Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 45 Atvinnuauglýsingar Bókari óskast Traust og rótgróið fyrirtæki í Hafnarfirði óskar eftir bókara í 50% starf. Vönduð vinnubrögð og heiðarleiki áskilinn. Góð laun í boði. Umsóknir sendist til augldeildar Morgunblaðs- ins eða í box@mbl.is merktar: „B — 16659“. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Atvinnuhúsnæði Skrifstofuherbergi Til leigu rúmgott og snyrtilegt skrifstofuher- bergi í Ármúla 29. Salerni og kaffistofa í mjög góðri sameign. Góður staður. Einnig 1-2 herb. á Suðurlandsbraut. Upplýsingar gefur Þór í síma 899 3760. Fundir/Mannfagnaður Aðalfundur Íþróttafélagsins Gerplu verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar 2005 kl. 20.00 á Skemmuvegi 6, Kópavogi. Dagskrá :  Venjuleg aðalfundarstörf.  Önnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Uppboð Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Austurvegur 63, fastanr. 218-5494, Selfossi, þingl. eig. Sveinn Þór Gunnarsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 18. febrú- ar 2005 kl. 9:00. Brattahlíð 2, fastanr. 221-0014 og 221-0015, Hveragerði, eig. skv. þingl. kaupsamn. Ficus ehf., gerðarbeiðendur Hveragerðisbær, Jón Ingvar Pálsson hdl., Lánasjóður landbúnaðarins og sýslumaður- inn á Selfossi, föstudaginn 18. febrúar 2005 kl. 11:00. Eyjahraun 12, fastanr. 221-2207, Þorlákshöfn eig. skv. þingl. kaup- samningi, Anna Gísladóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstu- daginn 18. febrúar 2005 kl. 14:00. Heiðarbrún 64, fastanr. 221-0319, Hveragerði, þingl. eig. Berglind Bjarnadóttir og Sigurður Blöndal, gerðarbeiðandi Hveragerðisbær, föstudaginn 18. febrúar 2005 kl. 11:30. Tjörn, fastanr. 219-9889, Stokkseyri, þingl. eig. Kata Gunnvör Magn- úsdóttir, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf., Íbúðalánasjóður og Sveitarfélagið Árborg, föstudaginn 18. febrúar 2005 kl. 10:00. Tryggvagata 14, fastanr. 218-7462, Selfossi, þingl. eig. Þórunn Sveinsdóttir og Þórir Hans Svavarsson, gerðarbeiðendur Húsasmiðj- an hf., Íbúðalánasjóður, Lín ehf., Rafmagnsveitur ríkisins og Skóla- vörubúðin ehf., föstudaginn 18. febrúar 2005 kl. 9:30. Sýslumaðurinn á Selfossi, 14. febrúar 2005, Gunnar Örn Jónsson ftr. Ýmislegt Steinsteypudagur 2005 verður haldinn föstudaginn 18. febrúar á Grand Hóteli Reykjavík Dagskráin er fjölbreytt að vanda en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.steinsteypufelag.is. Skráning er hafin á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is. Félagslíf I.O.O.F. Rb. 4  1542158-  HLÍN 6005021519 IV/V  Hamar 6005021519 I  FJÖLNIR 6005021519 I  EDDA 6005021519 III I.O.O.F. Ob. 1 Petrus  1852158  Fl. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins í Bæjarhrauni 18, Hafnarfirði, sem hér segir: M.b. Kristbjörg II, HF-75, skipaskrnr.127, Hafnarfirði, þingl. eig. Skelja- höllin ehf, gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Ísfell ehf., Radíómiðun ehf. og Vélvík ehf., fimmtudaginn 17. febrúar 2005 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Hafnarfirði, 14. febrúar 2005. Nauðungarsala mbl.is ATVINNA Nöfn féllu niður í formála Í formála minningargreina um Gyðu Guðnadóttur á blaðsíðu 23 í Morgunblaðinu í gær, mánudaginn 14. febrúar, féll niður vegna mis- taka í vinnslu lokakaflinn með nöfn- um tveggja barna hennar. Þau eru: 6) Guðni, f. 30.1. 1961; og 7) Rósa Þórey, f. 9.7. 1964. Sonur hennar er Jökull Logi Arnarson, f. 23.6. 1992. Rósa og Jökull hafa búið með Gyðu undanfarin ár. Barnabörnin eru orðin 18 og barnabarnabörnin fjög- ur. Húsmæðraskólamenntunin nýtt- ist Gyðu vel í rekstri stórs heimilis. Þau Elías og Gyða bjuggu í nokkur ár á Rauðalæk í Holtum og síðar á Hellu á Rangárvöllum. Síðustu árin bjuggu þau á Stokkseyri. Gyða var jarðsungin frá Lang- holtskirkju 14. febrúar. Hlutaðeigendur eru beðnir inni- lega afsökunar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT SÆNSKA sendiráðið á Íslandi stóð fyrir móttöku á föstudaginn fyrir Íslendinga sem aðstoðuðu við að koma Svíum frá flóðasvæð- unum á Taílandi. Sem kunnugt er þáðu sænsk stjórnvöld boð ís- lenskra stjórnvalda um að senda flugvél með íslensku heilbrigð- isstarfsfólki til Taílands til að ná í Svía sem lifað höfðu af hörmungarnar í Taílandi. Um var að ræða slasað fólk og fólk