Morgunblaðið - 13.12.2004, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
úrskurðaði í gærkvöldi 25 ára
gamlan karlmann í gæsluvarðhald
til 16. desember vegna árásar á
veitingastaðnum Ásláki í Mos-
fellsbæ í fyrrinótt sem leiddi til
dauða 55 ára gamals karlmanns.
Lögreglan í Reykjavík hafði farið
fram á gæsluvarðhald til 22. des-
ember.
Árásin var framin í anddyri veit-
ingastaðarins og var tilkynnt um
hana rétt fyrir klukkan þrjú. Að
sögn lögreglu sló árásarmaðurinn
hinn þungu höggi á kjálka og í
kjölfarið hneig hann niður meðvit-
undarlaus. Maðurinn var fluttur á
slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi og síðan á gjörgæsludeild þar
sem hann var úrskurðaður látinn
af völdum höfuðáverka á þriðja
tímanum í gær. Sá sem talinn er
hafa greitt honum höggið var
handtekinn á staðnum.
Að sögn Óskars Þórs Sigurðs-
sonar lögreglufulltrúa hefur hann
skýrt frá því við yfirheyrslur að
hafa lent í átökum við mann í and-
dyri veitingastaðarins. Mörg vitni
voru að árásinni. Teknar hafa ver-
ið skýrslur af sumum en fleiri
munu gefa skýrslur á næstu dög-
um. Óskar segir rannsóknina á
frumstigi og vill ekkert segja um
aðdraganda árásarinnar.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald í þágu rannsóknar
málsins og í kröfu lögreglunnar
um gæsluvarðhald er hann sagður
grunaður um stórfellda líkamsárás
sem leiddi til dauða. Hámarksrefs-
ing við slíku broti er 16 ára fang-
elsi.
Tæplega mánuður er síðan
danskur hermaður beið bana eftir
að honum var gefið eitt höfuðhögg
á kjálka. Sú árás átti sér stað á
veitingastað í Keflavík aðfaranótt
13. nóvember sl. Rannsókn þess
máls er ekki formlega lokið.
Maður lést eftir
þungt höfuðhögg
Árásarmaðurinn játar við yfirheyrslur hjá lögreglu
að hafa lent í átökum í anddyri veitingastaðarins
Í KJÖLFAR fundar samninganefnda
launanefndar sveitarfélaga (LN) og
Félags leikskólakennara (FL) á
föstudag ákvað FL að vísa deilunni til
ríkissáttasemjara. Ásmundur Stef-
ánsson ríkissáttasemjari mun funda
með báðum aðilum í dag og kynna sér
stöðu viðræðanna. Í framhaldinu
mun hann taka ákvörðun um hvenær
fundað verður næst í deilunni.
Það er forsenda fyrir boðun verk-
falls að kjaradeilu hafi verið vísað til
sáttasemjara og gerð hafi verið sátta-
tilraun. Björg Bjarnadóttir, formað-
ur FL, segir að beðið verði með að
ákveða hvort stjórn félagsins efni til
allsherjaratkvæðagreiðslu um boðun
verkfalls í leikskólum.
Strandar á launalið
Launanefndin lagði fram tilboð á
miðvikudag sem samninganefnd FL
gat ekki fallist á óbreytt. Í framhaldi
af því gengu ýmsar hugmyndir á milli
aðila og virtist sem viðræðum miðaði
áfram, að sögn Bjargar. Undir lok
fundarins á föstudag lagði LN fram
hugmyndir sem voru með öllu óvið-
unandi að mati samninganefndar FL.
Í ljósi þess tók nefndin þá ákvörðun
að vísa málinu til ríkissáttasemjara.
„Það var ákveðinn skriður kominn
á viðræðurnar en svo kom í ljós að
launanefndin er ekki tilbúin að ganga
eins langt og við teljum nauðsyn bera
til,“ segir Björg. Hún segir viðræð-
urnar stranda á launaliðnum og er
það hennar mat að það beri mikið í
milli.
Björg segir samninganefndina enn
ekki hafa rætt hugsanlega verkfalls-
boðun. „Nú tekur sáttasemjari sam-
kvæmt lögum við stjórn viðræðn-
anna. Við gefum þessu einhvern tíma
en ég tel að hann verði ekki mjög
langur því hópurinn er orðinn óþol-
inmóður og vill að eitthvað fari að
gerast.“
Samningar leikskólakennara voru
lausir í ágúst sl. Fyrsti fundur samn-
ingsaðila var um miðjan ágúst og eru
þeir orðnir yfir tuttugu talsins.
Kjaradeila leikskólakennara til ríkissáttasemjara
Mikið ber í milli í viðræðum
Biðin eftir
aðgerð
styttist
BIÐLISTAR eftir skurðaðgerðum
hafa styst um tæp 20% á Landspít-
alanum frá nóvember í fyrra. Nú
bíða 233 einstaklingar eftir almennri
skurðaðgerð en í fyrra biðu 706.
Flestir þeirra bíða eftir aðgerð
vegna vélindabakflæðis og þindar-
slits eða 100 einstaklingar og er með-
albiðtíminn rúmir 7 mánuðir. Í fyrra
biðu 303 eftir slíkri aðgerð og var
meðalbiðtíminn þá rúmir 13 mánuð-
ir. Að auki hafa biðlistar styst eftir
aðgerð í bæklunarlækningum, háls-,
nef- og eyrnalækningum, lýtalækn-
ingum og æðaskurðlækningum.
