Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 13
REKSTUR Flugfélags Íslands gekk mjög vel í fyrra en niðurstöðutölur munu ekki verða kynnt- ar fyrr en samstæðuuppgjör Icelandair verður lagt fram. Verður þetta því væntanlega þriðja ár- ið í röð sem félagið er rekið með viðunandi hagn- aði en innanlandsflug og taprekstur hafa löngum haldist í hendur hér á landi. Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flug- félags Íslands, staðfestir að afkoman hafi verið vel viðunandi í fyrra og að félagið hafi verið rekið réttum megin við núllið. Hann segir félagið hafa flutt um 320 þúsund farþega í fyrra en það sé 14% aukning á milli ára sem verði að teljast afar góður vöxtur. „Það sem kom okkur kannski gleðilega á óvart var að aukningin er ekki bara á Egilsstaði eins og við héldum í fyrstu heldur er vöxtur á alla helstu áfangastaði hjá okkur. Hann er á bilinu 8–25% eftir því hvaða staðir eiga í hlut. Þannig að þetta er jákvætt.“ Jón Karl segir rekstur innanlandsflugs á Ís- landi hafa verið erfiðan, raunar eins lengi og elstu menn muna en undanfarin þrjú ár hafi tek- ist að reka félagið með viðunandi hagnaði; þannig hafi hagnaður Flugfélags Íslands árið 2003 num- ið um 240 milljónum króna eftir skatta. Gerbylting með sölu á Netinu Spurður um ástæður fyrir betri afkomu segir Jón Karl eftirspurn hafa aukist en eins hafi menn gert miklar breytingar á rekstrinum sjálf- um. Ferðavenjur innanlands hafi verið að breyt- ast mjög hratt og fólk fari oftar og veigri sér síð- ur við að fara á milli staða. Þá hafi menn algerlega skorið upp fargjaldareglur og dreifingu á afurðunum félagsins. Félagið hafi verið hefð- bundið flugfélag með farmiðasölu. „En við fórum yfir í það að vera með þessa netsölu, sem hefur gjörbylt hjá okkur rekstrinum og sparað veru- lega fjármuni. Við seljum líka núna einnar leiðar fargjöld og erum ekki lengur með neinar helg- arreglur eða annað slíkt. Það hefur gjörbreytt ímynd á því hvað það kostar að fljúga,“ segir Jón Karl. Hagnaður þriðja árið í röð Morgunblaðið/Jim Smart Farþegum Flugfélags Íslands fjölgaði um 14% milli áranna 2003 og 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● STOFNANDI easyJet, hinn at- hafnasami Stelios Haji-Ioannou, hef- ur í hyggju að hefja sölu á bifreiða- tryggingum með aðstoð Netsins. Stelios hefur gert samning við svissneska tryggingafélagið Zürich og ætlar ótrauður í samkeppni við Tesco Personal Finance og Direct Line, sem eru helstu lággjalda- tryggingafélög Bretlands, en talið er að tryggingamarkaðurinn þar í landi velti 9 milljörðum punda, sem samsvarar ríflega 1 billjón króna, ár- lega. „Viðskiptavinir okkar þurfa aðeins að taka upp símann ef þeir vilja gera kröfu á hendur okkar,“ er haft eftir Stelios í Times. Tryggingarnar verða seldar undir vörumerkinu easyMoney sem Stelios á og er í dag greiðslukorta- fyrirtæki. Tryggingar á Netinu ● STUART Ross verður framkvæmda- stjóri Iceland-verslanakeðjunnar sem nú er í eigu Baugs, Pálma Haralds- sonar og fleiri fjárfesta. Þetta kemur fram í frétt Telegraph. Ross hefur verið innkaupastjóri Tesco, eins helsta keppinautar Ice- land og stærsta matvörusmásala Bretlands, en hætti óvænt störfum í síðasta mánuði. Í fréttinni segir að ráðning hans sé mikil uppörvun fyrir Malcolm Walker, en samkvæmt Tele- graph verður Iceland stýrt af fjögurra manna framkvæmdastjórn. Auk Walker og Ross munu þeir Andrew Pritchard, fyrrum fjármálastjóri Big Food Group, og Tarsem Dhaliwal eiga sæti í framkvæmdastjórninni. Nýr framkvæmda- stjóri hjá Iceland ● MEST hlutfallsleg aukning varð í flugi til Íslands frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn á árinu 2004. Aukningin var 23,8% milli áranna 2003 og 2004, en 76.790 fleiri farþegar flugu þessa leið í fyrra en árið áður. Frá þessu er greint á norska vefmiðlinum boarding.no. Þar kemur einnig fram að 64.600 fleiri farþegar flugu milli Kastrup og Óslóar á árinu 2004 en árið áður, sem er 3,1% aukning. Aukningin var 2,8% milli Kastrup og Stokkhólms, eða 50.525 fleiri farþegar, og 2,2%, eða 14.485 fleiri farþegar, milli Kastrup og Finnlands. Mest aukning frá Kastrup til Íslands ● VILJA