Morgunblaðið - 13.12.2004, Side 36
36 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Glæsilegir stofuskápar, skrif-
borð ljósakrónur lampar persnesk
teppi, postulín, silfurborðbúnaður,
gjafavörur, gjafabréf, peslar.
Victoría Antik,
Síðumúla 34, s. 568 6076.
Skemmtileg jólagjöf. Persónu-
legar barnabækur þar sem nafn
barnsins og vina er sett inn í
söguþráðinn og verður barnið
þannig aðalpersónan í sögunni.
Uppl. í síma 847 9763.
www.barnabok.tk.
Opnunartilboð
30% afsláttur af öllum LEGO
útifatnaði.
Róbert Bangsi ...og unglingarnir,
Firði, Hafnarfirði, sími 555 6689.
Veist þú hvert er eitt best varð-
veitta leyndarmál Vestfjarða?
Sumir telja það vera Bækurnar
að vestan.
Vestfirska forlagið, Hrafnseyri.
Sími og fax 456 8181,
jons@snerpa.is
Örlagalínan 908 1800 & 595 2001.
Miðlar, spámiðlar, draumráðning-
ar, tarotlestur. Fáðu svör við
spurningum þínum. Örlagalínu-
fólkið er við frá 18-24 öll kvöld
vikunnar. Vísa Euró, s. 595 2001.
SOLID GOLD Just A Wee Bit,
smáhundafóður, engin aukaefni.
DÝRABÆR - Hlíðasmára 9,
Kóp., s. 553 3062, opið 13-18
mán.-fös., 11-15 laugard.
30% afsláttur í desember! Full
búð af nýjum vörum. 30% afsláttur
af öllu fóðri og gæludýravörum.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
20% afsláttur af öllum fiska-,
fugla-, hamstra-, naggrísa- og
kanínubúrum.
Dýralíf.is
Dvergshöfða 27, 110 Reykjavík,
sími 567 7477.
prótein - kreatín - glútamín
morgunmatur - gainer -
Ármúla 32.
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18.
Sími 544 8000.
NÝTT NÝTT NÝTT
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15, þú?
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
Herbalife. Viltu komast í kjólinn
fyrir jólin? Þá er Gullið fyrir þig,
vikuprógram. www.slim.is eða
hringdu í Ásdísi í síma 699 7383
og 565 7383.
mbl.is
RAÐ-
AUGLÝSINGAR
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000
um mat á umhverfisáhrifum.
420 kW Árteigsvirkjun 4 í Nípá, Þingeyjar-
sveit.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 10. janúar
2005.
Skipulagsstofnun.
Félagslíf
HEKLA 6004121319 IV/V
GIMLI 6004121319 I Jf.
I.O.O.F. 19 18512138 FR
I.O.O.F. 10 18512138 Jv.
UMFERÐARRÁÐ vill minna öku-
menn á að á hverju ári er mikill fjöldi
ökumanna staðinn að því að aka und-
ir áhrifum áfengis. Þetta sé vítavert
athæfi. „Þrátt fyrir að margir aðilar
hafi ár hvert tekið höndum saman og
vakið athygli á þessari dapurlegu
staðreynd í aðventubyrjun, þurfa
lögreglumenn á þessum árstíma að
hafa afskipti af miklum fjölda ölv-
aðra ökumanna. Umferðarráð lítur
þessa staðreynd mjög alvarlegum
augum. Hver sá er fengið hefur þau
verðmætu réttindi, sem ökuréttindin
vissulega eru, á að vita og gera sér
grein fyrir að neysla áfengra
drykkja og akstur mega með engu
móti fara saman. Þrátt fyrir það eru
nú ökuskírteini, sem hald hefur verið
lagt á, í stöflum á lögreglustöðvum
landsins. Umferðarráð beinir þeirri
eindregnu áskorun til ökumanna að
láta sér aldrei detta í hug að aka und-
ir áhrifum áfengis og minnir á slag-
orðin sígildu „Eftir einn – ei aki
neinn“.
Þá lýsir Umferðarráð yfir sér-
stakri ánægju með og metur mikils
auglýsingar Umferðarstofu að und-
anförnu gegn óhóflegum ökuhraða
og ölvunarakstri. Auglýsingin
„Hægðu á þér“ hlaut nýlega gull-
verðlaun í flokknum Lýðheilsa og ör-
yggi í auglýsingasamkeppni Evrópu.
Vítavert að aka ölvaður
VALGERÐI Sverrisdóttur, iðnaðar-
ráðherra, var nýverið afhent fyrsta
eintak bókarinnar Afl í segulæðum –
Saga rafmagns á Íslandi í 100 ár.
Bókin er gefin út af Verkfræðinga-
félagi Íslands (VFÍ) og var það
Steinar Friðgeirsson, formaður fé-
lagsins sem afhenti ráðherra bókina.
Afl í segulæðum er annað bindið í
tíu binda ritröð sem ljúka mun með
100 ára sögu VFÍ árið 2012. Fyrsta
bindið, Frumherjar í verkfræði á Ís-
landi, kom út á 90 ára afmæli fé-
lagins árið 2002. Í ritröðinni er
fjallað um hin ýmsu svið sem verk-
fræðingar hafa starfað á en afar lítið
er til af slíku efni á íslensku, segir í
frétt frá VFÍ. Í upphafi var sú stefna
mörkuð að ritin skyldu vera auðles-
in, fróðleg og skemmtileg og höfða til
almennings jafnt sem verkfræðinga.
