Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 10

Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STÓRIÐJUFRAMKVÆMDIR á Austurlandi og suðvesturhorni landsins, og hátt gengi krónunnar þeim samfara, eiga mestan þátt í þeim vanda sem útflutningsgreinar standa frammi fyrir í dag. Þetta er mat þeirra hagfræðinga og stjórn- málamanna sem Morgunblaðið ræddi við í tilefni frétta af fjölda- uppsögnum starfsfólks í fiskvinnslu og iðnaði síðustu daga. Þeir segja að varað hafi verið við þessum vanda og hann eigi því ekki að koma á óvart. Steingrímur J. Vigfússon, for- maður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, segir að því miður séu spádómar sínir að rætast um áhrif stóriðjuframkvæmdanna. Hann hafi varað við þessu á Alþingi þegar samþykkt var að ráðast í gerð Kárahnjúkavirkjunar en stjórnvöld hafi ekki hlustað á þau varnaðarorð. Undrast hann enn fremur þögn atvinnulífsins og sér- fræðinganna, eða þar til nú að eitt- hvert hljóð heyrist úr horni. Engu sé líkara en að þagnarsamsæri eða meðvirkni hafi verið í gangi. „Þetta hefur verið að birtast okk- ur smátt og smátt en núna skella áhrifin bara yfir okkur. Er þó ekki allt uppi á yfirborðinu sem tengist þessum ruðningsáhrifum,“ segir Steingrímur og bendir á að mörg iðnfyrirtæki séu í þessum aðstæð- um að flytja starfsemi sína úr landi. Nefnir hann sem dæmi Marel sem ætli að reisa næstu verksmiðju sína í Slóvakíu. Erfitt sé að horfa upp á marga möguleika í nýsköpun ekki verða að veruleika. Þau tækifæri verði úti í „stóriðjukuldanum“. Minnt á orð Seðlabankans Steingrímur segist í umræðum á Alþingi hafa minnt menn á að ein- blína ekki eingöngu á fjölda nýrra starfa í tengslum við álver og aðra stóriðju á Austurlandi. Hætta hafi verið á, og sé farin að koma í ljós, að tapa svipuðum fjölda starfa í öðrum atvinnugreinum á móti. „Alvarlegast er að til lengri tíma litið verður íslenskt atvinnulíf ein- hæfara. Þetta kemur niður á fjöl- breytni og nýsköpun í atvinulífinu,“ segir Steingrímur og telur sam- hengið alveg liggja ljóst fyrir milli stóriðjuframkvæmda og háu gengi krónunnar. Aðeins þurfi að vísa til greiningardeilda bankanna, skrif hagfræðinga og orða Seðlabankans í þeim efnum. Stóriðjuframkvæmdir hafi að auki reynst umfangsmeiri og þjappast saman á styttri tíma en áður hafi verið talið. Minnir Stein- grímur á að í vetur hafi Seðlabank- inn sagt í Peningamálum sínum að á næstu árum myndi reyna mjög á nýja skipan efnahagsmála. Sérfræð- ingar bankans hafi bent á að fram- kvæmdir við virkjanir og ál- bræðslur, sem saman slöguðu hátt í þriðjung af landsframleiðslu eins árs, kölluðu á meira umrót í þjóð- arbúskapnum en nokkurt annað sambærilegt land hafi þurft að glíma við. „Þarna talar Seðlabankinn, sem hefur nú ekki verið þekktur fyrir að vera í stjórnarandstöðu eða flokks- bundinn í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði. Galskapurinn í þessu nær nýjum hæðum þegar Valgerður Sverrisdóttir gengur laus og gefur nýjar yfirlýsingar um álver, beint ofan í þessa þenslu og umsögn Seðlabankans. Hún hamast í því að koma upp álveri á Norður- landi og fagnar hugmyndum um ál- ver í Helguvík og stækkanir á Grundartanga og í Straumsvík,“ segir Steingrímur og bætir því við að iðnaðarráðherra megi ekki birt- ast í sjónvarpi að tala um nýtt álver öðruvísi en að gengi krónunnar hækki daginn eftir um 