Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 37

Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 37
Elsku afi. Það er á stundum sem þessum sem maður sest niður, hugs- ar, spáir í lífið og hvað það er sem gefur því gildi. Mér þótti svo vænt um afa minn enda ekki annað hægt þar sem betri afa er ekki að finna. Ekki hefði mig grunað að ég þyrfti að kveðja hann svona fljótt, þar sem hann var alltaf svo frískur og hress. Ég minnist allra stundanna sem við áttum saman í sumarbústaðinum, það voru góðir tímar. Ég var alltaf svo velkominn heim til afa míns og ömmu og var svo gott að læra heima hjá þeim öll þessi ár sem ég var í skólanum og hjálpaðir hann mér mikið með umhyggju og miklum áhuga á námi mínu. Hefði ég því gjarnan vilja hafa afa hjá mér síðast- liðinn laugardag þegar áfanganum lauk og saknaði hans mikið því ég veit að hann hefði staðið stoltur við hlið mér þann dag. Einnig sakna ég allra stunda sem við amma og afi spiluðum saman, en við gátum setið klukkutímum saman og spilað manna. Ekki má nú gleyma hafra- grautum hans afa því enginn gerir betri hafragraut en hann. Ég þakka mikið fyrir þann tíma sem við afi átt- um saman úti á Kanarí um síðustu páska, en þar var hans annað heimili og sá ég að hann naut sín vel þar. Vér kveðjum þig með þungri sorg, og þessi liðnu ár með ótal stundum ljóss og lífs oss lýsa gegnum tár. (Jón Trausti.) Elsku amma, þú hefur misst mikið en þú átt stóra fjölskyldu og munum við standa saman á þessum erfiða tíma sem bíður okkar. Elsku afi minn. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að eiga með þér, hvíldu í friði. Þín afastelpa Guðríður Hannesdóttir (Gauja). Elsku afi minn, þá ert þú búinn að kveðja þennan heim. Í hjarta mínu er ólýsanlegur söknuður sem aldrei fær læknað og aldrei fær gleymt, en ég veit að þú ert kominn á öruggan stað það eru ófáar minningar um þig, minningarnar eru einmitt fjársjóður sem við geymum alltaf. Ég man svo þegar við fórum í bústaðinn til ykkar ömmu, það var alltaf svo gaman. Ég sat tímunum saman í fanginu þínu þar sem við horfðum á eldinn í „kab- yssunni“. Ég man hvað mér fannst gaman að fá að gróðursetja jólatréð fyrir austan, en þú varst búinn að gefa öllum barnabörnum þínum tré sem komu á undan mér. Þetta var mjög sniðug hugmynd hjá þér en alls eru trén orðin tólf. Þér var umhugað að við hugsuðum vel um trén, vildir að við pissuðum á þau svo þau myndu stækka sem þau gerðu og eru nú myndarlegur skógur í dag. Á morgnana elduðum við alltaf hafra- graut og einhverra hluta vegna var þinn alltaf bestur. Æ, elsku afi, af hverju þurftir þú að fara, þetta er svo sárt því þú varst alltaf svo góður við alla, við erum miklu betri manneskjur vegna þín. Þú vildir alltaf hjálpa öllum, enda varstu með hjarta úr gulli. Núna held ég áfram að sitja fyrir framan eldinn með honum Illuga mínum og kenni honum allt um landið eins og þú kenndir mér. En ég veit að þú ert ennþá hjá okkur og átt alltaf eftir að verða í hjarta okkar. Elsku afi, veittu henni ömmu minni styrk í gegnum þetta, því þið voruð svo sæt hjón. Alveg eins og ný- byrjuð saman en samt búin að vera saman hátt í sextíu ár. Guð veri með þér elsku afi minn, takk fyrir sam- fylgdina, nú kveð ég með mikilli sorg og miklum söknuði í hjarta. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens.) Takk fyrir að vera afi minn og langafi Illuga, við Maggi elskum þig. Tinna María. Miðvikudaginn 25. maí bárust þau sorgartíðindi að elsku afi minn væri búin að kveðja þennan heim. Eftir stendur amma og stór fjölskylda sem syrgja hann mikið. Hann afi var öðlingsmaður og betri afa er ekki að finna. Ég er afa mínum þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum sam- an. Í sínum huga syrgir hver sár í hjarta gráta lætur. sinnið þjakað, þreyttur er þá er sofnar síðla nætur. En þegar veröld virðist myrk og vanti náðarljósið blíð, biðjum, Guð, þú gefir styrk af gæsku þinni þeim er líða. (Óskar Kristjánsson.) Elsku afi, ég kveð þig með miklum söknuði. Gunnar Hannesson. Fyrir hálfri öld voru engar hátimbraðar hallir þar sem nú stendur stærsti kaupstaður landsins, Kópavogur. Margir hafa lagt hönd á plóg við að reisa þennan kraftmikla kaupstað, fyrstu landnemarnir klömbruðu saman lágreistum húsum úr kassafjölum enda voru þau vart ætluð til íbúðar allt árið þó að neyðin ræki menn til heilsársdvalar. En svo óx mönnum kraftur, skipulögð byggð tók að rísa úr varanlegu efni og jafnframt settust hér að iðnaðar- menn úr öllum greinum byggingar- iðnaðar. Í dag er kvaddur einn af þeim sem stóð fyrir fjölmörgum byggingum í Kópavogi, Björn A. Kristjánsson múrarameistari. Ekki er ástæða til að fara í langa upptalningu þeirra mannvirkja er hann stóð fyrir, en þar á meðal eru helstu kennileiti Kópavogs, Kópavogskirkja og Digraneskirkja að ógleymdum brún- um þremur yfir Hafnarfjarðarveg- inn, um þá merku framkvæmd væri ástæða til að rita bók en það verður að bíða betri tíma. Leiðir okkar Björns lágu saman í fjölmörgum byggingum í Kópavogi fyrr á árum. Þó það orð lægi á okkar stéttum, múrurum og pípulagninga- mönnum, kæmi ekki alltaf sem best saman á byggingarstað þá átti það aldrei við þar sem Björn átti í hlut, efalaust vegna hans einstæðu hæfi- leika til að lynda við alla, jafnvel skapbráða iðnaðarmenn úr öðrum stéttum. Með Birni var einstaklega þægilegt að starfa í byggingum og vonandi hefur það ekki komið að sök þó rabb í dagsins önn um landsins gagn og nauðsynjar vildi stundum dragast á langinn, það var einfald- lega unnið upp ef með þurfti. En lífið var ekki aðeins strit og streð á þessum skemmtilegu árum fyrir nokkrum áratugum. Iðnaðar- mönnum, sem unnu að húsbygging- um í Kópavogi kom ekki verr saman en það, að vænn og skemmtilegur hópur fór saman í ferðir á sumrum og nefndu þær ferðir menningar- ferðir, auðvitað var Björn potturinn og pannan í þeim hópi. En ég vil þakka Birni samfylgdina víðar. Við áttum þátt í því að end- urreisa Byggingarsamvinnufélag Kópavogs og vorum saman í stjórn þess félags um árabil. Það félag leysti vanda ungra manna og kvenna á þeim árum, gerði þeim kleift að komast í eigið húsnæði sem ekki hefði tekist annars. En ekki má gleyma pólitíkinni og ævintýrinu um Þinghól. Við Björn vorum samherjar á vinstri kantin- um, Björn var sérkennileg blanda af ákveðnum sósíalista og glöggum fjármálamanni og fór vel með hvoru- tveggja. Kosningar til bæjarstjórnar ár- ið1970 gaf okkur vinstri mönnum rýra uppskeru og foringi okkar, Ólafur Jónsson, féll fyrir borð. Menn sátu hnípnir og hengdu haus og þá fékk ég þá gölnu hugmynd hvort ekki ætti að peppa upp liðið og efla innra starfið með því að reisa hús- næði fyrir samtökin, vorum þá nýbú- in að missa gamla Þinghól undir Hafnarfjarðarveginn. Fyrsti maðurinn sem ég nefndi þetta við var Björn og fór það eins og ég bjóst við; hinn varkári fjármála- maður sá á því öll tormerki. En stundum veit maður hvar á að sá og ekki leið á löngu áður en Björn var byrjaður að fylkja liði og bygging- arréttur að 3. hæð hússins við Hamraborg 11 var keyptur og þar reis samkomustaður og aðsetur fyrir Alþýðubandalagið í Kópavogi, þar reis nýr Þinghóll. Þessu aðsetri stýrðu þau hjónin Björn og Lovísa