Morgunblaðið - 13.12.2004, Qupperneq 34
34 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ágúst Guð-mundsson Breið-
dal fæddist á Krossi á
Skarðsströnd í Dala-
sýslu 24. október
1926. Hann lést í
Landspítalanum að
morgni 1. desember
síðastliðins. Foreldr-
ar hans voru hjónin
Guðmundur Hólm
Ágústsson bóndi á
Krossi og kona hans
Jóhanna Ósk Jóhann-
esdóttir. Eiginkona
Ágústar er Ólöf
Ragnhildur Guð-
mundsdóttir frá Streiti í Breiðdal,
f. 31. ágúst 1926. Dóttir þeirra er
Jóhanna Ósk, f. 30. janúar 1963,
gift Jóhanni Sævari Kjartanssyni,
f. 16. apríl 1961. Börn þeirra eru:
1) Kjartan Ágúst Breiðdal, f. 20.3.
1986, 2) Guðný Ósk Breiðdal, f.
andvana 28.2. 1992, 3) Benedikt
Óli Breiðdal, f. 6.3. 1993, og 4)
Sylvía Ósk Breiðdal, f. 12.12.
1995. Börn Ólafar frá fyrri sam-
búð eru: 1) Dagný Stefánsdóttir, f.
3.12. 1946, gift Magnúsi Viggó
Jónssyni, f. 13.10. 1940, þau eiga
fimm börn og fjögur barnabörn,
2) Guðm. Unnþór Stefánsson, f.
6.6. 1948, kvæntur
Margréti Guðlaugs-
dóttur, f. 12.12.
1949, þau eiga fjög-
ur börn og er eitt
þeirra látið og þrjú
barnabörn, 3) Stefán
Stefánsson, f. 10.12.
1949, 4) Gunnar
Stefánsson, f. 21.1.
1953, kvæntur Önnu
Þorgilsdóttur, f.
29.10. 1956, þau eiga
þrjú börn, og 5) Ása
Björg Stefánsdóttir,
f. 6.9. 1954, gift
Þórði Jónssyni, f.
29.9. 1947, þau eiga tvö börn og
tvö barnabörn.
Ágúst ólst upp á Krossi hjá for-
eldrum sínum og tók við búi
þeirra upp úr 1960. Árið 1962
kom Ólöf til hans og saman
bjuggu þau á Krossi til ársins
1972, er þau brugðu búi og fluttu
til Reykjavíkur. Ágúst hóf þá störf
hjá Reykjavíkurborg, gatnamála-
deild, og starfaði þar sem verk-
stjóri svo til allan tímann þar til
hann fór á eftirlaun.
Útför Ágústar fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Faðir minn og fósturfaðir okkar er
dáinn. Samferð okkar systkinanna
með honum stóð lengi, allt frá árinu
1962, er hann kom inn í líf okkar, ein-
hver maður að vestan, sem mamma
okkar, einstæð móðir með okkur
fimm, hafði hrifist af. Þessi hægláti
maður kollvarpaði borgarlífi okkar,
því mamma ákvað að flytja til hans í
sveitina. Yngsti bróðirinn, 9 ára, var
fyrstur sendur til hans með munn-
legum merkimiða „skilist vestur að
Krossi“, og að kvöldi var honum skil-
að þangað með almennum pósti og
dagblöðum. Stráknum leið vel þarna,
sem þótti góðs viti og við hin komum
á eftir og vorum öll komin er haust-
aði. Og þá breyttist líf stjúpa, heimili
hans fylltist af óstýrilátum krakka-
skara, kyrrð sveitarinnar var rofin.
Stjúpi okkar reyndist okkur öllum
vel og var traustur og góður faðir.
Hann kom okkur til náms, kenndi
okkur almennt handverk og að
treysta okkur sjálfum til að leysa
vandamálin. Nokkrum mánuðum
eftir komu okkar í sveitina eignuð-
umst við systur, stjúpi og mamma
höfðu eignast barn, litla prinsessu.
Hún var kærkomin viðbót í systkina-
hópinn.