1,5%. Rík- isstjórnin sé suma daga að tala upp gengið. „Ég bara trúi því ekki að menn ætli að láta hafa sig út í þetta. Er meira og minna búið að skera tung- una úr forsvarsmönnum annars at- vinnulífs? Þeir koma að vísu fram núna og væla svolítið en ég sakna þess núna að þeir tækju undir okk- ar varnaðarorð,“ segir Steingrímur. Spurður hvað stjórnvöld ættu að gera í þessari stöðu, segir Stein- grímur að þau ættu að gefa út yf- irlýsingu um að nú verði hlutirnir kældir niður. Engum nýjum stór- framkvæmdum verði hleypt af stað fram til ársins 2010, þannig að hag- kerfið nái að jafna sig og kólna. Slíkar yfirlýsingar muni strax hafa jákvæð áhrif. Bendir Steingrímur á að VG hafi í vetur, einir flokka, lagt fram tillögur á Alþingi um aðgerðir til að tryggja efnahagslegan stöð- ugleikann. Spurning um að þreyja þorrann Pétur H. Blöndal, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það hafa mildað áhrifin lengi vel á útgerðina að útflutningsverð sjávarafurða hækkaði í verði. Hækkun krónunnar hafi því ekki hitt greinina eins illa fyrir og ella hefði verið. Hins vegar lendi aðrar útflutningsgreinar, eins og iðnaður, mjög illa í því. Þetta hafi verið vitað þegar ákveðið var að ráðast í þess- ar stóriðjuframkvæmdir. Ekki megi heldur gleyma jákvæðum áhrifum framkvæmdanna, dregið hafi úr at- vinnuleysi í landinu, hagvöxtur hafi aukist og til framtíðar litið muni staða Íslands batna, líkt og við aðr- ar skynsamlegar fjárfestingar. Pétur bendir á að allir séu að spá því að gengi krónunnar muni á næsta ári og því þarnæsta lækka og erlendur gjaldeyrir hækka í verði. Sökum vaxtamunar milli Íslands og annarra landa sé þetta ekki farið að gerast, einkum vegna stefnu Seðla- bankans að halda vöxtunum uppi. „Þetta er spurning um að þreyja þorrann tólf mánuði í viðbót fyrir þessi fyrirtæki. Þá mun gengið lækka og útflutningstekjurnar aukast á ný. Þetta er spurning hve lengi tekst að halda þessum vaxta- mun uppi. Þegar krónan loks fellur mun hún væntanlega falla mjög hratt,“ segir Pétur en bendir einnig á að mörg fyrirtæki séu að flytja af- urðir sínar út í evrum, sem hafi hækkað mikið gagnvart dollar – eða þar til fyrir þremur mánuðum. Þau fyrirtæki hafi því orðið fyrir minni búsifjum en þurfi nú að glíma við mikið fall evrunnar gagnvart dollar. Spurður hvort landsbyggðin sé ekki að fara verr út úr háu gengi krónunnar en höfuðborgarsvæðið segir Pétur það varla eiga við um Austurland. Hins vegar séu sum svæði illa sett og spurning hvort það sé vegna stöðu krónunnar eða ákveðinnar byggðaþróunar. Væntingar um nýja stóriðju höfðu áhrif Friðrik Már Baldursson, prófess- or við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, segir tíðindi af uppsögnum og rekstrarvanda út- flutningsgreina ekki þurfa að koma á óvart. Bæði Seðlabankinn og stjórnmálamenn hafi bent á ruðn- ingsáhrif stóriðjuframkvæmda. Vit- að hafi verið fyrirfram að einhvers staðar myndi þrengja að, ekki síst hjá fiskvinnslufyrirtækjum þar sem lítill hlutur kostnaðar er tengdur við sjálft fiskverðið. Þau séu háðari háu gengi krónunnar en útgerð- arfyrirtækin. „Það mátti búast við einhverjum aðgerðum hjá fyrirtækjum sem standa höllum fæti og einingum sem ekki bera sig, ekki síst þegar hátt gengi krónunnar er viðvarandi. Í vor bjuggust allir við því að geng- ið myndi fara að veikjast en síðan tók það að styrkjast á ný,“ segir