Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 6

Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.urvalutsyn.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 85 97 06 /2 00 5 Sumartilboð 9. og 16. júní Costa del Sol Glæsilegir gististaðir í boði • Sunset Beach Club Mjög gott íbúðahótel við ströndina í Benalmadena Costa. • Amaragua Eitt vinsælasta íbúðahótelið á staðnum. • Flatotel Glæsilegur gististaður í Benalmadena. 44.900* kr. Verðdæmi á Flatotel: á mann í íbúð m/1 svefnh. m.v. að 3 ferðist saman. Enginn barnaafsláttur. Verð á aukaviku skv. verðlista. Innif.: Flug, gisting í 7 nætur, akstur til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og föst aukagjöld. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu greiðist bókunar- og þjónustugjald sem er 2.000 kr. á mann. Tryggðu þér bestu kjörin og bókaðu strax. Sunset Beach Club Fleiri eða færri? Finndu verð á þinni ferð á www.urvalutsyn.is HANNA Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í skipulagsráði Reykjavíkurborgar, segir ekki rétt sem fram kom í máli Dags B. Eggertssonar, for- manns skipulagsráðs, í Mbl. í gær að samstaða hefði verið meðal nefndarmanna um málsmeðferð hugmynda um fjölgun einbýlis- og sérbýlishúsalóða í grónum hverf- um. „Hið rétta er að fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins tóku ekki þátt í af- greiðslu málsins og bókuðu í þvís- ambandi að tillögurnar hefðu einungis verið unnar og fram sett- ar af fulltrúum R-listans. Þessar hugmyndir eru því alfarið á ábyrgð formanns skipulagsráðs og meirihlutans.“ Hanna Birna segir tillögur R- listans einkum fela í sér hugmynd- ir um að koma sérbýlum og einbýl- um fyrir á grænum svæðum í grónum hverfum borgarinnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulagsráði hafi verulegar efa- semdir um slíkar aðgerðir, enda geti þær þrengt mjög að íbúum sérstaklega í Árbæ, Fossvogi, Breiðholti, Hlíðum og Grafarvogi. Rýrir lífsgæði fólks í grónum hverfum „Við teljum lausnina á þessum vanda, sem vissulega er til staðar vegna skorts á sérbýlishúsalóðum, liggja allt annars staðar. Þessi vandi sem Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, virðist því miður fyrst núna vera að átta sig á er einungis til kominn vegna stefnu R-listans að byggja ný hverfi í Reykjavík næsta einungis upp af fjölbýlum.“ Hanna Birna bendir á að hlutfall sérbýlis í Grafarholti og Norð- lingaholti sé mjög lágt borið sam- an við íbúðir í fjölbýli sem eru um 70% íbúða í hverfunum. „Að ætla sér að bæta úr þessum vanda með því að nýta græn svæði í grónum hverfum og rýra þannig lífsgæði þeirra sem þar búa, er því miður enn eitt dæmið um bútasaum R- listans í skipulagsmálum. [...] Mín skoðun er sú að það væri miklu farsælla að leita heildarlausna í málinu og tryggja nægt framboð lóða undir sérbýli og einbýli í nýj- um hverfum. Þetta hefur því miður ekki verið gert í Reykjavík,“ segir Hanna Birna og bendir á að fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borg- arstjórn hafi til margra ára bent á mikilvægi þess að tryggja jafn- vægi milli ólíkra húsagerða í nýj- um hverfum borgarinnar. Nýjar tillögur D-lista um framtíðarþróun byggðar í Reykjavík taki mið af þessu. Hvað varðar lóð SVR á Kirkjusandi segir Hanna Birna að fulltrúar Sjálfstæðisflokks telji nýja nýtingu á þeirri lóð mikil- væga. „Enn eitt dæmið um bútasaum R-listans“ Fulltrúar D-lista í skipulagsráði sátu hjá við málsmeð- ferð hugmynda um nýtingu lóða í grónum hverfum Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is Hanna Birna Kristjánsdóttir Dagur B. Eggertsson ÞAÐ FÓR svo að lokum að lax veidd- ist á fyrsta veiðidegi í Norðurá. María Anna Clausen, kaupmaður í Veiði- horninu, setti í laxinn um níuleytið á miðvikudagskvöldið í Raflínustreng á Munaðarnessvæðinu. Var það lúsug átta punda hrygna sem tók tommu- langa túpu sem nefnd er eftir veiði- manninum, María. Lax virðist vera farinn að ganga í ána, því annar bylti sér er María Anna þreytti hrygnuna og þá sáu stjórnarmenn í SVFR tvo liggja djúpt í Myrkhyl. Af stjórninni er það annars að segja að hún var enn fisk- laus um miðjan dag í gær, en veiði- menn voru fullir bjartsýni og sögðu fiska taka hvað úr hverju. 600 í Mývatnssveit „Það er búið að fiskast mjög vel, búið að veiða um 600 silunga á fimm og hálfum veiðidegi,“ sagði Hörður Halldórsson, matsveinn í veiðihúsinu við Laxá í Mývatnssveit. Fyrsta holl- ið fékk um 330 fiska. Hörður sagði aðstæður góðar, létt- skýjað, en fluguna ekki farna að sýna sig. „Hún kemur,“ sagði hann. „Það veiddist einn þriggja kílóa urriði áðan á Arnarvatni. Fiskurinn hefur verið nokkuð vænn, hann kem- ur vel undan vetri, feitur og fínn. Og hann er að veiðast út um allt. Þetta lítur mjög vel út.