Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 21 DAGLEGT LÍF Í KRINGUM sjötíu hönnuðir sýna fatalínur sínar á tískuvikunni í London og eru það mun fleiri en undanfarin ár. PPQ voru fyrstir á svið sl. sunnudag en fyrsta sýn- ingin er oft sett upp nánast í þeim tilgangi að vekja mannskapinn. Það tókst ekki í þetta skipti og jafnvel módelin sjálf litu út eins og þau væru að sofna á göngunni. Fatalínan var heldur ekki beint spennandi þrátt fyrir að inni á milli leyndust einhverjir gullmolar eins og páfuglsprent og taflmynstraðir kjólar. Samt var gaman að sjá að þau eru aftur byrjuð að hanna fyrir karlmenn. Ekki nóg með að PPQ- sýningin væri óspennandi þá topp- aði danski hönnuðurinn Camilla Stærk hana með því að sýna fata- línu sem bauð ekki upp á neinar nýjungar og fólk hefði alveg eins getað séð úti á götu í dag. Greina mátti leiða hjá nær öllum áhorf- endunum og virtust þeir vera að bíða eftir að sýningunni myndi ljúka. Þrátt fyrir tvær misheppnaðar sýningar einkenndist þessi fyrsti dagur ekki af algjörri hörmung. Ben de Lisi bjargaði orðspori tísku- vikunnar með sýningu í sínum anda. Hann sýndi sína klassísku glamúrkjóla sem frægar konur sjást oft í á rauða dreglinum og er leikkonan Kate Winslet til dæmis einskær aðdáandi. Leður, ull, silki og siffon Tyrkinn Bora Aksu hélt einnig skemmtilega sýningu og var svo pakkað í salnum að forstöðumaður British Fashion Council sem stend- ur fyrir tískuvikunni fékk ekki einu sinni sæti. Sterk afrísk tónlist með trumbuslætti ómaði um salinn á meðan fyrirsæturnar sýndu fötin. Bora Aksu hélt sig að mestu við liti eins og drapplitan, mórauðan og mosagrænan og nýtti að mestu leð- ur, ull, silki og siffon. Hnésíðar leð- urbuxur og pils voru einkennandi ásamt þægilegum víðum kjólum. Einstaklega flott sýning. Sá sem toppaði þennan fyrsta dag var samt sem áður Julien Macdonald með ekta tískusýningu með fyrirsætum á borð við Naomi Campbell og Lily Cole. Göngu- brautin var lögð kálfaskinni og frægt fólk eins og fyrirsætan Capr- ice, Hilary Alexander tískuritstjóri Daily Telegraph og tískublaðamað- urinn Colin McDowellvar mætt á svæðið. Á meðan beðið var eftir að sýningin hæfist dunduðu ljósmynd- ararnir sér einmitt við að mynda fræga fólkið. Loks slokknuðu ljósin og sýningin hófst. Kvenlegar flíkur blöstu við. Pelsar, pífur og pils voru einkennandi. Pilsin bæði hnésíð og ökklasíð, víð og þröng. Sum pilsin voru jafnvel það þröng að fyrirsæturnar áttu í vandræðum með gönguna. En samt sem áður sérlega smekklega hönnuð. Þetta eru föt sem hver kona getur orðið glæsileg í. Pelsarnir voru oft skreyttir pallítettum og það voru líka pilsin og kjólarnir. Buxur voru eilítið víðar og háar í mittið en hné- buxur leyndust þó líka inni á milli. Herðaslár voru áberandi og voru ermar á jökkum ætíð brettar upp fyrir olnboga og skyrta undir og groddaralegar hálsfestar. Eitthvað sem á eftir að móta líka tískuna næsta sumar. Litirnir sem voru mest áberandi voru rústrauður, drapplitaður, brúnn og blár flest einlitt þó smá- gert taflprent væri eitthvað notað og skyrturnar oft í marglitu prenti. Macdonald fullkomnaði svo sýn- inguna með því að labba eftir göngubrautinni við hlið Naomi Campbell íklæddri gullkjól sem vakti mikinn fögnuð viðstaddra.  TÍSKUVIKA | London næsta vetur AP Sá sem toppaði þennan fyrsta dag var hönnuðurinn Julien Macdonald sem m.a. sýndi kvenlegar flíkur, pífur, pils og pallíettuskreytta pelsa. Rústrautt, brúnt og blátt Tískuvikan í London stendur nú yfir. Í kring- um sjötíu hönnuðir sýna fatalínur sínar. Laila Pétursdóttir var meðal gesta. AP Danski hönnuðurinn Camilla Staerk á heiðurinn að þessum leðurjakka. „ÉG VISSI ekki að það væri svona mikil pæling á bak við kaffi,“ segir Inga Jóna Halldórsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri Neskirkju. Enn sem komið er hefur ekki verið ráð- inn starfsmaður á kaffihúsið en Inga Jóna hleypur með glöðu geði í skarð- ið. „Við fengum þjálfun frá Kaffitári en þetta er mjög skemmtilegt. Það er eiginlega ekkert gaman að hella upp á heima hjá sér lengur,“ segir Inga Jóna brosandi. Kaffið í Neskirkju er keypt frá Súmötru á Indónesíu og er svonefnt sanngirniskaffi (fair trade). Það þýð- ir að færri milliliðir eru frá kaffi- baunabóndanum og til neytandans hér á Íslandi svo bóndinn fær meira í sinn hlut en annars. Inga Jóna segir starf sitt vera líf- legt og er ánægð með stemninguna í kirkjunni. „Hingað koma alls kyns hópar. Hér fyrir utan er nóg af stæð- um og aðgengi er gott svo þetta er ákjósanlegur staður fyrir sam- komur,“ segir Inga Jóna. Morgunblaðið/Þorkell Inga Jóna hellir upp á kaffi. Skemmti- legt að fást við kaffi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.