Morgunblaðið - 15.02.2005, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
6,3 MILLJARÐAR Í ARÐ
Stjórn Símans samþykkti árs-
reikning fyrirtækisins á fundi í gær.
Á fundinum var samþykkt að leggja
til við aðalfund að greiddur verði
90% arður á árinu 2005 af nafnvirði
hlutafjár, eða 6.333 milljónir kr. Tæp
99% hlutafjár eru í eigu ríkissjóðs.
Rúmlega þriggja milljarða króna
hagnaður varð af rekstri samstæðu
Símans á seinasta ári.
Mikið af hval
Óvenjumikið virðist vera af höfr-
ungi og hnúfubak í kringum Gríms-
ey og segist sjómaður með tæplega
40 ára reynslu aldrei hafa séð annað
eins af hval á þessu svæði. „Það er
búið að vera óvenjumikið af höfr-
ungi, ég hef oft séð mikið, en aldrei
eins og þetta,“ segir Gylfi Gunn-
arsson, skipstjóri í Grímsey.
Hæpið að kvótinn náist
Hæpið er að loðnukvóti vertíð-
arinnar náist ef fram heldur sem
horfir. Veiðarnar hafa fram til þessa
gengið fremur illa, loðnan er dreifð
og tíðarfarið óhagstætt. Loðnukvóti
vertíðarinnar er nærri 781 þúsund
tonn en aflinn er nú orðinn um 300
þúsund tonn, samkvæmt upplýs-
ingum af vef Fiskistofu.
Tilræði í Líbanon
Mikil spenna ríkti í Líbanon í gær
eftir að fyrrverandi forsætisráð-
herra landsins, Rafik Hariri, hafði
verið ráðinn af dögum í höfuðborg-
inni, Beirút. Hariri var andvígur
veru herliðs Sýrlendinga í landinu
og hafði gengið til liðs við stjórnar-
andstöðuna af þeim sökum. Ísraelar
gáfu í skyn að Sýrlendingar eða
vígahópar þeim tengdir hefðu borið
ábyrgð á morðinu.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 30
Viðskipti 13 Viðhorf 32
Erlent 14/15 Bréf 32
Akureyri 17 Dans 35
Suðurnes 18 Minningar 36/43
Landið 18 Dagbók 48/51
Austurland 19 Fólk 54/57
Daglegt líf 20/21 Bíó 54/57
Listir 22 Ljósvakar 58
Umræðan 26/34 Veður 59
* * *
ÞEGAR ekið er inn Skriðdal má sjá
að Grímsáin er á löngum köflum
þakin illúðlegum hrönnum sem
urgast saman með þungum ísk-
urhljóðum. Eftir margra vikna
langan kafla þar sem hlýindi og
hörð frost hafa í sífellu skipst á
hlutverkum er áin rétt að verða
búin að ryðja sig þegar allt frýs
saman aftur og því myndast þessar
miklu hrannir.
Myndin er tekin rétt ofan við
uppistöðulón Grímsárvirkjunar, í
landi Sauðhaga. Nokkru ofar í
dalnum taka svo við sléttar ísbreið-
ur á ánni þar sem hún rennur bein,
en hrannirnar virðast eðlilega eink-
um safnast fyrir í bugðum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Grímsá í Skriðdal, með illúðlegar hrannir bakka á milli.
Ísahrannir í Grímsá
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
kvæmdastjóra lækninga á LSH, er
ekki verið að auglýsa starf hans,
heldur er hér um nýja stöðu að
ræða.
„Prófessorsstarfið er nýtt og sam-
kvæmt samningi við Háskólann
tryggjum við prófessorum yfirlækn-
isstöðu,“ segir Jóhannes.
Spurður hvort gert sé ráð fyrir að
tveir yfirlæknar verði yfir þessu
sviði segir Jóhannes hugsanlegt að
svo verði nema þá að Sigurður sæki
um og fái þessa stöðu.
LÆKNADEILD Háskóla Íslands
og Landspítali – háskólasjúkrahús
(LSH) auglýstu um helgina nýja
prófessorsstöðu í krabbameinslækn-
ingum við læknadeild en með starfs-
aðstöðu á LSH. Tekið er fram í aug-
lýsingunni að prófessorinn muni
jafnframt gegna starfi yfirlæknis á
lyflækningasviði II á spítalanum.
