Morgunblaðið - 15.02.2005, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 35
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í 5
standarddönsum og 5 s.-amerískum
dönsum með frjálsri aðferð fór fram
í Laugardalshöllinni 6. febrúar sl.
Einnig var haldin keppni fyrir dans-
ara sem dansa með grunnaðferð.
Dansarnir sem keppt er í eru annars
vegar standarddansarnir Enskur
Vals, Tango, Slow Foxtrot, Vín-
arvals og Quickstep og hins vegar
s-amerísku dansarnir Samba, Cha
Cha Cha, Rumba, Paso Doble og
Jive. Alls voru 224 pör skráð til
keppni og af þeim voru 25 pör sem
kepptu til Íslandsmeistaratitils í
dansi með frjálsri aðferð. Einnig
komu fram hópar byrjenda í dansi
sem sýndu nokkra dansa. Það voru
fimm erlendir dómarar sem sóttu
okkur heim og dæmdu mótið. Það
voru þau Verner Hansen frá Dan-
mörku, Judith Bennett frá Eng-
landi, Thrond Harr frá Noregi, Ted
Heihura frá Svíþjóð og Manfred
Ganster frá Þýskalandi.
Dagskráin hófst klukkan 11 með
innmarsi keppenda og fánahyllingu.
Formaður Dansíþróttasambands Ís-
lands, Birna Bjarnadóttir, setti síð-
an mótið.
Yngsti aldurshópurinn sem keppir
í dansi með frjálsri aðferð er flokk-
urinn unglingar I (12-13 ára). Í þeim
flokki voru einungis þrjú pör sem
tóku þátt í keppninni. Íslandsmeist-
arar í standarddönsum voru þau
Alex Freyr Gunnarsson og Ragna
Björk Bernburg frá dansdeild ÍR.
Þau hafa fallega áferð á dansinum,
klára allar línur vel og fljóta vel yfir
gólfið. Ragna þarf að passa líkams-
stöðuna og á ég þar við bakið. Þetta
er líklega til komið vegna þess að
hæðarmunur þeirra hefur aukist. Í
öðru sæti voru þau Sigurður Már
Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir
frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar.
Þau eru mjög kraftmikið par og eru
að koma mjög sterk til leiks þessa
dagana. Það virðist ætla að verða
mikil keppni á milli þessara para
sem gerir þau sterkari og keppnina
mjög spennandi. Í þriðja sæti höfn-
uðu þau Sigtryggur Hauksson og
Eyrún Stefánsdóttir frá Dans-
íþróttafélaginu Gulltoppi. Þau döns-
uðu ágætlega en staðan og haldið er
eitthvað að trufla þau. Þau þurfa að
slaka meira á til þess að verða léttari
á gólfinu. Í s.-amerísku dönsunum
skiptust tvö efstu pörin í stand-
arddönsunum á um sæti. Þar sigr-
uðu þau Sigurður Már og Sara Rós.
Þau eru eins og í standarddönsunum
mjög kröftug og mikill rytmi í dans-
inum þeirra. Alex Freyr og Ragna
Björk sem þá voru í öðru sæti eru
einnig rytmísk í dansinum en með
mýkri og að mínu mati með þrosk-
aðri stíl. Í þessum flokki höfnuðu
síðan Sigtryggur og Eyrún í þriðja
sæti. Þau hafa eins og reyndar öll
pörin í þessum flokki sýnt miklar
framfarir að undanförnu og verður
gaman að sjá hvernig þau eiga öll
eftir að þroskast meira í dansinum í
framtíðinni.
Íslandsmeistarar standard-
dönsum í flokki unglinga II ( 14-15
ára) voru þau Haukur Freyr Haf-
steinsson og Denise Margrét Yaghi
frá Dansíþróttafélaginu Hvönn. Þau
voru að mínu mati öruggir sigurveg-
arar í þessum flokki. Þau eru mjög
reynd þó ung séu að árum og fannst
mér þau dansa af miklu öryggi og
gleði. Í öðru sæti höfnuðu þau Að-
alsteinn Kjartansson og Rakel Guð-
mundsdóttir frá Dansdeild ÍR. Þau
hafa ekki dansað lengi saman en eru
að koma nokkuð sterk inn í hópinn.
