Morgunblaðið - 16.04.2005, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í STEFNUSKRÁ framboðs
Frjálslyndra og óháðra fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar var mest
áhersla lögð á velferðarmál, en upp-
hafsorð stefnuskrár framboðsins
hljóðuðu þannig:
„Framboð F-listans snýst um
fólkið í borginni og vill sérstaklega
sinna málefnum
sjúkra, aldraðra, ör-
yrkja og barnafjöl-
skyldna. Tryggja þarf
lægri þjónustugjöld og
góða þjónustu fyrir
þessa hópa.“
Tillögur um gjald-
frjálsan leikskóla í
Reykjavík falla því sér-
lega vel að stefnu
F-listans.
Málefnin ráða
Við Frjálslyndir í
borgarstjórn höfum
ekki verið á móti öllu
sem meirihlutinn gerir,
eins og virðist loða við
hinn minnihlutaflokk-
inn. Við studdum meðal
annars hækkun útsvars
í borginni, sem við töld-
um óhjákvæmilegt til
að mæta auknum kröf-
um sem gerðar eru til
grunnskólans. Við höfn-
uðum hins vegar hækk-
unum R-listans á fasteignagjöldum
og á leikskólagjöldum barna náms-
manna ásamt ýmsum öðrum gjald-
skrárhækkunum, þ.á m. hjá Orku-
veitu Reykjavíkur, sem bitna
harðast á eldri borgurum og barn-
mörgum fjölskyldum. F-listinn hefur
einnig barist gegn áformum R-
listans um niðurskurð á félagsstarfi
aldraðra, sem gengur þvert á stefnu
hans.
F-listinn er eindregið á móti for-
gangsröðun stjórnvalda í landinu í
skattamálum, þar sem áhersla er
lögð á lækkun gjalda á stóreignafólk
og stórfyrirtæki en gjöld og álögur
hækkuð á almenningi og barna-
fjölskyldum, öldruðum og öryrkjum
er ekki hlíft sem skyldi. Í samræmi
við þetta flutti F-listinn þegar í byrj-
un þessa kjörtímabils tillögu í borg-
arstjórn Reykjavíkur, þar sem skor-
að var á stjórnvöld að
hækka skattleysismörk
fremur en að lækka
álögur á breiðustu bök-
in í þjóðfélaginu.
Ólíkt hafast
menn að
Í samræmi við áð-
urnefndar áherslur
flutti F-listinn tillögu í
borgarstjórn Reykja-
víkur haustið 2003 um
lækkun fargjalda
barna, unglinga, aldr-
aðra og öryrkja hjá
Strætó bs. og sl. haust
flutti F-listinn tillögu
um niðurfellingu
strætófargjalda hjá
þessum hópum. R-list-
inn hefur hafnað báð-
um tillögunum.
Hér er um þýðing-
armikið mál að ræða
gagnvart fjölskyldum í
borginni og í þeirri við-
leitni að auka nýtingu
almenningsamgangna til að draga úr
yfirgengilegri notkun einkabíla með
tilheyrandi sliti á götum borgarinnar
ásamt mikilli mengun.
Meðhöndlun R-listans á strætó-
tillögu F-listans endurspeglar ekki
aðeins slaka framgöngu R-listans í
fjölskyldumálum heldur einnig í um-
hverfis- og umferðarmálum, þar sem
óásættanlega töf á mislægum gatna-
mótun Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar ber hæst. Það síðast-
nefnda minnir raunar á andstöðu
eins fulltrúa R-listans í skipulags- og
umferðarnefnd á sínum tíma við mis-
læg gatnamót Skeiðarvogs og Miklu-
brautar af „umhverfisástæðum“.
Þar var algjörlega litið framhjá
þeirri staðreynd að mislæg gatna-
mót stórfækka slysum eins og sann-
ast hefur á gatnamótum Miklubraut-
ar og Skeiðarvogs. Fækkun slysa í
umferðinni á höfuðborgarsvæðinu er
að mati F-listans eitt þýðingarmesta
mál borgarsamfélagsins og sann-
kallað umhverfismál.
