Morgunblaðið - 13.12.2004, Page 44
Morgunblaðið/Jim Smart
Mugison spilaði fyrir gesti af sinni alkunnu snilld.
Fólk| Jólagleði Dreifingarmiðstöðvarinnar og Vörubíls
Skáldin lásu upp innan
um bókastaflana
Morgunblaðið/Jim Smart
Kristinn Vilbergsson, framkvæmdastjóri Vörubíls, var ánægður með framlag Huldars
Breiðfjörð og hinna skáldanna sem lásu upp úr verkum sínum.
Rithöfundurinn Kristín Eiríksdóttir las upp úr bók
sinni Kjötbærinn.
SKEMMTILEG jólastemmning
ríkti á jólagleði Vörubíls og Dreif-
ingarmiðstöðvarinnar sem haldin
var í Garðabæ á föstudag. Fimm
skáld mættu í húsnæði fyrirtækisins
og lásu upp úr bókum sínum innan
um fjöldann allan af glænýjum jóla-
bókum sem Dreifingarmiðstöðin
hefur séð um að pakka inn að und-
anförnu.
Hinn eini sanni Mugison sá um að
koma gestum í réttu stemmninguna
með sínum ljúfu tónum en þeir
kunnu vel að meta. Þá lásu Huldar
Breiðfjörð, Þórarinn Eldjárn, Krist-
ín Eiríksdóttir, Sigfús Bjartmars-
son og Kristín Ómarsdóttir upp úr
nýútkomnum bókum sínum.
44 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.10. Ísl. tal./
Sýnd kl. 4, 6.10 og 8.20 Enskt tal.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Jólamynd ársins sem kemur allri fjölskyldunni
í rétta jólaandann fyrir hátíðarnar! Gerð með
splunkunýrri, byltingarkenndri tölvutækni.
Jóla ynd ársins se ke ur allri fjölskyldunni
í rétta jólaandann fyrir hátíðarnar! erð eð
splunkunýrri, byltingarkenndri tölvut kni.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
BEN
AFFLECK
CHATERINE
O´HARA
CHRISTINA
APPLEGATE
JAMES
GANDOLFINI
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8 og 10.10.
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
BLANCHARD RYAN DANIEL TRAVIS
Sýnd kl. 6 og 8. Ísl tal.
Shall we Dance?
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÍSLENSKA
SVEITIN
RENEE ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH
Sama Bridget. Glæný dagbók.
H.J. Mbl.
M.M.J. Kvikmyndir.com
"Snilldarlega tekin og einstaklega
raunveruleg...hryllilega hrollvekjandi!"
- H.L., Mbl
"Hrikalega spennandi og skelfilega átakanleg!"
- E.Á., Fréttablaðið
H.L. Mbl.
S.V. mbl.
kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Deildu hlýjunni um jólin
Með hinum bráðskemmtilega James Gandolfini úr The Sopranos
.Kostuleg gamanmynd semkemur öllum í
gott jólaskap.
Jólamyndin 2004Jólamyndin 2004
ÓTRÚLEGRI
FERÐ EN
HÆGT ER
AÐ ÍMYNDA
SÉR
I
Í
ÓTRÚLEGRI
FERÐ EN
HÆGT ER
AÐ ÍMYNDA
SÉR
I
Í
FINGRAFÖR Michaels Jacksons og drengs-
ins sem sakar hann um kynferðislegt of-
beldi fundust á klámblaði sem lagt var hald
á við húsleit á
Neverland-
búgarði Jacksons
á síðasta ári.
Þetta segir
Santa Barbara
News-Press.
AP-fréttastof-
an náði ekki tali
af lögreglustjór-
anum í Santa
Barbara til að
bera þetta undir
hann, en segir í
frétt sinni að ef
fréttin reynist
rétt muni lög-
menn drengsins
að öllum líkindum halda því fram að
fingraförin sanni að Jackson hafi sýnt hon-
um klámefni áður en hann beitti hann kyn-
ferðislegu ofbeldi. Verjendur Jacksons
gætu hins vegar haldið því fram að dreng-
urinn hefði getað komist í klámblaðið án
vitundar Jacksons. Ekki sagði í fréttinni
hvers kyns klám hefði verið í umræddu
tímariti.
