Morgunblaðið - 16.04.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 53
FRÉTTIR
SJÖTUGUR er í dag, 16. apríl, Þór-
arinn Þórarinsson, bóndi í Vogum í
Kelduhverfi. Á þessum tímamótum
er mér bæði ljúft og skylt að senda
þessum höfðingja mínar bestu árn-
aðaróskir.
Þórarinn er Keldhverfingur í húð
og hár, ef svo má segja, upprunninn
af sterkum stofni forfeðra sem yrkt
hafa landið í Kelduhverfi, einni feg-
urstu sveit landsins, um aldir. Þór-
arinn er búfræðingur frá Hólum í
Hjaltadal og hefur verið bóndi í Vog-
um frá árinu 1954, en lagt gjörva
hönd á fjölmargt annað, svo sem
vörubílaakstur og vegavinnu. Vafa-
laust er það þó búskapurinn og
heimasveitin, sem stendur hjarta
hans næst, sem lífsköllun hans og
hlutskipti.
Í einkalífi sínu er Þórarinn mesti
gæfumaður, kvæntur mikilli mynd-
ar- og greindarkonu, Maríu Páls-
dóttur frá Hofi í Hjaltadal. Saman
hafa þau fetað lífsins veg og fullyrða
má, að með þeim hjónum ríki jafn-
ræði. Segir það ekki lítið um hennar
mannkosti, því að vissulega má
segja, að Þórarinn geti verið nokkuð
stór í sniðum. Þau hjónin eiga saman
fimm börn, sem öll eru hið mesta
manndómsfólk. Á heimili þeirra
hjóna í Vogum mætir þeim sem
þangað kemur fölskvalaus alúð,
hlýja og gestrisni. Þangað er gott að
koma.
Þórarinn er maður þeirrar gerðar,
að hann hlýtur að teljast til forystu
fallinn í því sem hann tekur sér fyrir
hendur. Það er því ekki að undra að á
hann hafa hlaðist alls kyns félags- og
trúnaðarstörf. Hann sat áratugum
saman í hreppsnefnd Keldunes-
hrepps, var í stjórn Kaupfélags
Norður-Þingeyinga í nokkur ár,
einnig í forsvari fyrir félag bílstjóra
hér um slóðir og þannig mætti áfram
telja. Undirrituðum er þó vissulega
efst í huga allt það mikla og góða
starf sem hann hefur innt af hendi í
þágu kirkju- og kórastarfs hér um
slóðir.
Þórarinn hefur sungið með kór
Garðskirkju síðastliðin fimmtíu ár
og setið lengi í sóknarnefnd Garð-
skirkju sem gjaldkeri. Þá hefur hann
verið óþreytandi í því að efla sam-
starf kirkjukóra í Norður-Þingeyjar-
sýslu. Í félagi við aðra hefur hann
skipulagt fjöldann allan af kóramót-
um og tónleikum á vegum Kirkju-
kórasambands Norður-Þingeyinga.
Alltaf hafa það verið miklar sam-
komur og góðar. Þórarinn hefur
reynst sannkallaður burðarás í
kirkjulegu starfi í Kelduhverfi,
marga undangengna áratugi, vissu-
lega ásamt öðru góðu fólki. Er það
von mín, að þar verði ekkert lát á
fyrr en í fulla hnefana.
Þórarinn er maður eigi einhamur,
forkur mikill og fylginn sér, og vissu-
lega hafa á stundum blásið um hann
vindar. Ekki hefur hann kveinkað
sér undan því svo ég viti. Hann hefur
einnig þann góða hæfileika, að líta á
það sem flestir aðrir kalla hindranir
og erfiðleika, sem mál sem þarf að
leysa. Og oftar en ekki tekst honum
að finna lausnina. Um Þórarin má
líka segja, að hann stendur við það
sem lofað er, og kemur jafnan þeim
málum í höfn sem hann tekur að sér.