Hún virkaði svolítið stíf og þarf að
klára allar höfuðhreyfingar betur. Í
þriðja sæti voru þau Júlí Heiðar
Halldórsson og Telma Rut Sigurð-
ardóttir frá Dansíþróttafélagi Kópa-
vogs. Þau eru mjög kraftmikil en
þau þurfa að passa að vera ekki á
undan tónlistinni og þá sérstaklega í
Vínarvalsi. Haukur Freyr og Denise
Margrét sigruðu tvöfalt og eru þá
einnig Íslandsmeistarar í s-amer-
ískum dönsum. Þau eru bæði
mjög góðir dansarar og ná að
sýna sterkan karakter á gólf-
inu. Haukur er að styrkjast í
ökklum og nær þ.a.l. að sýna
sterkari línur með lík-
amanum. Þetta var að mínu
mati nokkuð öruggur sigur
hjá þeim, þó ekki eins og í
hinni greininni. Í öðru sæti
voru einnig í þessari grein
þau Aðalsteinn og Rakel. Þau
eru bæði efnilegir dansarar
og er þetta önnur keppnin
þeirra saman. Frá því að ég
sá þau dansa síðast sé ég að
þau ná að vinna betur saman
sem par. Í þriðja sæti voru
þau Alexander Mateev og
Erla Björg Kristjánsdóttir
frá Dansdeild ÍR. Þau eru
mjög snaggaralegt par. Það
sem er helsti veikleiki hjá
þeim er að þau vantar að
klára betur línur og teygja á
fótum, ristum og hand-
leggjum. Þau eru samt alltaf
lífleg á gólfinu og gaman að
horfa á þau.
Í flokki ungmenna (16-18
ára) sigruðu í standarddönsum þau
Björn Ingi Pálsson og Ásta Björg
Magnúsdóttir frá Dansíþróttafélagi
Hafnarfjarðar. Þau eru að koma ný
inn í þennan aldursflokk og koma
heldur betur sterk inn. Þau dönsuðu
áferðarfallegan dans og voru nokkuð
jöfn allan tímann. Björn er farinn að
klára stöðuna betur en þarf að leyfa
höfðinu að dansa meira með í sam-
ræmi við líkamann. Í öðru sæti höfn-
uðu þau Jónatan Arnar Örlygsson
og Hólmfríður Björnsdóttir
frá Dansíþróttafélaginu Gull-
toppi. Ég er nokkuð viss um
að það hafi verið mjótt á mun-
unum á milli þessara tveggja
para. Jónatan og Hólmfríður
hafa verið mjög sigursæl að
undanförnu en það var eins
og þau næðu ekki sínu besta
fram í þessari keppni. Jón-
atan missti sig örlítið aftur en
mér fannst þau léttust par-
anna í Quickstep. Í þriðja sæti
voru síðan þau Baldur Kári
Eyjólfsson og Anna Kristín
Vilbergsdóttir frá Dansdeild
ÍR. Þau dönsuðu mikið betur
en á síðasta móti. Þau virtust
dansa meira saman og varð
dansinn allur mýkri en síðast.
Í s-amerísku dönsunum urðu
Íslandsmeistarar þau Þorleif-
ur Einarsson og Hanna Rún
Óladóttir frá Dansíþrótta-
félaginu Hvönn. Þau eru ný-
lega farin að keppa saman og
hafa verið mjög sigursæl í
gegnum tíðina með sínum
fyrri dansfélögum. Þetta er
annað mótið sem ég sé þau
dansa saman og eru þau greinilega
að slípast betur saman sem par. Þor-
leifur er sterkur á gólfinu og notar
efri hluta líkamans vel. Þau mættu
samt bæði klára að rétta betur úr
ristum. Í öðru sæti höfnuðu þau
Björn Ingi og Ásta Björg. Þau voru
að mínu mati sigurvegarar þessa
hóps. Ég hef alltaf verið mjög hrifin
af þeim sem dönsurum. Þau gera
hlutina vel og láta þá líta út fyrir að
vera auðveldir. Ásta þarf samt að
passa að halda út allan tímann. Í
þriðja sæti voru þau Jónatan Arnar
og Hólmfríður. Þau náðu sér ekki á
strik í þessari keppni þrátt fyrir
góða spretti. Mér fannst Rumban
þeirra besti dans en þau virkuðu
þreytt og fóru þ.a.l. að nota of mikla
krafta í stað þess að dansa létt.
