Morgunblaðið - 15.02.2005, Page 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasalan er opin: frá kl 10:00 alla virka daga. Netfang: midasala@borgarleikhus.is
Miðasala í síma 568 8000 -
og á netinu: www.borgarleikhus.is
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“SNILLDARLEIKUR”
• Föstudag 18/2 kl 20 LAUS SÆTI
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
VS Fréttablaðið
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Áfram LA!“
S.A. Viðskiptablaðið
Óliver! Eftir Lionel Bart
Fös. 18.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 19.2 kl 20 Örfá sæti
Sun. 20.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 25.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 26.2 kl 20 Örfá sæti
Fös. 04.3 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 05.3 kl 20 Nokkur sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
3. sýn 18. feb. kl 20 - uppselt • 4. sýn. 20. feb. kl. 19 - örfá sæti laus
5. sýn. 25. feb. kl. 20 - nokkur sæti laus • 6. sýn. 27. feb. kl. 19 - nokkur sæti laus
7. sýn. 4. mars kl. 20 • 8. sýn. 6. mars kl. 19 • 9. sýn.12. mars kl. 19.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst
Vivaldi - Trúarleg verk og óperur
Hádegistónleikar þriðjudaginn 15.febrúar kl. 12.15 – Marta Hrafnsdóttir, alt
Sigurðar Halldórsson, selló og Kurt Kopecky, semball flytja verk eftir Vivaldi.
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
Frumsýning 19.feb uppselt
Mið. 23.2 nokkur sæti laus
Fös 25.2
Lau 26.2
Sun 27.2
Upplýsingar og miðapantanir
í síma 555 2222 www.hhh.is
KVIKMYND Andreis Tarkovskís
um rússneska íkonmálarann Andrei
Rublev (1370–1430) frá árinu 1966 er
besta kvikmynd um myndlist-
armann sem gerð hefur verið. Eng-
inn vafi í mínum huga. Drepur hún
m.a. á spurningunni hvort listamað-
ur eigi að taka pólitíska afstöðu til
atburða líðandi stundar eða róa á
æðri mið, næra sálina og skapa guði
til dýrðar. Út myndina undrar mann
að Rublev, sem þjáist af efa sínum
um tilvist guðs, skuli ekki taka af-
stöðu og fyrirlítur hann jafnvel fyrir
hlutleysi miðað við allan hrottaskap-
inn sem hann verður vitni að. En í
lokin þegar myndavélin rennur yfir
þá dýrð sem listmálarinn hefur
skapað er manni hins vegar fyllilega
sama um afstöðuleysi Rublevs sem
hefur fundið heilagleika í helvíti.
Kristín Gunnlaugsdóttir er list-
málari sem gengur út frá reglum
íkonmálverksins, enda nam hún
íkonagerð á Ítalíu. Í Listasafni
Reykjanesbæjar stendur nú yfir
sýning á verkum hennar undir yf-
irskriftinni „…mátturinn og dýrðin,
að eilífu…“ Þetta brot úr bæn má sjá
sem tilvísun í upprunalega merkingu
íkonmyndanna sem er ímynd til að
tilbiðja og þýðir „helgimynd“.
Umhyggjan liggur Kristínu aug-
ljóslega á hjarta. Mærin spilar
veigamikið hlutverk í verkunum og
hlúir að afkvæmum sínum. Hrein-
leiki og sakleysi eru eðlilega mik-
ilvægur þáttur í helgimyndunum.
Hafa þær yfir sér „naífan“ blæ og
tómleiki endurspeglar ástandið sem
einkennir flestar fígúrur Kristínar.
Þær bara eru og sýnast tæplega af
þessum heimi þótt þær séu oft á tíð-
um hversdagslegar í fasi.
Myndirnar eru ýmist málaðar
með eggtemperu á tré eða olíu á
striga. Þær fyrrnefndu eru minni og
unnar eftir viðtekinni tækni fyrri
alda. Handverkið er fínlegra og
skarpara en í olíumálverkunum sem
virka eilítið flatari.
Fæst okkar (ef nokkur) í vel-
megunarríkinu Íslandi hafa upplifað
og verið vitni að álíka pyntingum og
niðurlægingu og áðurnefndur
Rublev. Má því ætla að vegurinn að
helgimyndinni sé viðráðanlegri fyrir
íbúa velmegunarríkisins en um leið
auðveldara að falla í gryfju
„dekorasjónar“ og sætleika.
„Dekorasjón“ og sætleiki hafa hins
vegar fylgt íkonmálverkinu síðan á
tímum Konstantíns keisara og
gegna vissu hlutverki í fagurfræð-
inni að baki. Því er ekki að neita að
myndir Kristínar eru ansi sætar en
ég fæ þó ekki betur séð en að lista-
konan nálgist viðfangsefni sitt af
heilindum og trú, láti fagurfræði og
heilagleika ráða ferðinni. Eina sem
mér finnst miður við sýninguna er
áreiti sýningarsalarins. Ráða mynd-
irnar illa við arkitektúrinn þrátt fyr-
ir breytingar á salnum til hins betra.
Kaótísk konstrúktsjón í lofti gleypir
heildarsvipinn.
MYNDLIST
Listasafn Reykjanesbæjar
Opið alla daga frá 13–17. Sýningu lýkur
6. mars.