Árin liðu í blíðu og stríðu, m.a.
brann heimili okkar eitt árið, en var
strax byggt upp aftur. Svo fóru sum
okkar burtu og stofnuðu heimili og
þegar ljóst var að ekkert okkar
mundi taka við búinu var búskap
hætt og flutt í bæinn. Þar fékk stjúpi
okkar og pabbi strax vinnu hjá
Reykjavíkurborg og varð fljótlega
verkstjóri og vann þar til loka starfs-
ævinnar. Hann kunni vel við starfið,
hafði mannaforráð og vann vinnu þar
sem útsjónarsemi hans og verksvit
kom að góðum notum. Hann var bók-
maður og sjálfmenntaður, því skóla-
ganga hans var mjög stutt. Á síðari
hluta ævinnar fór hann að ferðast til
útlanda, ýmist með mömmu eða
einn, og kunni allar ferðasögur sínar
í smáatriðum og var merkilegt hve
minnugur hann var. En síðustu
ferðasöguna heyrum við ekki strax.
Við áttum ekki von á því að hann færi
svona fljótt í síðasta ferðalagið en
vitum að ferðasagan bíður okkar. Við
söknum hans og erum þakklát hon-
um fyrir samvistina og uppeldið.
Jóhanna Ósk, Dagný, Unn-
þór, Stefán, Gunnar og Ása.
Elskulegur tengdafaðir og afi er
fallinn frá og við fyllumst tómleika.
Fráfall hans bar skjótt að, en minn-
ingin um Gústa afa mun veita okkur
huggun á erfiðum tímum. Það var
okkur öllum dýrmætt að vera í sam-
vistum við hann svona yfirvegaðan
og gefandi og alltaf var stutt í glettn-
ina og gleðina hjá honum þegar það
átti við. Að koma á Sogaveginn til afa
og ömmu var alltaf kærkomið fyrir
Gústa, Benedikt Óla og Sylvíu Ósk
enda var afi aldrei svo upptekinn að
hann mætti ekki vera að því að rabba
við þau um allt milli himins og jarðar.
Hann var líka óspar á að kenna þeim
góða siði og segja þeim skemmtileg-
ar sögur frá því í gamla daga, á
stundum var pínu fært í stílinn, en
sögurnar voru bara betri þannig.
Ekki má gleyma hvað afi var góð-
ur kokkur enda mikill matmaður og
var maturinn hans afa í uppáhaldi
hjá þeim, sérstaklega fannst Gústa
nafna hans kjúllinn hans góður og
var óspar á að láta mömmu sína vita
að afi væri betri kokkur en hún. Það
var glatt á hjalla á jólum hjá afa og
ömmu þegar við komum þangað og
borðuðum með þeim, þá var afi í ess-
inu sínu og stjórnaði matseldinni af
röggsemi og ekki leiddist honum ef
vel var borðað.
Gústi var mikill hagleiksmaður og
eftir að hann fór á eftirlaun þá eyddi
hann löngum stundum í bílskúrnum
við rennismíði sem var hans aðal-
áhugamál ásamt lestri á bókum og
ferðalögum. Einnig hafði hann mjög
gaman af ættfræði og las mikið um
það efni og ræddi við ættfróða menn.
Þegar hann fræddi okkur um ættir
þá vissi maður stundum ekki hvort
maður var að koma eða fara því
magnið af upplýsingum var slíkt á
stuttum tíma að undrun sætti.
Það er og verður skrítið að eiga
ekki eftir að segja: „Komum, við
skulum kíkja á Gústa afa og Ólu
ömmu.“ Söknuður okkar er mikill en
við þökkum það að banalega afa var
stutt og sársaukalítil og dánarstund-
in friðsæl.
Guð gefi Ólu ömmu og okkur öllum
aðstandendum styrk til að takast á
við sorgina.
Elsku tengdapabbi og afi, hafðu
þökk fyrir allt og allt, far þú í friði.
Jóhann, Ágúst, Benedikt Óli
og Sylvía Ósk.