Friðrik og dregur þá ályktun að yf- irlýsingar og væntingar um nýja stóriðju hafi haft þar einhver áhrif, ásamt mikils vaxtamunar við útlönd sem fjárfestar hafi nýtt sér ríku- lega. Erfitt sé þó að fullyrða um ná- kvæmar ástæður þessarar gengis- breytingar. Margt annað geti komið til, eins og aukið fjármagn í hag- kerfinu með meiri eignum fólks og greiðum aðgangi að ódýru lánsfé með íbúðalánum bankanna. Friðrik Már segir að þegar horft sé á heildarstærðir í þjóðarbú- skapnum þá hljóti gengi krónunnar að veikjast, spurning sé bara hve- nær og með hvaða hætti. Staðan núna sé að mörgu leyti svipuð og í kringum árið 2000, þegar uppsveifla var á hlutabréfamörkuðum og efna- hagsspár voru allar jákvæðar. Síð- an hafi dæmið á skömmum tíma snúist við og gengi krónunnar veikst mjög hratt. Því geti spár um að gengið veikist smám saman ver- ið varhugaverðar. Varðandi gagnrýni á Seðlabank- ann um að halda uppi háum vaxta- mun vill Friðrik taka fram að bank- anum sé varla annað fært. Bankinn hafi því hlutverki að gegna að halda verðbólgunni niðri. Á miðjum stór- framkvæmdatíma verði bankinn að beita vöxtunum til að slá á áhrifin, ekki síst þegar hagkerfið sé keyrt áfram á fullum afköstum og at- vinnuleysi lítið. Eitthvað hljóti und- an að láta í þessum aðstæðum. Aðhaldsleysi í ríkisfjármálum Ólafur Darri Andrason, hagfræð- ingur ASÍ, segir Alþýðusambandið ekki hafa verið eitt um það að gagnrýna íslensk stjórnvöld fyrir stjórn efnahagsmála. Vitað hafi ver- ið fyrirfram að stóriðjuframkvæmd- irnar myndu reyna verulega á hag- kerfið. Stjórnvöld hafi hins vegar ekki nýtt þau tæki sem þau hafi haft til að draga úr verstu áhrif- unum. Nú séu að koma fram afar neikvæð áhrif á útflutnings- og samkeppnisgreinar atvinnulífsins. Aðhaldsleysi í ríkisfjármálum hafi verið aukið með boðuðum skatta- lækkunum, svo dæmi sé tekið. Seðlabankinn hafi verið einn á vakt- inni og unnið eftir settum verð- bólgumarkmiðum með því að beita stýrivöxtunum. Ólafur Darri segir ASÍ ekki hafa kallað eftir sértækum aðgerðum í gengismálum. Engar töfralausnir séu sjáanlegar í stöðunni en stjórn- völd geti haldið meira að sér hönd- um en þau hafi gert. Það myndi létta undir með Seðlabankanum en því miður sé fátt sem geti bjargað þeim 140 störfum sem hafi verið að tapast síðustu daga. Sterk króna komi illa við atvinnugreinar sem eigi allt sitt undir tekjum í erlendri mynt. Ástæða sé til að óttast frek- ari uppsagnir starfsfólks í þessum atvinnugreinum. „Stjórnvöld hlustuðu ekki á varnaðarorð“ bjb@mbl.is Friðrik Már Baldursson Pétur H. Blöndal Steingrímur J. Sigfússon Ólafur Darri Andrason MEÐ framkvæmdum við Kára- hnjúkavirkjun, álver í Reyðarfirði, stækkun Norðuráls á Grund- artanga og fleiri stórum verkefnum streymir inn í landið erlendur gjaldeyrir. Við aukið framboð af slíkum gjaldmiðlum lækkar verð þeirra gagnvart krónunni og sem kunnugt er hefur lækkun dollars verið hvað mest áberandi. Gengi krónunnar hefur einnig verið að styrkjast vegna munar á skammtímavöxtum hér á landi og erlendis en skammtímavextir eru mun hærri hér en almennt gerist erlendis. Þá eykst eftirspurn eftir íslenskum krónum en erlendir fjár- festar vilja kaupa skamm- tímaskuldabréf sem bera mun hærri ávöxtun en þau erlendu. Þetta tvennt hefur aukið inn- streymi gjaldeyris í landið og þá haft þau áhrif að gengi krónunnar hefur styrkst. Tengsl