alla tíð þangað til að pólitískar hrær- ingar gerðu það að verkum að þetta gamla pólitíska hreiður var leyst upp fyrir fáum árum. En árin telja og við sem vorum í baráttunni í Kópavogi fyrr á árum erum óðum að týna tölunni og nú er Björn Kristjánsson horfinn yfir móðuna miklu, það er engin ástæða til að sýta, við erum öll á leiðinni. Ég vil þakka Birni Kristjánssyni fyrir einstaklega þægilega og far- sæla samfylgd í gegnum öll þessi ár og ég veit að ég get þar talað fyrir hönd svo fjölmargra sem gjarnan vilja vera með í þessum fátæklegu þakkar- og minningarorðum. Innilegar samúðarkveðjur til Lovísu, dætra og sona. Sigurður Grétar Guðmundsson. Skjótt hefur sól brugðið sumri, kvað Jónas, er Tómas vinur hans og félagi kvaddi þennan heim. Þá var að kveðja maður í blóma lífsins, og sem miklar vonir voru við bundnar. Hér var að kveðja maður á efri árum, maður sem virtist enn í góðu gengi til líkama og sálar. Með skjótum hætti er lífsþráðurinn slitinn og erf- itt að gera sér grein fyrir því sem gerst hefur. Eitt er raunar víst: Ævi viðkomandi er lokið fyrirvaralaust. Oft nefndi ég þann, sem horfinn er af sviðinu, jafnaldra minn, þótt hann fæddist rúmum sjö vikum seinna en ég. Hann var fæddur í sama dalnum og ég, og frumburður foreldra sinna. Ólst þar einnig upp og naut þar barnafræðslu. Björn Aðils var hann skírður og bar þar með að fornafni heiti móð- urföður síns. Hann fæddist að Hvammi í Laxárdal 15. febrúar 1924. Voru foreldrar hans Unnur Björns- dóttir og Kristján Sigurðsson, bóndasonur frá Hvammi. Þau hófu búskap á þeim bæ, ásamt föður Björns Aðils, og dætrum hans tveim- ur, vorið 1923. Þar var ekki rými fyr- ir þau að því sinni, og fluttust ungu nýgiftu hjónin utar á dalinn, að bæn- um Refsstöðum. Þar bjuggu þau far- dagaárið 1924–25 í tvíbýli við for- eldra mína, Elínu Guðmundsdóttur og Svein Hannesson frá Elivogum. Þar var húsnæði mjög takmarkað, en ungu hjónin tvenn létu sér það nægja, og sambýlið var eins og best verður á kosið. Snáðarnir tveir á fyrsta æviárinu nutu atlætis og um- hyggju hvorra tveggja hjónanna, eftir því sem við þurfti hverju sinni. En eftir árið var þessu lokið. Þá fluttust foreldrar mínir lengra út á Laxárdal, að bænum Sneis, en for- eldrar Björns Aðils að Litla-Vatns- skarði, næsta bæ til suðurs. Þar var dvalist í eitt ár, en síðan flust að Hvammi, þar sem búið var snotru búi til vors 1939, að haldið var til Skagastrandar, að bænum Háa- gerði, en loks í þorpið Höfðakaup- stað, þar sem Kristján var starfs- maður Kaupfélagsins til æviloka, sjötugur að aldri. Þegar móðir Björns Aðils lést, ár- ið 1990, níræð að aldri, skrifaði ég minningargrein um þau hjón í Morg- unblaðið og styðst ég við hana að nokkru. Þessi hjón voru miklir vinir foreldra minna, enda einkar vin- gjarnlegar manneskjur. Björn Aðils erfði eiginleika þeirra: heiðarleika og iðjusemi, ásamt alúðlegri fram- komu. Hann naut einnig trausts þeirra, sem hann starfaði með og vann fyrir. Við, snáðarnir tveir, sem ólumst upp í fjalladalnum Laxárdal, reynd- um af fremsta megni að vinna fóst- urjörð okkar, hvor með sínum hætti. Björn Aðils varð múrari að iðn og stundaði lengi byggingastarfsemi. Verka hans sér því víða stað. Við Björn hittumst öðru hverju og rifj- uðum þá upp gamla daga. Í sextugs- afmæli Sigurðar Geirdals, bæjar- stjóra í Kópavogi, 4. júlí 1999, tók ljósmyndari af okkur mynd, sem mér þykir vænt um að eiga nú, þegar vinur minn og jafnaldri er horfinn af sviði lífsins. Björn Aðils var gæfumaður í einkalífi. Hann kvæntist ungur ágætri konu og áttu þau saman fimm börn, sem öll