Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 4

Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÚ ER KOMIÐ AÐ ÍSLANDI M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Síðustu áratugi hefur gengið sannkallað Thomas-Bernhard- æði meðal evrópskra bókmenntaunnenda. Nú er komið að Íslandi! STEINSTEYPA EFTIR THOMAS BERNHARD SINUELDUR kviknaði undir Geitafelli við Þrengslaveg um eittleytið í gær, en björgunar- þyrla Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli var þar við æfingar. Að sögn lögreglunnar á Sel- fossi kviknaði eldur út frá blysi sem notað var við æfinguna og dreifðist um stórt svæði. Að sögn lögreglu fór allt tiltækt slökkvilið frá Þorlákshöfn og Hveragerði á staðinn en slökkvistarf gekk erfiðlega og var því kallað eftir hjálp frá Reykjavík. Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins (SHS) sendi vatnsbíl með átta tonn af vatni á vettvang og tvo menn til að- stoðar. Búið var að ráða niðurlögum eldsins um klukkan hálffimm í gær. Snorri Baldursson, slökkviliðsstjóri í Hvera- gerði, sagði að um mikinn eld hafi verið að ræða og aðstæður ekki áskjósanlegar sökum breytilegrar vindáttar. Telur hann að gróður hafi brunnið á um 10 hektara svæði. Að sögn Snorra komu 30 manns að slökkvistarfinu; átján frá Hveragerði, 10 frá Þorlákshöfn og tveir frá Reykjavík. Morgunblaðið/RAX Blys olli miklum sinueldi á um 10 hektara svæði HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, virðir hér fyrir sér ásamt forseta skoska þingsins, George Reid, hraunstein frá Þingvöll- um sem Alþingi færði skoska þinginu að gjöf sl. haust. Að sögn Halldórs er heiðargæsaregg úr graníti ofan á steininum með áletruninni „Með lögum skal land byggja“. Egginu hefur nú verið komið fyrir í garði skoska þinghússins í Edinborg en Halldór bendir á að egg heiðargæsarinnar hafi orðið fyrir val- inu þar sem heiðargæsin verpir á Íslandi og fer svo til Skot- lands yfir vetrartímann. „Okkur hefur verið tekið með kostum og kynjum. Það er gaman að koma aftur í þetta glæsilega þinghús og við höfum átt mjög gagnlegar viðræður bæði við forseta skoska þingsins, George Reid, og aðra þingmenn,“ segir Halldór en hann hefur ásamt íslenskum þingmönnum kynnt sér starfsemi skoska þingsins og unnið um leið að efldum tengslum milli þjóðanna. Halldór segir það hafa verið áhugavert að fá að fylgjast með spurningartíma í skoska þinginu, þar sem forsætisráðherra var spurður út úr. „Það var skemmtilegt að sjá þau hvössu orða- skipti sem þar voru.“ Með Halldóri í för eru alþingismennirnir Einar K. Guðfinns- son, Össur Skarphéðinsson, Ögmundur Jónasson og Vigdís Jónsdóttir frá skrifstofu Alþingis. Heimsókninni lýkur í dag. „Okkur hefur verið tekið með kostum og kynjum“ Halldór Blöndal og Georg Reid, forseti skoska þingsins, við höggmynd Sigurðar Guðmundssonar í garði skoska þingsins, en höggmyndin var gjöf Al- þingis við opnun þinghússins í Edinborg 2004. FJÖGURRA metra þykkt vikurlag hefur varðveitt býlið Bæ, sem er skammt frá Fagurhólsmýri, í tæp- lega 650 ár, eða allt frá því að hann fór undir gos úr Öræfajökli árið 1362. Bjarni F. Einarsson fornleifa- fræðingur hefur ásamt fleirum grafið upp bæjarstæðið og hreins- að af vikri og var komin bæj- armynd á svæðið þegar ljósmynd- ara Morgunblaðsins bar að garði í gær. Eins og sjá má á loftmyndinni var bæjarstæðið nokkuð stórt og vel byggt. Hlaða og fjós voru í herberginu sem er lengst til hægri á myndinni. Til vinstri frá hlöðunni og fjósinu má sjá fimm herbergi sem tengjast öll um aðalgang. Efst á ganginum hægra megin er eldhús, þar fyrir neðan skáli og inn af honum leiðir lítið herbergi sem áður var búr. Neðst á ganginum telur Bjarni að annað búr hafi verið og vinstra megin á ganginum var eldhús. Ekki er vitað hvað var í herberg- inu fyrir ofan eldhúsið en í hring- laga rýminu þar fyrir ofan, sem sést betur á hinni myndinni, telur Bjarni hins vegar að hvalspik hafi verið geymt og lýsið látið renna úr því en hvalrekar voru algengir á þessum slóðum áður fyrr. Engir munir hafa fundist á bæj- arstæðinu enn sem komið er, að sögn Bjarna, en ljóst er að talsvert af munum var tekið eftir að Bær fór í eyði. Í fjallsrót eldgossins Bær er aðeins í um tveggja til þriggja kílómetra fjarlægð frá tindi Öræfajökuls og hefur í