Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 15 ERLENT FERÐAÞJÓNUSTAN - ATVINNUGREIN FRAMTÍÐARINNAR Virði ferðaþjónustunnar - fjárfestingarkostir í framtíðinni. Samtök ferðaþjónustunnar, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, sími 511 8000 www.saf.is Dagskrá: Samtök ferðaþjónustunnar halda málþing um virði ferðaþjónustunnar og fjárfestingar fimmtudaginn 17. febrúar 2005 frá kl 9 til 12 á Hótel Nordica, ráðstefnusölum á 2. hæð. Ávarp Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra. Að slá máli á ferðaþjónustuna Hallgrímur Snorrason, hagstofustjóri. Áhættufjármagn í ferðaþjónustu - hver vill vera með? Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka Íslands. Pallborðsumræður með fyrirlesurum og fulltrúum fyrirtækja Stjórnandi: Jón Karl Ólafsson formaður SAF. Þátttakendur auk fyrirlesara: Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri Radisson SAS Hótel Sögu. Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda. Allir velkomnir Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 511 8000 eða með tölvupósti á info@saf.is ÚRSLIT kosninganna í Írak stað- festa þau vatnaskil sem nú eru að verða í landinu en ljóst er að sjía- múslímar taka við stjórnartaumun- um eftir að hafa um áratuga skeið lotið stjórn minnihlutans, súnní- múslíma. Skipan væntanlegrar rík- isstjórnar verður hins vegar allt önn- ur en bandarískir ráðamenn höfðu stefnt að, við völdunum taka sjítar sem munu að einhverju leyti vilja móta stefnu sína á grundvelli ísl- amskra gilda og sem góð tengsl hafa við stjórnvöld í nágrannaríkinu Íran. Ýmsir helstu bandamenn Banda- ríkjanna í Írak hlutu ekki brautar- gengi í kosningunum sem haldnar voru í janúar, en úrslitin voru til- kynnt nú á sunnudag. Helst ber þar að nefna framboðslista Iyads Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórn- arinnar þeirrar sem farið hefur með formleg völd í Írak frá því í júní á síðasta ári, en Allawi fékk aðeins 13,8% atkvæðanna og 40 þingsæti. Vonir stóðu til þess að Allawi fengi nógu mikið fylgi til að geta verið for- sætisráðherra áfram en ólíklegt er nú að það gerist. Þá fékk framboðslisti annars Íraka sem hafður hefur verið í há- vegum í Washington, súnnítans Adnans Pachachi, aðeins 17.000 at- kvæði í kosningunum og náði engum manni á þing. Framboðslisti bráða- birgðaforseta landsins, súnnítans Ghazi al-Yawar, fékk minna en 2% atkvæða og aðeins fimm þingsæti. Stóru sigurvegararnir í kosning- unum voru – eins og fyrirfram hafði verið spáð – kosningabandalag helstu flokka sjíta. Fékk bandalagið 48,1% atkvæða og 140 þingmenn kjörna, eða meira en meirihluta. Það dugir þó ekki til þess að bandalagið geti stjórnað landinu eitt og sér, til þess þarf tvo þriðju þingsæta og því er líklegt að bandalagið leiti eftir samstarfi við Kúrda, sem fengu næstmest fylgi í kosningunum, eða um 26%. Kúrdar eru súnní-múslímar, ekki sjítar, og öllu veraldarlegri í þanka- gangi sínum heldur en ráðandi öfl á sjíta-listanum svonefnda, sem naut blessunar Ali al-Sistanis erkiklerks, helsta trúarleiðtoga sjíta í Írak. En þegar haft er í huga að bæði sjíta- listinn og Jalal Talabani, annar for- ystumanna Kúrda, hafa átt ágætt samstarf við ráðamenn í Teheran þykir ýmsum fréttaskýrendum sýnt að úrslitin hljóti að teljast nokkuð ankannaleg fyrir Bandaríkjastjórn, sem án efa hefði viljað sjá við völd í Írak veraldlega stjórn, vinveitta Bandaríkjunum, sem virkað hefði getað sem mótvægi við klerkastjórn- ina í Íran í þessum heimshluta. 