Eintak - 01.12.1993, Side 132

Eintak - 01.12.1993, Side 132
JÓLAPLÖTUR KK BAND Stuðmenn STUÐMENN Skifan Lauslegt yfirlit yfir feril Stuðmanna eftir að hljómsveitin tók aftur upp þráðinn 1982. Hver er niðurstaðan? Jú, þeirfélag- arnir sömdu helling af skemmtilegum lögum og fluttu þau með sæmd. En það er líka áberandi að lögin versna og verða einhvern veginn tómlegri eftir því sem líður nær nútímanum; lögin frá árunum 1982-84 eru brilljant, en jsað ber að þakka að hljómsveitin hætti áður en hún gerði fleiri lög eins og Leysum vind og Staldraðu við. Páll Óskar Hjálmtýsson STUÐ Smekkleysa Diskótíminn var auðvitað ofsalega púkalegur; í raun algjört tilræði við allt sem getur talist góður og vandaður smekkur, enda hafa fáir orðið fyrir öðru eins aðkasti gáfufólks og diskó- flónin. En Páil Óskar er fyrir löngu búinn að uppgötva að það er ekki nema hálf sagan; diskótíminn var nefnilega skemmti- lega púkalegur, hann hafði sinn glaða og hæfilega hálfvita- lega sjarma. Það hentar Páli Óskari prýðilega. Og í anda diskósins leyfir hann sér að vera óforskammað ósmekklegur á plötu sem er fyrst og fremst ansi fyndin, alls ekki gallalaus, en fullkomlega ósnortin af allri yfirborðsfágun og merkikertis- látum. Lögin eru mjög upp og ofan, sum meira að segja afar vond, en Páll Óskar kemst upp með það af því hann hefur giaðan, óbeislaðan og græskulausan húmor, fyrir sjálfum sér - og diskóinu. Todmobile SPILLT Spor Þetta er ofboðslega vitmunalegt, svo framúrskarandi kunn- áttusamlegt. Hér er fólk sem kann allt, getur allt, veit allt, að minnsta kosti hérumbil, að leika sér af glæsilegu áreynslu- og fyrirhafnarleysi. Allt sem þau kæra sig um að nota verður þeim að góðum efniviði, Andreu, Eyþóri og Þorvaldi; hér er stolið og stælt af mikilli íþrótt, - úr rokki, danstónlist, sinfóníupoppi, og útkoman verður þessi margrétta máltíð sem hefur gert Todmobile að stórhljómsveit þessa áratugar. Ef ekki besta plata hljómsveitarinnar, þá sú næstbesta. Fínt að enda á svona lokaspretti. KK-Band HOTELFÖROYAR Bein leið/Japis Máski er þessi plata svolítið eins og millispil, enda varla von til þess að neinn geti skapað verk eins og Lucky One og Beina leið hvert ár, ekki einu sinni KK. Hún er ekki eins heilleg þessi plata, en samt eru þarna eiginleikar sem ollu því að KK söng sig svo fyrirhafnarlítið inn í hjörtu þjóðarinnar; einhver spontan tjáning, milliliðalaus, og þakksamlega snauð af komplexum, tilgerð og fordild. Þannig er KK enn í eðli sínu sami gamli götuspilarinn sem hann var áður en tímabil frægð- arinnar rann upp. Meðan hann týnir því ekki er örugglega þess virði að leggja við hlustir. Nýdönsk HUNANG Skifan Dálítið fastir liðir núorðið, það er fátt óvænt á þessari plötu; þetta er sama íburðarmikla og svellandi hippapoppið með þykkum hljómi sem hefur gert Nýdanska að einhverri mest sjarmerandi poppsveit síðari ára. Og líkt og fyrr úir og grúir af sniðugum smáatrióum, útflúri og krúsidúllum, sem eru þess virði að maður sperri eyrun og bera vott um yfirlegu og ágætt hugvit. En samt, piltarnir hafa gert þetta flest áður - og betur. Mezzoforte DAYBREAK Spor Mezzofortepiltarnir hafa ekki breyst hætishót; ef maöur hefur smekk fyrir svona músík finnst manni platan góð, ef maður hefur ekki smekk fyrir henni vill maður alls ekki heyra hana - og hefur heldur enga ástæðu til þess. Þetta er sami poppaði bræðingurinn og fyrrum, áferðarfallegur en harla gleðivana, enda virðist hann helst