Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 19
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Reyðarfjörður | Matsalurinn í starfs-
mannabúðunum Fjardaal Team Village
(FTV) gengur nú undir nafninu Golden Duck,
eða gullna öndin. Bill Staples, öryggisstjóri
Bechtel, segir að Ástrali nokkur sem starfar
hjá fyrirtækinu hafi verið að bauka við að
læra íslensku og reynt mikið að segja „góðan
dag“ á því ástkæra ylhýra; það kom hins veg-
ar út eins og „goldan dueak“ úr munni hans
og þótti þá tilvalið að nefna mötuneytið í höf-
uðið á þessari íslenskutilraun. Helmingur
matsalarins, sem taka mun 800 manns í sæti,
verður opnaður á föstudaginn kemur, en
seinni helmingurinn tekinn í notkun í júní nk.
Áttahundruð öryggisbomsur
Það má spyrja hvernig í ósköpunum menn
geti fundið skóna sína í anddyri mötuneyt-
isins, innan um hundruð para sem öll eru
eins. Bill Staples segir það merkilega lítið
mál, því menn séu ótrúlega glúrnir. „Fimm
mínútum eftir að einhver hefur óvart farið í
vitlausa skó er hann kominn til baka að leita
að þeim réttu,“ segir Staples. „Einn morg-
uninn þegar ég kom út úr svefnskálanum
voru skórnir mínir horfnir. Ég þurfti að
haska mér í morgunmat og stakk mér því í
skó einhvers annars. Fer í mötuneytið og úr
skónum og fæ mér að borða. Þegar ég kem
aftur fram eru mínir skór komnir í fordyrið
og hinir horfnir. Þetta er satt að segja maka-
laust. Ef bomsuhopp yrði tekið inn sem
keppnisgrein á Ólympíuleikunum myndi ég
verða breskur meistari í greininni. Ég get
nokkuð auðveldlega hoppað yfir um það bil
800 pör af öryggisbomsum í einu.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gullna öndin Helft mötuneytis starfsmannaþorps vegna byggingar álvers verður tekin í notk-
un 18. febrúar. Kaupfélag Héraðsbúa selur alla matvöru til mötuneytisins.
800 skópör á
gullnu öndinni
Bill Staples