Lægri gjöld fyrir
barnafjölskyldur
Um árabil var gjaldtaka vegna
heilbrigðisþjónustu sú sama hjá
börnum og fullorðnum. Þetta breytt-
ist til hins betra í heilbrigð-
isráðherratíð Ingibjargar Pálma-
dóttur þegar gjöld barna undir 18
ára aldri voru lækkuð til samræmis
við gjöld aldraðra og öryrkja. Sú
breyting var í samræmi við tillögur
sem undirritaður hafði lagt fram árið
1991. Hún er enn í fullu gildi þrátt
fyrir að í landinu sitji ríkisstjórn sem
fyrst og fremst skarar eld að eigin
köku og einkavina sinna.
R-listinn í borgarstjórn hefur hins
vegar endurtekið hnekkt samþykkt
borgarstjórnar á tillögu undirritaðs
frá árinu 1994 um lág strætófargjöld
unglinga og hefur tvívegis tvöfaldað
þau. Það verður væntanlega hlut-
skipti F-listans að leiðrétta þessar
hækkanir R-listans á strætófar-
gjöldum eftir næstu borgarstjórn-
arkosningar.
Enginn þarf að velkjast í vafa um
að F-listinn mun fylgja eftir stuðn-
ingi sínum við gjaldfrjálsan leikskóla
á næsta kjörtímabili í samræmi við
áherslur hans í fjölskyldu- og vel-
ferðarmálum.
Lægri þjónustugjöld
fyrir barnafjölskyldur
Ólafur F. Magnússon fjallar um
málefni á stefnuskrá F-listans
Ólafur F. Magnússon
’Tillögur umgjaldfrjálsan
leikskóla í
Reykjavík falla
sérlega vel að
stefnu F-list-
ans.‘
Höfundur er læknir og borgarfulltrúi.
BJÖRN Bjarnason
hefur nú lagt Össuri
lið í baráttunni við
Ingibjörgu Sólrúnu og
umræðustjórnmálin,
en þeir félagar úr
Þingvallanefnd virðast
báðir andvígir því hug-
taki. Í pistli á netsíðu
sinni amast Björn við
því að Morgunblaðið
segi fréttir af Ingi-
björgu Sólrúnu en
vitnar stórhrifinn í
skammargrein um
hana í DV eftir stuðn-
ingsmann Össurar,
Pál Baldvin Baldvins-
son. Össur er
skemmtilegur maður
og drengur góður og
hann er afar mik-
ilvægur fyrir Samfylk-
inguna. En Björn
Bjarnason styður
hann.
Sjálfur styð ég hins
vegar Ingibjörgu Sól-
rúnu.
Það er erfitt að
þurfa að gera upp á
milli tveggja góðra
kosta en við megum
heldur ekki vera of
skelfingu lostin yfir
því að þetta fólk bjóði
sig fram. Ég lít svo á að þótt ég þiggi
krafta Ingibjargar Sólrúnar til for-
ystu sé ég ekki að afþakka krafta
Össurar og ég ætlast til þess að þau
vinni áfram saman eftir formanns-
kjörið. Ég styð Ingibjörgu Sólrúnu
til formanns af sömu ástæðum og
Björn Bjarnason gerir
það ekki: ég held að hún
sé líkleg til að breyta
valdahlutföllum í land-
inu en líka sjálfri um-
gengninni við vald. Ég
held að hún óttist völdin
ekki um of eins og vill
loða við vinstri menn og
hafi ekki of mikla nautn
af þeim heldur. Mér
finnst hún ekki líkleg til
ofstopa af því tagi sem
við höfum séð að und-
anförnu hjá ráðamönn-
um. Ég held hún láti
ekki dynti ráða för. Mig
grunar að fleiri en ég
hafi fengið sig fullsadda
af því gerræðisfulla
strákaklíkuræði sem
einkennir landstjórnina
um þessar mundir.
Og loks langar mig í
mikilli vinsemd að biðja
Einar Karl Haraldsson
og aðra gamla félaga
Össurar að láta ekki
gamla ósiði frá Þjóðvilj-
anum ná tökum á sér.