stóriðjufram- kvæmda og krónunnar Stjórnmálamenn og hag- fræðingar, sem Björn Jóhann Björnsson ræddi við, segja vanda útflutn- ingsgreinanna hafa verið fyrirséðan, þegar ákveðið var að ráðast í stór- iðjuframkvæmdirnar á Austurlandi og suðvesturhorninu. SIGURRÓS Þorgrímsdóttir tekur sæti Gunnars I. Birgissonar, Sjálf- stæðisflokki, á Alþingi næsta haust en Gunnar, sem tekur við embætti bæjarstjóra Kópavogs, fer í launalaust leyfi frá þingstörfum frá og með haustinu. Sigurrós tók nokkrum sinnum á liðnu þingi sæti þingmanna og ráðherra Sjálf- stæðisflokks á Alþingi. Hansína Ásta Björgvinsdóttir, oddviti Framsóknarflokks, sem lét af starfi bæjarstjóra í fyrradag hefur tekið við starfi formanns bæj- arráðs. Sigurrós Þor- grímsdóttir tekur sæti Gunnars HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær ökumann vöruflutningabíls því að hafa ekki virt lögboðinn hvíld- artíma ökumanna og fyrir að hafa notað blað sem skráir niður akst- urstímana lengur en í einn sólar- hring. Í dómi Hæstaréttar segir að í lögum sé ekki kveðið nægjanlega skýrt á um heimild til að refsa fyrir slík brot. Lög um hvíldartíma ökumanna byggjast á reglugerðum EES- samningsins. Slíkar reglugerðir þarf að leiða í lög hér á landi til þess að þær öðlist gildi og virðist sem ríkisvaldinu hafi eitthvað förl- ast við innleiðingu reglnanna. Í sýknudómi Hæstaréttar frá því í gær er vísað til þess að sjálfstæða verknaðarlýsingu á þeim brotum sem maðurinn var sakaður um, væri hvorki að finna í umferð- arlögum né í reglugerð. Því væri refsiheimild of óskýr til að það sam- rýmdist stjórnarskránni. Með þessu sneri Hæstiréttur við dómi Héraðs- dóms Norðurlands eystra og þar með sleppur maðurinn við að greiða 35.000 kr. sekt. Allur sak- arkostnaður og 245.000 króna málskostnaður mannsins greiðist úr ríkissjóði. Lögmaður mannsins fyrir Hæsta- rétti var Steinar Þór Guðgeirsson hrl. en Bogi Nilsson ríkissaksóknari sótti málið. Málið dæmdu Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunn- laugsson og Ólafur Börkur Þor- valdsson. Óskýr lög um hvíldartíma leiða til sýknu ÞRISVAR sinnum fleiri karlar en konur gefa blóð reglulega hjá Blóðbankanum. Að sögn Sigríðar Óskar Lárusdóttir, hjúkrunar- fræðings hjá Blóðbankanum, er meginástæðan fyrir þessum mikla mun meðganga og brjóstagjöf kvenna en þá mega þær ekki ganga á blóðbirgðir líkamans. Konur eru einnig með lægri járn- birgðir í líkamanum og geta því ekki gefið blóð eins oft og karlar. Í ár stefnir Blóðbankinn á að auka hlut kvenna í hópi reglu- legra blóðgjafa. Til að ná þessu marki hefur Blóðbankinn tekið höndum saman við Og Vodafone um að auka sýnileika Blóðbank- ans meðal fólks. Og Vodafone hef- ur styrkt Blóðbankann frá árinu 2004 við ýmis stutt kynningamál, útgáfu og fræðslustarf. Blóðbankinn fékk rúmlega 17 þúsund heimsóknir í tengslum við blóðgjafir árið 2004. Ekki veitir af því að sögn Sigríðar þarf 70 blóðgjafa á degi hverjum til að koma til móts við þarfir spít- alanna. Sigríður segir að nú þegar sum- arið er gengið í garð sé erfiðara að anna eftirspurninni. „Blóð- gjafar taka sér sumarfrí eins aðr- ir og þegar við hringjum í okkar reglulegu gjafa eru þeir oft komnir í frí.“ Hún vill því hvetja blóðgjafa til að mæta í Blóðbank- ann áður en farið er í frí. Mun fleiri karlar en konur eru blóðgjafar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.