Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 61

Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 61 AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANÁLFABAKKI Sýningatímar 28. maí Kvikmyndir.is  THE WEDDING DATE kl. 4 - 6 - 8.15 - 10.30 CRASH kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 Kingdome Of Heaven kl. 5 - 8 - 10.30 House of Wax kl. 10.30 Star Wars - Episode III kl. 5 - 8 A LOT LIKE LOVE kl. 6 - 8 - 10 HOUSE OF WAX kl. 8 - 10 THE ICE PRINCESS kl. 6 F J Ö L S K Y L D U D A G A R MYNDIR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI 2 - 5 JÚNÍ (TILBOÐSMYNDIR MERKTAR MEÐ GRÆNU) A LOT LIKE LOVE kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 A LOT LIKE LOVE VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 HOUSE OF WAX kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 ashton kutcher RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU amanda peet Er þetta ást? Er þetta vinátta eða er þetta hvort tveggja. Þetta er mynd sem þú og þín þurfið að sjá. A LOT LIKE LOVE kl. 6 - 8.15 - 10.30 HOUSE OF WAX kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 WEDDING DATE kl. 8.15 - 10.20 PACIFIER kl. 3.45 SAHARA kl. 5.45 ICE PRINCESS kl. 2 - 4 SVAMPUR SVEINS ísl.tal. kl. 2 - 4 BANGSÍMON og FRÍLLINN ísl.tal. kl. 2 Það er gott að rækta garðinn sinn ... Glæsilegur blaðauki um garðinn fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 10.júní. Grænir fingur, blómabörn og grillmeistarar eru á leiðinni út í garð og nú er lag að minna þau á þig. Meðal efnis í blaðinu eru nýjungar í blóma- og trjáframboði, garðhúsgögn, glóðheitar grilluppskriftir, matjurtarækt, heitir pottar, hitalampar á verandir, pallaefni og margt fleira. Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16 þriðjudaginn 7. júní Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is HANN er harður heimur, tónlistar- heimurinn. Því hafa drengirnir í bresku hljómsveitinni Doves fengið rækilega að kynnast. Það getur ekki annað en tekið á taugarnar, gert menn gráhærða, að senda frá sér hverja snilld- arplötuna á fætur annarri, búa til betra popp en flestir aðrir, án þess hvorki að öðlast teljanlega virðingu né vin- sældir. Málið er nefnilega að þeir eru komnir af léttasta skeiði og munu seint prýða forsíður tísku- tímarita, blessaðir Doves-menn. Þeir eru bara alltof venjulegir kauð- ar, hljóðversrottur og bullandi mús- íkantar, sem lögðust á eitt um að búa til kröftugt og innihaldsríkt tilfinn- ingapopp. Tvær fyrstu plöturnar Lost Souls og The Last Broadcast voru báðar mjög sterkar og vaxa með tímanum, ef eitthvað. Þessi nýj- asta, Some Cities, gefur þeim ekkert eftir, inniheldur 11 sérdeilis góð lög, grípandi mjög; mikið og metn- aðarfullt popp vexti, kjörið til flutn- ings í stóru rými á hæsta mögulega hljómstyrk, en þó e.t.v. full krefjandi til að ná útvarpsspilun. Þeir sem enn hafa ekki kynnt sér Doves ættu að gera það sem allra fyrst. En góðar líkur eru á að sum- um komi til með að finnast þeir lummó; það eru og verða örlög Doves. Sumir eru lán- lausir TÓNLIST Erlendar plötur Doves - Some Cities  Skarphéðinn Guðmundsson BRESKI hönnuðurinn Alexander McQueen hefur skrifað undir samning um að hanna nýja skólínu fyrir Puma. Ekki er búið að gefa línunni nafn en hún verður kynnt til sög- unnar á tískuviku í London í september og kemur í versl- anir vorið 2006. Stella McCartney hefur hannað íþróttafa- talínu fyrir Adidas. McCartney er eins og McQueen með eigið merki undir hatti Gucci Group, sem er þriðja stærsta lúxusiðnaðarfyrirtæki í heiminum. Ný yfirstjórn Gucci Group hefur sett pressu á þau tískuhús sín sem skila ekki hagnaði til að þau geri svo árið 2007. Samningarnir við Puma og Adidas eru því góð leið með að auka hagnaðinn hjá McQueen og McCartney. Til viðbótar er svona samstarf gott til að byggja upp nafn tískumerksins og kynna það fyrir nýjum neytendum. „Alexander McQueen er einn af mest skapandi fata- hönnuðunum og samstarf hans og Puma veitir fleirum aðgang að vörum hans,“ sagði Jochen Zeitz, fram- kvæmdastjóri Puma, í tilkynningu. McQueen hefur jafnframt gert samning við Sergio Rossi um skóframleiðslu. Takmarkið er að sala á skóm og töskum verði 30% af heildarsölu tískuhússins. Puma hefur áður fengið þekkta hönnuði til liðs við sig eins og Neil Barrett, Philippe Starck og Alexander von Stubbe. Tíska | Nýtt samstarf fatahönnuðar og íþróttamerkis McQueen hannar fyrir Puma Skór úr eigin línu Alexanders McQueen en hann ætlar nú að fara að hanna íþróttaskó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.