Tilraunir þeirra til að
varpa rýrð á störf Ingi-
bjargar Sólrúnar eru
hálfleiðinlegar og ekki
líklegar til að til að afla
Össuri Skarphéðinssyni
stuðnings annarra en
kannski Björns Bjarnasonar – sem
studdi hann fyrir.
Björn Bjarnason
styður Össur
Guðmundur Andri Thorsson
fjallar um formannskosningar
í Samfylkingunni
’Ég lít svo á aðþótt ég þiggi
krafta Ingi-
bjargar Sól-
rúnar til forystu
sé ég ekki að af-
þakka krafta
Össurar og ég
ætlast til þess að
þau vinni áfram
saman eftir for-
mannskjörið.‘
Höfundur er rithöfundur og kjósandi.
Guðmundur Andri
Thorsson
Dr. Sigríður Halldórsdóttir:
Skerum upp herör gegn heim-
ilisofbeldi og kortleggjum
þennan falda glæp og ræðum
vandamálið í hel.
Svava Björnsdóttir: Til þess
að minnka kynferðisofbeldi
þurfa landsmenn að fyr-
irbyggja að það gerist. For-
varnir gerast með fræðslu al-
mennings.
Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræð-
isþróun á Íslandi hefur, þrátt
fyrir allt, verið til fyrirmyndar
og á að vera það áfram.“
Pétur Steinn Guðmundsson:
„Þær hömlur sem settar eru á
bílaleigur eru ekki í neinu sam-
ræmi við áður gefnar yfirlýs-
ingar framkvæmdavaldsins,
um að skapa betra umhverfi
fyrir bílaleigurnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöð-
unni er að láta TR ganga inn í
LHÍ og þar verði höfuðstaður
framhalds- og háskólanáms í
tónlist í landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er
ein af þeim sem heyrðu ekki
bankið þegar vágesturinn kom
í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekn-
ingarlítið menntamenn og af
góðu fólki komnir eins og allir
þeir, sem gerast fjöldamorð-
ingjar af hugsjón. Afleiðingar
þessarar auglýsingar gætu því
komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn að
halda í þeirri list að þola góða
daga en á helvítisprédikunum á
valdi óttans eins og á galdra-
brennuöldinni.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
LÓÐASKORTUR í borginni hefur
leitt til þess að lóðaverðið á Norð-
lingaholti hefur hækkað gríðarlega
með öllum þeim alvar-
legu afleiðingum sem
það hefur í för með sér.
Í nóvember árið 2001
var kynnt niðurstaða
dómnefndar um
rammaskipulag að
nýju byggingarlandi
borgarinnar í suð-
urhlíðum Úlfarsfells,
Höllum og Hamra-
hlíðalöndum. Sam-
kvæmt skipulaginu er
gert ráð fyrir að þar
rísi blönduð íbúðar- og
athafnabyggð með um
20 þúsund íbúum þegar
svæðið verður full-
byggt.
Yfirlýsingar
um lóðaúthlutun
Í viðtali við frétta-
mann ríkissjónvarpsins
hinn 8. nóvember árið
2001 svaraði þáverandi
formaður skipulags- og
byggingarnefndar og
núverandi borgarstjóri,
Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, þeirri spurn-
ingu fréttamannsins
hvenær yrði byrjað að
vinna þarna eða
byggja, með eftirfar-
andi hætti: „Við ætlum
að úthluta á næsta ári
(þ.e. árið 2002 fyrir
kosningar) og byggingarhæfar lóðir
verða þá væntanlega tilbúnar eftir tvö
ár.“
Þetta loforð hefur enn ekki verið
efnt, nú þremur árum síðar. Þessi yf-
irlýsing um lóðamál í Reykjavík er
einkennandi fyrir svo margar aðrar
yfirlýsingar borgarfulltrúa R-listans
um lóðamál í borginni, ýmist mark-
lausar eða beinlínis rangar. Til dæmis
hafa nokkrir borgarfulltrúar R-list-
ans fullyrt nýlega í vandræðagangi
sínum um lóðaskortinn í Reykjavík að
aldrei fyrr í sögu Reykjavíkur hafi
verið úthlutað jafn mörgum lóðum
fyrir íbúðarbyggð eins og á síðasta
ári. Þetta er rangt. Á árunum 1983 og
1984, þegar íbúar borgarinnar voru
u.þ.b. 25 þúsund færri en í dag, var
úthlutað fleiri lóðum árlega fyrir
íbúðarbyggð en á síðasta ári.