Nú hefur Gústi afi lagt af stað í sitt
síðasta ferðalag. Við munum eftir
honum sem glaðlyndum manni sem
hafði gaman af því að segja okkur
sögur af því sem á daga hans hafði
drifið. Þegar við komum í heimsókn
fengum við alltaf hlýjar móttökur og
hugsanlega eitthvað gotterí. Svo átti
hann til að stríða okkur, en alltaf
meinlaust grín og skemmtilegt.
Stundum á hátíðum vorum við í mat
hjá honum og ömmu Ólu og þá var
veisla, þá varð maður sko að borða
vel. Gústi afi var ekki ánægður nema
það væri gert og við hlýddum því fús-
lega af sjálfsögðu, enda maturinn
alltaf góður. Minningin um hann lifir
í huga okkar.
Anna, Haraldur Már, Ólafur
Þór og María Björk.
ÁGÚST GUÐMUNDS-
SON BREIÐDAL
✝ Sigurður EðvarðPálsson fæddist í
Reykjavík 19. ágúst
1933. Hann lést á
Líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
4. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin Páll
Hallbjörnsson, kaup-
maður í Reykjavík, f.
10.9. 1898, d. 15.10.
1981, og Sólveig Jó-
hannsdóttir, f. 17.5.
1898, d. 28.9. 1979.
Systkini Sigurðar
eru: Jóhann, f. 19.8.
1922, d. 27.6. 1996, Ólafía Sigur-
rós, f. 19.7. 1924, d. 3.9. 1935, Guð-
mundur Jóhann, f. 5.4. 1926, Guð-
ríður, f. 10.7. 1928, Páll Ólafur, f.
23.1. 1937, Guðrún, f. 14.10. 1940,
og Hreinn, f. 28.12. 1944.
Sigurður lauk námi í fram-
reiðsluiðn 1952 og
fékk meistarabréf
1959. Hann vann við
framreiðslustörf um
árabil, bæði á Hótel
Borg og í Naustinu.
Einnig vann hann
sem þjónn í milli-
landasiglingum á
Gullfossi og öðrum
Fossum Eimskipa-
félags Íslands.
Seinna gerðist hann
sölumaður hjá Skip-
holti h/f og vann þar
og hjá fleiri fyrir-
tækjum, þar til hann
hætti störfum fyrir um það bil 15
árum.
Sigurður var ókvæntur og
barnlaus.
Útför Sigurðar verður gerð frá
Fossvogskapellu í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Kæri bróðir. Tíminn líður allt of
fljótt, allt í einu eru öll góðu árin far-
in, en eftir standa minningarnar.
Hvar á ég að byrja og hverju
gleymi ég, á ég að byrja á stríðs-
árunum á Leifsgötu 32, eða þegar þú
seldir Vísi og ég fékk að fljóta með,
eða tímum okkar í KFUM og Vatna-
skógi, eða við veiðar á Skorradals-
vatni eða þegar þú með þjónustulund
þinni varst þjónn um borð í Gullfossi
og öðrum Fossum Eimskipafélags-
ins, eða þjónn á Hótel Borg og í
Naustinu, eða sölumaður hjá Skip-
holti hf. og Ilmu hf.?
Eða á ég að nefna sveitina okkar,
Ljárskóga í Dalasýslu? Af nógu er að
taka af lýsingum minninganna.
Við systkinin minnumst þín sem
sífellt gefandi bróður, brosmilds og
létts í lund.
Kæri Eddi, þú skilur eftir hjá okk-
ur góðar minningar, og þegar ég stóð
við rúm þitt við þín síðustu andartök,
sá ég lítið bros færast yfir andlit þitt.
Þá fékk ég hugboð um að foreldrar
okkar væru komnir til að taka á móti
þér.
Fyrir hönd okkar systkinanna bið
ég góðan Guð að gefa þér hvíld og
frið.
Páll Ólafur Pálsson.
