Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DAVÍÐ Skírnisson, 26 ára maður af íslenskum ættum, sem starfað hefur sem hjúkrunarfræðingur í Noregi, tók sér frí í vinnunni eftir hamfar- irnar í Asíu í lok síðasta árs, seldi hluta af eigum sínum og hélt í byrjun janúar til eyjunnar Súmötru í Indónesíu til að hjálpa til við hjálp- arstarf. Þetta er dæmigert fyrir ungan hugsjónarmann, segir Skírnir Garð- arsson, faðir Davíðs, sem viður- kennir að í fyrstu hafi sér ekki litist of vel á þessa ferð sonarins. „Ég hef aldrei verið almennilega sáttur við þetta, en er eiginlega kominn á þá skoðun núna að hann sé mun betur í stakk búinn til að takast á við svona en ég gerði mér grein fyrir.“ Þessi eins manns hjálparsamtök stækkuðu fljótt, Davíð mælti sér mót við Bandaríkjamann sem hann þekk- ir í Indónesíu, og fljótlega bættust í hópinn þrír aðrir einstaklingar sem ekki þekktust áður en þeir hittust á Súmötru, karl og kona frá Noregi og kona frá Malasíu, sem öll voru á svæðinu á svipuðum forsendum og Davíð; að láta gott af sér leiða fyrir þá sem höfðu orðið illa úti í hamför- unum. Saman stofnaði þetta fólk samtökin Tsunami Relief Action og hefur starfað við ýmiskonar hjálp- arstarf síðan. Þrír úr hópnum hafa bakgrunn tengdan hjúkrun, og segir Skírnir að þessi reynsla nýtist greinilega vel. Hópurinn býr í tjöldum og hefur m.a. dreift lyfjum og öðrum hjálpar- gögnum til þeirra sem á þurfa að halda. Leigðir hafa verið bílar sem eru merktir samtökunum til að kom- ast um eyjuna, og segir Skírnir að það hafi verið gert svo öllum sé ljóst að hér sé um mannúðarstarf að ræða, enda hafi borgarastyrjöld geisað á svæðinu og því mikilvægt að tryggja öryggi sitt eftir fremsta megni. Allir vinna kauplaust Hópurinn skiptir með sér verkum eins og hægt er, Davíð og aðrir sem hafa reynslu til að deila út lyfjum og aðstoða slasaða hafa gert það eftir föngum, þó að þeir hafi líka þurft að taka til hendinni við að safna saman líkum á svæðum þar sem þau mál voru skammt á veg komin. Hópurinn hefur einnig ráðið innfædda í launaða vinnu við að aðstoða við uppbygg- inguna. Davíð hefur oft rætt um að fé sem veitt er til stórra hjálparsamtaka fari í of miklum mæli í uppihald og kostn- að vegna starfsmanna, og segir Skírnir að þetta sé hans leið til þess að láta gott af sér leiða, að fara á staðinn og vinna sjálfur kauplaust. Allir í hópnum hafa unnið að því að fjármagna starfsemina, fé hefur ver- ið safnað hjá einstaklingum, fyr- irtækjum og félagasamtökum í Nor- egi og víðar, auk þess sem fólkið hefur selt eigur sínar. Davíð hefur ferðast aðeins um As- íu, og þekkir því aðstæður að ein- hverju leyti, segir Skírnir. „Þeir voru nú einna fyrstir þangað og unnu heil- mikið dagana áður en stóru hjálp- arsamtökin náðu að koma inn á þessi svæði. Það hefur verið borgarastyrj- öld á svæðinu og það verið fremur lokað.“ Íslendingur fór einn af stað til Súmötru til að hjálpa til eftir hamfarirnar „Dæmigert fyrir ungan hugsjónamann“ TENGLAR ..................................................... Meira á mbl.is/ítarefni Reuters UMHVERFISSTOFNUN hefur heimilað Ölgerðinni Agli Skalla- grímssyni ehf. að bæta B-vítamín- um í drykkinn Kristal Plús. Í fréttatilkynningu frá Ölgerð- inni segir að með því að leyfa bæti- efni í Kristal Plús hafi Umhverfis- stofnun tekið undir þau sjónarmið Ölgerðarinnar að auka megi neyslu B-vítamína með neyslu kolsýrðs bætiefnaríks vatns. „Við þróun á Kristal Plús hefur Ölgerðin byggt á niðurstöðum rannsókna um mataræði Íslendinga sem sýnir að neysla B-vítamína, sérstaklega fólasíns, þykir ekki nægjanleg,“ segir þar. Stofnunin setur hins vegar þau skilyrði að Ölgerðin merki umbúð- irnar þannig að fram komi að drykkurinn sé ekki æskilegur fyrir börn allt að sjö ára aldri. Ætlar Öl- gerðin að lúta þessum skilyrðum en mun jafnframt láta kanna lagalega stoð þeirra frekar. Ölgerðin fær að setja bætiefni í Kristal Plús Fleiri að- fluttir en brottfluttir                                                                                                   !"                       #$%! &               &                 ' !            '                                (               (               )* (   +* (!, -  .  / .01234+(&5363 FLEIRI fluttu til Íslands á síðasta ári en frá landinu, að því er fram kemur í tölum Hagstofu Íslands um búferla- flutninga 2004. Til landsins fluttu 5.199 en frá landinu 4.764. Nærri tvennir af hverjum þrenn- um flutningum innanlands urðu inn- an sveitarfélags. Þegar flutningar milli landsvæða eru skoðaðir kemur í ljós að 615 fleiri fluttu til höf- uðborgarsvæðisins en frá því á árinu 2004. Fleiri fluttu einnig til Suð- urnesja (47) og Suðurlands (60) en frá þeim. Á öðrum landsvæðum voru brottfluttir fleiri en aðfluttir. Af þeim sem fluttu á milli sveitarfélaga fluttu flestir til Hafnarfjarðar þar sem aðfluttir umfram brottflutta í innanlandsflutningum voru 501. Ut- an höfuðborgarsvæðisins voru að- fluttir umfram brottflutta flestir í sveitarfélaginu Árborg (142) og í Hveragerði (97). Flest undanfarin ár hafa fleiri Ís- lendingar flutt frá landinu en til þess og árið 2004 voru þeir 455 fleiri en aðfluttir, samanborið við 613 árið 2003. Hins vegar voru útlendingar 890 fleiri en brottfluttir árið 2004. Allt frá miðbiki 10. áratugar 20. ald- ar hafa útlendingar með pólskt rík- isfang verið fjölmennastir í hópi að- fluttra. Á þessu varð sú breyting í fyrra að flestir aðfluttir útlendingar voru Portúgalar (520), Pólverjar voru 233, Ítalir 164 og Danir 154. VALGERÐUR Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir að leikreglur á breskum matvörumarkaði séu athyglisverðar en vill engu svara um hvort hún telji þær henta við íslenskar aðstæður. Seg- ist Valgerður leggja þunga áherslu á sjálfstæði Samkeppnisstofnunar og svigrúm hennar til að fylgjast með því hvort samkeppnislög séu brotin á íslenska matvörumarkaðnum. Leyfðu að gerast Haft var eftir Bill Grimsey, fyrrv. forstjóra Big Food Group í Bretlandi, í Viðskiptablaði Morgunblaðsins sl. fimmtudag að leikreglurnar þar í landi hefðu orðið til þess að Tesco-versl- unarkeðjan herjaði inn á dagvörumarkaðinn þar sem Big Food Group starfaði. Bresk stjórnvöld hefðu leyft þessu að gerast, í stað þess að setja svo stórum aðila eins og Tesco skorður út frá samkeppnisástæðum við að stækka enn frekar. Lagt var út af þessum orðum Grimseys í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins sl. sunnudag og sagt að ætla verði „að taki stjórnvöld á Ís- landi á sig rögg, undir forystu hins þróttmikla viðskiptaráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, og taki upp skilgreiningu á matvörumarkaðnum hér, sem sé líkleg til að stuðla að aukinni sam- keppni á þeim vettvangi“ verði þeim ráðstöf- unum vel tekið af forráðamönnum Baugs, sem hefur tekið yfir rekstur fyrirtækja á vegum Big Food Group. Valgerður sagðist vera þakklát fyrir „þessa góðu hvatningu“ frá Morgunblaðinu. Hún sagði samkeppnisyfirvöld hafa miklu hlutverki að gegna á matvörumarkaðnum, sitt hlutverk væri að halda utan um lögin og í því sambandi minnti hún á væntanlegt frumvarp sem miðaðist að því að styrkja samkeppnisyfirvöld enn frekar. Hún gæti ekki skipað samkeppnisyfirvöldum fyrir verkum. Þau yrðu að ráða því sjálf hvernig þau störfuðu innan ramma laganna. Það væri ekki hlutverk Samkeppnisstofnunar að búa sam- keppnina til heldur að hafa eftirlit með markaðs- ráðandi fyrirtækjum og að þau brytu ekki í bága við lög. Myndu þau brjóta af sér ítrekað yrði hægt að grípa inn í og krefja þau um skipulags- breytingar, samkvæmt væntanlegu frumvarpi. Lögin áþekk Valgerður sagði að eftir breytingu á sam- keppnislögunum árið 2000 væru þau orðin mjög áþekk því sem tíðkaðist víða í nágrannalönd- unum og Samkeppnisstofnun hefði náið samstarf við margar systurstofnanir í Evrópu, einkum á Norðurlöndunum. Viðskiptaráðherra segir leikreglur á breskum matvörumarkaði athyglisverðar Leggur áherslu á sjálfstæði Samkeppnisstofnunar ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.