Morgunblaðið - 15.02.2005, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, opnaði í gær þekking-
armiðstöð í varmaorkutækni í Kalina-
varmaorkuverinu á Húsavík en orkuverið er
það fyrsta í heiminum sem nýtir Kalina-
tæknina til raforkuframleiðslu úr jarð-
varma. Jafnframt var gengið frá samningum
við einkaréttarhafa Kalina-tækninnar, ástr-
alska fyrirtækið Exergy Inc., Orkuveitu
Húsavíkur og Exorku um rekstur og fjár-
mögnun þekkingarmiðstöðvarinnar. Exorka
ehf. var stofnuð á Húsavík í apríl 2001 en
markmið fyrirtækisins er markaðssetning á
tæknilausnum og sala á raforkuverum sem
byggjast á Kalina-tækninni til framleiðslu á
raforku úr lághita.
Mikil sóknarfæri eru á næstunni í
aukinni nýtingu á jarðhita
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra sagði eng-
an vafa leika á því að mikil sóknarfæri væru
á næstu árum í aukinni nýtingu á jarðhita,
bæði hér á landi og erlendis. Víða væri að
finna svæði hér á landi þar sem góðar líkur
væru á að sjóðandi lághita væri að finna.
Valgerður sagði að virkjun lághita til raf-
orkuframleiðslu samhliða virkjun há-
hitasvæðanna gæti í mörgum tilvikum verið
mjög hagkvæmur kostur. Þá hefði ímynd
jarðhitanýtingar verið afar jákvæð hér á
landi og aukin jarðhitanotkun síðustu ára-
tuga skipt sköpum í hag heimilanna og skil-
að þjóðarbúinu á annan tug milljarða króna
árlega í sparnaði ef miðað væri við hefð-
bundna olíuhitun. Valgerður sagði jafnframt
að Íslendingar þyrftu að taka sér tak í
bættri orkunýtingu, ekki síst við nýtingu
háhitans og Kalina-tæknin við raforkufram-
leiðslu væri ágætt dæmi um það á hvern
hátt unnt væri því að að nýta betur jarð-
varmann.Þekkingarmiðstöðin á Húsavík er
starfrækt með hátæknifyrirtækjum, sér-
fræðingum og háskólum og býður við-
skiptavinum sínum fræðilega innsýn í Kal-
ina-tæknina og rekstrarþjálfun í tengslum
við orkuverið á Húsavík. Einnig verður lögð
áhersla á verklegar og fræðilegar rann-
sóknir á varmanýtingu með Kalina-
tækninni. Magnús Gehringer, fram-
kvæmdastjóri Exorku, sagði að markaðs-
svæði félagsins væri Evrópa og
Suður-Ameríka en þar hefur félagið tryggt
sér sölurétt á Kalina-tækninni. Forskot fé-
lagsins á alþjóðamarkaði felst ekki síst í
rekstrartengslum við orkuverið á Húsavík.
Magnús sagði að í Evrópu væri nokkurs
konar gullæði í gangi en með hækkandi ol-
íuverði og Kyoto-bókun væru ríkisstjórnir
að leita leiða til að minnka útblástur koltví-
sýrings. Miklir möguleikar væru í Þýska-
landi og einnig á Englandi. „Við munum
selja að minnsta kosti eitt orkuver til
Þýskalands á þessu ári og nokkur önnur eru
í undirbúningi, þar sem unnið er að hag-
kvæmnisathugunum. Við reiknum jafnframt
með að geta klárað glatvarmaorkuver í
Bretlandi.“
Sorglegt hvað íslenskir fjárfestar
hafa sýnt lítinn áhuga
Hjá Exorku starfa 9 manns, þar af 6 á Ís-
landi, á Húsavík, Akureyri og Reykjavík en
erlendis í Þýskalandi og Englandi. Magnús
sagði að eftir því sem fyrirtækið stækkaði
þyrfti að fjölga starfsfólki en þó gæti orðið
erfitt að finna sérfræðinga í varmatækni.
Hann sagði að einnig þyrfti félagið fyr-
irgreiðslu og fjármögnun við hæfi. „Það er
sorglegt hvað íslenskir fjárfestar hafa sýnt
þessu lítinn áhuga og verið hikandi. Áhug-
inn erlendis er mun meiri en ég er viss um
það mun breytast um leið og erlendir fjár-
festar verða komnir inn,“ sagði Magnús.