Sigurður Björnsson er yfirlæknir
á lyflækningasviði krabbameins-
lækninga á LSH. Að sögn Jóhann-
esar M. Gunnarssonar, fram-
„Það er alveg hugsanlegt að það
geti orðið tveir [yfirlæknar] en það
þarf bara að skilgreina starfssviðið í
starfslýsingu,“ segir hann.
Að sögn Jóhannesar er þetta í
fyrsta skipti sem búin er til prófess-
orsstaða í þessari sérgrein og er
þetta gert vegna samstarfs spítalans
og læknadeildar.
Spurður hvort með þessari nýju
stöðu sé verið að ganga á starfssvið
Sigurðar Björnssonar svarar Jó-
hannes neitandi.
LSH auglýsir nýja stöðu yfirlæknis krabbameinslækninga
Hugsanlegt að tveir yfir-
læknar verði yfir sviðinu
ÚTGJÖLD Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH) á síðasta ári
voru 273 milljónir kr. umfram fjár-
heimildir eða 1% samkvæmt nýju
bráðabirgðauppgjöri fyrir árið
2004. Sparnaðarkrafa ársins var
um 3,0% og hefur því náðst að
lækka rekstrarkostnað spítalans
frá fyrra ári um það bil um 2,0%.
Launakostnaður á spítalanum var
18.526 milljónir í fyrra og jókst um
rúmlega 200 milljónir frá árinu á
undan.
Ráðist var í fjölmargar sparnað-
araðgerðir á spítalanum á seinasta
ári, m.a. með því að segja upp
starfsfólki til að ná niður launa-
kostnaði, leggja af vaktir, draga úr
yfirvinnu og fleiru. Náðu þessar að-
gerðir til alls 500–600 starfsmanna.
Auk þess voru settar innkauparegl-
ur, útboðum fjölgað, útbúinn lyfja-
listi, hert skilyrði fyrir notkun
nýrra lyfja o.fl.
Rekstur flestra sviða spítalans er
innan áætlunar en á þremur svið-
um er rekstrarkostnaðurinn um-
fram fjárheimildir en það eru lyf-
lækningasvið I, slysa- og bráðasvið
og rannsóknastofnun LSH.
„Góður árangur í
rekstri og afköstum“
„Mér finnst við vera að ná mjög
miklum árangri, bæði í rekstrinum
og afköstum,“ segir Jóhannes M.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
lækninga á LSH. „Umtalsverð
aukning hefur náðst í flestum teg-
undum aðgerða og biðlistar hafa
náðst niður svo þeir eru varla leng-
ur til vandræða,“ segir hann en
bendir þó á að á því sé sú und-
antekning að enn sé langur listi eft-
ir skurðaðgerð á augasteini. Þar
hafi biðtíminn þó einnig styst. „Við
erum þeirrar skoðunar að það sé
býsna góður árangur að ná rekstr-
arkostnaði niður um 2%,“ segir Jó-
hannes. Að sögn hans virðist þó
vera innbyggð hækkun á tilteknum
liðum sem virðist nánast náttúru-
lögmál að hækki alltaf meira en
forsendur fjárlaga gera ráð fyrir,
og nefnir lyfjaverð og framlag til
lífeyrissjóða, sem sjúkrahúsið fái
ekki bætt.
212 bíða eftir hjartaþræðingu
Komum á göngudeildir spítalans
fjölgaði um 11,6% í fyrra frá árinu
á undan. Þá fjölgaði komum um
3,3% á slysa- og bráðamóttökur
spítalans en þeim fækkaði hins veg-
ar um 4,9% á dagdeildir. Í grein-
argerð Önnu Lilju Gunnarsdóttur,
framkvæmdastjóra fjárreiðna,
kemur fram að með fjölgun skurð-
aðgerða síðustu tvö árin fækkaði
nánast á öllum biðlistum eftir þjón-
ustu spítalans. Nú bíða 107 ein-
staklingar eftir gerviliðaaðgerð á
hné sem þýðir rúmlega sex mánaða
bið. Þá bíða 212 einstaklingar eftir
hjartaþræðingu sem er fjölgun frá
árinu á undan en það samsvarar
tæplega þriggja mánaða biðtíma að
meðaltali. Færri hjartaþræðingar
voru gerðar í fyrra en árið á undan
eða 931 samanborið við 1.003 á
árinu 2003, sem er 7,2% fækkun.
Gerðar voru 14.675 skurðaðgerð-
ir á spítalanum í fyrra sem er lítils-
háttar aukning frá árinu á undan
og fæðingum á spítalanum fjölgaði
úr 2.865 árið 2003 í 2.934 í fyrra.