2% kjörsókn í Anbar-héraði Hverju sem þessu líður þá fagnaði George W. Bush Bandaríkjaforseti úrslitunum í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér og hrósaði Írökum fyrir að stíga skref í lýðræðisátt. Fram hefur komið að kjörsókn var tæplega 60% sem þykir mjög gott miðað við þær aðstæður sem ríkt hafa í Írak. Margir hafa hins vegar lýst áhyggjum sínum vegna þeirrar staðreyndar að súnnítar sátu mest- anpartinn heima á kjördag; eftir því var tekið að aðeins 2% atkvæða- bærra manna í Anbar-héraði – en þar eru borgirnar Ramadi og Fall- ujah m.a., þar sem skæruliðar hafa farið mikinn undanfarna mánuði – mættu á kjörstað. Íraska dagblaðið Al-Mashriq lýsti m.a. þeim ótta sínum að klofningur írösku þjóðarinnar magnaðist við úr- slit kosninganna. Adel Abdel Mahdi, fjármálaráðherra í bráðabirgða- stjórn Allawis og forystumaður hjá sjíta-listanum sigursæla, lagði hins vegar áherslu á það að vinna þyrfti súnníta til liðs við það verkefni – sem nú bíður íraska þjóðþingsins – að skrifa nýja stjórnarskrá fyrir Írak. „Írak blæðir og á þessum tíma- punkti þörfnumst við þess að allir vinni að samstöðu og sáttum,“ sagði Mahdi sem talinn er líklegur til að verða forsætisráðherra í nýrri stjórn. Ekki staða sem Bandaríkjastjórn hefði kosið Bagdad. AFP, AP, The Washington Post. MIKIL spenna var í Kosovo í gær í tengslum við heimsókn Borís Tadic, forseta Serbíu, sem er fyrsta heimsókn æðsta embættis- manns í Serbíu til héraðsins frá lokum stríðsins 1999. Köstuðu alb- anskir íbúar héraðsins grjóti, eggj- um og snjóboltum að bílalest for- setans er hún fór um héraðið í gær og fyrradag. Nokkur albönsku blaðanna birtu myndir af Tadic í gær þar sem hann sást halda á serbneska fán- anum á fyrra degi heimsóknar sinnar til Kosovo, en hún hófst á sunnudag. Vöktu þau ummæli hans jafnframt reiði Kosovo-Alb- ana að stjórnvöld í Serbíu myndu aldrei una því að Kosovo fengi sjálfstæði. Serbar vilji að Kosovo verði áfram hérað í Serbíu en Alb- anar, sem eru um 90% íbúa í Kos- ovo, vilja sjálfstæði. Á myndinni sést Tadic ásamt blaðamönnum og íbúum í bænum Orahovac í gær en hann sagði m.a. að aðstæður serbneska minnihlut- ans þar væru „þær verstu sem nokkurt þjóðarbrot í Evrópu þyrfti að upplifa“. Aðeins um 500 Serbar búa í Orahovac en þeir voru um 4.000 fyrir aðeins ári; nítján dóu í óeirðum í mars í fyrra er tengdust þjóðernisdeilum Albana og Serba og flýðu margir Serbar Kosovo eftir það. Umdeild heimsókn Tadic, forseta Serbíu, í Kosovo AP Tadic, forseti Serbíu, á fundi með íbúum bæjarins Orahovac í Kosovo. DAGUR elskenda í kaþólskum sið, Valent- ínusardagur, var hald- inn hátíðlegur í gær og þá urðu margir og margar til að gleðja ástina sína. Á bílasýn- ingunni í Chicago var efnt til samkeppni og átta mönnum sagt að kyssa þennan Dodge Dakota 2005 og skyldi sá hreppa hann, sem héldi það lengst út. Í gær var það eitt vitað, að sá, sem er fremst til hægri á myndinni, gafst upp eftir 35 mín- útur. Hinir stóðu sig betur og eru kannski enn að enda til nokkurs að vinna. Reuters Kossinn langi RÚMLEGA 50 manns voru fluttir á sjúkrahús í gær eftir að tvær farþegalestar rákust á í Lyngby, einu úthverfi Kaup- mannahafnar. Voru tveir taldir nokkuð slasaðir, þar af annar lestarstjórinn, en ekki þó alvar- lega. Áreksturinn varð klukkan tólf á hádegi að staðartíma þeg- ar lest á leið til Kaupmanna- hafnar ók á aðra, sem var kyrr- stæð í Lyngby. Falck-björgunarsveitirnar sendu strax á vettvang allt það lið, sem tiltækt var þá stundina, en síðustu dagar hafa verið ein- hverjir þeir annasömustu í sögu þeirra. Er ástæðan óvenjulegt fannfergi eftir því sem Danir eiga að venjast. Komu 29 sjúkrabílar á slysstað- inn og fluttu þeir 51 mann á sjúkrahús. Ekki var vitað í gær hvað hafði farið úrskeiðis en þá var ekki búið að yfirheyra lestar- stjórana. Áreksturinn olli veru- legum truflunum á lestarsam- göngum í og við Kaup- mannahöfn í gær og ekki óalgengt, að fólk yrði að hafast við í kyrrstæðum lestum í allt að tvær klukkustundir. Lestarslys í Dan- mörku Kaupmannahöfn. AP, AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.