Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS ÍSLANDSBANKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í L F 20 F L F I I  Óskarsverðlauna Sýnd kl. 10.20. Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i.16 ára. LEONARDO DiCAPRIO Frá fram leiða nda Tra ining day Þeir þurfa að standa saman til að halda lífi! Frábær spennutryllir!kl. 5.30 og 10.30.    Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 6. H.L. Mbl. Kvikmyndir.is Ein vinsælasta grínmynd allra tíma þrjár vikur á toppnum í USA!  Baldur Popptíví  Ó.H.T Rás 2 Yfir 30.000 mannsfir .   Ó.Ö.H. DV  S.V. Mbl. Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára. 3000 km að heiman. 10 eftirlifendur Mögnuð spennumynd um baráttu upp á líf og dauða Sýnd kl. 5.45 og 8. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14 ára CLOSER Frumsýnd 17. feb. CLOSER Frumsýnd 17. feb. CLOSER Frumsýnd 17. feb. 3000km. að heiman. 10 eftirlifendur. Aðeins eitt tækifæri! Mögnuð spennumynd um baráttu upp á líf og dauða VALDÍS Óskarsdóttir kvikmyndaklippari segir það hafa verið hálfgert áfall er hún hlaut hin virtu BAFTA- verðlaun Bresku kvikmyndaakademíunnar fyrir klipp- ingu myndarinnar Eternal Sunshine of the Spotless Mind á laugardagskvöldið. „Mér brá því ég var alls ekki búin að búa mig undir þetta, en svo þegar ég var komin í sætið mitt aftur eftir hringferðina þá var þetta mjög ánægjulegt,“ sagði Val- dís í samtali við Morgunblaðið í gær, en hún kom til Ís- lands með BAFTA-styttuna glæsilegu í farteskinu síðla sunnudags. Enginn gæðastimpill Valdís hefur áður unnið til fjölda viðurkenninga fyrir störf sín en hún segist ekki hafa talið að það væri inni í myndinni að hún hlyti þessi verðlaun þar sem hún hafi verið að keppa við fremstu klippara í heimi og hún hafi auk þess haldið að Bretar myndu verðlauna breska mynd. Valdís segist ekki vita hvaða áhrif verðlaunin muni hafa á feril hennar enda líti hún ekki á þau sem neinn gæðastimpil. „Í rauninni fer þetta allt eftir þeirri mynd sem þú ert að klippa,“ segir hún. „Ég var ofboðslega heppin í Etern- al Sunshine of the Spotless Mind, því ég hafði allt það sem ég þurfti til að ná þessu út úr myndinni. Svo getur verið að næsta mynd sem ég fæ verði þannig að ég nái engu út úr henni. Maður getur ekki gert meira og betur en það efni sem maður hefur í höndunum býður upp á.“ Komin með gott handrit Valdís segist nú standa í samningaviðræðum um næsta verkefni en að það geti enn brugðið til beggja vona með það. „Ég nenni ekki að taka að mér að klippa bíómynd nema ég fái gott handrit og það verður að segjast eins og er að ég fékk bara tvö góð handrit síðastliðið ár. Síð- an fékk ég ekki aðra myndina og var of sein með hina. Nú er ég komin með gott handrit í hendurnar og ég er að vona að það gangi upp.“ Spurð að því hvort verðlaunin muni ekki styrkja stöðu hennar í þeim samningaviðræðum segist Valdís ekki hafa hugmynd um það. Hún sé því miður búin að semja um launin en það eigi enn eftir að semja um svo til allt annað. „Annars veit ég ekkert hvaða áhrif þessi verðlaun hafa,“ segir hún. „Þú ættir frekar að spyrja þann sem hlaut þau á síðasta ári hvaða áhrif þau hafi haft á hann.“ Kvikmyndir | BAFTA-verðlaunin komu Valdísi á óvart Taldi að Bretar myndu verðlauna breska mynd Valdís var augljóslega hrærð og óviðbúin er hún tók við BAFTA-verðlaunum sínum á laugardaginn. Eina teiknimyndin sem komst á lista yfir tíu mestu táramyndirnar er Disney-myndin ljúfsára um dá- LOKAATRIÐIÐ í fjölskyldumynd Stevens Spielbergs um geimveruna E.T. kallar fram fleiri tár en nokk- uð annað í gervallri sögu kvik- myndanna. Þetta eru niðurstöður könnunnar um mestu vasaklúta- myndirnar sem breska sjónvarps- stöðin Channel 4 gerði meðal áhorf- enda sinna. Þeir 70 þúsund sem tóku þátt táruðust mest yfir því þegar E.T. sneri aftur til heim- kynna sinna í geimnum og kvaddi vin sinn Elliott. Í öðru og þriðja sæti höfnuðu at- riði úr Tom