Morgunblaðið - 15.02.2005, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 51
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað og
jóga kl. 9, línudans kl. 11, postulínsmáln-
ing kl. 13. Hár- og fótsnyrting alla daga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna,
kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl.
9.30, smíði/útskurður kl.13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, vefnaður,
leikfimi, sund, línudans, boccía, fótaað-
gerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–
16 félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Brids í
Gjábakka í dag kl. 13.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13. Miðvikudagur: Göngu–Hrólfar
ganga frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi í Mýrinni kl. 9.10 inni–golf
á sama stað kl. 11.30. Í Kirkjuhvoli er
málun kl. 9.30, karlaleikfimi og búta-
saumur kl. 13. Opið hús í safnaðarheim-
ili á vegum kirkjunar kl. 13 og kóræfing
FEBG á samastað kl. 17.
Gerðuberg, félagsstarf | Þriðjudag og
föstudag kl. 10.30 er létt ganga um ná-
grennið, allir velkomnir. Í dag kl. 9–
16.30, vinnustofur opnar. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á staðnum, s.
575 7720 og wwwgerduberg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður og hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 12.15 Bónusferð, kl. 13
myndlist, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13 kortagerð o.fl., boccia kl. 9.30–
10.30, helgistund kl. 13.30 í umsjón
séra Ólafs Jóhannssonar. Böðun virka
daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir–
hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er op-
ið öllum. Listasmiðja og Betri stofa;
tréskurður og frjálst handverk. Leik-
fimi kl. 10. Bónus kl. 12.40. Bókabíll kl.
12.40. Myndlistarsýning Listasmiðju
Hæðargarðs er opin 9–16 alla virka
daga. Nánari uppl. s. 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Félagsvist í
Fjölnissalnum á morgun, miðvikudag
kl. 13.30.
Laugardalshópurinn í Þróttarheim-
ilinu | Leikfimi fyrir eldri borgara í dag
kl. 12.15.
Salur Framsóknarfélags Mosfells-
bæjar | Félagsvist í kvöld í sal Fram-
sóknarfélags Mosfellsbæjar, Háholti 14,
2. hæð, kl. 20. Góðir vinningar fyrir 2
efstu sætin, karl og kona, hvert spila-
kvöld. Spiluð verða 8 þriðjudagskvöld
og verður ferðavinningur veittur fyrir
fimm hæstu kvöldin samanlagt. Allir
velkomnir.
Sjálfsbjörg | Spilað Uno í kvöld kl.
19.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 hannyrðir,
kl. 10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 há-
degisverður, kl. 13–16 postulínsmálun,
kl. 13–16 bútasaumur, kl. 13–16 frjáls
spil, kl. 13–14.30 leshringur, kl. 14.30–
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handmennt og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótsnyrting kl. 9.30,
leikfimi kl. 10, félagsvist kl. 14, allir vel-
komnir.
Þórðarsveigur 3 | Bónus kl. 12, bóka-
bíllinn kl. 16.45.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 3).
Árbæjarkirkja. | Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðsla, spjall, helgistund o.fl.
Allir velkomnir. Starf með 10–12 ára
börnum kl. 15.45 í Árbæjarkirkju.
Æskulýðsfélagið Lúkas fyrir 8–9 bekk-
inga í kirkjunni kl. 17.
Áskirkja | Opið hús kl. 10–14, kaffi og
spjall. Bænastund kl. 12. Boðið er upp á
léttan hádegisverð.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta
alla þriðjudaga kl. 18.30.
Digraneskirkja | Leikfimi Í.A.K. kl. 11.15.
Kl. 12 hádegisverður. Kaffi. Aðalfundur
ÍAK kl. l4. 10–12 ára starf KFUM&K kl.
17–18.15 á neðri hæð. Bænastund kl.
17.30. Alfa-námskeið kl. 19. Kennari sr.
Magnús B. Björnsson. www. digra-
neskirkja.is.
Fella- og Hólakirkja | Strákastarf fyrir
3.–7. bekk, í kirkjunni kl. 16.30–17.30.
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl.
20.30. Allir velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju, á þriðjudögum kl. 13 til
16. Við spilum lomber, vist og bridge.
Röbbum saman og njótum þess að
eiga samfélag við aðra. Kaffi og með-
læti kl. 14.30. Helgistund í kirkjunni kl.
16. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýs-
ingasími: 895 0169. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja | „Opið hús“ fyrir
eldri borgara, kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í
Rimaskóla kl. 17.30–18.30 Æskulýðs-
félag Grafarvogskirkju kl. 19.30, fyrir 8.
bekk. „Á leiðinni heim“ er helgistund í
Grafarvogskirkju alla virka daga föst-
unnar. Lesinn er einn Passíusálmur í
hvert sinn. Í dag les Birgir Ármanns-
son.