lifa. Ævi hans bar sannarlega ávöxt. Lífið er framrás, sem ekkert stöðvar. Nú kveð ég kæran jafnaldra og vin með þökk fyrir allt. Fjölskyldunni vottast samúð við brottför hans af þessum heimi. Blessuð sé minning Björns Aðils Kristjánssonar. Auðunn Bragi Sveinsson. Fallin er frá ein af styrku stoð- unum í starfi vinstri manna í Kópa- vogi í gegnum tíðina. Björn Krist- jánsson hefur frá unga aldri verið virkur í samtökum þeirra og gegnt þar fjölda trúnaðarstarfa. Hann var í fyrstu stjórn Alþýðubandalagsins hér í bænum, oftlega á framboðslist- um til bæjarstjórnar og í trúnaðar- störfum innan flokks á landsvísu svo fátt eitt sé nefnt. Síðast var hann með okkur á vettvangi á aðalfundi Samfylkingarfélagsins í Kópavogi nú á vordögum. Við mörg munum hann þó fyrst og fremst sem fram- kvæmdastjóra Þinghóls en í því hús- næði hefur félagsstarfið haft aðstöðu um langa hríð. Björn var einn af hvatamönnum þess að ráðist var í það stórvirki upp úr 1970 að eignast eigið húsnæði og sat í stjórn Þing- hóls alla tíð. Breyttar aðstæður í stjórnmálum með langþráðri sameiningu okkar vinstri manna, leiddu af sér að Þing- hóll var leystur upp og hluthöfunum, sem margir höfðu í upphafi lagt fram hlutafé af litlum efnum, var greiddur út hlutur sinn með ávöxtun. Það fannst Birni skemmtilegt verk; að koma þeim ávísunum til skila. Eignir Alþýðubandalags og Al- þýðuflokks dugðu vel til að eignast glæsilegt framtíðarhúsnæði sem byggir á þessum gamla merg. Þar mun framlag þessara gömlu frum- herja sjást um langan aldur. Björn fylgdist með þeim rekstri af áhuga og gaf okkur góð ráð. Hann var skoðunarmaður reikninga félagsins til dauðadags og var það síðasta trúnaðarstarf hans fyrir hreyfingu vinstri manna í Kópavogi. Allt okkar starf í Þinghól var sam- ofið þeim hjónum Birni og Lovísu sem þar réð ríkjum innandyra. Það mikla starf var að mestum hluta sjálfboðastarf og ekki talið eftir að skjótast upp í Þinghól á öllum tím- um. Þau hjón voru geysisamhent í þessu starfi og í öllu sínu lífi, var gaman að sækja þau heim hvort sem það var heim í Bræðratunguna eða í sumarbústaðinn austur í Grímsnesi þar sem þau dvöldust mikið yfir sumarið. Ég var settur í stjórn Þinghóls upp úr tvítugu til að læra af þeim reyndu mönnum sem þar sátu og hef síðan átt því láni að fagna að geta kallað Björn Kristjánsson vin minn. Björn var mikilvirkur múrara- meistari hér í bæ og vanur því að segja til ungum mönnum, enda með langa og mikla starfsreynslu í bygg- ingageiranum. Okkar leiðir lágu þar saman og ég hygg að Birni hafi ekki þótt verra að ég skyldi vera iðnaðar- maður. Alltaf hefur hann verið reiðubúinn til skrafs og ráðagerða um smá mál eða stór. Verið tillögugóður og glöggur og forðaði mér á stundum frá því að gera eitthvað í fljótfærni. Það er ungum mönnum ómetanlegt að eiga slíka vini. Fyrir hönd félaga í Alþýðubanda- laginu og Samfylkingunni í Kópa- vogi færi ég Birni Kristjánssyni þakkir okkar allra fyrir allt og allt. Lovísu, börnum þeirra hjóna og af- komendum votta ég mína dýpstu samúð. Flosi Eiríksson. Í febrúar 1996 um hádegisbil á Ensku ströndinni á Kanaríeyjum. Hitinn 33° og ég á göngu um smá- hýsahverfið Santa Fe. Kom ég þar sem íslenskur fáni er við heimreið og lestur Einars Ólafs Sveinssonar á Njálu berst út um opnar dyr. Ég geri vart við mig og upp af hægindi sprettur maður sem var svo líkur hugmyndum mínum um höfðingja og ráðagerðarmenn í Njálu að furðu gegndi. Kynnti hann sig sem Björn Kristjánsson múrara úr Kópavogi en af húnvetnsku bergi brotinn og réði hann hér húsum um stundarsakir ásamt konu sinni Lovísu