Hanks-myndinni The Green Mile og vinsælustu mynd sögunnar, Titanic. Í fjórða sæti lenti lokaatriðið úr jólaeftirlætinu It’s a Wonderful Life, mynd Frank Capras frá 1942. dýrið Bamba, einnig frá 1942, en hún lenti í 6. sæti. Hinar vasaklútamyndirnar á topp tíu eru fangelsisdramað The Shawshank Redemption, hnefa- leikamyndin The Champ með John Voight og Rick Schroder, hafna- boltamyndin Field of Dreams með Kevin Costner og My Girl með Macaulay Culkin kornungum. Í flokki sjónvarpsefnis hafnaði lokaatriðið hjartnæma í fjórðu og síðustu þáttaröð gamanþáttanna Blackadder í efsta sæti og í flokki íþróttaefnis kemur ekki á óvart að Bretar segist hafa tárast mest yfir því þegar Gareth Southgate mis- notaði vítaspyrnu í undanúrslita- leiknum gegn erkifjendunum Þjóð- verjum á Evrópumótinu árið 1996. Flest tár féllu yfir kveðjustund E.T. E.T. símar heim. Tárin streymdu hjá bíógestum um heim allan þegar geimveran góðhjartaða kvaddi. Kvikmyndir | Mestu vasaklútamyndir sögunnar GRÍNISTINN Chris Rock, sem verður kynn- ir á Óskarsverðlaunahá- tíðinni 27. febrúar, hef- ur heldur betur valdið uppnámi innan Ósk- arsakademíunnar með ummælum sínum. Sum- ir hafa gengið svo langt að krefjast þess að fundinn verði annar kynnir. Rock sagði ný- lega að athöfnin væri bara tískusýning og að- eins fyrir homma. „Ég hef aldrei horft á Ósk- arinn. Ég meina, þetta er tískusýning,“ sagði hann. „Hvaða gagnkyn- hneigði svarti karl- maður sest niður til að horfa á Óskarsverðlaunin? Bentu mér á einn slíkan!“ bætti hann við, „verðlaun fyrir listir eru andsk. heimskuleg.“ Meðlimir akademíunnar hafa, að því er segir á drudgereport.com, krafist þess að Rock verði sviptur kynnisstarfinu, af ótta við að hann saurgi orðstír Óskarsverðlaunanna. „Þetta er í einu orði sagt hneyksli,“ hefur Drudge eftir einum stórlax- inum í Hollywood. „Þessi náungi er að segja að verðlaun séu fyrir heimskingja og svo er hann kynnir á sýn- ingu fyrir Óskars- verðlaunaakademíuna? Ætli brandarinn sé ekki á okkar kostnað,“ segir þessi ónafngreindi stórlax í viðtali við drudgereport.com. Hverjum er ekki drullusama? Önnur óbirt ummæli Rocks hafa einnig valdið titringi. Í einu tilfelli setti hann á svið samtal milli blaðamanns og George W. Bush á fréttamannafundi Hvíta hússins: „Herra forseti, hvað finnst þér um hjónabönd samkynhneigðra? – And- skotinn hafi þessa homma.“ Þá var Rock spurður hverju hann myndi klæðast við athöfnina. „Ég hef ekkert á móti fólki sem er ekki gagnkynhneigt, en þekkirðu í alvör- unni gagnkynhneigðan karlmann sem pælir eitthvað í því? Hverjum er ekki drullusama?“ spurði grínistinn. Chris Rock gerir allt vitlaust með ummælum sínum um Óskarinn „Þetta er tískusýn- ing fyrir homma“ Sumum þykir Chris Rock helst til djarfur í ummælum sínum. Reuters LAG hljómsveitarinnar Bang Gang, „Follow“, var spilað í þættinum The O.C. í 12. þætti nýjustu þáttaraðarinnar, sem sýndur var á fimmtudaginn. Lagið var notað í atriði þar sem persónurnar Summer og Zach ræddu samband sitt á hótelherbergi á Valentínus- ardaginn. Þátturinn verður sýndur hér á landi um jóla- leytið. „Ég ákvað að gera þetta fyrir þá, til að hjálpa þætt- inum. Koma honum á kort- ið,“ segir Barði Jóhannsson, aðalmaðurinn í Bang Gang, „þetta ætti að verða ágæt- islyftistöng fyrir þennan þátt,“ bætir hann við. „Þetta er þáttur í því átaki að koma góðri músík í undirmeðvit- und hins almenna hnakka.“ Tónlistin í The O.C. hefur vakið mikla athygli og reglulega hafa ver- ið gefnar út geislaplötur með lögum úr þáttunum. Aðrir listamenn sem eiga lög í þessari þáttaröð eru m.a. The Album Leaf, Interpol, Gwen Stefani, The Thrills, Modest Mouse, U2 og Keane. Íslenska hljómsveitin Leaves átti lag í The O.C. fyrir nokkrum misserum. Tónlist | Bang Gang í The O.C. Barði ætlar að reyna að stuðla að bættum tónlistarsmekki áhorfenda The O.C. „Ágætislyftistöng fyrir þennan þátt“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.