Morgunblaðið - 03.06.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 03.06.2005, Qupperneq 11
Húsafriðunarnefnd rík- isins telur eðlilegast að Mjólkursamlagshúsið í Borgarnesi njóti stað- bundinnar hverf- isverndar. Hins vegar komi til greina að grípa til frekari aðgerða til varðveislu hússins ef þess gerist þörf en að sögn Magnúsar Skúla- sonar, forstöðumanns nefndarinnar, gæti það þýtt að húsið yrði frið- að. Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, segir að bæjaryfirvöld hafi ekki enn sótt um að láta fjarlægja húsið og að farið verði rólega í sak- irnar. „Ef það er einhver aðili sem vill eignast húsið og getur lagt fram áætlun um hvernig er hægt að gera það upp og nýta það undir starfsemi í framtíðinni skoðum við það með opnum huga,“ segir Páll en bætir við að bæjaryfirvöld ætli ekki að gera það. Á núverandi deiliskipulagi fyrir svæðið er gert ráð fyrir að húsið verði rifið til að rýma fyrir íbúabyggð. Húsafriðunarnefnd fundaði um málið í fyrradag og tók m.a. fyrir bréf sem undirbúningshópur Hollvinasamtaka Mjólkursamlagshússins sendi nefndinni. Magnús segir að nefndin taki undir rök undirbúningshópsins sem m.a. bendir á að húsið hafi menningarsögulegt gildi sem hluti af atvinnusögu héraðsins. Þá sé það iðnaðarbygging frá 4. áratug síðustu aldar og beri sterk merki Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins á þeim tíma. Mjólkursamlagshús- ið hugsanlega friðað Húsafriðunarnefnd er til í að grípa til aðgerða til varðveislu Mjólkursamlagshússins. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 11 FRÉTTIR Neskaupstaður | Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson kom til hafnar í Neskaupstað árla í gærmorgun til að taka olíu. Er skipið hið fyrsta sem nýtt olíufélag, Ís- lensk olíumiðlun ehf., þjónustar í Neskaupstað og var 140 þúsund olíulítrum dælt um borð. Íslensk olíumiðlun lauk nýlega við byggingu annars olíutanks af tveimur sem félagið hefur leyfi fyrir í Nes- kaupstað og mun m.a. þjónusta Landhelgisgæsluna og Hafrannsóknastofnun auk fiskiskipa. Íslensk olíu- miðlun var stofnuð í fyrra og er í meirihlutaeigu danska olíufélagsins Malik Supply Ltd., en nokkrir ís- lenskir aðilar standa einnig að því. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Hafró fyrsti viðskiptavinurinn AFTÖKUR án dóms og laga áttu sér stað í 47 löndum á árinu 2004 og í ellefu löndum létu yf- irvöld fólk hverfa. Þetta kemur fram í árs- skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty Int- ernational (AI) sem kynnt var nýlega. Í skýrslunni eru upplýsingar um mannrétt- indabrot í 149 löndum í heiminum. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar AI, bendir þó á að það þýði ekki að mannrétt- indabrot séu ekki framin víðar. „Þetta eru lönd- in sem við höfum heimildir frá,“ segir Jóhanna og bætir því við að samtökin verði sér úti um upplýsingar á margvíslegan hátt en að allar töl- ur sem eru birtar séu frekar vanáætlaðar en hitt. Ísland er ekki í skýrslunni nú frekar en áður en Jóhanna bendir á að Amnesty berjist helst gegn grófustu mannréttindabrotunum. „Við er- um með þannig kerfi hér á landi að mannrétt- indi eru virt. Það eru ekki stundaðar pyntingar í fangelsum hér, hér eru ekki dauðadómar og fólk er ekki að hverfa vegna skoðana sinna.“ Brot framin á hverri mínútu Jóhanna bendir á að milljónir manna um all- an heim hafi þolað mannréttindabrot á árinu 2004 og giskar á að greinar mannréttinda- sáttamála Sameinuðu þjóðanna séu brotnar á hverri mínútu. „Það er hægt að segja að skýrsl- an endurspegli á vissan hátt raddir þessara ein- staklinga. Við höldum því fram að það hafi myndast gjá á milli fyrirheita og framkvæmda stjórnvalda,“ segir Jóhanna og vísar þar til al- þjóðasamninga um mannréttindi. „Á þessu ári höfum við séð að það hefur mikið verið gert að því að grafa undan þessum viðurkenndu mann- réttindaviðmiðum. Skýrasta dæmið er endur- skilgreining Bandaríkjamanna á pyntingarhug- takinu,“ segir Jóhanna og bætir við að það sé gríðarlega alvarlegt í ljósi þess hve voldug Bandaríkin eru. Önnur lönd sem eru kannski með veikara réttarkerfi geti tekið svipaðar að- ferðir upp og talið sig hafa heimild til þess. „Það að grafa undan mannréttindum í nafni öryggis er ekki rétta leiðin til að berjast gegn ofbeldi heldur miklu frekar með réttlæti og virðingu fyrir mannréttindum.