Morgunblaðið - 13.12.2004, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Heilræði.
Norður
♠6
♥KG97 N/NS
♦ÁG10962
♣Á5
Suður
♠KDG1098
♥3
♦KD7
♣742
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með laufkóng gegn
fjórum spöðum suðurs. Hvernig er
best að spila?
Sem ungum manni var Bobby Wolff
gefið heilræði sem hann segir að hafi
reynst sér einkar vel við spilaborðið:
„Ekki biðja um orðið ef þú veist ekki
hvað þú ætlar að segja.“ Á bridsmáli
útleggst þetta til dæmis þannig: „Það
borgar sig yfirleitt ekki að taka fyrsta
slaginn ef maður veit ekki hverju á að
spila út í þann næsta.“
Spilið að ofan er gott dæmi. Sagnhafi
getur tekið fyrsta slaginn, en hvað ætl-
ar hann svo að gera? Ef hann fer í
trompið, fær vörnin auðveldlega tvo
slagi á lauf, en hið sama gerist líka ef
laufi er spilað í öðrum slag. Vörnin
leggur þá niður spaðaásinn og tekur
laufslag.
Úr því að ekkert er hægt að gera af
viti í öðrum slag, er betra að láta vörn-
ina sjá um framhaldið. Dúkka sem sagt
laufkónginn. Ef vestur spilar áfram
laufi, fer sagnhafi heim á tígul og
trompar þriðja laufið. Tígull varn-
arinnar þarf vissulega helst að falla
2-2, en það er betra að spila upp á það
en ekki neitt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hjúskapur,
8 drekkur, 9 dylja,
10 reyfi, 11 skyldmennið,
13 flýtinn, 15 húsgagns,
18 óhamingja, 21 fúsk,
22 veika, 23 stefnan,
24 tíminn um kl. 18.
Lóðrétt | 2 margtyggja,
3 líffærin, 4 blaðra,
5 þvinga, 6 fugl, 7 forboð,
12 óhróður, 14 mergð,
15 tuddi, 16 drasli, 17 fisk-
ur, 18 dapurt, 19 reiðan,
20 heimskingi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 firra, 4 gisin, 7 Jónas, 8 uggur, 9 ann, 11 taða,
13 bráð, 14 gabbi, 15 farg, 17 ljót, 20 hik, 22 lyfta, 23 rætin,
24 remma, 25 síðla.
Lóðrétt | 1 fljót, 2 ránið, 3 ansa, 4 grun, 5 sigur, 6 nýrað,
10 nebbi, 12 agg, 13 bil, 15 fálur, 16 rófum, 18 játað,
19 tinda, 20 hata, 21 krús.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ferð vel með úrræði annarra og ert
þakklátur fyrir hjálpina sem þér býðst
um þessar mundir, hrútur. Þú berð virð-
ingu fyrir öðrum og eigin lánsemi núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samræður við maka og nána vini eru í al-
varlegri kantinum þessa dagana, en á
sama tíma innihaldsríkar og hagnýtar.
Notaðu tækifærið og skilgreindu mörk
og viðmiðunarreglur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kemur miklu í verk í dag og ert til í að
láta vinnunna ganga fyrir afþreyingunni.
Þetta er mjög góð byrjun á komandi
viku.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ástarævintýri með eldri eða ráðsettari
manneskju er líklegra en ella núna.
Kannski að þú fallir fyrir yfirmanninum!
Þú tekur skuldbindingar þínar varðandi
börn alvarlega.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður tími til þess að gera lang-
tímafjárfestingar í heimili og fast-
eignum. Samræður fjölskyldumeðlima
eru alvarlegar og hagnýtar. Eldri mann-
eskja gefur góð ráð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur einungis áhuga á lang-
tímaráðagerðum núna og ert síður en
svo í skapi fyrir einhverja léttúð. Þú vilt
vita hvernig hlutirnir verða í framtíðinni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Aðstæður eru góðar fyrir verslun og við-
skipti í dag. Ræddu við yfirmenn eða
aðra yfirboðara um hvernig þú getur
bætt vinnuaðstöðuna og hagnast á
vinnunni. Fólk leggur við hlustir núna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú lætur yfirborðsmennsku víkja fyrir
alvarlegri hugðarefnum í dag og finnur
sterklega fyrir skyldurækni og ábyrgð.
Þú ert alvarlegur en ekki þungbúinn,
sporðdreki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert viskan uppmáluð í dag, ekki
ósvipað Gandálfi, og áttar þig á mik-
ilvægi þess að leggja fyrir til mögru ár-
anna. Þú ert upptekinn af framtíð-
armarkmiðum, bogmaður.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hlustaðu á ráðleggingar einhvers eldri,
vitrari og reyndari manns. Þú getur orð-
ið margs vísari í dag ef þú kærir þig um.
