenskt efnahagslíf
og íslensku krónuna þegar upp er
staðið.
Ég ætla ekki að ræða um önnur
atriði í fyrrnefndri forystugrein
Morgunblaðsins en einungis segja
vegna efnahagslegrar skynsemi
þess að lækka nú gengi íslensku
krónunnar, á sama tíma og mesta
innstreymi á friðartímum í Ís-
landssögunni er á leið inn í hag-
kerfið næstu tvö árin, ætti leið-
arahöfundur Morgunblaðsins að
þiggja ráð frá einhverjum sem
hann tekur meira mark á en mér.
Höfundur er ráðuneytisstjóri.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 31
UMRÆÐAN
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Faxafeni 12
Opið 10 - 18 virka daga
og 10 - 16 laugardaga.
www.66north.is
af öllum flíspeysum til jóla.
20%afsláttur
Lýstu upp jólin með ljósum frá Ljósbæ
Faxafeni 14 s. 568 0850
Pílutjöld ehf
Faxafeni 12
108 Reykjavík
s. 553 0095
www.pilu.is
• Gardínustangir
• Felligardínur
• Bambusgardínur
• Sólskyggni
Smíðum og
saumum eftir máli.
Allt fyrir gluggann
Stuttur afgreiðslutími
„MARGUR heldur mig sig,“ segir
gamalt máltæki og sú hugsun, eða
öllu heldur þráhyggja, að allir aðrir
hljóti að vera á sömu skoðun og
maður sjálfur er einkennandi fyrir
hugsjónamenn, lýðskrumara og ein-
feldninga allra alda. Raunar er
vandfundinn sá harðstjóri og ógn-
arbíldur á spjöldum sögunnar, sem
ekki taldi sjálfan sig vera alveg sér-
stakan fulltrúa „alþýðunnar“, þ.e.
fólksins, þjóðarinnar. Það gerði
Kleón sútari í Aþenu hinni fornu,
Júlíus Sesar var ávallt „maður
fólksins“ og Napóleon hóf feril sinn
sem byltingarleiðtogi á vegum „al-
þýðunnar“. Margir þjóðhöfðingjar
töluðu gjarnan um sjálfan sig í
fleirtölu, t.d. Viktoría drottning,
(sbr.: „We are not amused“). Prív-
atskoðun eins einstaklings átti
þannig að vera skoðun allrar þjóð-
arinnar.
Hitler lauk aldrei sundur munni
án þess að tala í nafni „alþýð-
unnar“, en þýska orðið „Volk“ og
enska orðið „People“ er á íslensku
ýmist þýtt sem „þjóð“ eða „alþýða“.
Eitt af því fjölmarga, sem „rót-
tækir vinstri menn“ (kommúnistar)
eiga sameigilegt með nasistum er,
að þetta fólk endurtekur í sífellu
orðin „alþýða“ (Volk) og „barátta“
(Kampf) og – vel að merkja – bæði
kommúnistar og nasistar trúa því í
fullri alvöru, að einmitt þeir sjálfir
séu hinir einu og sönnu fulltrúar
fólksins. Hrokinn, yfirgangurinn og
frekjan, sem felst í nafni „Þjóðvilj-
ans“ sáluga hefði sómt sér ágæt-
lega á einhverju málgagni Hitlers
og nasista („Wille des Volkes“).
Þetta blað túlkaði aldrei vilja
nokkurrar þjóðar, hvorki hinnar ís-
lensku eða rússnesku, heldur vilja
lítillar klíku menntamanna á Ís-
landi, en þó fyrst og fremst vilja
þeirra miskunnarlausu óþokka, sem
völdin höfðu í Kreml.
Femínistar tala undantekning-
arlaust um sínar eigin prívatskoð-
anir sem skoðanir allra, þótt yf-
irgnæfandi meirihluti kvenna hafi
sáralítinn áhuga á brölti þeirra.
Einfeldningar í stétt fjölmiðla-
manna éta þetta eftir þeim og tala
því gjarnan um „skoðanir kvenna“
eða „vilja kvenna“ þegar í raun er
átt við skoðanir og vilja lítillar klíku
femínista.
Því þarf ekki að koma á óvart, að
þegar þrír menn komust að því í
sumar að þeir væru á tiltekinni
skoðun um svonefnt „fjölmiðla-
frumvarp“, drógu þeir þá ályktun,
að öll þjóðin hlyti að vera það líka,
eða, eins og einn ágætur ráðherra
mundi orða það: „Þar sem þrír
menn koma saman, þar er komin
Þjóðarhreyfing.“
Var efnt til fundar framan við
Stjórnarráðið, þar sem þremenn-
ingarnir mættu, auk forvitinna veg-
farenda, alls 10–12 manns og hróp-
að í kór: „Við viljum lýðræði!“ alveg
eins og börnin gerðu í gömlu aug-
lýsingunni („Við viljum Vilkó! Við
viljum Vilkó!“).
Nýjasta uppátæki þremenning-
anna er að gera sjálfa sig, og það
sem verra er, íslensku þjóðina, að
viðundri fyrir framan heimsbyggð-
ina með auglýsingu í New York
Times.
Ég tel sjálfan mig hluta af ís-
lensku þjóðinni og þessir menn tala
ekki í mínu nafni. Vilji þeir sóa fé
sínu geta þeir gert það undir eigin
nafni og kennitölu, ekki minni.
VILHJÁLMUR EYÞÓRSSON,
Skúlagötu 66,
Reykjavík.
Þjóð vill, þá þrír vilja
Frá Vilhjálmi Eyþórssyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
SMS FRÉTTIR
mbl.is