“ Jóhanna segir að mannréttindabrot ýti frekar undir ofbeldi en að þau dragi úr því. „Pyntingar snúast ekki um að ná fram upplýsingum heldur fyrst og fremst um að niðurlægja fólk og brjóta það niður andlega,“ segir Jóhanna og bendir á að játningar sem náð er fram með pyntingum gildi ekki fyrir dómstólum samkvæmt alþjóða- lögum. Fyrirtæki kynni sér alþjóðalög Að sögn Jóhönnu eru Amnesty farin að fylgj- ast betur með hegðun fyrirtækja en samtökin styðja hins vegar ekki viðskiptaþvinganir. „Við höfum á undanförnum árum lagt meiri áherslu á að skoða hvernig efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi eru virt,“ segir Jóhanna og tekur sem dæmi að í Kína, þangað sem ís- lensk fyrirtæki sækja í auknara mæli, sé bann- að að stofna frjáls verkalýðsfélög. „Margir sam- viskufangar sem við höfum verið að vinna fyrir er fólk sem hefur staðið fyrir verkföllum á vinnustöðum, hefur verið að reyna að vinna að bættum aðbúnaði á vinnustöðum eða betri kjör- um,“ segir Jóhanna og áréttar að íslensk fyr- irtæki kynni sér alþjóðlega samninga sem Ís- land er aðili að og fylgi þeim hvort sem starfsemin er á Íslandi eða í Kína. Yfirvöld létu fólk hverfa í 11 löndum Morgunblaðið/Eyþór Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International segir að mannréttindabrot séu framin á hverri mínútu í heiminum í dag. Milljónir manna þoldu mannréttindabrot árið 2004 Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is  Í 59 löndum var fólk dæmt til dauða árið 2004.  Höft voru á tjáningar- og fundafrelsi í 79 löndum.  Í austurhluta Kongó hefur ekki verið gripið til ráðstafana til að stöðva skipu- legar nauðganir á konum og börnum og jafnvel smábörnum.  Í Evrópu hefur mannréttindum ver- ið fórnað í nafni „stríðsins gegn hryðjuverkum“.  Ríkisstjórnir Evrópu hafa frekar lagt höft og hindranir á flóttafólk en að vernda það.  Í Afganistan voru margar konur fangelsaðar fyrir að strjúka að heiman eða að stunda kynlíf utan hjónabands.  Níu Finnar voru fangelsaðir fyrir að neita að gegna herþjónustu.  Ísraelsher drap meira en 700 Palest- ínumenn, þar af 150 börn.  Vopnaðir hópar Palestínumanna drápu 109 Ísraela, þar af átta börn.  Í Maynmar (Burma) voru meira en 1.300 samviskufangar.  Sífellt fleiri eru fangelsaðir vegna netnotkunar í Kína og Víetnam.  287.000 manns voru neydd til að yf- irgefa heimili sín í Kólumbíu.  Í löndum Afríku er eyðnismituðu fólki oft neitað um læknisaðstoð.  159 manns voru tekin af lífi í Íran og að minnsta kosti tíu voru undir 18 ára aldri. Punktar úr árs- skýrslu 2004 Í HÆSTARÉTTI í gær var Reykjanesbær dæmdur til að greiða fyrrum starfsmanni vatns- veitu bæjarins rúmlega 4,5 milljónir króna í biðlaun þar sem starf hans var talið hafa verið lagt niður þegar verkefni vatnsveitunnar voru flutt til Hitaveitu Suðurnesja hf. árið 2003. Með þessu var héraðsdómur staðfestur. Maðurinn hafði starfað um árabil við vatnsveituna og við stofnun Hitaveitu Suðurnesja var honum boðið þar starf sem hann þáði enda var tekið fram að hann myndi halda áunnum réttindum sínum í hinu nýja starfi. Í dómnum segir að við- urkennt hafi verið af hálfu Reykja- nesbæjar að maðurinn hefði notið lakari lífeyriskjara eftir að hann hóf störf hjá Hitaveitunni og að bæj- arfélagið hefði ekki sýnt fram á að hann nyti sambærilegra ráðningar- kjara og áður. Því yrði að líta svo á að starf hans hefði verið lagt niður og því ætti hann rétt til biðlauna í tólf mánuði. Réttur mannsins byggðist á kjarasamningi þar sem vísað er til 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Hæstiréttur taldi ekki skipta máli við túlkun samningsins þó lagaákvæðið hefði verið fellt úr gildi með lagabreytingu árið 1996 þegar sem réttur starfsmanna rík- isins til biðlauna var þrengdur. Lárentsínus Kristjánsson hrl. flutti málið f.h. bæjarfélagsins og Gestur Jónsson hrl. fyrir manninn. Málið dæmdu Guðrún Erlendsdótt- ir, Garðar Gíslason og Hrafn Bragason. Dæmdar 4,5 milljón- ir króna í biðlaun Starfið lagt niður með stofnun Hitaveitu Suðurnesja Doktorsvörn í læknadeild HÍ Í DAG, föstudaginn 3. júní kl. 13, fer fram doktorsvörn við lækna- deild Háskóla Íslands. Þá ver Krist- björn Orri Guðmundsson dokt- orsritgerð sína um genatjáningu í þroska blóðmyndandi stofnfrumna. Ritgerðin er byggð á rannsókn á genatjáningu í mismunandi hópum blóðmyndandi stofnfrumna með til- liti til endurnýjunar, skuldbind- ingar og sérhæfingar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.