Launakostnaður á spítalanum
var 18.526 milljónir í fyrra og jókst
um rúmlega 200 milljónir frá árinu
á undan.
Rekstur flestra sviða Landspítala var innan áætlunar í fyrra
273 millj. umfram heimild
LYFJAKOSTNAÐUR á Landspítala – háskólasjúkrahúsi var um 2.686 millj-
ónir kr. í fyrra og jókst um 7,2% frá árinu á undan skv. bráðabirgðaniður-
stöðu fyrir starfsemi og rekstur sjúkrahússins á árinu 2004. Kostnaður
vegna S-merktra lyfja, þ.e. lyfja sem eingöngu eru notuð á sjúkrastofnunum,
var 1.745 milljónir og jókst um 198 milljónir frá árinu á undan eða um 12,8%.
Lyfjakostnaður jókst um 7,2%
AÐ venju gefur Morgunblaðið út
stórt og glæsilegt fermingarblað og
í ár kemur blaðið út 5. mars. Í því
er ætlunin að birta gamlar og nýrri
myndir úr fermingarveislum og
gefa þannig innsýn í sögu íslenskra
fermingarveislna.
Af því tilefni leitar Morgunblaðið
til lesenda sinna um aðstoð við að
finna sem skemmtilegastar myndir.
Þeir sem eiga í fórum sínum góðar
myndir úr fermingarveislum eru
beðnir að senda þær blaðinu.
Senda þarf myndirnar ásamt
upplýsingum um eiganda og fólkið
á myndunum, auk annarra nauð-
synlegra skýringa. Allar myndir
verða endursendar. Utanáskriftin
er:
Morgunblaðið
Fermingarmyndir
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Einnig má senda þær umsjón-
armanni fermingarblaðsins, Hildi
Loftsdóttur, á netfangið hilo@-
mbl.is eða í síma 569-1100.
Mynda úr
ferming-
arveislum
leitað
CESAR Arnar Sanches, íslenski
hermaðurinn sem særðist í Írak, er
kominn til Bandaríkjanna og liggur
á sjúkrahúsi bandaríska flotans í
Washington DC, samkvæmt upplýs-
ingum frá móður hans, Örnu Báru
Arnarsdóttur.
Cesar Arnar slasaðist mikið þeg-
ar gerð var flugskeytaárás á her-
sveit hans 9. febrúar sl. Hann missti
m.a. sjón á vinstra auga og slasaðist
alvarlega á vinstri fæti.
Á sjúkrahúsi í
Bandaríkjunum
„ÞETTA var bara eins og í eld-
gamla daga. Við gengum um
með kertaljós, fórum snemma
að sofa og stigum ekki fram úr
fyrr en birta tók,“ segir Sigþór
Þorgrímsson, bóndi á Búastöð-
um í Vopnafirði, sem var án
rafmagns í 27 tíma um helgina.
Bilun í háspennulínu olli því
að rafmagn fór af nokkrum
bæjum í Vesturárdal í Vopna-
firði um klukkan 18 sl. laug-
ardagskvöld. Komst það ekki í
lag fyrr en um klukkan 21.15 á
sunnudagskvöldið. Voru átta
bæir án rafmagns í 27 tíma.
Sigþór segir heppilegt að ekki
var kalt í veðri þennan sólar-
hring og veður stillt. Á sunnu-
dagsmorgun var hitinn inni í
bænum kominn niður í 10
gráður en úti var við frost-
mark. Þetta hafi verið heldur
langdregið en starfsmenn
RARIK fundu ekki bilunina
strax.
Á sunnudeginum sinnti Sig-
þór fénu eftir að birta tók.
Hann segir engin kúabú á
þessu svæði og því hafi ástand-
ið verið þolanlegt á bæjunum
hvað búskapinn varðaði. Helst
hafi verið vandamál á þeim
bæjum sem séu með borholu
og gátu ekki dælt upp vatni.
Rafmagns-
laust í 27
stundir
♦♦♦
SJÖ fíkniefnamál komu upp í fang-
elsinu á Litla-Hrauni í liðinni viku.
Segir lögreglan á Selfossi að það
hafi einkum verið hass sem þar
fannst.
Öll tengjast málin refsiföngum
og eru til rannsóknar hjá lögregl-
unni.
Hass í
fangelsinu
Kynningar – Með Morgunblaðinu í
dag fylgir kynningarblað Vetrarhátíð-
ar í Reykjavík.