Morgunblaðið - 27.04.2005, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bólusetningar gegn smitsjúkdómum;
árangur og væntingar
Málþing fyrir almenning og ráðamenn, haldið í tilefni
af degi ónæmisfræðinnar
Laugardaginn 30. apríl 2005, kl 13-16
í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8, Rvk
Dagskrá:
13:00-13:10 Friðrika Harðardóttir, formaður Ónæmisfræðifélags
Íslands: Dagur ónæmisfræðinnar; hvers vegna?
13:10-13:20 Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra: Ávarp.
13:20-13:40 Ingileif Jónsdóttir, dósent: Bólusetningar gegn
smitsjúkdómum; hvað gegn hverju?
13:40-14:00 Þórólfur Guðnason, læknir: Bólusetningar á Íslandi;
sögulegt yfirlit.
14:00-14:20 Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, læknir: Íslenskar rannsóknir á
bólusetningum gegn pneumókokkasýkingum; við getum
lagt okkar að mörkum!
14:20-14:40 Kaffihlé
14:40-15:00 Þórólfur Guðnason, læknir: Bólusetningarátak á Íslandi
gegn meningókokkum C; árangur strax?
15:00-15:20 Ólafur Guðlaugsson, læknir: Varnir gegn
fuglaflensufaraldri; hvað er til ráða?
15:20-15:40 Þórólfur Guðnason, læknir: Eru bólusetningar hættulegar?
15:40-16:00 Ingileif Jónsdóttir, dósent: Bólusetningar til að vernda
nýbura; framtíðarsýn.
Fundarstjóri er Friðrika Harðardóttir, formaður Ónæmisfræðifélags Íslands.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Heilbrigðisstarfsfólk er sérstaklega hvatt til að mæta.
Dagur ónæmisfræðinnar
http://www.dayofimmunology.org/
Ónæmisfræðifélag Íslands
http://www.hi.is/fel/onaemi/
Við erum alveg að hafa þetta, vinur, ég þarf ekki orðið að nota nema puttana á annarri
hendinni til að telja þessa titti.
Hinn fyrsta maínæstkomandilækkar smásölu-
álagning á flestum lyfseð-
ilsskyldum lyfjum um 3%,
þ.e. lyfjum sem kosta undir
1.000 kr. eða yfir 1.200 kr.
Þetta er hluti af áfanga-
lækkunum á smásölu- og
heildsöluálagningu en í
september 2006 er stefnt
að því að heildsöluverð
verði hliðstætt meðalverði
í Danmörku, Noregi og
Finnlandi. Í nóvember
sama ár er svo stefnt að því
að smásöluverð verði svip-
að og meðalverð í Danmörku og
Finnlandi.
Spurningar hafa vaknað hvers
vegna miðað sé við Finnland í þess-
um efnum þar sem smásöluverð sé
hæst meðal Norðurlandanna. Páll
Pétursson, formaður lyfjagreiðslu-
nefndar, sem ákveður leyfilega há-
marksálagningu lyfseðilsskyldra
lyfja í heildsölu og smásölu hér-
lendis, segir rétt að Finnar séu
með hæstu smásöluálagninguna en
endanlegt verð sé svipað því sem
gerist í Svíþjóð. Enginn virðis-
aukaskattur er lagður á lyfseðils-
skyld lyf í Svíþjóð en skatturinn er
8% í Finnlandi. Aðspurður segir
Páll að ákveðið hafi verið að miða
við Finnland í þessum efnum
vegna þess að lyfsalar hefðu talið
sanngjarnara að miðað væri við
það land heldur en ef einvörðungu
væri miðað við Danmörku, Noreg
og Svíþjóð. Páll segir bæði heild-
og smásölu vera í einni keðju í Nor-
egi og þá væri allur gróði tekinn í
heildsölunni en ekki í smásölunni.
Hann bendir á að í Svíþjóð eigi rík-
ið alla lyfjasölu þar sem sænsk
stjórnvöld hafi talið hagkvæmast
að ríkið sæi um lyfjasölu.
Annað sem studdi það að taka
Finnland með í reikninginn, að
mati Páls, er að svipaðar aðstæður
séu þar og á Íslandi auk þess sem
Finnland hafi komið sér upp með
formlegum hætti ákveðinni lyfja-
stefnu sem talin er vera mjög til
fyrirmyndar. Í því er fólgið hvern-
ig lyf séu notuð og einnig hvernig
greiðsluþátttöku sé háttað. Ekki
hefur verið komið á formlegri lyfja-
stefnu í Danmörku, Noregi og Sví-
þjóð en verið er að vinna að slíkri
stefnu hérlendis og er þá tekið mið
af stefnu Finna að sögn Páls.