“ Samkvæmt veiðibókinni í veiðihúsi Ármanna við Hlíðarvatn, veiddu þeir um 260 bleikjur í maí á þær þrjár stangir sem þar eru til umráða. Má það teljast góð veiði, ekki síst ef mið er tekið að kuldanum sem einkenndi mánuðinn. Alls er veitt á 14 stangir í vatninu. Heimildarmaður sem veiddi tvisv- ar í Hlíðarvatni í síðustu viku tók fimm bleikjur í hvorri ferð og hafði á orði að þær væru bæði vænar og vel haldnar. Þá hefur frést að innan um sé þó nokkuð um fiska sem eru um og yfir 50 cm. Sá sem þetta skrifar náði einni slíkri á dögunum og þá mun Stefán Eiríksson Ármaður hafa veitt eina 62 cm langa. Veiðimenn hafa fjölmennt að Þing- vallavatni á síðustu dögum. Margir setja í fiska og sumir nokkra. Hjón sem veiddu við Öfugsnáða náðu tíu bleikjum saman og þá hefur frést af ágætri veiði við Vatnskot og Prest- hólma. STANGVEIÐI | Fisklausir stjórnarmenn í Norðurá Morgunblaðið/Golli María Anna Clausen kastar flugunni á Stekkjarbreiðu á miðvikudag. Hún veiddi fyrsta lax ársins í Norðurá í Raflínustreng. Lax náðist þó á land veidar@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær fyrrverandi aðstoðaryf- irlögregluþjón hjá ríkislögreglu- stjóra í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að taka tvo lögreglu- jeppa í eigu embættisins traustataki og fyrir brot í opinberu starfi. Annan jeppann lét hann skrá á nafn sambýliskonu sinnar án þess að greiða fyrir hann en hinn notaði hann í eigin þágu í um níu mánuði. Aðstoðaryfirlögregluþjónninn var yfirmaður bílamiðstöðvar ríkislög- reglustjóra. Fyrir dómi sagði hann að hann hefði alltaf ætlað að greiða jeppann sem hann skráði á nafn sambýliskonu sinnar, enda væri eng- in leið að leyna því að jeppinn væri seldur. Hefði hann ámálgað það við skrifstofustjóra embættisins nokkr- um dögum eftir að hann lét umskrá jeppann en hann hefði aftekið það með öllu og sagt að kaupin yrðu að fara í gegnum Ríkiskaup. Skrifstofu- stjórinn minntist þessa samtals ekki. Yfirmenn mannsins sögðu að þegar brot mannsins komust upp hefði hann sagst hafa ætlað að borga fyrir jeppann en ekki rætt það við skrif- stofustjórann þar sem hann myndi aldrei taka slíkt í mál. Dómurinn taldi áform um greiðslu engu skipta, hann hefði gerst sekur um fjárdrátt. Hinn jeppann notaði hann heim- ildarlaus í tæplega níu mánuði og á meðan greiddi embættið tryggingar, þungaskatt og bifreiðagjöld. Dómur- inn taldi þó ekki sannað að hann hefði ekið honum um 9.000 kílómetra í eigin þágu, eins og ákært var fyrir, heldur hefði hluti af þeim akstri ver- ið í þágu ríkislögreglustjóra. Þar sem maðurinn er opinber starfsmað- ur er heimilt að bæta allt að helmingi við refsingu þeirra. Haldi maðurinn skilorð fellur refsingin niður að tveimur árum liðnum. Pétur Guðgeirsson héraðsdómari, sem tvívegis áður hefur gagnrýnt starfshætti myndatökufólks í dóm- húsinu, sagði að myndatökumenn hefðu setið fyrir manninum þegar hann sótti réttarhöldin. Hann vakti sömuleiðis athygli á því að engar reglur gilda um myndatökur í dóm- húsum, aðrar en þær að ekki má taka myndir eftir að dómþing er sett. Sigríður Friðjónsdóttir sótti málið f.h. ríkissaksóknara og Jóhannes R. Jóhannsson hrl. var til varnar. Dæmdur fyrir að taka lögreglujeppa traustataki RÍKISÚTVARPIÐ (RÚV) og 365 ljósvakamiðlar ehf. hafa boðið í UHF-rásir fyrir stafrænt sjónvarp á landsvísu, en tilboð voru opnuð hjá Póst- og fjarskiptastofnun á þriðju- dag. RÚV bauð í þrjár rásir til að dreifa sjö sjónvarpsdagskrám til 98% landsmanna fyrir 1. október 2007. Að auki hyggst RÚV dreifa háskerpu- sjónvarpi á einni rás. 365 ljósvakamiðlar ehf. buðu í tvær sjónvarpsrásir til að dreifa 7-15 sjónvarpsdagskrám. Fyrirtækið hyggst ljúka uppbyggingu á dreifi- kerfi fyrir 98% landsmanna 1. maí 2007. Ekki var sótt um rás til að dreifa háskerpusjónvarpi. Með því að bjóða út UHF-rásir er stefnt að því að sem flestir lands- menn eigi innan tveggja ára kost á að taka á móti stafrænum sjónvarps- sendingum með DVB-T tækni. Í út- boði voru gerðar þær kröfur að dreifinet bjóðenda næðu að lágmarki til 40 sveitarfélaga innan árs frá út- hlutun réttinda og til 98% heimila í landinu innan tveggja ára. Tilkynnt verður um niðurstöðu út- boðsins eigi síðar en 27. júní. Buðu í rásir fyrir stafrænt sjónvarp

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.