Morgunblaðið - 15.02.2005, Page 34

Morgunblaðið - 15.02.2005, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Bílar á föstudögum Sérblaðið Bílar fylgir blaðinu á föstudögum. Meðal efnis næsta föstudag: Dótakassinn - ýmsir smáhlutir í bílinn Nýr Skoda Octavia - reynsluakstur Vinsælustu jepparnir í Bandaríkjunum Saga bílsins - fyrsti akstur í kringum landið Væntanlegir bílar - Audi Allroad, Opel Vectra Sértilboð til áskrifenda á bílaauglýs- ingum 995 kr. með mynd - Mættu til okkar í Kringluna 1 og við tökum myndina frítt - Einfalt, ódýrt og þægilegt auglýsingar 569 1111 Auglýsingar: Sandra - 569 1140 og Ragnheiður -569 1275 Á fjórhjólum í fönninni. Ford Freestyle - sjö manna amerískur. Opel Astra Station reynsluakstur. Bílasýningin í Detroit. Formúla 1. Síaukinn áhugi á mótorhjólum. MARGIR skákmenn lögðu leið sína í KEA-salinn, Sunnuhlíð á Akureyri, og tóku þátt í minning- armóti Jóns Björgvinssonar sem lauk á sunnudaginn var. Nokkrir öflugir skákmenn af höfuðborg- arsvæðinu tóku þátt sem og rjóm- inn af norðlenskum skákmönnum. Keppendurnir voru alls 41 þegar mótið hófst sl. föstudag með fjór- um atskákum. Stigahæsti skák- maður landsins og félagsmaður í Skákfélagi Akureyrar, stórmeist- arinn Jóhann Hjartarson, leiddi mótið eftir fyrsta daginn með fullu húsi vinninga ásamt alþjóð- lega meistaranum Jóni Viktori Gunnarssyni. Síðustu þrjár um- ferðir mótsins voru kappskákir svo að Jóhann og Jón mættust í einni slíkri á laugardagsmorgn- inum. Bræðrabylta varð í viður- eign þeirra og urðu þeim hvor- ugum á mistök í lokaumferðunum tveim sem þýddi að báðir luku keppni með sex og hálfan vinning af sjö mögulegum. Gripið var til stigaútreikninga og varð Jóhann þá hlutskarpari. Lokastaða efstu manna varð annars þessi: 1.-2. Jóhann Hjartarson og Jón Viktor Gunnarsson 6½ vinning af 7 mögulegum 3.-5. Halldór Brynjar Halldórs- son, Björn Þorfinnsson og Guð- mundur Gíslason 5 v. 6.-10. Áskell Örn Kárason, Björn Ívar Karlsson, Jón Árni Jónsson, Stefán Bergsson og Ólafur Kristjánsson 4½ v. 11.-20. Jón Þ. Þór, Gylfi Þór- hallsson, Sævar Bjarnason, Rúnar Sigurpálsson, Arnar Þorsteinsson, Sigurjón Sigurbjörnsson, Svein- björn Sigurðsson, Unnar Þór Bachmann, Tómas Veigar Sigurð- arson og Smári Ólafsson 4 v. Veitt voru verðlaun í ýmsum aukaflokkum og urðu efstu menn þar þessir: Í flokki skákmanna með 1800– 2000 stig: 1. Sigurjón Sigur- björnsson 4 v. (21,0 Monrad stig) 2. Smári Ólafsson 4 v. (18,5) 3. Guðmundur Freyr Hansson 3,5 v. Í flokki skákmanna með minna en 1799 stig: 1. Sveinbjörn Sigurðs- son 4 v. (20,5) 2. Tómas Veigar Sigurðarson 4 v. (20,0) 3. Unnar Þór Bachmann 4 v. (19,0) Í flokki skákmanna 50 ára og eldri: 1. Ólafur Kristjánsson 4,5 (23,5) 2. Áskell Örn Kárason 4,5 (21,5) 3. Jón Þ. Þór 4 v. (26,0) Í unglinga- flokki: 1. Ólafur Evert Úlfsson 2,5 v. 2. Davíð Arnarson 1,5 v. 3. Al- exander Arnar Þórisson 1 v. Gylfi Þórhallsson er formaður Skákfélags Akureyrar en það fé- lag hélt mótið ásamt Taflfélagi Dalvíkur, síðasta félaginu sem Jón heitinn Björgvinsson var í. Gylfi hefur marga hildi háð og lengi vel átti hann metið að hafa teflt flestar kappskákir sem reiknaðar voru til skákstiga. Sæv- ar Bjarnason sló það síðan en Gylfi lætur þó ekki deigan síga. Á mótinu mætti hann ofjarli sínum þegar hann mætti sigurvegara mótsins. Hvítt: Gylfi Þórhallsson (2115) Svart: Jóhann Hjartarson (2645) 1. e4 e5 2. Rc3 Rc6 3. g3 Bc5 4. Bg2 d6 5. d3 Rge7 6. Rge2 O-O 7. Be3 Bxe3 8. fxe3 Be6 9. Dd2 Dd7 10. d4 Bh3 11. Bxh3 Dxh3 Byrjunartaflmennska hvíts hef- ur verið þróttlítil og stendur svartur aðeins betur að vígi. Hann hefur skorðað peð hvíts á kóngsvæng með drottningu sinni og staðsetning hennar kemur í veg fyrir að hvítur geti hrókerað stutt. Í framhaldinu finnur hvítur ekki haldbæra áætlun til að bæta stöðu sína. Sjá stöðumynd 1 12. O-O-O f6 13. Hdg1?! Hér hefði verið nærtækt að leika 13. Rg1 koma riddaranum fyrir á f3. Svartur gæti þá reynt að sporna við því með að leika 13...Dg4 eða 13...Dh5 en þá hefði endataflið eftir 14. De2 Dxe2 15. Rgxe2 verið u.