Morgunblaðið - 16.04.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 21
ERLENT
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
28
04
1
0
4/
20
05
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
Corolla - Tilfinningin er góð
Verð frá 1.755.000 kr.
Tíminn er ekki það eina sem flýgur
þegar þú ekur Corolla
Corolla er ríkulega hlaðin staðalbúnaði. Þar má nefna fjóra loftpúða fyrir
ökumann og farþega, ABS-hemlakerfi, krumpusvæði, Optitronmæla í
mælaborði og útvarpsfjarstýringu í stýri. Það er sama hvaða gerð af
Corolla höfðar til þín. Frábær hönnun, öryggi, framúrskarandi aksturs-
eiginleikar og frábært verð einkenna þær allar. Taktu skynsamlega
ákvörðun. Komdu og reynsluaktu Corolla.
RAINIER III, fursti af Mónakó, var borinn til
grafar í gær og lagður til hinstu hvílu hjá
eiginkonu sinni, bandarísku kvikmynda-
leikkonunni Grace Kelly. Báru tíu hermenn
kistuna frá höllinni í dómkirkjuna og gengu
þrjú börn þeirra hjóna næst henni, þau Car-
oline, Albert, sem nú hefur tekið við af föður
sínum, og Stephanie. Grimaldi-ættin er ein
elsta aðalsætt í Evrópu og engin evrópsk há-
tign hefur setið lengur á valdastóli en Rain-
ier. Tók hann við árið 1949 og stýrði síðan
ríki sínu í 56 ár. Var margt stórmenni við-
statt útförina. AP
Rainier fursti
af Mónakó bor-
inn til grafar
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, segir að
bresk og bandarísk stjórnvöld beri
hluta sakarinnar í hneykslismáli er
tengist áætluninni um olíu fyrir
mat sem SÞ ráku í Írak á síðasta
áratug en hún fól í sér að Írakar
fengju að selja olíu gegn því að
tekjurnar rynnu að mestu til
kaupa á mat, lyfjum og öðrum
nauðsynjum.
Hann segir að
meiri spilling
hafi verið
ástunduð utan
áætlunarinnar,
þ.e. með smygli
um Tyrkland og
Jórdaníu, en í
tengslum við
áætlunina sjálfa,
sem SÞ starfræktu.
Ummæli Annans vekja athygli í
gær hafnaði talsmaður breska ut-
anríkisráðuneytisins þeim orðum
Annans að það væri staðreynd „að
meirihluti fjármuna þeirra sem
Saddam Hussain komst yfir var
vegna smygls er ekki tengdist
áætluninni og það gerðist á vakt
Bandaríkjamanna og Breta“.
Sagði talsmaðurinn að gagnrýni
nefndar, sem rannsakað hefur
olíusöluáætlunina, hafi vikið að SÞ,
ekki einstökum ríkjum. Umrædd
rannsókn þykir hafa leitt í ljós að
Saddam Hussein, fyrrverandi for-
seti Íraks, auðgaðist verulega á ol-
íusöluáætluninni, að því er virðist
m.a. vegna spillingar hjá SÞ.
Annan hefur ekki sloppið við
gagnrýni, m.a. vegna þess að fyr-
irtæki sem sonur hans starfaði hjá,
Cotecna Inspection, var á sínum
tíma úthlutað verki í tengslum við
olíusöluáætlunina. Ekkert hefur þó
komið fram sem bendir til þess að
Kofi Annan hafi haft áhrif á það.
Annan ræddi við fréttamenn eft-
ir að fréttist að þrír menn hefðu
verið ákærðir í Bandaríkjunum
fyrir að hafa greitt embættismönn-
um Saddams milljónir dollara út
úr sjóðum olíusöluáætlunarinnar.
Gaf Annan í skyn að hann teldi að
breskum og bandarískum stjórn-
völdum hefði verið fullkunnugt um
smygl í tengslum við þessi mál en
ákveðið að loka augunum fyrir því.
Mennirnir þrír sem voru ákærð-
ir í fyrradag eru frá þremur lönd-
um; Texas-búann David Chalmers
yngri, Búlgarann Ludmil Dioniss-
iev og Bretann John Irving.
Kofi Annan
Kofi Annan segir Breta og
Bandaríkjamenn bera sök
Þrír ákærðir í
tengslum við
áætlun um olíu
fyrir mat í Írak
Santa Maria. AFP. | Janet Arvizo, móðir
drengsins sem sakað hefur Michael
Jackson um kynferðislegt ofbeldi,
sagði við réttarhöldin yfir söngvaran-
um í gær að fjölskylda drengsins
hefði alls ekki í hyggju að höfða einka-
mál á hendur Jackson í því skyni að fá
skaðabætur. „Ég vil bara að réttlætið
nái fram að ganga,“ sagði hún.
Aðalverjandi Jacksons, Thomas
Mesereau, yfirheyrði móður drengs-
ins í gær og lagði sig fram um að gera
framburð hennar ótrúverðugan. Verj-
endur Jacksons gefa í skyn að hún
hafi æft son sinn í að bera ljúgvitni
gegn Jackson eftir að hún hafi fundað
með lögmanni sem náði dómsátt í
máli sem annar drengur höfðaði gegn
söngvaranum fyrir 12 árum vegna
meints kynferðisofbeldis. Samkvæmt
sáttinni greiddi Jackson þeim dreng
20 milljónir dollara, rúmar 1200 millj-
ónir króna.
Mesereau spurði hana í gær hvort
hún vissi hvenær frestur til að höfða
einkamál á hendur Jackson nú rynni
út. Hún hikaði, en sagði síðan: „Ég
held að ég viti það. En ég hef engan
áhuga á því.“
Vann mál gegn stórverslun
Konan, sem er 37 ára, höfðaði árið
2000 mál gegn stórversluninni
JCPenny vegna kynferðislegrar
áreitni. Samkvæmt dómsátt fékk
Arvizo greidda 152.000 dollara, nær
tíu milljónir króna, í bætur eftir að ör-
yggisvörður stöðvaði hana og börn
hennar og sakaði hana um búðar-
þjófnað. Í kjölfarið höfðaði hún einka-
mál á hendur versluninni, rétt áður en
fyrningarfrestur rann út. Málið var
stutt framburði barna hennar og hún
krafðist bóta á þeim forsendum að ör-
yggisvörðurinn hefði beitt hana kyn-
ferðislegu ofbeldi við handtökuna.
Kærir ekki
Jackson