Samhliða opnun þekkingarmiðstöðv-
arinnar á Húsavík er haldin tveggja daga
ráðstefna í varmaorkutækni og fjölnýtingu á
varma. Ráðstefnan hófst í gær og koma
þátttakendur víða að en auk Íslands má
nefna Danmörku, Þýskaland, Frakkland,
Bandaríkin og Ástralíu. Heiðursgestur ráð-
stefnunnar er höfundar Kalina-tækninnar,
Rússinn Dr. Alexander Kalina, sem nú er
búsettur í Bandaríkjunum. Hann opnaði
formlega nýjan vef félagsins, xorka.com.
Þekkingarmiðstöð í varmaorkutækni opnuð í Kalina-varmaorkuverinu á Húsavík
Unnið að sölu á raforkuverum til
framleiðslu á raforku úr lághita
Morgunblaðið/Kristján
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra ræðir við Magnús Gehringer, fram-
kvæmdastjóra X-Orku, og Runólf Maack, stjórnarformann í Kalina-varmaorkuverinu.
TILGANGUR stjórnarskrárinnar er meðal ann-
ars að vernda borgarana fyrir ríkisvaldinu, sagði
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á
Alþingi í gær. „Vegna þess á stjórnarskráin að
vera svo einföld, herra forseti, að ég vil að sú nefnd
sem um þetta fjallar fái til sín fólk með greind-
arvísitölu 90 eða minna og láti það lesa tillögurnar,
vita hvort það hafi skilið það sem um var fjallað og
vita hvort sá skilningur er réttur. Ef ekki þá þarf
að orða stjórnarskrána enn einfaldar því henni er
ætlað að vernda þetta fólk ásamt öðru,“ sagði Pét-
ur. „Það þarf að taka burt öll tóm ákvæði í stjórn-
arskránni og tala mannamál. Ekki lögfræðinga-
mál.“
Pétur lét þessi orð falla þegar hann talaði fyrir
frumvarpi um breytingu á stjórnarskrá Íslands.
Hann vill að stjórnarskrárnefnd fjalli um frum-
varpið og efnisatriði þess verði síðan samþykkt
þegar Alþingi lýkur störfum vorið 2007 fyrir kosn-
ingar. Slíta þurfi þingi og ganga til kosninga sam-
þykki Alþingi stjórnarskrárbreytingar.
Eins og komið hefur fram felur frumvarpið í sér
að embætti forseta Íslands verði lagt niður. Pétur
sagði að frumvarpinu væri ekki beint gegn neinni
persónu því miðað væri við að það tæki gildi þegar
kjörtímabil núverandi forseta væri liðið.
„Með þessu frumvarpi er leitast við að gera
stjórnarskrána skýrari og taka út ákvæði sem
enga þýðingu hafa auk þess að leggja niður for-
setaembættið. Æskilegt væri við endurskoðun á
stjórnarskránni að taka meira tillit til þrískipt-
ingar valdsins og hafa sérstaka umfjöllun um
hvern þátt fyrir sig, löggjafarvald, fram-
kvæmdavald og dómsvald,“ sagði Pétur Blöndal.
Margvíslegt hlutverk forseta
„Nú er það hins vegar svo að forseti Íslands hef-
ur margvíslegt stjórnskipulegt hlutverk og tölu-
verð völd, einkum þegar í harðbakkann slær. En
dæmi undanfarinna missera, einkum þau sem hafa
skapast af hálfu liðsmanna í Sjálfstæðisflokknum,
sýna að það er ekki vanþörf á að ræða þetta hlut-
verk,“ sagði Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
Mörður var með útprentanir af ellefu stjórn-
arskrám með sér og fór í grófum dráttum yfir
verkaskiptingu forseta, þings og dómstóla í nokkr-
um ríkjum. Alls staðar væri forseti sem væri ýmist
þjóðkjörinn eins og á Íslandi eða þingkjörinn (í
fimm ríkjum). Forsetinn væri misáhrifamikill en
hefði veruleg völd í fjórum til fimm ríkjum. Ann-
ars staðar minni og þá svipuð og hér. Hann sló
varnagla við þessum skilningi sínum því oft skýrði
textinn ekki raunveruleg völd forseta.
Fólk með greindar-
vísitölu undir 90
skilji stjórnarskrána
KOLBRÚN Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstri-grænna, tel-
ur afnotagjöld Ríkisútvarpsins
af hinu góða. „Á þann hátt finn-
ur almenningur að hann á út-
varpið. Útvarpið tilheyrir hon-
um. Ég held að þetta séu
verulega þýðingarmikil tengsl á
milli þjóðarinnar sem á þjóð-
arútvarpið og stofnunarinnar
sjálfrar. Ég geld varhug við því
að þessi tengsl séu rofin. Þau
yrðu rofin ef Ríkisútvarpið yrði
sett inn á fjárlög,“ sagði hún á
Alþingi í gær.