Grensáskirkja | Hvert þriðjudagshá-
degi kl. 12.10 er kyrrðarstund með alt-
arisgöngu í Grensáskirkju. Að stund-
inni lokinni er hægt að fá heimilismat á
vægu verði í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón-
usta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Starf með öldruðum alla
þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15. Leik-
fimi, súpa, kaffi og spjall.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur
presta er hvern þriðjudag í Hjallakirkju
kl. 9.15–11, í umsjá sr. Sigurjóns Árna
Eyjólfssonar, héraðsprests. Bæna- og
kyrrðarstundir kl. 18.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Skírn-
arfræðsla kl. 18.30. Allir velkomnir. Alfa
1 kl. 19.
KFUM og KFUK | Ad KFUK þriðjudag-
inn 15. febrúar kl. 20 í Húsi KFUM &
KFUK á Holtavegi 28. Lofgjörðar– og
bænasamvera í umsjá Þórdísar
Ágústsdóttur, Kristínar Bjarnadóttur
og fleiri kvenna. Allar konur velkomnar.
Kópavogskirkja | Bæna– og kyrrð-
arstund kl. 12.10.
Laugarneskirkja | Kl. 16 T.T.T. (5. – 7.
bekkur) Kl. 19.45 trúfræðsla. Íhugun og
umræður um guðspjall næsta sunnu-
dags. Kl. 20.30 kvöldsöngur í kirkjunni.
12 spora hópar koma saman á kvöld-
söngnum og halda svo áfram sinni
vinnu.
Fyrirbænaþjónusta við altarið og kaffi-
spjall í safnaðarheimilinu á eftir.
Óháði söfnuðurinn | Alfanámskeið II kl.
19–22. Fjallræðan.
ÞESSI sérstaka innsetning listamannanna Christo og Jeanne Claude var opnuð opinberlega í Central Park í New
York borg á laugardag, en hér er um að ræða gríðarstóra listasýningu fyrir almenning. Innsetningin ber nafnið
„The gates,“ eða hliðin og er upphafið að tæplega 30 kílómetra langri sýningu sem nær yfir helstu göngustíga
garðsins.
Reuters
„Hliðin“ í Miðgarði
GEÐRASKANIR barna og ung-
linga eru viðfangsefni sérstakrar
fræðsluviku, sem nú stendur yfir í
félagsmiðstöðvum Samfés um land
allt og verður af því unnið að sér-
stöku fræðslustarfi í félagsmið-
stöðvum. Vikan ber heitið „Geð-
veikir dagar!“ og er fræðsluverk-
efnið unnið í samvinnu við barna-
og unglingageðdeild Landspítalans
(BUGL). Hefur það tvíþættan til-
gang, annars vegar að fræða ung-
mennin almennt um geðraskanir
og stuðla þar með að aukinni
þekkingu og fordómaleysi og hins
vegar að sýna samhygð og sam-
hjálp í verki með því að selja sér-
stök armbönd til styrktar bygg-
ingasjóði BUGL.
„Félagsmiðstöðvunum er í sjálfs-
vald sett hvernig staðið er að
fræðslunni, en á mörgum stöðum
er verkefnið unnið í samvinnu við
grunnskólana og um allt land fer
fram mikið hópastarfi, fyrirlestrar
og umræður,“ segir Hrafnhildur
Ástþórsdóttir, verkefnisstjóri hjá
Samfés. „Þá verða haldnir fyr-
irlestrar hér í höfuðborginni og
sýndar myndir. Ég veit líka að
þriðjudagurinn verður helgaður
átröskunum. Þar munum við með-
al annars sýna franska heimild-
armynd, „Á valdi lystarstols,“ sem
er afar áhrifamikil og síðan verða
umræður á eftir.
Félagsmiðstöðvarnar hafa allar
fengið geisladiska með miklu
fræðsluefni, sem síðan verður not-
að í hópastarfinu. Aðalatriðið er
að fræða unglingana því fræðsla
er lykillinn að víðsýni og fordóma-
leysi. Við viljum einnig vekja sam-
kennd hjá þeim og að hún nái til
nærumhverfis þeirra.“
Fræðsluvika um geðraskanir
SKÁLD úr ýmsum áttum koma sam-
an í kvöld, þriðjudagskvöld, á Kaffi
Reykjavík að venju, en 29. Skálda-
spírukvöldið fer fram kl. 21 í kvöld.
