Eintak - 01.12.1993, Page 68

Eintak - 01.12.1993, Page 68
SlGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR Sigríður er einn fárra íslendinga sem einhverjum tökum hefur náð á pistiaskrifum. Það sannaði hún á Helgarpóstinum, Þjóðviljanum og í Ríkisútvarpinu fyrir fáum árum. Sigríður er húsmóðir og kennari í Mosfellssveit, þeirri sveit sem maður á víst að kalla bæ. fremur illkvittnar karlkyns kellingar sem ákveða að þreklegar og fjallmyndarlegar konur skuli troða sér í þröng örpils, breiðum fótum í yddaða skó og skrúfa hárið upp í hársátur? Að sýningaffaukur skálmi um í síðpilsum með byssu í hönd eða snoð- klipptar í herrafötum? Stjórna konur því siðleysi að ungar stúlkur skuli horfalla þetta árið í allsnægt- unum sökum tísku meðan milljónirnar horfalla í allsleysinu? Skrifuðu konur trúarritin? Páfinn bannar fimm hundruð milljón konum að nota getnaðar- varnir svo örsnauðar konur í örsnauðum löndum eru alltaf að eignast börn sem deyja úr hungri. Múslímar láta konur ganga í svörtum tjöldum með tveimur gægjugötum, hvernig sem viðrar. Haft er fyrir satt að fyrir stríð hafi konur í þeim löndum gengið á eftir úlföldunum sem karlarnir sátu á en á undan eftir stríð. Út af jarðsprengjun- um. Finna konur mörg rök fyrir jafhrétti kynja í Biblíunni? Eru það konur sem búa til svona málshætti: Kauptu konu og léreft við ljós. Oft er karlmanns- hugur í konu brjósti. Hlýðin kona hefur í staðinn ást og eftirlæti. Aldrei er kvennastjórn affaragóð. Fríður er fjáður svanni. Er það sök kvenna að íslenskar konur hafa ekki enn náð lengra í bönkum en vera gjaldkerar, þjón- ustufulltrúar, deildarstjórar. Engin kona er bankastjóri, aðeins ein situr í bankaráði. Stjórn- málakarlar viðurkenna að bönkum sé frámunalega illa stjórnað og kvaka mikið um hagræðingu. Eng- um hefúr samt enn dottið í hug að bjóða konu bankastjórastól. Á meðan konur hafa ekki áhrif og völd í fjármálaheiminum eru raunveruleg völd þeirra harla lítil. Það er jafn rétt að segja: konur eru konum verstar og: karlar fara sjaldan á fjörur við konur með gleraugu. Eða: hugboð kvenna er miklu áreið- anlegra en vissa karla. Eða: konan hefur þegið svo mikið vald af náttúrunnar hendi að löggjafinn hef- ur ekki efhi á að bæta þar neinu við. Konur eru ekki minnihlutahópur í heiminum þótt ótrúlegt sé. Þær eru helmingur mannkyns. Ekki veit ég hve stór hópur þeirra er ánauðugar ambáttir, húðarjálkar með þungbæran arf kvenna allra alda á herðunum, byrðar formæðranna úr grárri forneskju. Það verður forvitnilegt að lifa þeg- ar allur þessi skari, allur þessi helmingur mann- kynsins, hefúr verið leystur úr ánauð og bræðralag karla og kvenna ríkir. Á næstu öld? Eða þarnæstu. Konur eru konum verstar. Nema hvað. Menn eru mönnum verstir. Homo homini lupus est. Þennan sannleika lærðum við í MA hjá Þórarni Björnssyni og aldrei líður sá dagur í upplýsinga- þjóðfélagi nútímans að við fáum hann ekki stað- festan. Sigríður Halldórsdóttir Köld eru kvennaráð Sú besta handbók sem völ er á þegar konur eru beðnar að skrifa dulitla tímaritsgrein er fyrir mitt leyti bókin Sjafnarmál. Hún er væntanlega ófáan- leg í bókaverslunum, enda gefin út 1945 af Ragn- ari Jónssyni í Smára, Unuhúsi, Garðastræti 15-17, úr flokknum bókasafn Helgarfells. Ekki man ég eftir að hafa selt eintak af þessari bók, þótt ég hafi verið þátttakandi í jólabókaflóði Helgafells á Veg- húsastígnum lungað úr uppvaxtarárunum. Það er eins og mig hálfminni að síðustu eintök- in hafi lent í vatnsskaða á kamrinum hjá forlaginu. Enda jafnótryggt að geyma þar bækur eins og að nota snyrtinguna. Jæja, nóg um það. Þegar ég segi að mér þyki þetta svona góð handbók, þá er það vegna þess að konur eru oftast beðnar að skrifa um konur. Og þar sem konur vita ekkert meira um konur en karlar um karla, þá er þessi bók stútfull af svoleiðis speki um kvenfólk að það er nú meira. Þetta eru 174 blaðsíður af „orðskviðum“ um konur sem hrotið hafa af vörum karlmanna í gegnum tíð- ina, segir í formála. Grein þessi á að fjalla um grimmd kvenna og áreiðanlegt að hún er mikil og eftirminnileg þeim orðskviðsmönnum sem fyrir henni hafa orðið. Eins og þessum blessaða manni sem á þennan orðskvið: „Þegar kona fær sér farmiða til helvítis, er