Morgunblaðið - 16.04.2005, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Vika íDanmörku
hertzerlendis@hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
27
70
7
03
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Hjónin Hulda Hallgríms-dóttir, kennari við Lind-arskóla í Kópavogi, ogIngi Þór Hermannsson,
markaðsstjóri neytendasviðs hjá
Olíufélaginu, brugðu sér til New
York í haust, meðal annars til að taka
þar þátt í hinu árlega New York-
maraþoni ásamt sjötíu öðrum Íslend-
ingum á aldrinum 21 til 64 ára.
Þau hafa verið að hlaupa sér til
ánægju og heilsubótar af og til sl.
fjórtán ár án þess þó að hafa tilheyrt
sérstökum hlaupaklúbbum, en hafa
haft gaman af því að taka þátt í
tveimur til þremur götuhlaupum á
ári. Árið 2000 fóru þau til Kaup-
mannahafnar og tóku þátt í hálf-
maraþoni á milli Danmerkur og Sví-
þjóðar þegar Eyrarsundsbrúin var
opnuð fyrir umferð. Ári síðar þegar
húsbóndinn stóð á fertugu skoraði
systirin Matthildur á hann að taka
þátt í London-maraþoni. „Ég neitaði
staðfastlega, því í heilt maraþon
skyldi ég aldrei láta hafa mig út í. En
þegar systir mín kom svo með þá
hugmynd fyrir um ári að hlaupa New
York-maraþon, hrundu allir múrar
þar sem hugmyndin um að hlaupa um
götur New York-borgar virkaði ótrú-
lega heillandi. Þangað höfðum við
hjónin komið í nokkur skipti og alltaf
vorum við jafn heilluð af borginni,“
segir Ingi Þór. Hulda skráði sig strax
til leiks og dóttirin Kristín Birna, sem
er 21 árs, stóðst heldur ekki mátið.
Hún sá sér leik á borði að fara til
New York í fyrsta skipti og taka þátt
í þessu ævintýri með foreldrunum.
Undirbúningur hófst í júlí á síðasta
ári og hlaupið var fjórum til fimm
sinnum í viku, stuttar vegalengdir til
að byrja með sem lengdust svo stig af
stigi. Algengustu vegalengdir voru
6–8 km á virkum dögum og 16–24 km
hlaup um helgar. Þau segjast hafa að
mestu stuðst við æfingaáætlun, sem
þau hafi fundið á vef New York Mar-
athon, en einnig hafi þau haft til hlið-
sjónar æfingaplön hlaupahópsins í
Grafarvogi.
Hlaupið um öll hverfin
Stóra stundin rann svo upp sunnu-
daginn 7. nóvember. Hlaupaleiðin,
42,2 km, lá um öll fimm hverfi New
York-borgar. Frá Staten Island um
Brooklyn, yfir í Queens, inn á Man-
hattan og þaðan yfir í Bronx og aftur
á Manhattan, inn í Harlem og eftir
endilöngum Miðgarði.
„Hlaupið var vægast sagt stórkost-
leg upplifun frá upphafi til enda. Í
hlaupinu tóku þátt 37 þúsund manns.
Talið er að 2,5 milljónir áhorfenda
hafi fylgst með sem ekki spöruðu
hvatningu, hróp og köll auk þess sem
áttatíu hljómsveitir röðuðu sér eftir
brautinni. Skrýtið var að upplifa í
Brooklyn þegar allt féll skyndilega í
dúnalogn þegar komið var inn í hverfi
strangtrúaðra gyðinga, sem stóðu við
brautina og hvöttu okkur með þögn-
inni, konur og börn öðrum megin göt-
unnar og karlar hinum megin, klædd
þykkum dökkum fatnaði í sól og átján
stiga hita.“
„Keppnisdagurinn var tekinn
snemma. Vaknað var kl. 5 að morgni
og var hlaupurum í þúsundavís keyrt
í morgunkyrrðinni í rútum frá hót-
elum inn á Staten Island. Hlaupið
sjálft hófst svo kl. 10 að morgni og
tók það allan hópinn um hálftíma að
komast yfir sjálfa ráslínuna. Þegar
hlaupinu loks lauk í Central Park,
vorum við auðvitað að niðurlotum
komin, en sælutilfinningin yfir því að
hafa lokið hlaupinu var auðvitað
þreytutilfinningunni yfirsterkari,“
segir Hulda.
Íslendingarnir voru þátttakendur í
skipulagðri hópferð á vegum Hlaupa-
ferða, lítils fyrirtækis, sem sérhæft
hefur sig í skipulagningu hlaupaferða
og hefur m.a. umboð fyrir New York-
og London-maraþon á Íslandi. Erfitt
getur reynst að komast inn í stóru
hlaupin og í reynd eru aðeins þrjár
leiðir færar. Í fyrsta lagi tryggir lág-
markstími keppnismönnum þátt-
tökurétt. Í öðru lagi geta þeir, sem
ekki stunda hlaup sem keppnisgrein,
tekið þátt í happdrætti og vonast til
að hafa heppnina með sér. Í þriðja
lagi geta menn vænst þess að komast
að í gegnum umboðsskrifstofur sem
Íslendingarnir tryggðu sér í þetta
sinn.