Elsku Eddi frændi. Það eru svo
margar góðar minningar sem við
eigum um þig. Ég var alltaf á vappi
inn og út úr íbúð afa og ömmu þar
sem þú varst títt og kenndir okkur
systkinunum að spila skák, spila á
spil og áttum við margar góðar
stundir yfir skákborðinu. Eitt atvik
hefur fest sig í minni mitt frá Skorra-
dal er við komum þangað einu sinni
seint um kvöld. Á meðan fullorðna
fólkið var að útbúa sumarbústaðinn
og opna hann, sastu með okkur
krökkunum og við sáum þessa björtu
stjörnu rétt yfir fjallsbrúninni og þú
sagðir okkur ævintýralega sögu um
geimverur og geimskip og við vorum
öll fullviss um að við hefðum orðið
vitni að slíku fyrirbæri. Ég á eftir að
líta oft til fjalls og hugsa til þín um
ókomin ár.
Þín sanna gleði yfir því þegar vel
gekk hjá mér, bæði í námi, íþróttum
og starfi gladdi mig og hvatti. Þú
fórst þinna ferða eins og hetja fram á
síðustu stund, en sjúkdómurinn náði
undirtökum. Nú sendum við þér
kveðju í hinsta sinn
Ó, vef mig vængjum þínum
til verndar, Jesú, hér.
Og ljúfa hvíld mér ljáðu
þótt lánið breyti sér.
Vert þú mér allt í öllu,
mín æðsta speki og ráð,
og lát um lífs míns daga
mig lifa af hreinni náð.
(R. Ö.)
Ragna, Austin og börn, London.
SIGURÐUR EÐVARÐ
PÁLSSON
Elsku Svenni, nú
heldur þú áfram í þeirri
ferð sem fyrir okkur
öllum liggur. Við von-
uðumst til að fá að hafa
þig lengur hjá okkur en það er aðeins
á færi þess sem ákvarðanirnar tekur
að breyta fyrirætlunum þar um. Við
fæðumst í þennan heim og lifum með
samferðarmönnum þar til leiðir
skilja að nýju og nýr kafli ferðarinn-
ar tekur við. Líf þitt hér á jörðu hef-
ur náð til þess að þú hefur séð börnin
þín vaxa úr grasi og verða fullorðin
og börn þeirra stálpast og komast á
legg.
Tilvera þín hefur verið stór þáttur
í lífi okkar frá barns- og unglings-
árum, allt frá því sum okkar muna
fyrst eftir sér. Það lengi höfum við
þekkt þig og notið samvista við þig í
fjölskyldunni okkar.
Að eðlisfari varstu léttlyndur,
staðfastur og greiðvikinn og gleði og
gaman var aldrei langt undan þegar
þú áttir í hlut og þessir eiginleikar
búa í þínum nánustu og halda því
áfram að lifa. Það sama má segja um
gestrisni þína og hlýjar móttökur
SVEINN ÓLAFUR
TRYGGVASON
✝ Sveinn ÓlafurTryggvason
fæddist í Reykjavík
1. júní 1931. Hann
lést á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi
við Hringbraut 1.
desember síðastlið-
inn og var útför hans
gerð frá Bústaða-
kirkju 9. desember.
sem alltaf mættu okk-
ur. Eitt af því minnis-
stæðasta verður það
hversu mikla alúð og
athygli þú veittir okkur
börnunum alla tíð. Þú
hafðir áhuga á því sem
við vorum að gera á
hverjum tíma og spurð-
ir okkur spjörunum úr.
Elsku hjartans
Svenni, við eigum eftir
að sakna þín mikið.
Sakna þess að spjalla
við þig um málefni líð-
andi stundar og fjöl-
skyldumálin. Sakna
þess þegar þú bendir á kinnina eftir
kossinum þínum. Sakna brossins
sem kom í kjölfarið og þess hlýja og
góða anda sem um þig var.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér
(Hallgr. Pét.)
Guð geymi þig.
Auður, Rafn, Þórdís,
Magnús, Heiða og Ylfa.
Svenni svili, nú ertu farinn í bili,
elsku kallinn minn. Þú áttir alltaf
tíma og athygli handa öðrum. Eins
og þegar þú heimsóttir mig nýlega
um langan veg, sárlasinn og undir-
strikaðir fjörutíu og tveggja ára
samvistir okkar.
Hvíl í friði.
Rafn.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein.
Minningargreinar