Flokkur fullorðinna er miðaður
við aldurinn 19-35 ára. Keppendur í
flokki ungmenna og seniora geta
samt sem áður einnig keppt í þess-
um flokki. Sigurvegarar í stand-
arddönsum voru þau Jónatan Arnar
og Hólmfríður. Þau voru öruggir
sigurvegarar í þessum hópi. Í öðru
sæti voru þau Baldur Kári og Anna
Kristín og í þriðja sæti þau Björn
Sveinsson og Bergþóra María Berg-
þórsdóttir frá Dansíþróttafélagi
Hafnarfjarðar. Í s.-amerísku döns-
unum sigruðu þau Max Pedrov og
Elísabet Sif Haraldsdóttir frá Dans-
íþróttafélaginu Hvönn. Þau eru yf-
irburðapar hér á Íslandi. Þau mæta
á dansgólfið sem sigurvegarar og
sýna það allan tímann að þau ætla
sér sigur. Þetta mættu fleiri dans-
arar taka sér til fyrirmyndar. Í öðru
sæti voru þau Gunnar Hrafn Gunn-
arsson og Johanna Dijnér frá Dans-
íþróttafélagi Hafnarfjarðar. Hún er
frá Gautaborg í Svíþjóð og hófu þau
að dansa saman fyrir tveimur vikum
síðan. Þrátt fyrir að vera rétt byrjuð
að dansa saman þá skiluðu þau sínu
með ágætum enda bæði mjög efni-
legir dansarar og er allt útlit fyrir að
þau geti náð langt í dansinum sam-
an. Í þriðja sæti voru síðan Jón Ey-
þór Gottskálksson og Helga Soffía
Guðjónsdóttir frá Dansdeild ÍR. Þau
eru öll að koma til og passa ágætlega
saman sem danspar. Helgu Soffíu
vantar örlítið uppá jafnvægið og að
klára hreyfingar betur.
Í flokki Seniora (35 ára og eldri)
keppti einungis eitt par í stand-
arddönsum, þau Björn Sveinsson og
Bergþóra María Bergþórsdóttir.
Þau voru þá að sjálfsögðu Íslands-
meistarar þess flokks. Mér fannst
þau dansa betur en á síðasta móti og
fljóta betur yfir gólfið. Í s-amerísku
dönsunum sigruðu þau Haukur Ei-
ríksson og Lizý Steinsdóttir frá
Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar.
Mér fannst þau sýna öryggi í sínum
dansi og mjög létt yfir þeim. Í öðru
sæti voru þau Björn og Bergþóra
María miklir reynsluboltar í dans-
inum. Björn er með góðar hreyf-
ingar í líkamanum og nokkuð sterk-
an fótaburð. Stundum vantar uppá
jafnvægið hjá Bergþóru. Í þriðja
sæti höfnuðu síðan Eggert Claessen
og Sigrún Kjartansdóttir frá Dans-
deild ÍR. Þau voru að venju í miklu
stuði og skemmtu áhorfendum. Þau
mættu bæði rétta betur úr sér í
hröðu dönsunum. Önnur úrslit
keppninnar eru væntanleg á heima-
síðu Dansíþróttasambands Íslands:
www.danssport.is.
Mér fannst þessi keppni ganga
nokkuð vel fyrir sig. Dagskráin byrj-
aði kl. 11 að morgni og lauk keppn-
inni kl. 20. Tímataflan stóðst nokkuð
vel og var frekar afslappað and-
rúmsloft í húsinu. Nýr kynnir kom
til sögu á keppninni og var það
Dagný Björk Pjetursdóttir dans-
kennari og fannst mér hún skila sínu
starfi mjög vel.
Það er heilmikið framundan í
dansheiminum. Í þessum mánuði
eru tvö stórmót erlendis sem ís-
lenskir dansarar ætla að fara á. Er
það fyrst „Copenhagen Open“ í Dan-
mörku og síðan „Celtic Classic“ á Ír-
landi. Íslandsmeistaramót í gömlu
dönsunum er síðan áætlað þann 13.
mars. Um páskana mun hópur fara
til Blackpool til keppni og síðan mun
verða haldið bikarmót fyrir dansara
sem dansa með grunnaðferð dagana
1. og 2. apríl. Síðasta dansmót vetr-
arins verður síðan haldið 23. apríl og
þá mun fara fram Íslandsmeistara-
mót dansi með grunnaðferð í 10
dönsum með frjálsri aðferð.
Fjölmenn danskeppni í Höllinni
DANS
Laugardalshöll
ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í
SAMKVÆMISDÖNSUM
Þorleifur Einarsson og Hanna Rún Óladóttir Íslands-
meistarar ungmenna í s-amerískum dönsum.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Björn Ingi Pálsson og Ásta Björg Magnúsdóttir Ís-
landsmeistarar ungmenna í standarddönsum.
Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björk Bernburg
Íslandsmeistarar unglinga I í standarddönsum.
Haukur Freyr Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi
Íslandsmeistarar unglinga II í báðum greinum.
Max Pedrov og Elísabet Sif Haraldsdóttir Íslands-
meistarar fullorðinna í s-amerískum dönsum.
Kara Arngrímsdóttir