Á engan hátt er hann maður hálf-
velgjunnar. Þórarinn er mikill
mælskumaður, og fullyrða má að orð
hans vega þungt, þegar álitamál eru
brotin til mergjar á fundum. Hann er
eindreginn félagshyggjumaður í
besta skilningi þess orðs og virðist
hann mér í lífsskoðun fylgja skáldinu
merka sem sagði forðum: „Enginn
er eyland, einhlítur sjálfum sér.“
Þórarni eru ofarlega í huga hugtök
eins og samvinna og réttlæti, ekki
sem dauður bókstafur, heldur hvern-
ig mannfólkið getur með eigin frum-
kvæði og samtakamætti unnið að því
að bæta mannlífið. Hann veit að hag-
ur hvers manns er bundinn hag
náungans órjúfanlegum böndum. „Á
ég að gæta bróður míns?“ var eitt
sinn spurt, og ég veit að Þórarinn er
fyrir sitt leyti ekki í vafa um svarið. Í
samræmi við það hefur hann óbeit á
þeirri sérgæsku, eiginhagsmuna-
hyggju og græðgi, sem öllu tröllríður
á Íslandi nútímans.
Þeir eru vissulega kaldir, vordag-
arnir, hjá okkur sem nú lifum við
ysta haf. Í dag stendur á tímamótum
héraðshöfðingi og drengur góður,
sem lifað hefur mörg vor hér um
slóðir, bæði köld og hlý, blíð og stríð.
Það er von mín að hann eigi eftir að
lifa mörg vor enn í Kelduhverfi,
landinu sem ætíð hefur verið heimur
hans og hýst draum hans allan. Lifðu
heill!
Jón Ármann Gíslason.
ÞÓRARINN
ÞÓRARINSSON
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Félag hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu
minnir félagsmenn sína á aðalfund félagsins
sem haldinn verður á Hótel Sögu „Ársölum"
í dag, laugardaginn 16. apríl, kl. 14:00.
Mundína Ásdís Kristinsdóttir, sjúkraþjálfari
á Reykjalundi, er gestur fundarins.
Stjórnin.
Kennsla
Tónlistarskóli FÍH
auglýsir eftir umsóknum um skólavist
fyrir skólaárið 2005-2006
Innritun nýnema fyrir næsta skólaár stendur
nú yfir hjá Tónlistarskóla FÍH til 1. maí nk.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á
heimasíðu skólans www.fih.is/sk eða á skrif-
stofu skólans í Rauðagerði 27.
Allir nýnemar þurfa að taka inntökupróf
í skólann.
Umsækjendur fá bréf um miðjan maí með tíma
fyrir inntökupróf, en þau fara fram dagana
23.—25. maí.
Tónlistarskóli FÍH er framsækinn skóli með vel
menntaða úrvals kennara sem eru virkir þátt-
takendur í íslensku tónlistarlífi. Skólinn býður
nemendum sínum gott námsumhverfi og fjöl-
breytt námsframboð. Um leið eru gerðar kröfur
til nemenda hvað varðar ástundun og náms-
framvindu.
Ef þú vilt verða góður tónlistarmaður, er
Tónlistarskóli FÍH rétti skólinn fyrir þig.
Lifandi tónlist – Lifandi fólk.
Félagslíf
17.4. Stóra-Kóngsfell
- Þríhnúkar - Stóri-Bolli
Brottför frá BSÍ kl. 10:30.
Verð 2.100/2.500 kr. Fararstj.
Tómas Þröstur Rögnvaldsson.
20.4. Útivistarræktin
Staðarborg. Brottför á eigin bíl-
um úr Elliðaárdalnum kl. 18:30.
Ekkert þátttökugjald.
21.4. Brynjudalur - Kjölur -
Stíflisdalur
Brottför frá BSÍ kl. 10:30.
Verð 2.400/2.900 kr.
21.-24.4. Sumri fagnað á
Fimmvörðuhálsi - skíðaferð
Brottför á eigin bílum frá skrif-
stofu Útivistar kl. 18:00.
Verð 9.400/1.1200 kr.
Fararstj. Reynir Þór Sigurðsson.
www.utivist.is
Raðauglýsingar 569 1111
Smáauglýsingar
sími 569 1100
AFMÆLI
BANDALAG íslenskra skáta heldur
árlegt Skátaþing í Útilífsmiðstöð
skáta á Úlfljótsvatni um helgina.
Þinghaldið mun að mestu fara fram
í nýrri Strýtu sem nú hefur risið,
síðustu vikur hafa sjálfboðaliðar
lagt mikið af mörkum svo að hún
verði nothæf fyrir Skátaþing.
Skátaþing fer með æðstu stjórn í
málefnum skáta á Íslandi og að
þessu sinni er það skátadagskráin
sem aðalega er fjallað um. Til
þingsins koma fulltrúar allra
skátafélaga á Íslandi, auk stjórnar,
nefnda og ráða Bandalags íslenskra
skáta.
