Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 57 Níu manna hljómsveit sem spilarbhangra-tónlist leikur á Nasaföstudaginn 18. febrúar og erutónleikarnir hluti af dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík. Shin er söngvari þessarar líflegu sveitar og fellst góðfúslega á að útskýra fyrir lesendum Morgunblaðs- ins uppruna bhangra. „Bhangra-tónlist er form tónlistar og dans sem kemur frá Punjab-héraði á Ind- landi. Þetta er þjóðlagadans og tónlist sem fólk flytur og syngur í kringum uppskeru- tíma á Indlandi. Tónlistin byggist á stórri viðartrommu sem er eins og tunna með geitaskinni á báðum endum. Það er spilað með tveimur kjuðum á hana en þessi tromma heitir dhol. Takturinn sem er spil- aður á dhol er takturinn sem fólk dansar við í bhangra-tónlist,“ útskýrir Shin. „Við erum tónleikasveit og einbeitum okkur því að tónlistinni fremur en dans- inum. Ég hoppa um á sviðinu og hreyfi mig en nota ekki mikið af hefðbundnum Punj- abi-danshreyfingum. Það eru til danshópar hér á Bretlandi sem dansa þetta í fullum glimmerskrúða en DCS einbeitir sér að tónlistinni,“ segir hann og tekur til við að útskýra önnur hljóðfæri sem koma við sögu. Tabla og plötuspilari „Við erum með dhol í sveitinni og dholak, sem er minni útgáfa trommunnar, en það er spilað á hana með höndunum. Svo notum við tabla. Einnig spilum við á ýmis vestræn hjóðfæri eins og trommur, gítar, bassa og hljómborð. Það er líka plötusnúður sem skífuskankar og spilar með hjómsveitinni á tónleikum,“ segir Shin og útskýrir hvernig bresku áhrifin koma inn í þessa tónlist sem að uppruna er indversk. „Við erum Punjab-fólk sem fæddist hér í Bretlandi, við erum allir þriðja eða fjórða kynslóð. Við erum menntaðir í breska menntakerfinu og erum breskir ríkisborg- arar. Við höfum orðið fyrir áhrifum frá öllu því breska sem er í kringum okkur. Við tökum það besta úr breskri menningu og tónlist og það besta úr punjabskri menningu og tónlist og blöndum þessu tvennu saman. Við höfum myndað okkar eigin bhangra-hljóm, sem kallast breskt-asískt bhangra,“ segir hann en meðlimir DCS hafa óhræddir drukkið í sig hinar ýmsu tónlistarstefnur. „DCS er ein af fyrstu hljómsveitunum sem fóru að nota vestræn áhrif í bhangra-tónlist. Við notuðum við reggí og danstónlist strax snemma á tíunda áratugnum,“ segir Shin en hljómsveitin hefur starfað í tuttugu ár. Eldra fólk frá Punjab var ekki ánægt með þetta. „Það óttaðist áhrif frá tónlist sem það þekkti ekki neitt. Það hélt að við værum að reyna að spilla tónlistinni og spilla unga fólk- inu. En við vorum ekki að spilla tónlistinni, við vorum að koma með nýja áhrifavalda inn og skilgreina tónlistina upp á nýtt. Þetta var eitthvað sem við gátum samsamað okkur við. Ég hlusta á mikið af nýjustu tónlistinni sem er í gangi hverju sinni og líka bhangra-tónlist og blanda þessu tvennu saman, annað er ekki hægt,“ útskýrir Shin og þetta heyrist vel á nýjustu diskum sveitarinnar, Punjabi Dance Nation og Old Skool /Nu Skool DCS Flava. Bhangra-tónlist vinsæl Hann samsinnir því að með þessu hafi bhangra náð til fleira fólks og hafa vinsældir þessarar tónlistar aukist á síðustu árum. Sem dæmi má nefna lagið „Mundian to Bach Ke“ með Panjabi MC, sem var m.a.s. mikið spilað í íslensku útvarpi. „Það er mikill áhugi á bhangra-tónlist út um allt núna.“ Shin segir að hljómsveitin ferðist þrisvar til fjórum sinnum á ári til meginlands Evrópu, til landa á borð við Þýskaland, Sviss og Holland. „Þessi ferðalög eru frábær. Fólk virðist elska bhangra-tónlist,“ segir Shin en DCS er spennt fyrir Íslandsförinni og því að kynna Íslend- ingum bhangra-tónlist. Landinn á von á góðu því DCS hefur marg- oft fengið verðlaun sem besta bhangra-sveitin á tónleikum. „Við erum með hráa orku á sviði og virkjum áhorfendurna. Ég vona að við eig- um eftir að koma fólki skemmtilega á óvart.“ Vetrarhátíð | Bhangra-hljómsveit frá Bretlandi spilar á Nasa um næstu helgi Höfum myndað okkar eigin hljóm Söngvarinn Shin leiðir níu manna hljómsveitina DCS en lífleg sviðs- framkoma og tónlistarflutningur er aðalsmerki hennar. Ónefndur indverskur maður að spila á dhol í Punjab-héraði. DCS spilar á Nasa föstudagskvöldið 18. febrúar kl. 22. Húsið verður opnað kl. 20 og leikur Súkkat kl. 20.30. Eftir að tónleikum DCS lýkur spilar gleðisveitin Bermúda. Aðgangur er ókeypis. www.dcs-band.com ingarun@mbl.is Íslendingar fá um næstu helgi tækifæri til þess að kynnast hinni fjörugu tónlistarstefnu bhangra, sem ættuð er frá Indlandi. Hljómsveitin DCS spilar bhangra-tónlist með breskum menningaráhrifum en Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við Shin, söngvara sveitarinnar. AKUREYRI kl. 6. Ísl tal.  H.L. Mbl. ÁLFABAKKI kl. 3.45 og 6.20. Ísl tal ÁLFABAKKI 3.45 og 6. m. í.t./3.45. m. e. t. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15. KRINGLAN Sýnd kl. 5.45. KRINGLAN Sýnd kl. 5.45. m. ísl tali. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Kvikmyndir.is DV FRÁ HÖFUNDUM SOUTH PARK KRINGLAN Kl. 6. Ísl tal / kl. 6 og 8. E. tal. Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið rækilega í gegn í USA og víðar. Varúð: Ykkur á eftir að bregða. B.i 16 ára AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.. ÁLFABAKKI kl. 6, 8.15 og 10.30. Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri! KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.10. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. Mbl. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun 05.02. 2005 2 7 5 4 9 7 2 1 0 1 5 9 11 15 35 10 02.02. 2005 6 13 16 25 35 47 9 48 25 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. Úrslitin úr enska boltanum beint í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.