Morgunblaðið - 13.12.2004, Page 38
Sjá því gæsku Guðs og strangleika, strangleika við þá, sem fallnir eru,
en gæsku Guðs við þig, ef þú stendur stöðugur í gæskunni; annars verð-
ur þú einnig af höggvinn. (Róm. 11, 22.)
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
HVAÐ LANGAR ÞIG Í
AFMÆLISGJÖF GRETTIR?
FJAÐURLAUSAN
PÁFAGAUK
SVO HANN KÍTLI EKKI Á
LEIÐINNI NIÐUR
ÞANNIG
AÐ ÉG GAF
HONUM
HANSKA
KANNSKI VAR ÉG HRÆDDUR
VIÐ AÐ SLÁST... MÉR ER
BARA ALVEG SAMA...
AÐAL ATRIÐIÐ ER AÐ MÉR
LÍÐUR BETUR
ÉG ER STOLTUR AF ÞÉR
KALLI... NÚNA ÁTTU KANNSKI
EFTIR AÐ GETA TEKIST Á VIÐ
VANDAMÁL LÍFSINS AF
EINHVERRI HÖRKU
ÞETTA
ER
LÆKNA-
MÁL
ÞETTA MUNDI
HLJÓMA BETUR
EF ÞÚ VÆRIR
EKKI MEÐ TEPPIÐ
ER ÞETTA
BÓKASAFNIÐ? MIG
VANTAR AÐ FÁ
UPPLÝSINGAR UM
ÁKVEÐIÐ ORÐ...
VANDAMÁLIÐ ER AÐ ÉG
VEIT EKKI HVERNIG ÞAÐ ER
STAFSETT OG ÉG KANN
HELDUR EKKI AÐ BERA ÞAÐ
FRAM...
VILTU EKKI BARA BYRJA Á
ÞVÍ AÐ ÞYLJA UPP ÖLL
BLÓTSYRÐI SEM ÞÚ KANNT
OG ÉG STOPPA ÞIG ÞEGAR
ÞAÐ KEMUR... HALLÓ?
ER ÞETTA ÞJÓNUSTAN
SEM ÉG FÆ FYRIR
SKATTPENINGINN MINN?
Risaeðlugrín
UMFERÐARSTJÓRI! ... ÞETTA ER HRÆÐILEGT ...
ÉG SÉ AÐ HANN ER AÐ GERA GRÍN AÐ MÉR ....
OGGGG .... ÉG GET EKKI EINU SINNI SEKTAÐ
HANN FYRIR OF HRAÐAN AKSTUR
© DARGAUD
Dagbók
Í dag er mánudagur 13. desember, 348. dagur ársins 2004
Víkverji er fréttafíkill.Hann hefur fyrir
vikið verið áskrifandi
að Fjölvarpinu um
langt skeið, í þeim til-
gangi að sjá frétta-
stöðvarnar Sky og
CNN. Hann hefur þó
líka horft nokkuð á aðr-
ar stöðvar sem Fjöl-
varpið bauð upp á, þ.e.
afþreyingarstöðvar
eins og Hallmark og
TCM, sem sýna mikið
af misgóðum bíómynd-
um, Eurosport, tónlist-
arstöðvarnar MTV og
VH1, Cartoon Network
og síðast en ekki síst BBC Prime.
Pakkinn hefur því verið nokkuð
góður, að mati Víkverja, hann hefur
fengið fréttirnar sínar, en líka hæfi-
legt magn af afþreyingu.
M12-aðild hefur þýtt að Víkverji
hefur mánaðarlega verið rukkaður
um 1.838 krónur fyrir áskriftina.
Nú hefur Íslenska útvarpsfélagið
hins vegar uppfært myndlykla sína;
Digital Ísland hefur tekið við.
Áskrift að mun fleiri erlendum sjón-
varpsstöðvum er nú í boði en áður
og er það hið besta mál.
Víkverji er samt alls ekki sáttur
við þær breytingar sem nú eru að
eiga sér stað, þ.e. skiptinguna í ólíka
„áskriftarpakka“ sem
lagt er upp með
(„stóra“, „skemmti-
lega“, „fróða“ og
„sportistann“).
Ef Víkverji vill
áfram vera áskrifandi
að áðurnefndum frétta-
stöðvum kaupir hann
pakkann sem kallaður
er „fróði“ og fær hann
þá vissulega framvegis
einnig Fox News og
CNBC, auk CNN og
Sky, sem er ágæt við-
bót. En Víkverji fær
hins vegar ekkert af af-
þreyingarstöðvunum,
sem hann áður hafði aðgang að; þær
þarf nú að kaupa sérstaklega í öðr-
um áskriftarpakka. Samt þarf Vík-
verji framvegis að borga 2.290 krón-
ur, í stað 1.838. Víkverji getur því
ekki séð betur en að hann fái fram-
vegis verri þjónustu (hann fær nú
ekki lengur aðgang að afþreying-
arstöðvunum sem Fjölvarpið áður
tryggði honum) en sé jafnframt að
borga meira en hann gerði áður!
Vissulega getur Víkverji keypt
„stóra“ pakkann, sem veitir aðgang
að öllum erlendu stöðvunum sem í
boði eru. En það kostar 3.615 krón-
ur, tvöfalt meira en áskriftin hefur
fram til þessa kostað Víkverja!
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
JÓLATÓNLEIKAR voru haldnir í Grafarvogskirkju í gær. Um 120 manna
kór söng í kirkjunni en hann var myndaður úr barnakór, unglingakór og kór
Grafarvogskirkju. Flutt voru jóla- og aðventulög undir stjórn Harðar Braga-
sonar og Oddnýjar J. Þorsteinsdóttur. Sérstakur gestur var söngkonan
Magga Stína.
Allur ágóði af tónleikunum rann í orgelsjóð Grafarvogskirkju.
Morgunblaðið/Þorkell
Um 120 manna kór
söng í Grafarvogskirkju
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.