skortir til þess að lækka og afnema tolla, að sögn Peters Mand- elson, framkvæmdastjóra milliríkja- viðskipta hjá Evrópusambandinu. Í viðtali við Times segir hann að nauðsynlegt sé að hrista upp í Doha- lotu viðræðna Heimsviðskipta- stofnunarinnar um milliríkja- viðskipti. Að mati Mandelson er það skortur á forystu, samræmingu og sam- stöðu sem tefur viðræðurnar en þær hafa strandað á minnkun viðskipta- hindrana í þjónustugeiranum. Heimsviðskiptastofnunin hefur fyr- irskipað viðræðuaðilum að finna sáttaleið í síðasta lagi í maí og segir Mandelson að Evrópusambandið muni hlíta því og setja fram nýtt til- boð. „Ég vona að Bandaríkin geri það sama en ýmsir aðrir aðilar hafa ekki sett fram tilboð og tilboð enn ann- arra eru ófullnægjandi,“ segir Mand- elson. Forystu skortir JÓHANN G. Jóhanns- son, sviðsstjóri áhættu- stýringar hjá Íbúða- lánasjóði, segir að staða sjóðsins sé góð. Eigin- fjárstaða sjóðsins sé sterk og að ekkert sé til í frétt í hálffimmfréttum KB banka um rekstrar- vanda sjóðsins. Sjóðurinn hefur að sögn Jóhanns upplýs- ingaskyldu til Kauphall- ar og áætlar að birta ársuppgjör í næstu viku þar sem fram koma staðreyndir um rekstur sjóðsins á síðastliðnu ári. Einnig vill Jóhann benda á að sjóðurinn er eins og margar aðrar fjármálastofnanir undir faglegu eft- irliti Fjármálaeftirlitsins. Hvað varðar lánshæfismat Stand- ard & Poor’s á sjóðnum, þar sem sjóðurinn var settur á athugunar- lista, segir Jóhann: „Ástæðan er möguleg stefnu- breyting stjórnvalda varðandi Íbúðalánasjóð en ekki rekstrarlegar forsendur sjóðsins.“ Staða Íbúðalána- sjóðs er sterk Morgunblaðið/Ásdís HLUTHAFAR í Somerfield hefðu ástæðu til þess að fagna ef gengið yrði að skilyrtu yfirtökutilboði Baugs Group í keðjuna upp á 190 pens á hlut enda höfnuðu þeir tilboði upp á 103 pens á hlutinn fyrir minna en tveimur árum. Þetta kemur fram í frétt í dálknum Breaking News í Evrópuútgáfu The Wall Street Journal en sá dálkur nýt- ur mikillar virðingar sem annar helsti umsagnaraðili í dagblöðum sem gefin eru út á ensku í Evrópu. Í fréttinni er bent á að fyrir tilboð Baugs Group, þegar gengið var 154 pens, hafi sérfræðingar talið að bréfin í Somerfield væru ofmetin um 20%. Þá segir að verslunarkeðjan sé ekki sérstaklega áhugaverður kostur og að rekstur úr sér genginna verslana Somerfield sé mjög erfiður vegna framsóknar stóru keðjanna eins og til að mynda Tesco og Sainsbury. Því velta dálkahöfundarnir upp þeirri spurningu hvers vegna Baugur Group sé reiðubúinn að greiða svo hátt verð fyrir Somerfield eða 1,74 milljónir evra, jafngildi nálega 141 milljarðs íslenskra króna, þegar engir aðrir fjárfestar virðast vera um hit- una. Minnt er á að tilboð Baugs sé sjö sinnum hærra en EBIDTA-hagnaður (hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði) ársins og 13,3 sinnum hærra en arður á hlut. Dálkahöfundarnir segja að skýr- ingin á miklum áhuga og háu tilboði Baugs í Somerfield kunni að vera sú að rekstur Big Food, sem Baugur Group hafi keypt, sé í mesta ólestri og eina leiðin til þess að snúa honum við sé að sameina Big Food Somerfield. Tilboðið í Somer- field mjög hátt               , , 7 18/ " !!"   !"#$% & '' !(#"#$% &$#) #* +,*#  #-#' +$  )#   . ' /&. ' /( $ 0  . '   1 #  1 # + 2 , #'% 3 4 #, 3# $$#+,*#  #.- 5$# 0  8    +' #' )$#   &"#   %),  # )#6-78#4  #9 : #).# # 0;<',8)$# =>4 #, 3+ 3*$#? 3$)$#   3($)()4# )#64- @#6  )() A$() 7#8)$## 93<. # 9  #,, $$#. '' +'  B6, , #) # 0  ;   @<'<# #%: $  CDBE 3;)  !)'-! #)            9   9  9 9 9   9 9 9 9 9 9 9 &# 6 #* 6## !)'-! #) 9 9  9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 F9 GH F9GH F9 GH F9GH F9 GH F9GH F9 GH F9GH F9GH 9 F9GH F GH F9GH 9 9 FGH 9 9 9 9 9 F9GH 9 9 FGH 9 9 9 9 9 9 9  #!)'%  @.);'  / $%3  - -  - - -  -  - -  - -   - - - - 9  -  9 - 9  9  - 9 -   9 9 9 9 9 9 9                                                     9        A)'%;IJ-'#- @ -K4$ $ # +,(  !)'%        9  9  9  9 9   9 9 9 9 9 9 9 @ -9L! $*# 4   ($4$ ,*#-@ -9 3'6  ) , # 6#('$.)4 $# - =  M 3NO       G G +@3B PQ     G G DD 21Q      G G /+Q =''      G G CDBQ PR:       G G
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.