sem misst hafði ættingja í flóðunum. Í sendiráðinu var m.a. boðið upp á köku með áletruninni. „Takk fyrir hjálpina“. Bertil Jobeus, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, hefur áður komið á framfæri þökkum til íslensku þjóðarinnar fyrir þá hjálp sem Íslend- ingar veittu frændum sínum. Morgunblaðið/Golli Þökkuðu fyrir hjálpina HEIMILI og skóli – landssamtök for- eldra hafa flutt skrifstofu sína að Suður- landsbraut 24, fjórðu hæð. Símanúmer samtakanna er óbreytt: 562 7475. Skrif- stofan er opin alla virka daga kl. 9–12 og 13–16. Símaráðgjöf fyrir foreldra er veitt alla virka daga kl. 9 til 12. Sjá nánar á heimasíðu samtakanna: www.heimiliogskoli.is. Heimili og skóli í nýtt húsnæði VINNUMIÐLUN ungs fólks (VUF) opnar fyrir móttöku um- sókna um sumarstörf hjá stofn- unum Reykjavíkurborgar í dag, 15. febrúar. Þeir sem eru fæddir 1988 eða fyrr og eru með lögheim- ili í Reykjavík geta sótt um hjá VUF. Einungis er hægt að sækja um rafrænt á vefsíðunni www.vuf.is. Í húsnæði Vinnumiðlunarinnar að Pósthússtræti 3–5 eru nettengdar tölvur til afnota ef með þarf. Starfsfólk Vinnumiðlunar er einnig boðið og búið til að aðstoða þá um- sækjendur sem þess óska. Tekið er á móti umsóknum til 30. apríl. Athygli er vakin á því að umsóknartími og aldurstakmark er breytilegt eftir störfum. Vinnumiðlun ungs fólks er til húsaá fyrstu hæð Hins hússins, Pósthússtræti 3–5, netfangið er vuf@vuf.is og síminn er 520 4600. Sumarstörf á vegum Reykjavík- urborgar VEGNA fregna um hugsanlegt sam- komulag borgaryfirvalda og samgöngu- ráðuneytisins um áframhaldandi flug- starfsemi í Vatnsmýrinni hefur Hverfafélag sjálfstæðismanna í Vest- urbæ og Miðbæ samþykkt eftirfarandi ályktun: „Stjórnin Hverfafélags sjálfstæðis- manna í Vesturbæ og Miðbæ telur óásættanlegt að gert verði samkomulag á milli borgaryfirvalda og samgöngu- ráðuneytisins um áframhaldandi flug- starfsemi í Vatnsmýrinni án undan- genginnar kynningar og umræðna meðal Reykvíkinga um hvað slíkt sam- komulag felur í sér. Óviðunandi er að borgaryfirvöld ákveði upp á sitt ein- dæmi að binda hendur Reykvíkinga allra í svo stóru máli og er ljóst að slíkt samræmist ekki lýðræðislegum vinnu- brögðum. Brýnt er að afdrifaríkar ákvarðanir um framtíð Reykjavíkurflugvallar og hugmyndir um nýtingu dýrmætasta byggingarlands höfuðborgarinnar verði teknar með lýðræðislegum hætti. Slíkt verður best tryggt með því að efna til kosningar þar sem öllum atkvæðisbær- um Reykvíkingum gefst kostur á að velja á milli skýrra og raunverulegra valkosta um Reykjavíkurflugvöll og framtíðar- skipulag Vatnsmýrarinnar.“ Kosið verði um flugvöll og valkosti í Vatnsmýrinni ♦♦♦ Í Morgunblaðinu á sunnudag féll niður texti, sem átti að fylgja grein eftir Sigrid Valtingojer um Íran og lýsir þeim hörmungum sem íranska þjóðin hefur þurft að ganga í gegnum á undanförn- um aldarfjórðungi. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum og birtist textinn hér: „Á undanförnum 25 árum hafa róttækir sögulegir atburðir og breytingar átt sér stað í Íran. BYLTING, sem kollvarpaði pólitískum, félagslegum og þjóð- félagslegum aðstæðum fólksins. STRÍÐ, sem geisaði lengur en seinni heimsstyrjöldin í Evrópu og kostaði tæpa milljón karla, kvenna og barna lífið. NÁTTÚRUHAMFARIR – jarð- skjálftar hafa kostað fjölda mannslífa og valdið gríðarlegri eyðileggingu. STRAUMUR íransks menntafólks í útlegð og straumur af afgönsku flótta- fólki til Írans – fyrir vikið hýsir Íran fleira flóttafólk en flest önnur lönd í heimi. Það má segja, að hver einasta fjöl- skylda syrgi píslarvotta, sem létu lífið annaðhvort í byltingunni, í stríðinu eða sem pólitískir andófsmenn. Og öll þessi fórn var til einskis. Í dag berst fólk við margvísleg vanda- mál eins og atvinnuleysi, of lítið framboð af skólum og menntunarmöguleikum og ritskoðun klerka á öllum sviðum. Þrátt fyrir allt þetta hefur íbúafjöldi tvöfaldast á síðastliðnum 25 árum. 70% Írana eru undir 25 ára aldri. Þetta er sterkt afl og hjá þessum hópi ungs fólks liggur framtíðarvonin. Krafist er betri menntunar og meira frelsis sem ekki kosta róttæka byltingu, heldur næst fram með þolinmæði og þrautseigju fólksins í landinu á næstu árum.“ 25 ára umbrotasaga Írans Konumoskan í borginni Isfahan í Íran. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.