Á kápu nýju bókarinnar segir: „Í
þessari bók er sögð saga rafvæðing-
arinnar á Íslandi, bæði upphafsárin
og á samveitutímabilinu sem og saga
iðnaðaruppbyggingar seinni ára.
Á þessu ári er liðin öld frá því lítil
vatnsaflsvirkjun í Hamarskotslæk í
Hafnarfirði hóf raforkuframleiðslu
og var fyrsti vísirinn að rafmagns-
veitu á Íslandi. Þetta gerðist undir
lok ársins 1904. Rafvæðing Íslands
var hafin sem átti eftir að gjörbreyta
afkomu og lífsskilyrðum í landinu.“
Bók um 100 ára sögu
rafmagns á Íslandi
Morgunblaðið/Þorkell
Sveinn Þorgrímsson, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneyti, Sveinn Þórðarson,
sagnfræðingur og höfundur bókarinnar, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra, Steinar Friðgeirsson, formaður VFÍ, og Jóhann Már Maríusson,
formaður afmælisnefndar Samorku.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Hlíf telur
sig á engan hátt hafa lýst því yfir né
samþykkt að fullnægjandi samráð
hafi verið haft við félagið varðandi
hópuppsagnir þær sem Sólar ehf.
boðaði til í ágústmánuði sl. og hefur
nú þegar hafið í tengslum við yfir-
töku Sólar ehf. á ræstingu fyrir
Hafnarfjarðarbæ. Kemur þetta fram
í ályktun í tilefni af minnisblaði lög-
manns Sólar ehf., frá fundi 19. nóv-
ember sl., sem sent var félaginu með
tölvupósti 29. nóvember sl.
Á vegum Hlífar er nú unnið að því
að kanna hvort fyrirhugaðar skipu-
lagsbreytingar á vinnu við ræstingar
fari gegn ákvæðum gildandi kjara-
samnings. Engar upplýsingar feng-
ust um það í hverju skipulagsbreyt-
ingarnar væru fólgnar fyrr en 15.
nóvember sl. er fyrstu tillögur fyr-
irtækisins voru kynntar verkalýðs-
félaginu. Af þeim sökum liggja nið-
urstöður könnunar félagsins í þessu
efni ekki fyrir enn sem komið er.
Niðurstaða þeirrar könnunar er þó
forsenda þess að Verkalýðsfélagið
Hlíf geti komið með tillögur um það
hvernig draga megi úr fyrirhuguð-
um uppsögnum starfsmanna.
Ákvörðun um að segja upp öllum
starfsmönnum við ræstingu var tek-
in af Sólar ehf. í ágústmánuði án
þess að samráð hefði verið haft um
þá ákvörðun við Verkalýðsfélagið
Hlíf.
Félagið telur að komi í ljós að hið
nýja skipulag Sólar ehf. á ræstingum
standist ekki gildandi kjarasamning
áskilur það sér rétt til þess að höfða
mál fyrir Félagsdómi til þess að fá
það staðfest, segir í ályktuninni.
Ekki fullnægjandi
samráð að mati Hlífar
LÚSÍUHÁTÍÐ verður í Brimborg
að Bíldshöfða 6, þriðjudaginn 14.
desember kl. 17–18. Hátíðin er
haldin í tilefni af því að undanfarið
hefur Volvo hlotið lof fyrir gæði,
öryggi og fallega hönnun.
Boðið verður upp á kaffi.
Lúsíuhátíð
í Brimborg
RÉTTINDI og skyldur fólks af er-
lendum uppruna á vinnumarkaði
verða til umræðu á fræðslufundum
sem verða haldnir á vegum Ein-
ingar-Iðju og Alþjóðastofunnar.
Þeir fara fram á mismunandi
tungumálum, sá fyrsti á pólsku og
filippínsku á mánudag, 13. desem-
ber, þá á ensku á miðvikudag, 15.
desember og loks á serbnesku/
króatísku og taílensku mánudaginn
20. desember. Fundirnir byrja allir
kl. 20 og eru í húsakynnum Al-
þjóðastofunnar, Glerárgötu 28. 3.
hæð.
Fræðslufundir
fyrir útlendinga
SKÁTAHREYFINGIN hefur nú
dreift til allra 6 ára barna í land-
inu endurskinsborða með frönsk-
um lás og er ætlaður á upp-
handlegg, ásamt sérstöku riti um
öryggi barna í umferðinni. Jafn-
framt fylgja hverju blaði tveir
límmiðar til að líma í rúður bif-
reiða sem áminningu um að
keyra á réttum hraða.
Þetta er 14. árið sem skátarnir
vinna þetta verkefni undir heit-
inu Látum ljós okkar skína. Einn-
ig er árlega framleitt stórt vegg-
spjald sem sent er í alla
grunnskóla landsins og setja
flestir það upp til að minna börn-
in og foreldra þeirra á mikilvægi
þess að bera endurskin í svart-
asta skammdeginu, en það er
margsannað að það dregur veru-
lega úr slysum á gangandi veg-
farendum.
Til að fjármagna verkefnið er
leitað til fjölmargra aðila. Aðal-
styrktaraðili borðanna er Suzuki-
bílar, en jafnframt hafa fjölmörg
fyrirtæki og stofnanir styrkt
verkefnið. Þá er samhliða verk-
efninu og því til stuðnings rekið
árlegt bílnúmerahappdrætti þar
sem öllum bifreiðaeigendum er
sendur happdrættismiði. Dregið
er í happdrættinu 31. desember.
Skátahreyfingin
gefur börnum
endurskinsborða