Biðtíminn hefur verið hvað lengst-
ur eftir aðgerð á augasteini en eft-
irspurn hefur stóraukist á síðustu
árum eftir slíkri aðgerð. Nú bíða
1.257 eftir aðgerð á augasteini og er
meðalbiðtíminn tæpt eitt ár, þrátt
fyrir nærri 20% fjölgun slíkra að-
gerða á þessu ári. Í fyrra biðu 1.208
eftir aðgerð á augasteini.
Á LSH bíða nú 102 einstaklingar
eftir varanlegri vistun utan spítalans
þótt um sé að ræða fækkun einstak-
linga frá því í fyrra. Að mati stjórn-
enda spítalans er mjög mikilvægt að
fjölga hjúkrunarrýmum fyrir aldr-
aða og búsetuúrræðum fyrir geðfatl-
aða og unga fatlaða einstaklinga.
Minnkar
hugsan-
lega hættu
á riðu
ÞÉTTNI mangans í heyi hefur hugs-
anlega áhrif á riðuveiki í sauðfé.
Þetta kemur fram í rannsókn sem
var gerð á rannsóknardeild yfirdýra-
læknis í dýrasjúkdómum á Keldum.
Heysýni voru tekin á 47 bæjum og
magn málmanna kopars, selens og
mangans rannsakað. Það kom í ljós
að þéttni mangans í heyi frá ósýktum
svæðum var meiri en í heysýnum frá
bæjum þar sem riða hefur komið
upp. Þetta hefur því vakið spurning-
ar um hvort mangan geti hugsanlega
komið í veg fyrir riðu eða seinkað
henni með því að hindra að smitefn-
ið, príonprótein, berist frá þörmum
og upp í heila.
Vísbendingarnar um þetta hafa
ekki komið upp áður og þyrfti að
sögn dr. Kristínar Bjargar Guð-
mundsdóttur að rannsaka í stærra
úrtaki til að staðfesta þær.
Selenskortur er ekki óalgengur í
blóði áa og þá sérstaklega á vorin
eftir inniveruna um veturinn. Ekk-
ert bendir þó til að hann tengist riðu.
Vísbending/4
LENKA Ptacnikova, fyrsti kven-
stórmeistari Íslendinga í skák,
sigraði Friðrik Ólafsson, fyrsta
karlstórmeistara þjóðarinnar, í
opnunarskák á Friðriksmóti
Landsbankans og Skáksambands
Íslands í gær. Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, formaður Skák-
sambandsins, lék opnunarleikinn
(c4) fyrir Friðrik og lagði þannig
grunninn að þessari æsispennandi
hraðskák. Framan af virtist Frið-
rik hafa undirtökin en í tímahraki
lék hann af sér manni og Lenka
tók þá stjórnina.
Mótið var hluti af aðventu- og
jólahátíð Landsbankans og allir
sterkustu skákmenn landsins tóku
þátt. Fjöldi fólks lagði leið sína í
aðalútibú Landsbankans við Aust-
urstræti og áhorfendur gátu fylgst
með gangi mála á risaskjá og skoð-
að verðlaunagripi og fréttamyndir
frá ferli Friðriks Ólafssonar.
Jóhann Hjartarson og Stefán
Kristjánsson fóru með sigur af
hólmi á mótinu með átta og hálfan
vinning hvor. Stefán var næst-
yngsti keppandinn en Jóhann er
stigahæsti skákmeistari Íslendinga
frá upphafi.
Dagur Arngrímsson vann ung-
lingaflokkinn þar sem 14 efnileg-
ustu unglingar landsins kepptu og
vann sér þannig inn þátttökurétt á
aðalmótinu.
Að loknu mótinu veitti Friðrik
Lenku sérstök hvatningarverðlaun
en hún lenti nýlega í 11. sæti á Ól-
ympíumótinu í skák.
Lenka sigraði Friðrik í spennandi skák
Morgunblaðið/Ómar
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir lék opnunarleik skákmótsins fyrir Friðrik Ólafsson.
♦♦♦
HEGNINGARLAGABROTUM
fækkaði um tæplega 10% og umferð-
arlagabrotum um 12% á milli áranna
2002 og 2003. Á sama tíma fjölgaði
brotum gegn öðrum sérrefsilögum en
umferðarlögum um rúmlega 16% og
varð fjölgunin mest í fíkniefnabrot-
um. Þetta er meðal þess sem kemur
fram í skýrslu ríkislögreglustjóra um
afbrotatölfræði árið 2003. Í fyrra voru
34.009 einstaklingar kærðir fyrir um-
ferðarlagabrot á landinu, þar af 9.201
kona. Þetta er fækkun um rúmlega
4.000 frá árinu 2002.
Fyrir hegningarlagabrot voru
3.536 einstaklingar kærðir, þar af 720
konur. Hlutfallslega flestir voru á 18.
og 19. aldursári en síðan féll hlutfallið
hratt eftir aldri. Flestar kærur voru
vegna þjófnaðar (2.270), síðan vegna
eignaspjalla (950) og loks vegna væg-
ari tegundar líkamsárása (887).
Í fyrra voru 1.057 einstaklingar
kærðir fyrir fíkniefnabrot, flestir á
aldrinum 20–24 ára en hlutfall 15–19
ára fór vaxandi.
10% fækk-
un afbrota
Maðurinn sem
lést eftir árás-
ina hét Ragnar
Björnsson.
Hann var 55
ára, fæddur 3.
janúar 1949, til
heimilis að Efri-
Reykjum í Mos-
fellsbæ.
Hann lætur eftir sig eiginkonu
og þrjá syni.
Lést eftir árás