hún miklu fljótari í förum en karlmaður og ferðast allt- af á þriðja farrými“ (Louis Wain bls. 145, Sjafnar- mál, útg. 1945, Garðastræti 15-17 o.s.frv.) Einhverju hefur hann lent í á kvennaförunum sem skilið hef- ur eftir slíkt svekkelsi. Sjálfur myndi hann stoltur maðurinn spyrja kurteislega um farmiða til Helvít- is hjá stúlkunni í miðasölunni, biðja hana að faxa áætlaðan komutíma sinn í neðra og vísa sér svo á „Business Lounge“ (er með Priority Pass og Vild- arkort Flugleiða.) Nú, það er þessi sami maður sem heldur því fram að „konur séu miklu grimmlynd- ari en karlmenn, því er það að þær þola meiri þján- ingar en þeir“. Ég skil vel hvað maðurinn er að fara, en myndi snúa þessu við og segja: Sú eða sá sem þolað hefur þjáningar á frekar á hættu að verða grimmlyndur. Einhvern veginn finnst manni að þegar fjallað er um grimmd kvenna sé undiraldan mikil og ýmislegt liggi í loftinu, ósagt. Það er að minnsta kosti ekki ein afgerandi skýr og skorinorð yfirlýs- ing í handbókinni um það hvernig grimm kona hagar sér. Þó svífur yfir vötnunum að grimmdin tengist ástinni afar sterkt. „Vondar konur þjá okkur. Góðar konur þreyta okkur. Það er eini munurinn á þeim,“ segir Oscar Wilde. Hann hittir naglann á höfuðið, þrátt fyrir meinta ógagn- kynhneigð, sem kemur málinu ekkert við. Það skiptir máli að hann var mikið skáld. Þegar svona í hvelli er farið að spekúlera í því hvort til sé mjög eftirminnilega góð kvenpersóna í bókmenntum eða yfirleitt í rituðu máli, þá man ég eftir Florens Nætingeil og mömmu hans Hjalta litla sem allir vildu átt hafa fyrir móður (Mamma skilur allt, eft- ir Stefán Jónsson), sérstaklega vegna þess að Hjalti litli þurfti ekki að búa með henni. Hún kom drengnum fyrir, niðursetningi hjá afar kaldlyndri húsfreyju. Sú kona er mér líka eftirminnilegri en mamman, því hún gætti þess að gefa Hjalta litla aldrei annað að éta en „skófírnar innan úr grautar- pottinum". Tískukóngurinn Karl Lagerfeldt (sá sem kenndur er við karlmannstögl) átti afar kaldlynda móður eftir því sem hann segir sjálfur. Hún lét aldrei út úr sér setningu við einkasoninn nema eft- ir ískalda íhugun. Þegar svo Karl byrjaði að reykja sextán ára lagði hún sig fram um að gefa honum sígarettu ef hann sat nálægt fallegri stúlku í sam- kvæmum. Svo var það einn góðan veðurdag að Karl situr reykjandi umkringdur ungu og fallegu æskufólki, að móðir hans treður sér í miðjuna og þegar frú Lagerfeldt hefur náð athygli allra segir hún hátt og hvellt: „Karl! Fólk með svona óskap- lega ljótar hendur eins og þú ætti aldrei að reykja, því sá sem reykir er alltaf með hendurnar á lofti.“ Köld eru kvennaráð, og ekki í fljótu bragði hægt að sjá hvað fær þá þýskættuðu ffú Lagerfeldt til að lítillækka ungan son sinn á svo þaulhugsaðan hátt. En, - Svíinn, herra Lagerfeldt átti alla sína hjóna- bandstíð vingott við fagrar og blíðlyndar konur... þrátt fyrir einar þær ljótustu hendur sem sést höfðu bæði í Stokldiólmi og Hamborg. Svo þarna er skýringin komin. Við skuluni ekki gleyma því að með hegðun sinni gerði ffú Lagerfeldt son sinn að flottasta tískukóngi samtímans. Listamanni sem ævinlega er hanskaklæddur og gengur með tagl. Taglið er vísbending án orða. Ég ætla ekki að skýra það út ffekar en tek ffam að heimildir um Karl Lager- feldt eru ekki úr Garðastræt- inu, hvorki 15-17. Það er varla hægt að finna meiri forka í köldum kvennaráðum eins og í ís- lendingasögunum. Guðrún Ósvífursdóttir atti eigin- manni sínum til að drepa þann sem hún unni mest. Það sauð upp úr hjá minni þegar Kjartan dreitti hana inni með Bolla. Fátt er eins niðurlægjandi og að vera dreittur inni á söguöld. Maður sem lærði íslenskar bókmenntir í H.I. í nokkrar vikur og fór síðan að vinna hjá rafmagnsveitunum segir að allir sem lesið hafi Lax- dœlu þekki sögnina að dreitta einhvern inni. Og hvað kostaði ekki kinnhesturinn Gunnar á Hlíðarenda, blessuð sé minning hans? Hann sló Hallgerði utanundir þegar upp komst að hún hafði stolið ostinum ffá Bergþóru. Hann gat sannað það, því ostur Hall- gerðar passaði í ostamótin frá Bergþórshvoli. Það er ein kaldasta og yfirvegaðasta hefnd sem um getur 68 EINTAK DESEMBER
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.