þ.b. í járnum. 13...f5 14. d5 Rb4 15. a3 Ra6 16. exf5 Hxf5 17. g4 Hf2 18. Hg3 Dh4 19. h3 Haf8 20. b4! Hf1+ 21. Hxf1 Hxf1+ 22. Kb2 Rc8!? 23. Dd3 Rb6 Svörtum hefur tekist að halda í frumkvæðið sitt og felst það nú í yfirráðum svarts á f-línunni. Hvít- ur á erfitt með að koma riddurum sín- um á hreyfingu en riddarameistarinn Benóný Benediktsson sagði að þeir ættu aldrei að valda hvor annan. Sjá stöðumynd 2 24. e4? Hér hafði 24. Re4 komið vel til álita þar sem 24...Ra4+ væri vel svarað með 25. Kb3. Eftir textaleik- inn girðir hvítur fyrir að hann geti notað e4-reitinn fyrir menn sína og veikir svörtu reitina í stöðu sinni. 24...Df6! 25. Db5 Df8 26. a4 c6! 27. dxc6 Rc7 28. Dd3 bxc6 29. He3? Afleikur sem tapar skák- inni strax. Engu að síður var hvíta staðan erfið sem sést best á því að 29. a5 hefði verið svarað með 29...d5. Sjá stöðumynd 3 29... d5! 30. Rg3 Dxb4+ 31. Ka2 Rc4 og svartur gafst upp enda verður mát ekki umflúið. Það var afar vel til fund- ið hjá norðanmönnum að halda mót þetta og sann- arlega gott tilefni að heiðra minningu þess sterka skákmanns sem Jón Björg- vinsson var. Gengi Stefáns og Ingvars að batna í Búdapest Skákmennirnir Stefán Kristjánsson (2438) og Ingvar Jóhannesson (2315) tefla enn í Fyrsta laugar- dagsmóti í Búdapest og hafa báðir landað sínum fyrsta vinningi úr einni skák. Stefán, sem tekur þátt í stórmeistaraflokki, lagði Andras Flumbort (2479) í sjöttu umferð og hefur þrjá vinninga eftir að hafa teflt sex skákir. Ingv- ar gerði fimm jafntefli í röð í fyrstu umferðum mótsins en vann svo þýska skákmanninn Hubertus Schulze í sinni sjöttu skák. Hann hefur því þrjá og hálfan vinning af sex mögulegum en alls mun hann tefla 10 skákir í sín- um flokki en Stefán tólf. Hægt er að fylgjast með gangi mótsins á www.skak- .is eða www.firstsatur- day.hu. Þrír íslenskir skák- menn tefla í Frakklandi Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2561) og Þröstur Þór- hallsson (2455) taka þátt ásamt Magnúsi Kristinssyni (1430) í skákhátíð sem fram fer dagana 12. til 20. febrúar í smábænum Capelle La Grande í Frakklandi. Um afar öflugt mót er að ræða sem haldið er á hverju ári en steinsnar frá bænum er hinn sögufrægi staður Dunkerque. Eft- ir 2 umferðir hefur Hannes 1½ vinning en Þröstur og Magnús hafa vinning hvor. Stigahæsti keppandi mótsins er Murtas Kazhgaleyev (2613) en Hannes er þar tuttugasti í röðinni. Hægt er að fylgjast með gangi mála á www.skak.is eða www.cappelle- chess.com. Jóhann og Jón Viktor efstir og jafnir á Akureyri Jón Viktor Gunnarsson Jóhann Hjartarson HELGI ÁSS GRÉTARSSON daggi@internet.is SKÁK Skákfélag Akureyrar og Taflfélag Dalvíkur MINNINGARMÓT JÓN BJÖRGVINSSONAR 11.–13. febrúar Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Stöðumynd 3 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Til mín hafa leitað hjón sem óska eftir að kaupa 100-110 fm íbúð í ofangreindu húsi. Verðhugmynd allt að 26 millj. Um er að ræða fjársterka aðila sem eru búnir að selja. Af- hendingartími getur verið allt að 6-7 mán. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Með kveðju, Hákon Svavarsson, lögg. fasteignasali, sími 898 9396. 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ SKÚLAGÖTU 10 - RVÍK - ÓSKAST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.