Þingið var sett í gær, föstudag og
standa þingstörf fram á sunnudag.
Skátar þinga
um helgina
HEIMDALLUR, Félag ungra fram-
sóknarmanna í Reykjavík suður,
Ungir frjálslyndir, Ungir jafnaðar-
menn og Ungir vinstri grænir skora
á allsherjarnefnd Alþingis að hleypa
frumvarpi um niðurfellingu fyrning-
arfrests í kynferðisafbrotamálum
gegn börnum út úr nefndinni.
Segjast ungliðar hvetja nefndar-
menn til að horfa fram hjá flokka-
dráttum og sjá hve mikið þjóðþrifa-
og mannréttindamál þetta sé.
Í tilkynningu frá ungliðasamtök-
unum segir, að breið samstaða sé um
að fella niður fyrningarfrest í kyn-
ferðisafbrotamálum gegn börnum,
ekki einungis hjá ungliðahreyfingum
stjórnmálaflokka heldur hafi rúm-
lega 10.000 einstaklingar sent áskor-
un til þingmanna í gegnum vefsíðu
samtakanna Blátt áfram. Einnig hafi
fjölmargir fagaðilar, sem allsherjar-
nefnd sendi málið til umsagnar, svo
sem Barnahús, Kvennaathvarf,
Stígamót o.fl., lýst yfir stuðningi við
frumvarpið og fagnað því.
„Í ljósi þess breiða og mikla stuðn-
ings sem málið hefur meðal almenn-
ings og sérfræðinga krefjast ung-
liðahreyfingarnar þess að málið
verði afgreitt úr allsherjarnefnd fyr-
ir þinghlé eða að þeir sem hindra
eðlilega framgöngu málsins rök-
styðji afstöðu sína til málsins opin-
berlega. Ungliðahreyfingarnar telja
að kynferðisafbrot gegn börnum eigi
að vera flokkuð með öðrum brotum
sem ekki fyrnast, svo sem mann-
drápi, mannráni, broti gegn stjórn-
arskipan ríkisins o.fl. brotum sem
teljast til alvarlegustu afbrota,“ seg-
ir í tilkynningu ungliðasamtakanna.
Sameiginleg yfirlýsing ungliðahreyfinganna
Styðja afnám fyrningarfrests
í kynferðisbrotamálum
NÝLEGA endurnýjuðu Osta- og
smjörsalan sf. og Íþróttasamband
fatlaðra (ÍF) samning um samstarf
og stuðning fyrirtækisins við starf-
semi Íþróttasambands fatlaðra.
Samningur Osta- og smjörsölunnar
sf. og Íþróttasambands fatlaðra gild-
ir fram yfir ólympíumót fatlaðra í
Peking 2008.
Þeir Sveinn Áki Lúðvíksson, for-
maður Íþróttasambands fatlaðra, og
Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og
smjörsölunnar sf., undirrituðu
samninginn.
Styðja Íþróttasamband fatlaðra
SPARISJÓÐIRNIR og ÍsMedia
skrifuðu nýlega undir samstarfs-
samning um Ávaxtakörfuna sem sett
er upp í Austurbæ. Höfundar
Ávaxtakörfunnar eru Kristlaug
María Sigurðardóttir og Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson.
Sparisjóðurinn ætlar nýta sam-
starfið til að efla starf sitt enn frekar
fyrir yngstu viðskiptavinina og
standa fyrir ýmsum leikjum sem
tengjast Ávaxtakörfunni, einnig
verður viðskiptavinum boðið á sýn-
inguna sjálfa, segir í fréttatilkynn-
ingu. Á myndinni eru t.v. Gísli
Jafetsson frá Sparisjóðnum og
Benedikt Bjarnason frá ÍsMedía að
undirrita samninginn.
Sparisjóðirnir og Ávaxtakarfan
ætla að taka upp náið samstarf
LÖGREGLAN á Blönduósi tók tíu
ökumenn fyrir of hraðan akstur í
umdæmi sínu í gær, þar af þrjá sem
voru á 130 km hraða. Lögreglan
sagði áberandi hversu margir öku-
mannanna væru ungir, en mikið
var um bíla fulla af ungu fólki á leið
á Söngkeppni framhaldsskólanna á
Akureyri. Lögreglan sagði ljóst að
ungt fólk hefði sameinast í bíla á
leið norður en hraðinn væri hins
vegar of mikill.
Hratt ekið á
söngkeppni