raun staðið í fjallsrótinni þegar eldgosið hófst. Vikurlagið sem lagðist yfir bæinn eftir gosið var enda þykkt og hefur það haldið bænum heil- legum síðan, að sögn Bjarna. Lengi vel gengu munn- mælasögur um að býli væri grafið undir vikurlaginu og segir Bjarni að árið 1918 hafi maður að nafni Ari fundið kvarnarstein á svæðinu. Barnabarn Ara, Sigurður Björns- son, einn Kvískerjabræðra, hafði alla tíð mikinn áhuga á að finna bæinn og var farið í það af fullum krafti fyrir nokkrum árum, m.a. með því að grafa prufuholur á svæðinu og sýndu þær svo ekki varð um villst að búið hafði verið á Bæ. Bjarni segir það mikla vinnu að hreinsa bæjarstæðið af vikri og næsta skref sé að safna fjármagni til áframhaldandi uppgraftar á svæðinu. Markmiðið sé svo að gera Bæ að ferðamannastað. 650 ára gamall bær grafinn upp við Fagurhólsmýri Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Morgunblaðið/RAX Bæjarstæðið séð úr lofti. Á miðri mynd má sjá Bjarna F. Einarsson forn- leifafræðing og Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörð. Talið er að í kerinu hafi hvalspik verið geymt og lýsi látið renna úr. Vikurinn varðveitti bæjarstæðið MAÐUR sem ákærður var fyrir að hjálpa fjór- um kínverskum ungmennum hingað til lands með ólöglegum hætti, með það fyrir augum að koma þeim ólöglega til Bandaríkjanna, var dæmdur í sex mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær, eftir að hafa játað brot sitt að fullu. Ekki tókst að sanna mansal. Maðurinn, sem er rúmlega fertugur frá Singapúr, var handtekinn á Keflavíkurflugvelli um miðjan maí með þremur konum og karl- manni, sem framvísuðu vegabréfum öðrum en sínum eigin við komuna til landsins frá Eng- landi. Talið er að hann hafi verið fylgdarmaður þeirra á leið þeirra til Bandaríkjanna. Nú hefur verið sannreynt að fólkið sem var með honum í för er frá Kína, og er á aldrinum 19–24 ára, en á tímabili var talið að konurnar væru 15–17 ára. Málið var tekið fyrir í héraðsdómi í gær, og játaði ákærði að hafa brotið gegn útlendingalög- um með því að aðstoða fólkið að komast ólöglega til landsins, en verjandi hans tók fram að brotið hefði verið framið af gáleysi. Ákæruvaldið krafðist þess að maðurinn yrði dæmdur í sex mánaða fangelsi, og gerði ákærði ekki athugasemd við þá kröfu. Var hann í kjöl- farið dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar, að frádregnum þeim tíma sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Hann var einnig dæmdur til að greiða allan sakarkostnað. Maðurinn unir dómnum. Eyjólfur Ágúst Kristjánsson, fulltrúi Sýslu- mannsins á Keflavíkurflugvelli, flutti málið fyrir hönd ákæruvaldsins, og sagði hann fyrir dómi að brot mannsins hefði verið angi af alþjóðlegri glæpastarfsemi, það hefði verið vel undirbúið og stofnað frelsi fjögurra ungmenna í hættu. Í sam- tali við Morgunblaðið segir hann að þó grunur hafi leikið á því að um mansal hafi verið að ræða hafi ekki verið hægt að færa sönnur á það, mað- urinn hafi ekki verið kominn á áfangastað með fólkið, og brotið því í raun ekki fullframið. „Þarna erum við með fórnarlömb sem vita ekki að þau eru fórnarlömb. Þau halda að þau séu á leið til betra lífs, og allur þeirra vitnisburð- ur er í þá átt. Brotið gagnvart þeim er ekki full- framið,“ segir Eyjólfur. Ferðalög fólksins áður en það kom hingað til lands voru umfangsmikil, og fóru þau til samtals sjö landa á um einum mánuði áður en þau komu hingað til lands. Ekki er óalgengt að slíkt eigi við í málum sem þessum. Ekki ljóst hvað verður um fólkið Spurður um hvað bíði fólksins sem maðurinn smyglaði hingað til lands segir Eyjólfur að það verði ekki ákært, en verið sé að fara yfir mál þess í stjórnkerfinu og því ekki ljóst hvað verði um það. Þau hafa tímabundin dvalarleyfi hér á landi á meðan mál þeirra eru til skoðunar. Eyj- ólfur segir að í sambærilegum málum, sem upp hafa komið undanfarið, hafi fólk í þessari stöðu yfirleitt farið fram á að fá að snúa aftur heim. Dóminn kvað upp Gunnar Aðalsteinsson hér- aðsdómari. Málið flutti fyrir hönd ákæruvalds- ins Eyjólfur Ágúst Kristjánsson, en skipaður verjandi ákærða var Sveinn Andri Sveinsson hrl. Hlaut sex mánaða fangelsi fyrir að smygla fólki Ekki hægt að ákæra manninn fyrir mansal Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.