Aðstæður á Norður-
löndunum bornar saman
Páll segir að ákveðið hafi verið
að setja saman vinnuhóp sem ætl-
að sé að fara yfir og bera saman að-
stæður á Norðurlöndunum hvað
snertir lyfsölu. Í löndunum er
margt sem er ólíkt í þessum efnum
s.s. hvað varðar skattheimtu auk
þess sem gerðar eru mismunandi
kröfur til lyfsölu í þessum löndum
að sögn Páls. Bendir hann á að
meiri kröfur hafi verið gerðar til
lyfsölu hér á landi í sumum tilvik-
um en annars staðar og taka þyrfti
tillit til þess annaðhvort með því að
slaka á þessum kröfum eða meta
þær til verðs.
Aðspurður segir hann stífar
kröfur gerðar hérlendis um
umönnun apóteka, hámarksfjölda
lyfseðla sem hver lyfjafræðingur
má afgreiða á dag auk þess sem
gerðar séu strangar kröfur til hús-
næðis hér. T.a.m. þá mega starfs-
menn lyfjaverslunar ekki hafa
sameiginlega snyrtingu með ann-
arri starfsemi í viðkomandi hús-
næði. Páll bendir á að á móti komi
að á einhverjum sviðum séu gerðar
meiri kröfur á Norðurlöndunum
hvað þetta snertir. „Það sem okkur
þykir skynsamlegt að laga munum
við gera tillögu um til ráðherra, að
öðrum kosti meta það til verðs, eða
reyna að gera sér grein fyrir
kostnaðinum af því,“ segir Páll.
Hann segist eiga von á því að
vinnuhópurinn taki til starfa fljót-
lega, en hann samanstendur af
fimm manns. Tveir koma frá lyfja-
greiðslunefnd, tveir frá lyfsölum
auk oddamanns. Báðir aðilar hafa
sameiginlega farið fram á að fá
ákveðinn aðila sem oddamann en
beðið er eftir að fá endanlegt já-
kvætt svar.
Fyrsta skref lækkunar á lyfja-
verði kemur til framkvæmda 1.
maí nk. Þá lækkar álagningarpró-
senta á flestum lyfseðilsskyldum
lyfjum um 3%, en hins vegar
hækkar krónutöluálagningin um
90 kr. En álagningu er annars veg-
ar skipt í prósentur og hins vegar í
krónutölu. „En þetta verður til
lækkunar á nærri því öllum lyfj-
um,“ segir Páll. Hann segir enn-
fremur að það sé ljóst að lyf hér-
lendis séu dýrari en á Norður-
löndunum en verið sé að draga úr
þessum mun.
Hann segir lyfjagreiðslunefnd
vinna að því að undirbúa lækkun á
heildsöluverði lyfja sem tekur gildi
1. september nk. Hann segir ekki
liggja nákvæmlega fyrir hversu
mikil lækkunin verði en segir að
hún verði töluverð. Tveimur mán-
uðum síðar, hinn 1. nóvember,
lækkar smásöluverð svo á nýjan
leik. Heildsöluverðið lækkar svo
aftur ári síðar, eða 1. september
2006. „Það verður þá jafnt heild-
söluverði í Noregi, Danmörku og í
Svíþjóð,“ segir Páll og bætir því við
að 1. nóvember sama ár verði smá-
söluverð orðið hliðstætt því sem
það er í Danmörku og Finnlandi.
Fréttaskýring | Fyrsti áfangi lækkunar á
lyfseðilsskyldum lyfjum verður 1. maí nk.
Lyfseðilsskyld
lyf lækka
Vinnuhópur skipaður til þess að bera
saman aðstæður á Norðurlöndunum
Lyfjaverð lækkar í áföngum fram á næsta ár.
Verð verði sambærilegt og
hjá öðrum Norðurlöndum
Í 4. gr. reglugerðar um lyfja-
greiðslunefnd segir: „Til að ná
markmiðum lyfjalaga um að
halda lyfjakostnaði í lágmarki
skal lyfjagreiðslunefnd sjá til
þess að lyfjaverð hér á landi sé
að jafnaði sambærilegt við verð í
viðmiðunarlöndum á Evrópska
efnahagssvæðinu, sem eru Dan-
mörk, Finnland, Noregur og Sví-
þjóð.“ Þá skal nefndin fylgjast
með verðlagningu lyfja í heild-
og smásölu og greiðsluþátt-
tökuverði í þessum löndum.
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is