Morgunblaðið - 15.02.2005, Síða 16
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Starfsmenn Þórshafnarhrepps voru
léttir á fæti nú fyrir helgina þegar þeir
færðu íbúunum heim í hús myndarlega
möppu sem innihélt fullfrágengið aðal-
skipulag sveitarfélagsins. Máltækið „til
þess skal vanda sem vel á að standa“
gæti verið haft að leiðarljósi við gerð að-
alskipulagsins því vinna við það hefur nú
staðið yfir í hálfa öld. Vinna við það hófst
árið 1953 og hefur staðið yfir með hléum
síðan en í fyrrasumar var það undirritað
af umhverfisráðherra.
Í aðalskipulaginu er að finna ágrip af
sögu svæðisins; til dæmis hvenær byggð
hófst, þróun veðurfars og mannfjölda og
þess háttar, svo þarna er ágætur upplýs-
ingagrunnur fyrir byggðarlagið. Einnig
er þar stefnumörkun um uppbyggingu í
sveitarfélaginu næstu 20 ár og er stór
áfangi í höfn hjá sveitarfélaginu við lok
þessarar vinnu en fæst minni sveitar-
félög hafa að fullu lokið við aðalskipu-
lagið.
Umræður um þorramat og þorrablót
hafa löngum einkennt þennan árstíma en
þorrablót var haldið með stæl í félags-
heimilinu líkt og fyrri ár. Að þessu sinni
fór þorrablótsnefndin „á flug“ því þema
skemmtidagskrár var einmitt flugið.
Nefndin tók á móti blótsgestum í gervi
flugmanna og flugfreyja og nokkuð var
haft fyrir því að útvega rétta klæðnaðinn
og að skreyta salinn á viðeigandi hátt.
Þetta gæti vakið áhuga á því sem
jafnan þykir sjálfsagt, það er að hafa
góðar flugsamgöngur. Þórshöfn er í hópi
þeirra byggðarlaga sem státa af flug-
samgöngum alla virka daga. Aftur á móti
hefur flug verið lagt niður til næstu ná-
granna, svo sem á Raufarhöfn og á
Húsavík. Hér er góður flugvöllur og flog-
ið hingað alla virka daga, farið er í loftið
um ellefuleytið að morgni og farþeginn
er kominn til Akureyrar eftir rúman
hálftíma og til Reykjavíkur kringum há-
degið. Íbúum hér úti á ysta nesi þætti
ekki góð tilhugsun að vera án flugsins og
því var þema þorrablótsins í ár vel til
fundið því góðar samgöngur eru einn af
þeim þáttum sem styrkja hvert byggð-
arlag.
Úr
bæjarlífinu
ÞÓRSHÖFN
EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Fyrirhuguð er end-urbygging á hús-unum á Kópanesi
á Hólmavík, en þau eru
frá öðrum áratug síðustu
aldar. Félag áhugamanna
um varðveislu þeirra leit-
aði eftir stuðningi til
sveitarfélagsins í því
skyni. Tillaga kom fram
á hreppsnefndarfundi að
styrkja verkefnið um 100
þúsund krónur að því til-
skildu að kostnaðar-
áætlun og reikningar fyr-
ir framkvæmdakostnaði
liggi fyrir.
Tillagan var samþykkt
með þremur atkvæðum
gegn einu, en fimmti
nefndarmaðurinn er
einnig í áhugamanna-
félaginu og tók því ekki
þátt í atkvæðagreiðsl-
unni.
Ætlunin áhugamanna-
félagsins er að hefjast
handa af krafti í sumar
við endurbyggingu Kóp-
ness að því er fram kem-
ur á vefnum strandir.is.
Varðveisla
Blót, blót, blót, söng þorrablótsnefnd Kvenfélags-ins Baugs í Grímsey fullum hálsi fyrir fullu húsi íFélagsheimilinu Múla, við undirleik skólastjór-
ans Dónalds Jóhannessonar.
Það er sannarlega fjör og gaman þegar eyjar-
skeggjar blóta þorrann. Fjöldi gesta, um fimmtíu manns
komu frá fastalandinu, bæði fljúgandi og með ferjunni
góðu Sæfara, til að taka þátt í gleðinni. Skopsnilling-
urinn Einar Georg Einarsson, frá Laugarbakka í Mið-
firði, flutti þorraannálinn, eins og honum einum er lag-
ið. Ari Baldursson í Árgerði, við Dalvík, lék undir
fjöldasöng og stóð fyrir fjörugum dansleik að borðhaldi
loknu. Snjónum kyngdi niður og magnaði stemninguna.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Nefndin Skemmtilega merkta þorrablótsnefndin, Guð-
rún Sigfúsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir, Anna María
Sigvaldadóttir og Unnur Ingólfsdóttir.