Málverk – Kristín Gunnlaugsdóttir
Jón B.K. Ransu
MAGNÚS Árnason er ungur mynd-
listarmaður sem nýlega lauk námi
við akademíuna í Vínarborg. Hann
var með nokkuð eftirtektarverða
innsetningu á Grasrót 2003 í Ný-
listasafninu, kofa með hræi, og sýnir
nú innsetningu í Kling og Bang-
galleríi undir yfirskriftinni „Sjúk-
leiki Benedikts“. Gengur hann út frá
svipuðum hrolli og hann gerði í Ný-
listasafninu. Virkar innsetningin
einna helst sem leikmynd fyrir ein-
hvern vírus-trylli eða geimveru-
sjúkdómamynd. Maður gengur inn í
galleríið sem er þakið möl. Birkitré
standa upp úr mölinni og birkifnyk-
urinn fyllir andrúmið. Fuglshræ
hanga á greinum sem listamaðurinn
hefur troðið með þéttifrauði sem
sýnist vera einhverskonar kýli eða
púpur fyrir geðslegar geimverur
sem hafa sprungið inni í fuglunum
og flætt út um augu og gogga. Í
næsta herbergi er hlaðin varða og
undir kraumar eitthvað dularfullt.
Það sér maður á gervigufu sem læð-
ist undan vörðunni svo maður flýtir
sér niður í kjallarann. Herbergið þar
er lokað með vír þöktum tjöru og
fiðri. Þangað þorir enginn inn nema
aðalhetja myndarinnar. Mér dettur
Hilmir Snær í hug eða Antonio
Banderas. – Spurning um „budget“.
Handan hurðarinnar er svo ógnin
sjálf, Benedikt myrkrahöfðingi.
Ég ætla nú ekki að láta uppi end-
inn. Á hann alveg út af fyrir mig. En
þetta er ekki margra stjarna sýning.
Svosem ágætis skemmtun ef maður
leyfir ímyndunaraflinu að leiða sig á
milli herbergjanna. Mikil fram-
kvæmd af hálfu listamannsins. En
heildarmyndin? Prýðilegt „propps“
fyrir B-hrylling.
MYNDLIST
Kling og Bang
Opið fimmtudaga til sunnudaga kl.
14–18. Sýningu lýkur 27. febrúar.
Innsetning – Magnús Árnason
Morgunblaðið/Ómar
Frá sýningu Magnúsar Árnasonar í Kling og Bang-galleríi.
Jón B.K. Ransu
NÚ þegar svo langt er um liðið
síðan Duchamp kollvarpaði hug-
myndum um það hvað væri list,
sýndi fram á mikilvægi hinnar
listrænu umgjarðar og tákngerði
listina, er svo komið að spurningin
um hvað sé list kemur ekki oft
upp. Það er orðið viðtekið að það
sem listamaðurinn segir að sé list,
það er list. Spurningin hefur verið
kirfilega afgreidd og aðrar hafa
komið í hennar stað. En svo gerist
það alveg að óvörum að eitthvað
kemur manni á óvart og þessi
spurning rís upp frá dauðum: Er
þetta list? Spurningin vaknaði í
Safni, við skoðun ljósmynda
Stephans Stepehensen sem hann
nefnir Air Condition, eða eins og
Bragi Ólafsson snýr því svo listi-
lega, Er kondisjón.
Í útvarpi á dögunum sagði
Stephan frá því að hann hefði ver-
ið að vinna ljósmyndaverkefni í
Hvalfjarðargöngunum og mynd-
irnar hefðu komið svona vel út,
fátt annað hafði hann um mynd-
irnar að segja því miður. Göngin
höfðu heldur enga sérstaka þýð-
ingu, það hittist bara svona á. Svo
leit þetta svona vel út.
Hvernig þessar ljósmyndir síðan
rötuðu í Safn er mér hrein spurn
en þetta er í fyrsta sinn sem ég sé
verk í þeim húsakynnum sem að
mínu mati eiga þangað ekkert er-
indi. Hér er um að ræða hið
óljósa, listræna ekkert-segjandi
yfirbragð, innihaldið er ekkert,
rétt eins og keisarinn var í engu í
ævintýrinu. Framsetning mynd-
anna er einnig óskiljanleg, þær
eru slitnar í sundur og ná ekki að
skapa neina heild, áhorfandanum
er beinlínis gert erfitt fyrir að
skoða þær og það er ekki með
ásetningi heldur einhver klaufa-
skapur.
Með góðum vilja má þó lesa út
úr þessum myndum einhvers kon-
ar viðhorf til samspils náttúru og
tækni, þar sem erfitt er stundum
að greina hvort myndefnið er af
náttúrulegum eða tæknilegum
toga. Jarðgöng eru líka málefni
sem snerta td. gerð stórvirkjana
þannig að hér mætti líka túlka
verkin sem hugsanlega nátt-
úruverndarsinnuð. Það dugir þó
ekki til að gefa þessum verkum
þann tilgang sem þau skortir svo
tilfinnnanlega og ég tek ofan fyrir
Braga Ólafssyni að geta skrifað
svona skemmtilegan og innihalds-
ríkan texta með myndunum, það
þarf sannan listamann til.
MYNDLIST
Safn
Til 27. febrúar. Safn er opið miðvikudaga
til föstudaga frá kl. 14–18 og 14–17 um
helgar.
Ljósmyndir, Stephan Stephensen
Ragna Sigurðardóttir
„Bið.“ Olíu-
málverk eftir
Kristínu Gunn-
laugsdóttur.
Úrslitin úr
enska boltanum
beint í
símann þinn