Þau skáld sem lesa upp úr bókum
sínum að þessu sinni eru Þorsteinn
Antonsson, Leifur Jóelsson,
Birgitta Jónsdóttir og Helga Há-
konardóttir. Þá leikur Friðríkur á
gítar frumsamin lög sín á milli at-
riða.
Þorsteinn
Antonsson
Upplestur
og ljúfir tónar
Birgitta
Jónsdóttir
Hönnunarverðlaun
FÍT voru afhent að
viðstöddu fjölmenni í
Hafnarhúsinu á föstu-
dag. Þar komu graf-
ískir hönnuðir saman
og veittu því sem
þótti hafa skarað
fram úr á sviði graf-
ískrar hönnunar á
síðasta ári verðlaun og viðurkenn-
ingar.
Verðlaun voru veitt í átta flokk-
um, var Jón Ari Helgason, hönn-
uður hjá Fíton auglýsingastofu,
hlutskarpastur í ár, en hann vann
til alls fimm verðlauna.
Eftirfarandi hlutu verðlaun og
viðurkenningar:
Bókakápur / Bókahönnun: Sig-
rún Sigvaldadóttir fyrir „Múrinn í
Kína“
Bréfagögn: Jeff Ramsey og
Dóra Ísleifsdóttir fyrir bréfagögn
Nordisk Panorama og Jón Ari
Helgason fyrir bréfagögn „EGO“.
Umbúðir: Kristján Þór Árnason
fyrir „Sól appelsínusafa“.
Plötuumslög: Að-
algeir Arnar Jónsson
fyrir „Mugimama is
this monkey music?“.
Prentað kynning-
arefni: Hildur Helga-
dóttir Zoëga fyrir árs-
skýrslu Baugs Group
2003 og Tómas Tóm-
asson fyrir ársskýrslu
Bakkavarar.
Myndskreytingar: Jón Ari
Helgason fyrir „Talað frá hjart-
anu“ Hany Hadaya fyrir „jólafrí-
merki“ og Örn Smári Gíslason fyr-
ir frímerkið „Síldarsöltun í 100 ár“.
Veggspjöld: Einar Gylfason fyr-
ir „FÍT plakat“ og Jón Ari Helga-
son og Björn Jónsson fyrir vegg-
spjald Þjóðminjasafnsins „Merki-
legir hlutir“. Þá fékk Jón Ari
Helgason fyrir „Hjálparvana,
svartnætti og vonleysi“.
Vöru- og firmamerki: Jón Ari
Helgason fyrir „EGO“. Ámundi
Sigurðsson fyrir „Transforme“ og
Stefán Einarsson fyrir merki
Skáldsagnaklúbbsins.
Hönnunarverðlaun FÍT afhent
Jón Ari Helgason
hlaut fimm verðlaun
Jón Ari Helgason
FYRSTU hádeg-
istónleikarnir í Ís-
lensku óperunni í
ár fara fram í dag
kl. 12.15 og bera
yfirskriftina:
„Vivaldi – trúar-
leg verk og óper-
ur.“ þar mun
Marta Hrafns-
dóttir altsöng-
kona flytja trúar-
leg verk og óperur eftir Vivaldi við
undirleik Sigurðar Halldórssonar á
selló og Kurts Kopeckys á sembal.
Hádegistónleikarnir standa í um
40 mínútur, svo tilvalið er fyrir þá
sem starfa eða búa í nágrenni mið-
bæjarins að bregða sér á tónleika í
hádegishléi og halda svo á ný út í
daginn endurnærðir af fagurri tón-
list. Hægt er að kaupa samlokur fyr-
ir eða eftir tónleikana.
Marta hefur m.a. sérhæft sig í
flutningi á barokktónlist, hefur
sungið á tónleikum í Belgíu, Hol-
landi og Þýskalandi. Meðal verkefna
hennar hér á landi er Guðbrands-
messa eftir Hildigunni Rúnarsdóttir,
Messías eftir Händel með Langholts-
kirkjukór og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og verkið Tengsl eftir Hjálmar
H. Ragnarsson með Kammersveit
Reykjavíkur.
Vivaldi í hádeginu í Óperunni
Kurt
Kopecky
Marta
Hrafnsdóttir
Sigurður
Halldórsson
UNGLIÐAHÓPUR Femínistafélags-
ins efnir til Gleðikvölds í Hinu hús-
inu í kvöld kl. 20. Þetta er þriðja
kvöld vetrarins og hafa undanfarar
þess tveir heppnast afar vel og
kvöldin verið fjölsótt að sögn að-
standenda.
Yfirskrift kvöldsins að þessu sinni
er klám og klámvæðing og verða
flutt tvö erindi. Þá verða umræður
um málefnið auk þess sem trúbador-
inn Þórir mun flytja lög sín.
Gleðikvöld
ungra femínista