Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 8

Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýútkomin árs-skýrsla Land-læknisembættis- ins fyrir árið 2004 dregur upp breiða og nokkuð ít- arlega mynd af heilbrigð- isástandi íslensks sam- félags. Þar segir að merkja megi jákvæða þró- un á mörgum sviðum. Ævilíkur Íslendinga eru meiri en víðast annars staðar og mæðra- og ung- barnadauði er hvergi lægri í heiminum. Þá hef- ur dregið úr tíðni krans- æðasjúkdóma og heila- áfalla auk þess sem slysatíðni hefur lækkað. Í skýrslunni er því einnig fagn- að að enn dragi úr tóbaksreyking- um og vímuefnaneyslu ungmenna. Þá hefur tannheilsa Íslendinga batnað verulega. Þó segir einnig í skýrslunni að ólíklegt sé að langlífi Vesturlanda- búa geti haldið áfram að aukast og lífslíkur muni jafnvel minnka m.a. vegna vaxandi offitu, fíkniefna- neyslu og dauðsfalla af völdum ýmissa smitsjúkdóma og sýkinga. Í skýrslunni er enn fremur drepið á nokkrum helstu heil- brigðismálum á Íslandi þar sem úrbóta er þörf. Eru þar fyrst nefndar til sögunnar geðraskanir og hegðunarvandamál á borð við ofvirkni. Þá hvetur landlæknir til þess í inngangsorðum sínum að unnið verði áfram ötullega að því að taka á vímuefnafíkn og sölu slíkra efna. Ofþyngd og offita skipa einnig stóran sess meðal þeirra mála sem brýnt er að taka á, en um 20% íslenskra barna eru nú of þung og um 5% of feit. Eiga nú Íslendingar með sama framhaldi e.t.v. 5–10 ár í að ná Bandaríkjunum í út- breiðslu og alvarleika offitu. Í inn- gangi landlæknis segir m.a.: „Of- fita er sennilega, ásamt tóbaksreykingum, eitt af alvarleg- ustu heilbrigðisvandamálum sem við okkur blasa. Ef fer sem horfir töpum við stríðinu við ofþyngd og offitu.“ Þó segir einnig í skýrsl- unni að tekist hafi, með samstillt- um vilja samfélagsins, virkum að- gerðum og allmiklum fjármunum að draga úr tíðni kransæðasjúk- dóma, slysum og reykingum. Þá segir landlæknir: „Af hverju ætt- um við ekki að geta tekið offitu sömu tökum? Hér þurfum við að gera mun betur. Ókeypis máltíðir í öllum skólum og leikskólum, fjölgun íþrótta- eða hreyfingar- tíma í skólum og aðstoð við for- eldra vegna aðildar barna að íþróttafélögum myndu sem dæmi vega þungt.“ Fátækt mikill áhrifavaldur Þá eru í skýrslunni einnig nefnd sem mikilvæg úrlausnarefni tób- aksreykingar, ofbeldi, aðgengi að þjónustu og fátækt, en í skýrsl- unni segir að fátækt sé einn af þeim ytri þáttum sem mestu ræð- ur um almennt heilsufar. Um 7% Íslendinga búa við svonefnda hlutfallslega fátækt. Ennfremur segir landlæknir biðlista eftir hjartaþræðingum orðna óheyri- lega langa og ekki gangi að sjúk- lingar með hjartakveisu bíði mán- uðum saman eftir nauðsynlegri greiningu og meðferð. Í ársskýrslunni er einnig greint frá ýmsum verkefnum á sviði heilsuverndar og forvarna. Þar má nefna Geðræktarverkefnið, sem flutti í september aðsetur sitt til Lýðheilsustöðvar. Verkefnið, sem hóf göngu sína árið 2000, er fræðslu- og forvarnaverkefni í samstarfi Landlæknisembættis- ins, geðsviðs LHS og Heilsugæsl- unnar í Rvk., um geðheilsu og áhrifaþætti hennar og er því ætlað að upplýsa almenning og draga úr fordómum gagnvart geðsjúkdóm- um. Verkefnið hlaut sérstaka út- nefningu Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO) í Genf og Alþjóðageðheilbrigðissamtak- anna (WFMH) sem fyrirmyndar- verkefni á sviði geðræktar. Einnig má nefna fræðsluher- ferðina „Hættan er ljós“, sem er samstarfsverkefni Geislavarna ríkisins, Landlæknisembættisins, Krabbameinsfélagsins og Félags íslenskra húðlækna. Þar voru fermingarbörn vöruð við notkun ljósabekkja í undirbúningi fyrir fermingardaginn en ofnotkun ljósabekkja og of mikil sólböð geta aukið hættu á sortuæxlum. Þá var haldið áfram vinnu við verkefnið Þjóð gegn þunglyndi, en meginmarkmið þess er að draga úr þjáningum vegna þunglyndis auk annarra beinna og óbeinna af- leiðinga þunglyndis, þ.m.t. ótíma- bærum dauðsföllum. Áherslur verkefnisins eru tvíþættar; ann- ars vegar að auka færni og þekk- ingu fagfólks á sviði þunglyndis og sjálfsvíga og einnig að bæta þekk- ingu almennings á þunglyndi og sjálfsvígshegðun um leið og reynt er að draga úr fordómum. Heilsueflingarverkefni færðust á síðasta ári að miklu leyti til Lýð- heilsustöðvar, en þau verkefni miða að því að hafa áhrif á lífsstíl fólks og gera því kleift að lifa heilsusamlegu lífi við heilnæmar aðstæður. Í skýrslunni segir að margt hafi áunnist á undanförn- um áratugum er stuðli að bættri lýðheilsu hér á landi, en verkefnin snúa meðal annars að heilsuefl- ingu á vinnustöðum og skólum, lífsháttum barna og fjölskyldna og aukinni hreyfingu. Fréttaskýring | Ársskýrsla landlæknis Áhersla lögð á heilsueflingu Geðræktarverkefnið hefur hlotið sérstaka viðurkenningu WHO Smokkurinn má ekki vera neitt feimnismál. Mikilvægt að opna um- ræðu um kynsjúkdóma  Mikil áhersla hefur verið lögð á fræðslu um alnæmi og aðra kynsjúkdóma með það að mark- miði að draga úr nýsmiti. Meg- inleiðirnar eru að auka þekkingu almennings á smitleiðum og stuðla að breyttri kynhegðun m.a. með því að opna umræðuna í fjölskyldum, skólum og sam- félaginu öllu. Þannig hefur fræðsla fyrir ungt fólk verið ríkuleg og hvatt til notkunar smokka víða. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is NEMENDUR í skóla Ísaks Jóns- sonar kvöddu skólann sinn í vik- unni eftir vetrarstarfið, og sungu tæplega 220 börn fyrir fjölda for- eldra, ömmur og afa og kennara, í sólskini og blíðu. Edda Huld Sigurðardóttir, skólastjóri skólans, segir að börn- in hafi sungið eins og englar, eins og þeirra er von og vísa, og for- eldrarnir hafi verið himinsælir með athöfnina. „Þetta er eins konar sýnishorn af þeirri söng- dagskrá sem sungin er hér í skól- anum allan veturinn. Hér er mik- ið sungið, bæði farið með erfið ættjarðarljóð og líka léttara hjal.“ Morgunblaðið/Eyþór Kvöddu skólann með söng

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.