Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ástkær móðir okkar, HALLDÓRA HELGADÓTTIR, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju miðviku- dagin 16. febrúar kl. 13.00. Friðrik Friðriksson, Þorvaldur Friðriksson. Móðir mín, tengdamóðir og amma, HELGA HALLDÓRSDÓTTIR, Norðurgötu 52, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 15. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Valdimar Pétursson, Alice Zackrisson, Jónas Valdimarsson, Lísa Valdimarsdóttir, Símon Hjálmar Valdimarsson, Hilma Elísabet Valdimarsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SAMÚEL J. VALBERG húsgagnabólstrarameistari, áður til heimilis á Kambsvegi 34, lést á Landspítala Fossvogi laugardaginn 12. febrúar. Guðný Kristmundsdóttir Valberg, Aðalbjörg K. Valberg, Matthías Sveinsson, Lárus Valberg, Guðný Rut Jónsdóttir, Kristmundur Valberg, Ingibjörg Valberg, Erlingur Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MARGRÉT GÍSLADÓTTIR BLÖNDAL frá Seyðisfirði, Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 11. febrúar. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 21. febrúar kl. 13.00. Pétur Blöndal, Theodór Blöndal, Björg S. Blöndal, Gísli Blöndal, Erla Harðardóttir, Ásdís Blöndal, Anton Antonsson, Margrét Blöndal, Ólafur Einarsson, Emelía Blöndal, Þórður G. Hjörleifsson, barnabörn og barnabarnabörn. Fósturmóðir mín, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR TRAMPE frá Litla Dal, lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri laugar- daginn 12. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Franz Árnason, Katrín Friðriksdóttir, Sigríður Rut Franzdóttir, Leifur Reynisson, Davíð Brynjar Franzson, Alexandra C. Suppes. Elskulegur faðir okkar, afi og bróðir, JÓN GUÐJÓNSSON frá Vestri-Dysjum, Garðabæ, sem lést mánudaginn 7. febrúar, verður jarð- sunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 16. febrúar kl. 15.00. Elísabet Eygló Jónsdóttir, Jóna Gréta Jónsdóttir, Dagbjört Erla Kjartansdóttir og systkini hins látna. Elskulegur faðir minn, fósturfaðir og tengda- faðir, AÐALSTEINN SIGURÐSSON bifvélavirki, Njálsgötu 47, andaðist á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 8. febrúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðlaugur Aðalsteinsson, Björk Sigurðardóttir, Guðmundur Guðlaugsson, Róbert Guðlaugsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR KRISTINSDÓTTIR, Brautarholti, Kjalarnesi, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 17. febrúar kl. 13:00. Jarðsett verður í Brautarholtskirkjugarði á Kjalarnesi að lokinni stuttri minningarathöfn í Brautarholtskirkju. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á minningarsjóð Hjúkrunarþjón- ustunnar Karítas eða Krabbameinsfélag Íslands. Ólafur Jónsson, Kristinn Gylfi Jónsson, Helga Guðrún Johnson, Björn Jónsson, Herdís Þórðardóttir, Jón Bjarni Jónsson, Emilía Björg Jónsdóttir, Þorbjörn Valur Jóhannsson og barnabörn. ✝ Jóhannes Kr.Guðmundsson fæddist á Raufar- höfn hinn 13. októ- ber 1934. Hann lést á Landspítalanum í Landakoti hinn 3. febrúar síðastliðinn. Móðir hans var Sig- ríður Magnúsdóttir og faðir hans var Guðmundur Halldór Jóhannesson. Alsyst- ir hans var Hólm- fríður Þuríður, en hún dó árið 2000. Hálfsystkini hans eru Árni Hrafn Árnason, Ingi- gerður R. Árnadóttir og Magnea R. Árnadóttir. Eftirlifandi eiginkona Jóhann- esar er Guðlaug Guðlaugsdóttir fædd að Heiði í Holtum í Rang- árvallasýslu. Þau giftust hinn 31. desember árið 1959 og eignuðust fjögur börn sem eru: 1) Guð- mundur Hallur, f. 1957, maki hans er Vilhelmína Nielsen og eiga þau þrjú börn og tvö barna- börn. 2) Ragna Hrönn, f. 1960, maki hennar er Kristinn Gúst- afsson og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn. 3) Helma Björk, f. 1964 og á hún eitt barn. 4) Kristín Heiða, f. 1972, sambýlismað- ur hennar er Steinn Viðar Ingason og eiga þau tvö börn. Fyrir átti Jóhannes eina dóttur, Val- gerði Önnu, f. 1954, og á hún fjögur börn og fjögur barnabörn. Sam- býlismaður hennar er Þórir Erlendsson. Jóhannes ólst upp á Raufarhöfn hjá ömmu sinni Hólm- fríði Þuríði Guð- mundsdóttur og afa sínum Magn- úsi Stefánssyni frá Skinnalóni á Melrakkasléttu. Þegar hann var 17 ára gamall flutti hann til Reykjavíkur. Hann vann ýmis störf, meðal annars við verslun, útgáfu og sem framkvæmdastjóri Alþýðu- blaðsins. Hann var virkur félagi í Al- þýðuflokki Reykjavíkur. Jóhannes og eiginkona hans Guðlaug stofnuðu