Þorrablót í Grímsey
Mogginn sagði fránýjum úða semeykur kynlífs-
nautn kvenna. Sól-
skríkjan syngur:
Frúnum aldrei færa rós
né forleik karlar nenna
ef að vekur úði’úr dós
unaðslöngun kvenna.
Einar Kolbeinsson yrkir
af sama tilefni:
Nú þær geta notað sprey,
og nautnir æðstu finna,
þar með ekki þarfnast
mey,
þreks og krafta minna.
Einari finnst þetta
greinilega ósanngjarnt í
meira lagi og höfðar til
jafnréttis kynjanna:
Ef að þannig unir mey,
ei má gleyma hinu,
að ég fái einnig sprey,
útaf jafnréttinu!
Hann sér í anda hvernig
hlutirnir gengju þá fyrir
sig:
Nýjan skapar nautnasið,
nú má lífið þreyja.
Sæluþrungin saman við,
sitjum tvö að „spreyja“.
Úði og
nautnir
pebl@mbl.is
Akureyri | Hestamenn brugðu
á leik um helgina en í tilefni
öskudagsins í liðinni viku tóku
þeir sig til og slógu köttinn úr
tunnunni. Uppákoman var við
Skeifuna, félagsheimili Léttis í
Breiðholtshverfi ofan Akureyr-
ar. Gekk mönnum misjafnlega
að koma hestunum á einhverri
ferð að tunnunni, en þó var
áberandi að konur voru heldur
lagnari en karlar, þær höfðu að
sögn sjónarvotta betri stjórn á
hrossum sínum. Um tíu hesta-
menn tóku þátt í leiknum en á
myndinni er einn þeirra, Andrea
Margrét Þorvaldsdóttir sem ber
sig fimlega að.
Morgunblaðið/Kristján
Kötturinn sleginn úr tunnunni
Leikur
Húsavík | Stofnað hefur verið fyrirtækið
Orkuveita Húsavíkur ehf. og tekur það
við öllum rekstri, eignum og skuldum
Orkuveitu Húsavíkur. Fram kemur á vef
Húsavíkurbæjar að félagið er stofnað til
þess að auka samkeppnishæfni orkufyr-
irtækis Húsavíkurbæjar í því nýja laga-
umhverfi sem er að þróast í orkugeir-
anum. Engin áform eru uppi um sölu
félagsins eða samruna þess við önnur fé-
lög.
Í stjórn hins nýja félags voru kjörnir
Aðalsteinn Á. Baldursson formaður,
Böðvar Bjarnason og Sigurjón Bene-
diktsson. Öllum starfsmönnum Orkuveitu
Húsavíkur standa til boða sambærileg
störf hjá hinu nýja félagi og hefur stjórn-
in falið stjórnarformanni að ganga til við-
ræðna við Hrein Hjartarson, fráfarandi
veitustjóra og bæjarverkfræðing um gerð
ráðningarsamnings í starf framkvæmda-
stjóra félagsins.
Einkahluta-
félag um
Orkuveitu
Húsavíkur
Laugarvatn | Bláskógabyggð hefur fest
kaup á húsnæði útibús KB banka á Laug-
arvatni en útibúinu var lokað um áramót.
Húsið verður notað til að mæta aukinni
þörf byggingar- og skipulagsfulltrúa upp-
sveita Árnessýslu fyrir húspláss.
Hús KB banka er sambyggt húsi sem
Bláskógabyggð á og hýsir embætti bygg-
inga- og skipulagsfulltrúa héraðsins.
Starfsemi á vegum þess embættis hefur
aukist mjög á síðustu árum og talin þörf á
auknu húsplássi.
Eftir að KB banki lokaði útibúi sínu
gerði sveitarfélagið tilboð í húsið og lykt-
aði samningum með því að það var selt
sveitarfélaginu fyrir fjórar milljónir kr.
Kaupin eru fjármögnuð með því sem
sveitarstjórn telur hagstætt lán til tólf
ára.
KB banki hefur lýst því yfir að hann
muni áfram reka hraðbanka á Laugar-
vatni. Póstafgreiðslan sem var komin í
útibú bankans var flutt í verslunina.
Bláskóga-
byggð kaupir
hús KB banka
♦♦♦