Tíminn fljótur að fljúga
Gist var á notalegu hóteli á besta
stað á Manhattan, Courtyard, á horni
5. breiðgötu og 40. strætis við bóka-
safnið og steinsnar frá Times-torgi
og brautarstöðinni. Ferðin varði í sex
daga og fyrir hlaupið tók hópurinn
m.a. þátt í Íslandskynningu í hinni
nýju Time Warner-byggingu á Col-
umbusar-torgi. Þar var m.a. borðað á
skemmtilegum veitingastað, sem
heitir Café Grey, og Dizzy Gillespie’s
jazzklúbbur í sömu byggingu var
heimsóttur, en þar spila á hverju
mánudagskvöldi lokaársnemar við
hinn fræga Julliard-tónlistarháskóla.
Eftir hlaupið var unnið í því að ná
úr sér harðsperrum með göngu-
túrum, m.a. um Greenwich, Soho,
Little Italy og China Town. Að sjálf-
sögðu var svo endað á Ground Zero,
þar sem tvíburaturnarnir frægu
stóðu en heyra nú sögunni til.
„New York olli okkur ekki von-
brigðum í þetta skiptið frekar en hin
skiptin. Borgin er kynngimögnuð og
erfitt er að lýsa þeirri stemmningu,
sem borgin býður upp á enda er tím-
inn fljótur að fljúga,“ segja Ingi Þór
og Hulda, sem útiloka alls ekki þátt-
töku í öðru New York-maraþoni.
Fyrir utan New York, hafa aðrar eft-
irminnilegar ferðir þeirra hjóna legið
m.a. til Ástralíu, Mexíkó City og New
Orleans.
Kynngimögnuð borg með
einstaka stemmningu
NEW YORK
Morgunblaðið/Einar Falur
Horft austur yfir Manhattan og neðsta hluta Central Park, frá íbúð á 73. hæð í Time Warner-byggingunni.
Íslenskir maraþonhlauparar áður en lagt er í’ann, frá vinstri: Kristín
Birna Ingadóttir, Ingi Þór Hermannsson, Hulda Hallgrímsdóttir, Matt-
hildur Hermannsdóttir og Sigbjörn Guðjónsson.
Hjónin Hulda Hall-
grímsdóttir og Ingi Þór
Hermannsson tóku þátt
í New York-maraþoni
ásamt 37 þúsund öðrum
þátttakendum. Þau
sögðu Jóhönnu Ingv-
arsdóttur að viðstaddar
hefðu verið 2,5 milljónir
áhorfenda.
TENGLAR
..............................................
www.skokk.com/Hlaupaferðir/
Hlaupaferðir.htm
www.nycmarathon.org
www.hotel5a.com
www.cafegray.com
www.jalc.org/dccc/c_calendar.asp
join@mbl.is
ÞEGAR maður ætlar að leigja sér bíl í útlöndum er
ágætt að hafa í huga hvað er innifalið í verðinu. Í Inter-
national Herald Tribune er greint frá reynslu manns
sem hefur tvisvar þurft að borga minni háttar skemmd-
ir á bílaleigubílum af því að tryggingin sem fylgdi með í
leigunni náði ekki til skemmdarverka og þjófnaðar. En
erfitt getur verið að lesa allan samninginn að smáa letr-
inu meðtöldu áður en keyrt er út í sumarfríið.
„Það eru því miður engin einföld svör,“ segir Richard
Broome, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Hertz, þegar
IHT spyr hvernig neytendur geti komist leiðar sinnar
um frumskóg bílaleiguviðskipta þar sem þeir þurfa að
velja og hafna. Broome bendir á að ekki henti öllum það
sama og margir valmöguleikar geti því verið af hinu
góða. Sérfræðingar á sviði neytendaverndar og bíla-
leiguviðskipta segja að galdurinn sé að fá besta verðið
með öllum tryggingum og þjónustu sem maður þarf, en
ekkert af því sem maður veit að maður þarf ekki. Það
getur t.d. verið óheppilegt að panta bílaleigubíl á Net-
inu og viðskiptavinum er ráðlagt að fara vel í gegnum
slíkar pantanir.
Sérfræðingarnir gefa einnig sex ráð sem gott er að
hafa í huga þegar leigja á bíl:
Skoðið ferðasíður á Netinu, t.d. Expedia, Trav-
elocity, Orbitz eða lastminute.com. Einnig vefi bíla-
leiganna.
Sleppið Netinu og hringið frekar því oft eru tilboð
aðeins aðgengileg í síma. Reynið nokkrar bílaleigur.
Spyrjið um afslátt, jafnvel þótt þið teljið ykkur ekki
eiga rétt á honum. Margar bílaleigur bjóða eldri
borgurum afslátt, félögum í ferðafélögum, ríkis-
starfsmönnum, handhöfum ákveðinna greiðslukorta
o.s.frv.
Athugið ferðatrygginguna, hún inniheldur oft
ákvæði um bílaleigubíla. Heimilistryggingar geta
jafnvel tekið til innbrota í bílaleigubíla, að því er IHT
bendir á.
Ef þið ákveðið að kaupa tryggingu hjá bílaleigunni,
spyrjið hvað hún tryggir. Dæmi eru um að kaupa
þurfi sérstakar tryggingar til að fá sprungið dekk
eða brotna rúðu bætt.
Íhugið að leigja bíl inni í borg en ekki á flugvelli. Hjá
sumum bílaleigum er dýrara að leigja bílinn á flug-
völlum og það gæti borgað sig að nota almennings-
samgöngur í bæinn frá flugvellinum.
NEYTENDUR | Á að leigja bíl í sumarfríinu?
Krefst yfirlegu
að ná besta
verðinu
AP