Hannes- dóttur sem brátt kæmi úr innkaupa- leiðangri. Bað hann mig endilega að doka. Svo kom Lovísa, sjálf alúðin og gestrisnin holdi klædd og er ekki að orðlengja það að ég hændist mjög að þeim hjónum. En þau vináttubönd sem þarna hnýttust héldu einnig vel er heim var komið. Ég var á þessum tíma að ná mér eftir erfið veikindi, var auk þess á milli kvenna og bjó við misjafnt ráðskonugengi. Vitandi um þessi mín bágindi lögðust Björn og Lovísa að alefli á árar með mér til að koma búskaparfleyinu upp úr öldudalnum. Það var paradísarheimt fyrir Björn að komast í færi við fjárstofn- inn hér á Skjaldfönn þar sem tröll- vöxnustu og afurðarmestu ær lands- ins spóka sig um víðlenda sumarhaga. Stoltið og gleðin var því ósvikin hjá honum þegar hjörðin var að gera garðinn frægan haust eftir haust enda áttu þau hjón drjúgan þátt í þeim árangri. Strax og kynni okkar höfðu tekist voru þau komin til að- stoðar á sauðburði. Síðasta liðveisla Björns í fjárhúsi hér var á síðasta hausti er ég var að taka frá sláturær. Honum varð star- sýnt á grákollótta á sem heitir Móna og spurði um aldur hennar. Hún er 8 vetra, svaraði ég , það er enginn ald- ur sagði Björn og horfði þá frá eigin sjónarhóli, nýbúinn að tala um að eitt sauðkindarár jafngilti tíu árum í mannsævi. Og svo er nafnið svo fal- legt sagði hann kíminleitur, þeirri röksemd var auðvitað ekki hægt að hafna. Í síðasta símtali okkar um sumarmálin var það fastmælum bundið að ég hringdi þegar Móna væri borin, því heilsunnar vegna taldi hann ekki gerlegt í þetta sinn að koma í sauðburð. Móna bar tveimur fallegum gráum hrútlömb- um sólarhring eftir að Björn var all- ur og því erfitt um vik að efna gefið loforð. Þó tveir áratugir væru á milli í aldri vorum við steyptir í mjög svip- að mót hvað varðaði lífsviðhorf, gild- ismat og hugðarefni. Hann var ham- ingjumaður í einkalífi, átti yndislegan lífsförunaut þar sem Lovísa var, stóran hóp mannvæn- legra afkomenda og naut virðingar, trausts og vináttu mikils fjölda sam- ferðafólks. Ég mun ævinlega minnast Björns er ég heyri góðs manns getið. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur héðan að vestan sendum við Lovísu og öðrum aðstandendum sem eiga um sárt að binda. Indriði Aðalsteinsson, Kristbjörg Lóa Árnadóttir og börn. Björn var valmenni. Ég hitti hann oft í vetur og var hann hress bæði til orðs og æðis. Vissulega var mér brugðið þegar mér var tjáð að dauða hans hefði borið að fyrirvaralaust. Ég sé eftir að hafa ekki notað tæki- færin þegar við hittumst í vetur til að þakka honum fyrir það veglyndi sem hann sýndi okkur í Krossinum á fyrstu starfsárum okkar. Við leigð- um af honum húsnæði í Auðbrekk- unni í húsi Prjónastofunnar Tinnu. Fyrst á annarri hæð, en það varð of lítið og þá fluttum við okkur á fyrstu hæðina. Það varð einnig of lítið og þá hafði hann milligöngu um að við keyptum efri hæðina á Álfhólsvegi 32. Björn var okkur traustur og góð- ur vinur og ég mat leiðsögn hans og stuðning mikils. Það var gaman að koma til þeirra Lovísu og Björns á heimi þeirra í Bræðratunguna og Björn hafði alltaf eitthvað markvert til málanna að leggja. Mér þótti vænt um þetta fólk og Björn skilur sannarlega eftir skarð. Ég votta Lovísu og börnunum samúð mína og bið góðan Guð um huggun. Gunnar Þorsteinsson.  Fleiri minningargreinar um Björn Aðils Kristjánsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Loftur Þór Pétursson, form. BK; Svava Víglundsdóttir, Unnsteinn Arason. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 37 MINNINGAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.