falla í geð Þjóðverjum, Austurríkis- mönnum og Svisslendingum, húmorsnauðustu þjóðum Evrópu. Eins og alltaf er hljóðfæraleikurinn fullkomlega snurðulaus, en yfir vötnum svífur þó óþarflegur skortur á metnaði og áræði; í raun er það synd að þeir skuli enn halda sig á þessu flatlendi bræðingsins en ekki sækja á brattann, upp í háskalegri fjallgarða djassins. Guðbergur Bergsson \ eftir að hann kom til Hemma og leigubílstjórar klöppuðu fyrir honum. Kannski hann fari bráðum að ná metsölu? Slavnesk fegurð' sem var svo lengi bæld af kommum en fær nú að blómstra Að þykja allur matur góður meira að segja blóðmör og svið, ef þannig berundir Kóraninn Mál & menning gaf út Söngva Satans og bætir nú ráð sitt með því að gefa út höfuðrit múslima Að taka jólin snemma til dæmis með jólahlaðborðum og vera góður við sjálfan sig og aðra í desember Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra sem þjóðin hafði skömm á er að verða að ástsælum viðskiptaráðherra Sylvester Stallone ef hann kvikmyndar hér bætist hann í góðan hóp íslandsvina Jó/ag/ögg ágætis tækifæri til að hitta annað fólk og gleðjast, en auðvitað eru það bara villiþjóðir sem drekka heitt vín Hamagangur útgefenda gegn bókaskatti, á endanum missir þjóðin trúna á að hún hafi efni á að Nýbúar ekki fólkið, heldur orðið - er ekki einhver leiðindatónn í því? Jón Sigurðsson \ að endingu fékk hann bílinn, ' en hlátur þjóðarinnar fylgir honum alla leið í bankann í íinnlandi Skræpótt hálsbindi-' þessi jól skulu þau vera með fíngerðu mynstri, í hógværum litum Hrafn Gunnlaugsson' hann gerir ágæta bíómynd, en þjóðin er búin að fá svo yfirdrifið nóg að það flökrar ekki að neinum að fara að sjá hana Prófkjör' og það sem sumt fólk er tilbúið að gera til að ná kosningu í þeim Aðgefaeiginkonunni^ hrærivél í jólagjöf eða keðjur undir bílinn, á hún ekki skilið að fá hring eða kjól? / \ Föt úr tweed-efnum hlý, klæðileg, falleg og sterk ■ Norðmenn við sjáum þá í nýju Ijósi eftir að þeir komust í úrslitin á heimsmeistara- mótinu í fótbolta Popptón/eikar í virðulegum húsum aldrei hefðu Hljómarfengið að spila í Borgarleikhúsi, Þjóðleikhúsi eða Óperu Ummæli Bjarkar I útlendum blöðum það er bara skemmtilegra að hún skuli færa svolítið i stílinn Höfuðdjásn kannski ekki kórónur, en eitthvað smálegt sem fer vel I hári kvenna Löngu og mjóu sígarettumar sem stelpur reykja, þótt alvöru reykingamönnum þyki þærferlega asnalegar Fjjúpur það er orðið svo mikið vesen I kringum þennan bliðlynda fugl að það er eiginlega hætt að vera gaman að éta hann Prestar sjálfsagt hafa þeirágætan málstað, en er ekki allt talið um kaup og kjör orðið full veraldlegt? Michael Jackson en af hverju eru allir svona vondir við hann? Stöð2 allt virtist Jeika í lyndi en svo kom afruglararuglið og ruglaði alla i ríminu Maðurinn í afnotagjaldaauglýsingunni, sem neitar að borga en flaðrar svo upp um Hemma Gunn og, af öllu fólki, leiklistarstjóra útvarpsins, verulega ógeðfelld týpa . Handboltinn að minnsta kosti ber það ekki vott um mikinn áhuga að spila fyrir tómum húsum / Að kenna öðrum um ófarir sínar til dæmis að skrifa leikrit og kenna gagnrýnandanum um ef enginn vill sjá það , Vangaveltur um morðið á Kennedy ' og enn eitt dánarafmæli hans, djöfull er maður orðinn leiður á þvi Ólafur Ragnar Grímsson allaballar höfðu ekki kjark til að fella formanninn, en þeir settu hann út í kuldann 132 EINTAK DESEMBER
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.