Ríkisstjórnin gæti þannig
haldið RÚV í spennitreyju fjár-
veitingarvaldsins. Ögmundur
Jónasson, einnig þingmaður
Vinstri-grænna, sagðist hafa
miklar efasemdir um að Rík-
isútvarpið færi algjörlega á fjár-
lög.
Guðjón Arnar Kristjánsson,
þingmaður Frjálslynda flokks-
ins, vill tryggja Ríkisútvarpinu
tekjur og það yrði að vera festa
í þeim tekjum. Ekki mætti vera
óvissa um það um hver áramót
hver útgjaldaramminn væri.
Innheimtukerfi í formi afnota-
gjalda væri mjög dýrt. Betri
leiðir væru örugglega til.
Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði sinn
flokk ekki á móti því að afnema
afnotagjöldin. Samfylkingin
hefði talað um það að afnota-
gjöldin væru á margan hátt göll-
uð og jafnvel úrelt.
Óljósar forsendur
Þingmenn stjórnarandstöðu-
flokkanna gagnrýndu Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra í gær fyrir leynd
sem þeir sögðu að hvíldi yfir
gerð frumvarps um Ríkisútvarp-
ið og á að leggja fram á þessu
vorþingi. Forsendur umræðunn-
ar væru óskýrar og ráðherra
gæfi óljós skilaboð um hvað fæl-
ist í frumvarpinu í viðtölum við
fjölmiðla.
Notuðu þingmenn tækifæri til
að ljá máls á þessu þegar Guð-
jón Arnar Kristjánsson flutti
þingsályktunartillögu um Ríkis-
útvarpið í fimmta sinn. Vilja
þingmenn Frjálslynda flokksins
að þingið álykti í þá veru að
stofnuð verði nefnd til að semja
frumvarp um breyttan rekstur
RÚV.
Mörður Árnason sagði engan
vita hvernig vinnu við frum-
varpið liði né hverjir væru að
semja það nema mennta-
málaráðherra. Fjölmiðlanefndin
hefði ekki fjallað um það og út-
varpsstjóri væri ekki með í ráð-
um.
Af ummælum Þorgerðar
Katrínar í fjölmiðlum mætti
ráða að hún vissi ekki sjálf um
hvað það yrði.
„Þetta mál er unnið með leynd
og pukri þrátt fyrir að vorið og
hálft sumarið hafi verið lagt und-
ir fjölmiðlaumræðu sem sannaði
eitt og ég held að allir geti verið
sammála um; að fjölmiðlamál af
þessu tagi – ekki síst þegar
fjallað er um Ríkisútvarpið sem
er eign okkar allra – eigi að ræða
opinberlega. Það eiga allir að
koma að þeirri umræðu,“ sagði
Mörður.
Ekki talað um hlutafélag
Kolbrún Halldórsdóttir sagði
umræðugrundvöllinn óljósan þar
sem þingmenn hefðu ekkert
frumvarp í höndunum. Þorgerður
Katrín væri ekki einu sinni búin
að leggja fram frumvarpsdrög
áður en hún viki að breytingum á
afnotagjöldum í fjölmiðlum.
Hún sagði jákvætt að finna
ekkert í boðskap menntamála-
ráðherra í viðtali við Morgun-
blaðið á sunnudaginn um hluta-
félagavæðingu RÚV. „Að því
leytinu til segi ég: Guð láti gott á
vita. Við skulum vona að Rík-
isútvarpið fái að halda áfram að
vera í þjóðareign og ríkisstjórnin
ani ekki með það út á einkavæð-
ingarmarkað.“
Vinstri-græn-
ir tala fyrir
afnotagjaldi
Þingmenn vilja opnari umræðu um málefni Ríkisútvarpsins
Morgunblaðið/Jim Smart
Þingmenn Vinstri-grænna vara við að Ríkisútvarpið fari á fjárlög en
útiloka ekki einhverjar breytingar á innheimtu afnotagjalda.
Þingfundur hefst klukkan
13.30
Afnám laga um
Tækniháskóla Íslands
Endurnýjanlegir inn-
lendir orkugjafar í sam-
göngum
Fjárþörf Samkeppn-
isstofnunar
Kvennahreyfingin á Ís-
landi