Samtök lungnasjúklinga árið 1997. Útför Jóhannesar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Það er með trega í hjarta að ég sest hér niður á fögrum vetrar- morgni og hripa línur á blað – nokk- ur minningarorð um kæran baráttu- félaga. Ekki verður hjá því komist að tár fylli hvarma en þau eru ekki eingöngu sorgartár heldur líka gleðitár. Það er gott þegar minning- arnar draga líka fram margar gleði- stundir. Leiðir okkar Jóhannesar lágu fyrst saman í lok maí 1995, á lungna- deild Reykjalundar. Sátum við oft og spjölluðum og miðlaði hann mér af sinni miklu reynslu. Ekki spillti svo fyrir þegar í ljós kom að við Guð- laug Guðlaugsdóttir, eftirlifandi eig- inkona Jóhannesar, erum bræðra- dætur. Og enn bætti í þegar Jóhannes komst að því, að hann og sambýlismaður minn, Vatnar Við- arsson, eru náskyldir. Töluðum við um þau hjónin á okkar heimili sem stórfrændann og stórfrænkuna. Það sem kom mér mest á óvart á lungna- deild Reykjalundar, hvað þetta mik- ið veika fólk var alltaf skapgott og stutt í brosið hjá öllum. Ekki skorti uppá glettni og gott skap hjá Jó- hannesi. Það var alveg sama á hverju gekk með sjúkdóm hans þá sá hann alltaf eitthvað spaugilegt og jákvætt og sagði svo skemmtilega frá öllu sem á daga hans dreif. Þessa samverudaga okkar á Reykjalundi var mikið brallað og grínast og má segja að lagður hafi verið grunnur að ýmsum góðum málum þar. Vil ég fyrst nefna að við stofnuðum Mæðu- kór lungnadeildar Reykjalundar. Þetta var ekki venjulegur mæðukór – heldur kór þeirra, sem áttu við mæði að stríða. Það var ekkert smá- vegis sem var sungið. Við fórum nið- ur í setustofu, þar sem var flygill og sungum og sungum. Margir söfnuð- ust svo í kringum okkur á þessum söngstundum og undirleikari okkar var eldri dama með parkinsonsjúk- dóm á háu stigi, en það kom nú al- deilis ekki að sök. En á þessum dög- um var einnig mikið rætt um málefni lungnasjúklinga og varð það úr að við Jóhannes hófum undirbúning að stofnun Samtaka lungnasjúklinga. Margir góðir menn og konur komu þar við sögu og langar mig að nefna fyrsta Guðlaugu, sem studdi okkur og styrkti alla stund, Hauk Þórð- arson, fyrrverandi yfirlækni á Reykjalundi og Björn Magnússon, lungnasérfræðing, sem þá var starf- andi á lungnadeildinni á Reykja- lundi. Undirbúningurinn tók tæp tvö ár og 20. maí, 1997 var stofnfund- urinn haldinn á Reykjalundi. Jó- hannes var þá á lungnadeild Reykja- lundar og var ákaflega mikið veikur. Hann lét þó veikindi sín ekki aftra sér frá því að taka þátt í stofnfund- inum, eins og fyrirfram hafði verið ákveðið. Með hjálp hjúkrunarfólks og lækna deildarinnar tókst honum að komast niður í safnaðarsalinn og stíga í ræðustól og flytja ávarp. Hann var þá kjörinn formaður Sam- taka lungnasjúklinga og gegndi því embætti til ársins 2001. Það var ákaflega gott að vinna með Jóhannesi og smitaði hann frá sér þeim eldhuga, sem í honum bjó. Hann var mikill baráttumaður, hafði ákveðnar skoðanir á málunum og lá ekkert á þeim. Þetta eru ákaflega góðir kostir og hann var þeim ríku- lega gæddur. Á samstarf okkar Jó- hannesar bar aldrei skugga og voru það mikil gæfuspor fyrir mig að hitta hann fyrir á Reykjalundi og samsjúklinga mína þar, því þau gæddu mig nýrri lífssýn. Eftir að Samtök lungnasjúklina voru tekin inn í SÍBS í október 1998, vann Jóhannes ötullega að öllu starfi þar og gegndi hinum ýmsu trúnað- arstörfum. Hann sat í kynningar- og markaðsnefnd SÍBS, svo og í rit- nefnd SÍBS-blaðsins. Hann gekk heilshugar að öllum verkum og lagði svo sannarlega fram mikið og óeig- ingjarnt starf í þágu Samtaka lungnasjúklinga og SÍBS. Nú er skarð fyrir skildi. Langar mig að láta hér að lokum fylgja eitt af mínum uppáhaldsljóð- um, Ef til vill: Ef til vill færðu aftur að hvílast í grasi örskammt frá blessuðum læknum, rétt eins og forðum, og hlusta á vingjarnlegt raul hans renna saman við reyrmýrarþyt og skrjáf í snarrótar- punti, finna á vöngum þér ylgeisla sumarsólar og silkimjúka andvarakveðju í hári, er angan af jurtum og járnkeldum þyngist og jaðraki vinur þinn hættir að skrafa við stelkinn Ef til vill færðu aftur að hvílast í grasi með amboðin hjá þér sem forðum, og titrandi hjarta mæla í hljóði fram þakkir til lækjar og ljóss, til lífsins á þessu hnattkorni voru í geimnum, til gátunnar miklu, til höfundar alls sem er. (Ólafur Jóh. Sigurðsson.) Við Vatnar sendum Guðlaugu og JÓHANNES KR. GUÐMUNDSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.