Dómarinn í málinu mun í næsta mánuði
úrskurða um hvaða sönnunargögn séu tæk
í málinu, en réttarhöld hefjast 31. janúar.
Jackson, sem er 46 ára, hefur lýst yfir sak-
leysi sínu í málinu, en sakirnar sem bornar
eru á hann eru kynferðislegt ofbeldi gegn
barni og að hafa veitt meintu fórnarlambi
sínu áfengi.
Fólk| Michael Jackson
Michael Jackson er í
vondum málum.
Fingraför
á klámblaði
Reuters
FJÖLDI manns mætti á Heimsmeistaramótið í Popppunkti sem var haldið á
efri hæðinni á Grand Rokki á laugardaginn. Dr. Gunni stjórnaði mótinu af
sinni einskæru röggsemi en 20 manns höfðu skráð sig til leiks.
Kjartan Guðmundsson bar sigur úr býtum eftir harða keppni og ber því
hinn eftirsótta titil heimsmeistarinn í Popppunkti 2004.
Varð heimsmeistari í Popppunkti
Morgunblaðið/Árni Torfason
Heimsmeistarinn, Kjartan Guðmundsson, er viskubrunnur í poppfræðum.
FYRSTA fegurðarsamkeppni
kvenna sem gengist hafa undir fegr-
unar- eða lýtaaðgerðir fer fram í
Kína 18. desember. Nítján konur
keppa til úrslita, þ.a.m. Liu Yulan,
sem er 62 ára en hún er elst kepp-
enda.
Fegrunaraðgerðir njóta nú sívax-
andi vinsælda í Kína og opinberar
tölur gefa til kynna að Kínverjar
eyði árlega sem nemur 153 millj-
örðum króna í slíkar aðgerðir. „Áður
gat ég ekki ímyndað mér að gamlir
gætu orðið ungir og ljótir orðið fal-
legir,“ segir Liu, sem hefur farið í
andlitslyftingar og fleiri aðgerðir.
Yfir 90 manns frá öðrum löndum
en Kína sóttu um að fá að taka þátt,
en höfðu ekki árangur sem erfiði því
að sögn skipuleggjenda var ýmist
lítil alvara á bak við umsóknirnar
eða þá að tungumálaörðugleikar
voru illyfirstíganlegir.
Var eitt sinn karlmaður
Á meðal keppenda er Liu Xia-
ojing, 21 árs blómarós frá borginni
Harbin, en hún var karlmaður fyrir
þremur árum. Hún telur að sú stað-
reynd hafi ekki áhrif á möguleika
hennar í keppninni. „Allir óska sér
að verða fallegir,“ sagði hún. „Ég er
núna kona í lagalegum skilningi, og
þessi keppni er fyrsta formlega
skref mitt til kvenleikans.“
Liu sagði skipuleggjendum ekki
frá því að hún væri kynskiptingur og
þeir spurðu hana ekki. Hún tilkynnti
á blaðamannafundi í gær að hún
hefði eitt sinn verið karlmaður. Ekki
hefur verið ákveðið hvort vísa eigi
henni úr keppni af þessum sökum.
„Ef þeir dæma mig úr leik mun ég
leita réttar míns,“ segir Liu, sem
auk þess að hafa látið fjarlægja
stærsta „lýtið“ hefur farið í aðgerðir
á augabrúnum, nefi og höku. „Þetta
eru tímamót í lífi mínu.“
Fólk| Nýstárleg fegurðarsamkeppni í Kína
Hafa allar gengist und-
ir fegrunaraðgerðir
AP
Einn keppendanna, Liu Xiaojing,
hefur tilkynnt að hún hafi eitt sinn
verið karlmaður.