Ekki renna blint í sjóinn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fólk ber virðingu fyrir skoðunum þínum
núna. Það áttar sig á því að þú ert nú-
tímalegur og jafnan hálfri öld á undan
samtíma þínum, vatnsberi. Þess vegna
færðu allar þessar hugmyndir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Áætlanir sem tengjast ferðalögum,
menntun og útgáfu eru vænlegar um
þessar mundir. Haltu þínu striki varð-
andi það sem þú vilt fá áorkað. Nú getur
allt gerst.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert umhyggjusöm og natin manneskja
og nálgast hvert verkefni af nákvæmni og
varfærni. Þú ert oftar en ekki snillingur í
tilteknu fagi og hefur sérstaka hæfni í sál-
fræði, þar sem þú skynjar það sem býr
undir niðri hjá öðrum. Þú áttar þig á
kaldhæðnari hliðum tilverunnar.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14, leik-
fimi og vinnustofa kl. 9, boccia kl. 10,
frjáls spilamennska alla daga, bókabíll-
inn kl. 13.30 til 14 alla mánudaga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, söngstund kl. 10.30, smíði/
útskurður kl. 13–16.30, félagsvist kl.
13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, samverustund,
fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 11.15–12.15
matur, kl. 13–16.45 brids, kl. 13–16 sam-
verustund, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Kl. 13
kaffitár með ívafi, kl. 13.30 línudans-
kennsla byrjendur, kl. 18, samkvæm-
isdans framhald, kl. 19 og byrjendur kl.
20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Brids-
deild FEBK Gullsmára spilar tvímenn-
ing alla mánu– og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45 á hádegi. Síðasti
spiladagur fyrir jól mánudagur 13. des-
ember.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl. 10.05 og kl.
11, bókband kl. 11, pílukast og spilað
bridge í Garðabergi kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl. 10.30 sund og
leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, frá há-
degi vinnustofur opnar, kóræfing fellur
niður. Allar upplýsingar um starfsemi
og þjónustu á staðnum, s. 575 7720 og
www.gerduberg.is.
Gam-Anon samtökin | Fundir eru alla
mánudaga að Skúlatúni 6, 3. hæð, kl
20. Allir velkomnir. Gam-Anon sam-
tökin eru sjálfshjálparsamtök fyrir að-
standendur spilafíkla.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
keramik–perlusaumur–kortagerð, kl. 10
fótaaðgerð, bænastund, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15
kaffi. Ljósaferðin verður farin miðviku-
daginn 15. desember kl. 11 frá Hraunbæ
105.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16, jóga kl. 9–11, frjáls spila-
mennska kl. 13–16, böðun virka daga
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf.
Betri stofan opin. Soffía Jakobsdóttir
með framsögn, framkomu og upplestur
í Listasmiðju, kl. 9–12 og kl. 13–16. Fé-
lagsvist fellur niður í dag vegna mál-
unar á Sal. Hárgreiðslustofa 568 3139.
Fótaaðgerðarstofa 897 9801. Hádeg-
isverður og síðdegiskaffi S. 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun,
þriðjudag, vatnsleikfimi í Grafarvogs-
laug kl. 9.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna,
kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl.
11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16
kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg | Smiðja kl. 8.45, bókband og
hárgreiðsla kl. 9, morgunstund og fóta-
aðgerðir kl. 9.30, boccia kl. 10, gler-
bræðsla, handmennt, frjáls spil kl. 13.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Barnastarf 7– 9 ára í
Árbæjarkirkju kl. 15.00. STN starf í Ár-
túnsskóla kl. 16.00. TTT – barnastarf
10–12 ára í Ártúnsskóla kl. 15.
Grensáskirkja | Jólafundur kven-
félags Grensássóknar verður haldinn
mánudaginn 13. desember kl. 20. Sr.
Ólafur Jóhannsson flytur hugvekju.
Allar konur hjartanlega velkomnar!
Laugarneskirkja | Kl. 18, opinn 12
sporafundur í safnaðarheimilinu. Vinir
í bata. www.laugarneskirkja.is.
Lágafellskirkja | Foreldramorgunn kl.
10–12 í safnaðarheimilinu, Þverholti 3.
Stundir fyrir foreldra, sem vilja koma
saman og ræða málin. Það er mik-
ilvægt að lokast ekki af vegna
barnanna. Foreldramorgnarnir eru í
safnaðarheimilinu Þverholti 3, 3. hæð.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
ANDI barokktónlistar mun svífa yfir vötn-
um í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 20
þegar listamennirnir Ragnheiður Árnadótt-
ir sópran, Haru Kitamika semballeikari,
Nina Hitz sellóleikari og Frouke Mooij fiðlu-
leikari halda tónleika.
Á efnisskránni verða lög eftir meistarana
Purcell, Bach, Corelli og Händel. Allir lista-
mennirnir í hópnum hafa lokið námi í
Tónlistarháskólanum í Haag í Hollandi með
barokmúsík sem sérgrein.
Ragnheiður Árnadóttir sópransöngkona
segir hópinn hafa haldið saman síðan þær
voru saman í námi í Haag. „Þær Nina, Haru
og Frouke eru hér staddar vegna Jólaórat-
oríunnar sem hefur verið flutt undanfarin
kvöld í Hallgrímskirkju,“ segir Ragnheiður.
„Ég var að klára meistarapróf í söng í Hol-
landi síðasta mánudag og var svo heppin
að stúlkurnar, sem spiluðu með mér í Hol-
landi, voru fengnar hingað af Herði Áskels-
syni til að spila í Jólaóratoríunni, svo ég
gat nappað þeim í eina litla tónleika.“
Ragnheiður segir verk skáldanna, sem öll
voru uppi á 17. öld, vera leikin á gömul bar-
okkhljóðfæri, en það skipti miklu máli við
flutning barokktónlistar. „Það er ekki mikið
til af barokkhljóðfærum á Íslandi, en tíðni-
svið þeirra og stilling er dálítið öðruvísi, að-
eins lægri en gengur og gerist.“
Barokktónar í Fríkirkjunni í Reykjavík
Fullnæging er eft-
ir Katerina Jan-
ouch í þýðingu
Ernu Árnadóttur.
Manneskjunni
er hollast að
hugsa ekki með
höfðinu einu sam-
an. Vinkonugjöfin
verður sænska
bókin Fullnæging, falleg, lítil, rauð
bók, sem veitir lengri unun en konfekt
og blómvendir. Höfundur bókarinnar
er einn þekktasti kynlífsráðgjafi Svía –
bókin er skrifuð í ljúfum og skemmti-
legum tón.
Útgefandi er PP Forlag Ísland. Bók-
in er 192 bls. Tilboðsverð kr. 2.490.
Fjölfræði
Fyrirmæli (Käsky)
er eftir Leena
Lander í þýðingu
Sigurðar Karls-
sonar.
Sagan gerist í
finnsku borg-
arastyrjöldinni
1918, en hún
braust út í kjölfar
rússnesku bylting-
arinnar. Jagarahermaður kemur með
rauðan kvenfanga í fangabúðir, eftir
sjóvolk í rúma viku. Yfirheyrslum stýrir
rithöfundur sem nú gegnir hlutverki
herdómarans. Þrátt fyrir sögusviðið
getur þessi saga gerst hvar sem er,
hvenær sem er, þar sem karlar, konur
og börn verða fórnarlömb styrjalda og
haturs, og menn fylkja sér undir fána
mismunandi hugmyndafræði og trúar-
bragða.
Útgefandi er PP forlag Ísland. Bókin
er 317 síður. Tilboðsverð kr. 2.990.
Skáldsaga
LED Zeppelin er hljómsveit kvöldsins á hvíld-
ardagskvöldi á Grand Rokk í kvöld.
Sýndar verða fimm kvikmyndir af tónleikum
þessarar goðsagnakenndu sveitar, en dag-
skráin er sem hér segir:
Kl. 20–20.30: Tónleikar Led Zeppelin fyrir
Danmarks Radio, Kaupmannahöfn (1969) .
Kl. 20.30–21: Tónleikar Led Zeppelin í Madi-
son Square Garden, New York (1973).
Kl. 21– 21.50: Tónleikar Led Zeppelin í Earls
Court, London (1975).
21.50–22.40: Tónleikar Led Zeppelin í Kneb-
worth, Hertfordshire (1979).
22.40 – 01.00: The Song Remains The Same
(1976).
Sýningar hefjast stundvíslega kl. 20 á 2. hæð
Grand Rokks og er aðgangur ókeypis. Allir
sannir rokkhundar og aðrir áhugamenn eru
eindregið hvattir til þess að fjölmenna á þessa
metnaðarfullu dagskrá sem einungis fer fram í
þetta eina sinn á risaskjá og í góðu hljómkerfi.
Hvíldardagskvöld með Led Zeppelin á Grand Rokk
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
smáauglýsingar
mbl.isFréttasíminn
904 1100
Tónleikarnir í Fríkirkjunni hefj-
ast sem áður segir kl. 20. Að-
gangseyrir er kr. 1.200.