Hvers vegna var
ekki úthlutað?
En hvers vegna var ekki úthlutað
lóðum í Úlfarsfelli árið
2002 eins og fullyrt var
að gert yrði? Er skýr-
ingin e.t.v. sú að hinn 13.
febrúar árið 2002 var
undirritaður samningur
milli byggingarfyr-
irtækisins Rauðhóls ehf.
og Reykjavíkurborgar
um uppbyggingu á
Norðlingaholti og segir
m.a. í 13.gr.: „Þegar nið-
urstaða útboðs á bygg-
ingarrétti í hverjum
áfanga liggur fyrir skulu
samningsaðilar meta
hvort ástæða sé til að
hafna tilboðum eða
fresta viðkomandi
áfanga eða hluta hans,
s.s. ef mikið lóðafram-
boð leiðir til þess að ekki
náist fram ásættanlegt
verð, eða ef eftirspurn
eftir lóðum í viðkomandi
áfanga er ekki nægj-
anleg.“
Þessi setning í sam-
komulaginu hvetur síð-
ur en svo til þess að
borgin auki lóðaframboð
á byggingarlóðum.
Þvert á móti má fullyrða
að hún hafi leitt til þess
að borgin hafi takmark-
að lóðaframboðið. Þann-
ig er meðvitað stuðlað
að því að hækka lóða-
verð í borginni.
Alvarlegar afleiðingar
lóðaskortsins
Lóðaskortur í borginni hefur leitt
til þess að lóðaverðið á Norðlingaholti
hefur hækkað gríðarlega með öllum
þeim alvarlegu afleiðingum sem það
hefur í för með sér, hærra söluverði
íbúða og stórhækkandi fast-
eignagjöldum. Ljóst er að R-listinn
hefur hvorki getu né vilja til að auka
lóðaframboðið, sem er mikilvæg for-
senda þess að lækka húsnæðis-
kostnað í borginni.
Að búa til
lóðaskort
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
fjallar um lóðamál
í höfuðborginni
’Lóðaskortur íborginni hefur
leitt til þess að
lóðaverðið á
Norðlingaholti
hefur hækkað
gríðarlega með
öllum þeim al-
varlegu afleið-
ingum sem það
hefur í för með
sér …‘
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Höfundur er oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
NÚ FYRIR örstuttu var hringt í
mig frá stuðningsmannaskrifstofu
Össurar Skarphéðinssonar, vildi
viðmælandi minn
senda mér und-
irskriftarblað til
stuðnings Öss-
uri. Ég tjáði
manninum að
Samfylking-
armaður væri ég
ekki og yrði
aldrei og því
hefði það enga
þýðingu. Hann
kvaðst geta skráð mig í flokkinn
og svo út úr honum aftur, en fyrir
svoleiðis leikaraskap þvertók ég,
enda álít ég að menn eigi að kom-
ast áfram af eigin verðleikum.
Eins veit ég að hringt hefur verið í
fjölda vinnufélaga minna með ná-
kvæmlega það sama.
Síðan kemur flokkurinn með það
í útvarpi, að Sjálfstæðisflokkur sé
að afla Össuri fylgis. Ekki fæ ég
séð hvaða hag Sjálfstæðisflokkur
hefði af því, held bara að Samfylk-
ing sé orðin hrædd um klofning og
vanti blóraböggul, þegar púðurt-
unnan springur. Tel frekar að
Samfylkingin ætti að líta sér nær
áður en hún fellir dóma um vinnu-
brögð annarra. Enda gömul sann-
indi og ný að auðveldara sé að sjá
flísina í auga bróðurins en bjálk-
ann í eigin.
Forustan er fráleitt sling
furðulegt er svoddan þing.
Á fullum dampi fer í hring
fráleitt vitkast Samfylking.
GUNNAR THORSTEINSSON,
strætisvagnastjóri.
Slagur ársins
Frá Gunnari Thorsteinssyni
Gunnar
Thorsteinsson
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið